Nations Bible

Judas 1

Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ · Toca un versículo para ver sus referencias cruzadas.

Ilustración artística: una interpretación, no un registro histórico.

Acerca de este libro

Acerca de Judas

  • El Diccionario Bíblico de Easton (1897) identifica al autor como Judas, hermano de Santiago el Menor, llamado también Lebeo y Tadeo. Otra entrada lo incluye entre los apóstolos llamados Judas y dice que el llamado hermano de Santiago puede ser el mismo Lebeo. La autenticidad de la carta se cuestionó desde temprano, y esas dudas resurgieron en la Reforma.Fuentes: Easton: Jude, Epistle of · Jude
  • El Diccionario Bíblico de Easton (1897) señala que no hay nada muy definido para fijar el tiempo o el lugar de la redacción. Sitúa la carta en el período tardío de la era apostólica, porque aún vivían personas que habían oído predicar a los apóstoles, y sugiere que pudo escribirse hacia el año 66 o 70 d.C., al parecer en Palestina.Fuentes: Easton: Jude, Epistle of
  • La carta está dirigida a los cristianos en general. Su propósito, tal como lo plantea Easton, es ponerlos en guardia contra los esfuerzos engañosos de cierta clase de maestros a los que estaban expuestos.Fuentes: Easton: Jude, Epistle of
  • Easton describe el estilo como una invectiva apasionada que acumula ejemplos de juicio divino. Entre los detalles que recogen estas fuentes, Miguel disputa con Satanás por el cuerpo de Moisés, Enoc es llamado el séptimo desde Adán, y la destrucción de Sodoma y Gomorra se vincula con Judas 1:4-7.Fuentes: Easton: Jude, Epistle of · Michael · Enoch (father of Methuselah) · Gomorrah
  • Easton observa el notable parecido entre esta carta y 2 Pedro y sugiere que el autor de una había visto la otra. La doxología con la que termina Judas es considerada, en ese diccionario, la más hermosa del Nuevo Testamento.Fuentes: Easton: Jude, Epistle of

Notas escritas con ayuda de IA a partir de fuentes abiertas (Theographic Bible Metadata, CC BY-SA 4.0; Easton’s Bible Dictionary, dominio público) y revisadas antes de publicarse.

1Frá Júdasi, þjóni Jesú Krists og bróður Jakobs.

Til kristinna manna, hvar sem þeir eru, þeirra, sem Guð faðir hefur kallað og varðveitast í Jesú Kristi. 2Ég bið þess að náð Guðs og friður, ásamt kærleika hans veitist ykkur í æ ríkari mæli.

Til varnar sannleikanum

3Elsku vinir, ég hafði hugsað mér að skrifa ykkur nokkrar línur um hjálpræðið, sem Guð hefur gefið okkur, en finn nú að ég á að skrifa um annað. Ég á að hvetja ykkur til að berjast af alefli fyrir sannleikanum, sem Guð hefur gefið okkur, börnum sínum. 4Þetta segi ég vegna þess að nokkrir menn, sem ekki þekkja Guð, hafa smeygt sér inn í ykkar hóp. Þeir segja að þegar við séum orðin kristin, getum við gert það sem okkur sýnist, án þess að þurfa að óttast dóm Guðs. Örlög slíkra manna voru ráðin þegar í byrjun, því að þeir snerust gegn leiðtoga okkar og konungi, Jesú Kristi.

5Ég vil segja við þessa menn: Gleymið ekki þeirri staðreynd – og hana þekkið þið – að Drottinn bjargaði heilli þjóð frá Egyptalandi, en síðan tortímdi hann hverjum þeim einstaklingi, meðal hennar, sem ekki treysti honum og hlýddi. 6Ég minni ykkur einnig á englana sem áður voru heilagir og hreinir, en steyptu sér síðan sjálfviljugir út í syndina. Nú geymir Guð þá í myrkrinu og þar bíða þeir dómsdags. 7Gleymið ekki heldur borgunum Sódómu og Gómorru og nágrannabæjum þeirra. Þar ríkti siðleysi og mikil kynvilla. Þessar borgir eyðilögðust í eldi og þær munu vera okkur stöðug viðvörun um refsinguna sem bíður syndaranna.

8Þrátt fyrir það halda þessir falskennendur áfram. Þeir lítilsvirða líkama sína og spotta öll yfirvöld, jafnvel þau sem eru á himnum. 9Mikael, einn voldugasti engillinn, vogaði sér ekki einu sinni að ákæra Satan né hæða hann, þegar þeir deildu um líkama Móse, hann sagði aðeins: „Drottinn refsi þér!“ 10En þessir menn hæðast að öllu og bölva því sem þeir skilja ekki. Þeir eru eins og skepnurnar. Þeir gera allt sem þá langar til, og spilla þar með sjálfum sér.

