Juan 9
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ · Toca un versículo para ver sus referencias cruzadas.
Jesús læknar blindan mann
1Eitt sinn er Jesús var á gangi, sá hann mann sem hafði verið blindur frá fæðingu.
2„Meistari,“ sögðu lærisveinar hans, „hvers vegna fæddist þessi maður blindur? Var það vegna þess að hann syndgaði eða foreldrar hans?“
3„Hvorugt,“ svaraði Jesús. „Það er til að sýna mátt Guðs. 4Okkur ber að vinna verk þess sem sendi mig, meðan dagur er. Senn kemur nótt og þá leggst öll vinna niður. 5En meðan ég er enn í heiminum, er ég ljós heimsins.“
6Síðan hrækti hann á jörðina, bjó til leðju úr munnvatninu, bar hana á augu blinda mannsins 7og sagði: „Farðu og þvoðu þér í Sílóamlaug.“ (Orðið „Sílóam“ merkir „sendur.“) Maðurinn fór og þvoði sér og kom aftur sjáandi!
8Nágrannar hans og aðrir, sem vissu að hann hafði verið blindur betlari, spurðu nú hver annan: „Er þetta sami maðurinn – betlarinn?“
9Svörin voru á ýmsa vegu og margir hugsuðu: „Þetta getur ekki verið hann, en hann lítur þó eins út!“
En betlarinn sagði: „Ég er maðurinn.“
10Þá spurðu þeir hann hvernig hann hefði fengið sjónina. „Hvað gerðist?“
11„Maður, sem þeir kalla Jesú,“ svaraði hann, „bjó til leðju, bar hana á augu mín og sagði mér síðan að fara og þvo hana burt í Sílóamlauginni. Ég gerði eins og hann sagði, og fékk sjónina!“
12„Hvar er Jesús núna?“ spurðu þeir.
„Ég veit það ekki,“ svaraði hann.
13Þá fóru þeir með manninn til faríseanna. 14Nú vildi svo til að kraftaverkið hafði gerst á hvíldardegi. 15Farísearnir kröfðu manninn því sagna um atburðinn. Hann sagði þeim hvernig Jesús hefði borið leðjuna á augun og hvernig sjónin hefði komið þegar hann þvoði sér.
16„Þessi Jesús er ekki frá Guði, fyrst hann vinnur á hvíldardögum,“ sögðu sumir þeirra.
Aðrir sögðu: „En hvernig getur þá venjulegur syndari gert slík kraftaverk?“ Þetta varð þeim efni í mikla þrætu.
17Farísearnir sneru sér nú að manninum sem hafði verið blindur og spurðu ákveðnir: „Hvað vilt þú sjálfur segja um þennan mann sem gaf þér sjónina?“
„Ég held hann hljóti að vera spámaður, sendur af Guði,“ svaraði maðurinn.
18Leiðtogar Gyðinga vildu ekki trúa því að maðurinn hefði verið blindur og sendu því eftir foreldrum hans, 19og spurðu: „Er þetta sonur ykkar? Fæddist hann blindur? Og ef svo er, hvernig hefur hann þá fengið sjónina?“
20„Við vitum að hann er sonur okkar og að hann fæddist blindur,“ svöruðu foreldrar hans, 21„en við vitum ekki hver gaf honum sjónina, spyrjið hann sjálfan, hann ætti að vera nógu gamall til að svara fyrir sig.“
22Þetta sögðu þau af ótta við leiðtogana, en þeir höfðu sagt að hver sá sem segði að Jesús væri Kristur, fengi ekki að sækja guðsþjónustur.
24Þeir kölluðu því aftur á manninn, sem verið hafði blindur og sögðu: „Gefðu Guði dýrðina, en ekki Jesú, því að við vitum að Jesús er vondur maður.“
25„Ekki er það mitt að segja hvort hann sé vondur eða góður,“ svaraði maðurinn, „en það veit ég, að ég, sem var blindur, er nú sjáandi!“
26„En hvað gerði hann?“ spurðu þeir, „hvernig læknaði hann þig?“ 27„Nei, heyrið mig nú!“ hrópaði maðurinn. „Ég hef þegar sagt ykkur það einu sinni. Tókuð þið ekki eftir, eða hvað? Hvers vegna viljið þið fá að heyra það aftur? Ætlið þið kannski líka að verða lærisveinar hans?“
28Þá formæltu þeir honum og sögðu: „Þú ert lærisveinn hans, en við erum lærisveinar Móse. 29Við vitum að Guð talaði við Móse, en um þennan mann vitum við ekkert.“
30„Nú, það er einkennilegt,“ svaraði maðurinn. „Hann læknar hina blindu, en samt vitið þið ekkert um hann. 31Það er nú einu sinni svo að Guð hlustar ekki á vonda menn, heldur á þá sem tilbiðja hann og gera vilja hans. 32Frá því heimurinn varð til hefur enginn maður getað opnað augu blindra, 33og ef þessi maður er ekki frá Guði, þá gæti hann ekki gert þetta.“
34„Þú sem ert fáfróður og fæddur í synd,“ hrópuðu þeir, „ætlar þú nú að fara að kenna okkur?!“ Og þeir fleygðu honum á dyr.
35Þegar Jesús frétti hvað gerst hafði, leitaði hann manninn uppi og sagði: „Trúir þú á Krist?“ 36„Já, mig langar til þess,“ svaraði maðurinn, „en hver er hann, herra?“
37„Þú hefur þegar séð hann,“ svaraði Jesús, „hann er sá sem við þig talar.“
38„Já, Drottinn,“ sagði maðurinn, „ég trúi.“ Og hann veitti Jesú lotningu og kraup við fætur hans.
