Juan 19
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ · Toca un versículo para ver sus referencias cruzadas.
1Þá lét Pílatus húðstrýkja Jesú. 2Og að því loknu bjuggu hermennirnir til kórónu úr þyrnum, settu hana á höfuð hans og færðu hann síðan í purpurarauða skikkju.
3„Lengi lifi konungur Gyðinga!“ hrópuðu þeir í hæðnistóni og börðu hann.
4Pílatus fór nú aftur út og sagði við Gyðingana: „Ég ætla að leiða hann fram fyrir ykkur, en gerið ykkur ljóst að ég finn enga sök hjá honum.“ 5Jesús gekk þá út í skikkjunni rauðu og með þyrnikórónuna á höfði. Þá sagði Pílatus: „Sjáið manninn!“
6Þegar æðstu prestarnir og embættismennirnir sáu Jesú, æptu þeir og sögðu: „Krossfestu! Krossfestu hann!“
„Krossfestið þið hann sjálfir,“ svaraði Pílatus, „ég finn alls enga sök hjá honum.“
7Þá svöruðu þeir: „Samkvæmt okkar lögum á hann að deyja, því að hann sagðist vera sonur Guðs.“
8Þegar Pílatus heyrði þetta, varð hann enn hræddari. 9Aftur fór hann með Jesú inn í höllina og spurði: „Hvaðan ertu?“ Jesús svaraði engu.
10„Svaraðu mér!“ sagði Pílatus ógnandi. „Veistu ekki að ég hef vald til að láta þig lausan og ég hef einnig vald til að krossfesta þig?“
11Jesús svaraði: „Þú hefðir ekkert vald yfir mér, ef þér væri ekki gefið það að ofan og því er synd þeirra, sem leiddu mig hingað, meiri en þín.“
12Pílatus reyndi enn að fá hann lausan, en þá sögðu leiðtogar Gyðinga við hann: „Ef þú sleppir honum, þá ertu óvinur keisarans, því sá sem segist vera konungur, rís gegn keisaranum!“
13Þegar Pílatus heyrði þetta, leiddi hann Jesú aftur fram fyrir þá og settist í dómarasætið. 14Þetta var um sexleytið að morgni, daginn fyrir páskahátíðina.
Pílatus sagði nú við Gyðingana: „Hér er konungur ykkar!“
15„Burt með hann!“ æptu þeir, „burt, með hann – krossfestu hann!“
„Hvað þá? Krossfesta konung ykkar?“ spurði Pílatus.
„Við höfum engan konung nema keisarann,“ hrópuðu æðstu prestarnir.
16Þá lét Pílatus Jesú í hendur þeirra að hann yrði krossfestur.
Krossfestingin
17Loksins höfðu Gyðingar Jesú á sínu valdi. Þeir fóru með hann út úr borginni og hann bar kross sinn til staðar sem kallast Hauskúpa eða Golgata á hebresku. 18Þar krossfestu þeir hann og tvo aðra með honum, Jesú í miðið, en hina sinn til hvorrar handar. 19Pílatus lét setja skilti á krossinn uppi yfir Jesú, þar sem stóð: „Jesús frá Nasaret, konungur Gyðinga.“ 20Staðurinn þar sem Jesús var krossfestur, var nálægt borginni og því lásu margir það sem á skiltinu stóð. Áritunin var á hebresku, latínu og grísku.
21Æðstu prestarnir sögðu þá við Pílatus: „Breyttu þessu og láttu standa: „Hann sagði: Ég er konungur Gyðinga.“ “
22Pílatus svaraði: „Það sem ég hef skrifað, það hef ég skrifað. Því verður ekki breytt.“
23Þegar hermennirnir höfðu krossfest Jesú, skiptu þeir fötum hans í fjóra hluta, svo að hver fékk sinn hlut. Síðan sögðu þeir: „Við skulum ekki skipta kyrtlinum í fernt, því að hann er prjónaður og hvergi samsettur, við skulum heldur varpa hlutkesti um hann.“ Þar með rættist ritningarstaður sem segir svo: „Þeir skiptu með sér klæðum mínum og vörpuðu hlutkesti um kyrtil minn.“
25Það var einmitt þetta sem þeir gerðu. Nálægt krossi Jesú stóð María móðir hans, María móðursystir hans, kona Kleófasar og María Magdalena. 26Þegar Jesús sá móður sína standa þar hjá nánasta vini sínum, sagði hann við hana: „Hann er sonur þinn.“
27Síðan sagði hann við mig: „Hún er móðir þín.“ Frá þeirri stundu tók ég hana inn á heimili mitt.
28Nú vissi Jesús að öllu var lokið og því sagði hann, til þess að uppfylla spádóm Biblíunnar: „Mig þyrstir.“ 29Rétt þar hjá stóð krukka með súru víni. Svampur var vættur í víninu og festur á ísópsgrein, sem síðan var rétt upp að vörum hans.
30Eftir að Jesús hafði bragðað á víninu sagði hann: „Það er fullkomnað!“ Síðan hneig höfuð hans og hann gaf upp andann.