11Vei þessum mönnum! Þeir fylgja dæmi Kains, sem drap bróður sinn, og eins og Bíleam gera þeir allt fyrir peninga. Þeir hafa óhlýðnast Guði og fetað í fótspor Kóra, en fyrir það munu þeir deyja undir sömu bölvun og hann.

12Þessir menn eru til skammar við kærleiksmáltíðir kirkjunnar. Hlæjandi ryðjast þeir áfram og troða í sig án þess að taka tillit til annarra. Þeir eru eins og regnský sem fara yfir skrælnað land, án þess að gefa frá sér svo mikið sem eina einustu skúr. Þeir lofa öllu fögru, en standa ekki við neitt. Þeir líkjast ávaxtatré sem engan ávöxt ber. Þeir eru visnaðir, dauðir, því að þeir hafa verið rifnir upp með rótum og nú bíður þeirra ekkert nema eldurinn.

13Allt, sem þeir skilja eftir, er skömm og svívirðing – eins og óhrein froða, sem öldur bera á land. Þeir reika um líkt og stjörnur á myrkum brautum himinsins.

14Enok – en hann var uppi eftir daga Adams – sá fyrir sér þessa menn og sagði: „Sjá, Drottinn kemur, ásamt þúsundum sinna heilögu. 15Hann mun stefna til sín þjóðum heimsins og dæma þær með réttvísi. Allt hið illa, sem þær hafa gert í uppreisn sinni gegn Guði, mun hann draga fram í dagsljósið og opinbera allt sem þær hafa sagt gegn honum.“ 16Menn þessir finna að öllu, þeir eru aldrei ánægðir og þeir gera allt illt, sem þeim kemur í hug. Þeir eru hávaðasamir gortarar, sem sýna þeim einum virðingu, sem þeir geta hagnast á.

Byggið á réttum grunni

17Kæru vinir, minnist þess að postular Drottins Jesú Krists sögðu ykkur, 18að á síðustu tímum mundu þessir spottarar koma fram og eina markmið þeirra í lífinu væri að fara leið illskunnar, til að svala eigin nautnum. 19Þeir vekja deilur, elska hið illa og heilagan anda eiga þeir ekki.

20En þið, kæru vinir, uppbyggið sjálfa ykkur í hinni heilögu trú og lærið að biðja í krafti heilags anda.

21Forðist allt sem hindrar líf ykkar í kærleika Guðs og bíðið með þolinmæði eilífa lífsins, sem Drottinn Jesús Kristur ætlar að gefa ykkur af miskunn sinni. 22Verið mild við þá sem efagjarnir eru. 23Bjargið öðrum eins og þið væruð að hrífa þá úr eldi. Hjálpið enn öðrum til að finna Drottin, með því að sýna þeim vináttu, en gætið þess að þið dragist ekki sjálf með þeim út í syndina. Hatið syndir þeirra og forðist allt sem óhreint er.

24Dýrð sé Guði, því að hann einn er Guð og hann frelsar okkur með hjálp Jesú Krists, Drottins okkar. Honum tilheyrir dýrð, hátign, máttur og vald frá upphafi, í dag og um ókomna tíma. Hann er þess megnugur að varðveita ykkur frá hrösun og leiða ykkur fagnandi, lýtalaus og heilög inn í dýrð sína. Amen.

Júdas.

Ilustración artística: una interpretación, no un registro histórico.

¿Sabías que…?

Contender por la fe

  • La carta comienza en nombre de Judas, siervo de Jesucristo y hermano de Santiago, quien dice que debe exhortar a sus lectores a contender ardientemente por la fe confiada de una vez para siempre a los santos. El diccionario bíblico de Easton (1897) señala que Jude es otra forma de Judas, nombre que llevaron dos apóstoles —uno llamado también Lebeo o Tadeo, y Judas Iscariote— y sugiere que el hombre llamado «hermano de Santiago» puede ser el Judas apodado Lebeo.Fuentes: el propio texto bíblico · Jude
  • El ay de Judas dice que estos intrusos han seguido el camino de Caín, se han precipitado en el error de Balaam y han perecido en la rebelión de Coré. Caín, primogénito de Adán y Eva, era labrador de la tierra; la ofrenda de Abel fue aceptada y juzgada más excelente que la suya. Balaam, hijo de Beor, vivía en Petor, en Mesopotamia, y fue llamado por Balac para maldecir a Israel, pero por intervención de Dios no pudo hacerlo; Coré, un levita, encabezó una rebelión contra Moisés y Aarón, con Datán, Abiram y doscientos cincuenta príncipes, exigiendo que se restaurara el antiguo sacerdocio de los jefes de familia.Fuentes: el propio texto bíblico · Cain · Balaam · Korah (Levite)
  • Judas contrasta a quienes difaman a seres gloriosos con el arcángel Miguel, quien, al disputar con el diablo por el cuerpo de Moisés, no se atrevió a presentar contra él una acusación injuriosa, sino que dijo: «¡El Señor te reprenda!». El diccionario bíblico de Easton (1897) describe a Miguel como uno de los principales ángeles, con un encargo especial sobre Israel como nación, y señala que disputó con Satanás acerca del cuerpo de Moisés.Fuentes: el propio texto bíblico · Michael