39Jesús sagði þá við hann: „Ég kom í heiminn til að opna augu blindra og loka augum þeirra sem halda sig sjá.“
40Farísearnir, sem stóðu þar rétt hjá, spurði þá: „Áttu við að við séum blindir?“
41„Ef þið væruð blindir, þá væruð þið ekki sekir,“ svaraði Jesús, „en nú segist þið vera sjáandi, en farið þó ekki eftir orðum mínum – sekt ykkar varir við.“

¿Sabías que…?
El hombre ciego de nacimiento
- El estanque de Siloé, adonde Jesús mandó al hombre a lavarse, se explica en el relato como Enviado; una nota sobre el lugar también vierte el nombre como Enviado o envío. Esa nota identifica el estanque con Birket Silwan, en el valle inferior del Tiropeón, al sureste del monte Sion. El agua llegaba de manera intermitente por un canal subterráneo sinuoso de 1750 pies, aunque la distancia directa era de solo 1100 pies, desde la Fuente de la Virgen, y el estanque medía 53 pies de norte a sur, 18 pies de ancho y 19 de profundidad.Fuentes: Siloam · el propio texto bíblico
- Los discípulos de Jesús suponían que alguien había pecado, el hombre o sus padres, porque había nacido ciego. Jesús respondió que ni él ni sus padres habían pecado y que esto había ocurrido para que las obras de Dios se manifestaran en él. Aun después, algunos de los que interrogaban al hombre hablaron de él como nacido en pleno pecado.Fuentes: el propio texto bíblico
- El día en que Jesús hizo barro y abrió los ojos del hombre era sábado, y los fariseos quedaron divididos: unos decían que no venía de Dios porque no guardaba el sábado, mientras otros preguntaban cómo un hombre pecador podía realizar tales señales. Los padres del hombre tuvieron miedo de decir cómo veía ahora, porque quien confesara a Jesús como el Cristo sería expulsado de la sinagoga. Una cronología del suceso sitúa la curación en el año 29 d. C. y le asigna la duración de un día.Fuentes: el propio texto bíblico · Blind Man Healed
Notas escritas con ayuda de IA a partir de fuentes abiertas (Theographic Bible Metadata, CC BY-SA 4.0; Easton’s Bible Dictionary, dominio público) y revisadas antes de publicarse.
Lugares de este capítulo
Solo aparecen lugares identificados con alta confianza (90 % o más según las fuentes académicas reunidas por OpenBible). Mapa de la época: DARE (Digital Atlas of the Roman Empire), CC BY 4.0; mapa actual: © colaboradores de OpenStreetMap; lugares: OpenBible.info (CC BY 4.0).
Créditos y licencia de esta traducción
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Icelandic: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ (New Testament+) copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc. Language: Íslenska (Icelandic) Contributor: Biblica, Inc. Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. Creative Commons License Þetta verk er gert aðgengilegt samkvæmt CC BY-SA leyfinu (Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License). Til að skoða afrit af þessu leyfi skaltu fara á https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 eða senda bréf til Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, Bandaríkjunum. Biblica® er vörumerki skráð af Biblica, Inc., og notkun á Biblica® vörumerkinu krefst skriflegs leyfis Biblica, Inc. Samkvæmt skilmálum CC BY-SA leyfisins geturðu afritað og endurdreift þessu óbreyttu verki svo framarlega sem þú heldur Biblica® vörumerkinu óskertu. Ef þú breytir afriti eða þýðir þetta verk og býrð þannig til afleitt verk, verður þú að fjarlægja Biblica® vörumerkið. Á afleidda verkinu verður þú að tilgreina hvaða breytingar þú hefur gert og eigna verkið á eftirfarandi hátt: "Upprunalega verkið eftir Biblica, Inc. er fáanlegt ókeypis á www.biblica.com og open.bible ." Tilkynning um höfundarrétt verður að birtast á titla- eða höfundarréttarsíðu verksins sem hér segir: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. Þú verður einnig að gera afleidda verkið þítt aðgengilegt samkvæmt sama leyfi (CC BY-SA). Ef þú vilt láta Biblica, Inc. vita um þýðingu þína á þessu verki, vinsamlegast hafðu samband við okkur á https://open.bible/contact . This work is made available under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License (CC BY-SA). To view a copy of this license, visit https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 or send a letter to Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, USA. Biblica® is a trademark registered by Biblica, Inc., and use of the Biblica® trademark requires the written permission of Biblica, Inc. Under the terms of the CC BY-SA license, you may copy and redistribute this unmodified work as long as you keep the Biblica® trademark intact. If you modify a copy or translate this work, thereby creating a derivative work, you must remove the Biblica® trademark. On the derivative work, you must indicate what changes you have made and attribute the work as follows: “The original work by Biblica, Inc. is available for free at www.biblica.com and open.bible .” Notice of copyright must appear on the title or copyright page of the work as follows: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. You must also make your derivative work available under the same license (CC BY-SA). If you would like to notify Biblica, Inc. regarding your translation of this work, please contact us at https://open.bible/contact . This translation is made available to you under the terms of the Creative Commons Attribution Share-Alike license 4.0. You have permission to share and redistribute this Bible translation in any format and to make reasonable revisions and adaptations of this translation, provided that: You include the above copyright and source information. If you make any changes to the text, you must indicate that you did so in a way that makes it clear that the original licensor is not necessarily endorsing your changes. If you redistribute this text, you must distribute your contributions under the same license as the original. Pictures included with Scriptures and other documents on this site are licensed just for use with those Scriptures and documents. For other uses, please contact the respective copyright owners. Note that in addition to the rules above, revising and adapting God's Word involves a great responsibility to be true to God's Word. See Revelation 22:18-19. 2025-05-03
Fuente: http://ebible.org/isl/ · eBible.org