Notas escritas con ayuda de IA a partir de fuentes abiertas (Theographic Bible Metadata, CC BY-SA 4.0; Easton’s Bible Dictionary, dominio público) y revisadas antes de publicarse.

Lugares de este capítulo

  • Egypt · 30.129, 31.308 · versículo 5

Solo aparecen lugares identificados con alta confianza (90 % o más según las fuentes académicas reunidas por OpenBible). Mapa de la época: DARE (Digital Atlas of the Roman Empire), CC BY 4.0; mapa actual: © colaboradores de OpenStreetMap; lugares: OpenBible.info (CC BY 4.0).

Créditos y licencia de esta traducción
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Icelandic: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ (New Testament+)
copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc.
Language: Íslenska (Icelandic)
Contributor: Biblica, Inc.
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
Creative Commons License
Þetta verk er gert aðgengilegt samkvæmt CC BY-SA leyfinu (Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License). Til að skoða afrit af þessu leyfi skaltu fara á https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 eða senda bréf til Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, Bandaríkjunum.
Biblica® er vörumerki skráð af Biblica, Inc., og notkun á Biblica® vörumerkinu krefst skriflegs leyfis Biblica, Inc. Samkvæmt skilmálum CC BY-SA leyfisins geturðu afritað og endurdreift þessu óbreyttu verki svo framarlega sem þú heldur Biblica® vörumerkinu óskertu. Ef þú breytir afriti eða þýðir þetta verk og býrð þannig til afleitt verk, verður þú að fjarlægja Biblica® vörumerkið. Á afleidda verkinu verður þú að tilgreina hvaða breytingar þú hefur gert og eigna verkið á eftirfarandi hátt: "Upprunalega verkið eftir Biblica, Inc. er fáanlegt ókeypis á www.biblica.com og open.bible ."
Tilkynning um höfundarrétt verður að birtast á titla- eða höfundarréttarsíðu verksins sem hér segir:
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
Þú verður einnig að gera afleidda verkið þítt aðgengilegt samkvæmt sama leyfi (CC BY-SA).
Ef þú vilt láta Biblica, Inc. vita um þýðingu þína á þessu verki, vinsamlegast hafðu samband við okkur á https://open.bible/contact .
This work is made available under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License (CC BY-SA). To view a copy of this license, visit https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 or send a letter to Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, USA.
Biblica® is a trademark registered by Biblica, Inc., and use of the Biblica® trademark requires the written permission of Biblica, Inc. Under the terms of the CC BY-SA license, you may copy and redistribute this unmodified work as long as you keep the Biblica® trademark intact. If you modify a copy or translate this work, thereby creating a derivative work, you must remove the Biblica® trademark. On the derivative work, you must indicate what changes you have made and attribute the work as follows: “The original work by Biblica, Inc. is available for free at www.biblica.com and open.bible .”
Notice of copyright must appear on the title or copyright page of the work as follows:
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
You must also make your derivative work available under the same license (CC BY-SA).
If you would like to notify Biblica, Inc. regarding your translation of this work, please contact us at https://open.bible/contact .
This translation is made available to you under the terms of the
Creative Commons Attribution Share-Alike license 4.0.
You have permission to share and redistribute this Bible translation in any format and to make reasonable revisions and adaptations of this translation, provided that:
You include the above copyright and source information.
If you make any changes to the text, you must indicate that you did so in a way that makes it clear that the original licensor is not necessarily endorsing your changes.
If you redistribute this text, you must distribute your contributions under the same license as the original.
Pictures included with Scriptures and other documents on this site are licensed just for use with those Scriptures and documents.
For other uses, please contact the respective copyright owners.
Note that in addition to the rules above, revising and adapting God's Word involves a great responsibility to be true to God's Word. See Revelation 22:18-19.
2025-05-03

Fuente: http://ebible.org/isl/ · eBible.org

Habla con nosotros

Cuéntanos desde dónde lees, cómo te ha ayudado la Biblia o qué podemos mejorar. Leemos todos los mensajes.