31Menn vildu ekki láta fangana hanga þarna næsta dag, sem var helgidagur (mesti helgidagur ársins – páskarnir). Þeir báðu því Pílatus að skipa svo fyrir að fótleggir mannanna skyldu brotnir, og þannig flýtt fyrir dauða þeirra, svo að hægt yrði að taka líkin niður. 32Hermennirnir komu því og brutu beinin í mönnunum tveimur, sem krossfestir höfðu verið með Jesú. 33En þegar að honum kom, sáu þeir að hann var þegar dáinn og brutu því ekki bein hans.
34Einn hermannanna stakk spjóti í síðu Jesú og rann þá út blóð og vatn. 35Ég sá þetta allt sjálfur og skýri hér satt frá, svo að þið getið einnig trúað.
36Þetta gerðu hermennirnir til að rættist ritningarstaður sem þannig hljóðar: „Ekkert af beinum hans mun brotið verða,“ og „þeir munu horfa á þann sem þeir stungu“.
Jesús lagður í gröf
38Jósef frá Arímaþeu, sem var lærisveinn Jesú á laun, af ótta við leiðtoga Gyðinga, bað Pílatus um leyfi til að taka líkama Jesú niður og leyfði Pílatus honum það. 39Nikódemus, maðurinn sem eitt sinn hafði komið til Jesú seint um kvöld, kom einnig og hafði með sér fimmtíu kíló af smyrslum sem gerð voru úr myrru og alóe. 40Þeir hjálpuðust síðan að við að vefja líkama Jesú í léreftsdúk, smurðan ilmsmyrslum, en slíkt er venja við greftranir hjá Gyðingum. 41Rétt hjá aftökustaðnum var trjálundur. Þar var ný gröf, sem aldrei hafði verið notuð. 42Vegna hátíðarinnar, sem hófst klukkan sex síðdegis, þurftu mennirnir að hafa hraðan á og vegna þess hve gröfin var nálægt, lögðu þeir hann þar.

¿Sabías que…?
Juicio, cruz y sepultura
- Poncio Pilato, el sexto procurador romano de Judea (26-36 d.C.), tenía su sede en Cesarea, pero subía a menudo a Jerusalén. Los gobernadores romanos solían instalar el tribunal al aire libre; Juan sitúa el tribunal de Pilato en el Enlosado, llamado Gábata en hebreo, un mosaico de piedras de colores fuera del pretorio, explicado como el monte del templo pavimentado donde se alzaba la fortaleza Antonia.Fuentes: Pontius Pilate · Pavement · Gabbatha · el propio texto bíblico
- Los evangelistas interpretan Gólgota como “el lugar de la calavera”: el nombre transcribe el arameo Gulgaltha, el hebreo gulgoleth, “calavera”, y designa el mismo lugar llamado Calvario, descrito como un pequeño montículo redondeado como un cráneo desnudo, fuera de la puerta y cerca de la ciudad. Por estar tan cerca, muchos judíos pudieron leer el letrero de Pilato, escrito en hebreo, latín y griego, que nombraba a Jesús de Nazaret —el pueblo donde habían vivido José y María— como Rey de los judíos.Fuentes: Golgotha · Nazareth · el propio texto bíblico
- José de Arimatea, miembro rico del Sanedrín y natural de Arimatea —probablemente la Ramá del Antiguo Testamento, aunque otros la identifican con Ramleh o con Ramá de Benjamín—, pidió el cuerpo a Pilato, quien accedió después de que el centurión confirmara que Jesús había muerto. Nicodemo, fariseo de ese consejo que antes había visitado a Jesús de noche, trajo unas setenta y cinco libras de mirra y áloes; envolvieron el cuerpo en lienzos con las especias, según la costumbre judía, y lo pusieron en un sepulcro nuevo en un huerto cercano, porque era el día de la Preparación y el día siguiente era un gran sábado.Fuentes: Joseph (of Arimathea) · Nicodemus · Arimathea · el propio texto bíblico
Notas escritas con ayuda de IA a partir de fuentes abiertas (Theographic Bible Metadata, CC BY-SA 4.0; Easton’s Bible Dictionary, dominio público) y revisadas antes de publicarse.
Lugares de este capítulo
Solo aparecen lugares identificados con alta confianza (90 % o más según las fuentes académicas reunidas por OpenBible). Mapa de la época: DARE (Digital Atlas of the Roman Empire), CC BY 4.0; mapa actual: © colaboradores de OpenStreetMap; lugares: OpenBible.info (CC BY 4.0).
Créditos y licencia de esta traducción
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Icelandic: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ (New Testament+) copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc. Language: Íslenska (Icelandic) Contributor: Biblica, Inc. Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. Creative Commons License Þetta verk er gert aðgengilegt samkvæmt CC BY-SA leyfinu (Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License). Til að skoða afrit af þessu leyfi skaltu fara á https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 eða senda bréf til Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, Bandaríkjunum. Biblica® er vörumerki skráð af Biblica, Inc., og notkun á Biblica® vörumerkinu krefst skriflegs leyfis Biblica, Inc. Samkvæmt skilmálum CC BY-SA leyfisins geturðu afritað og endurdreift þessu óbreyttu verki svo framarlega sem þú heldur Biblica® vörumerkinu óskertu. Ef þú breytir afriti eða þýðir þetta verk og býrð þannig til afleitt verk, verður þú að fjarlægja Biblica® vörumerkið. Á afleidda verkinu verður þú að tilgreina hvaða breytingar þú hefur gert og eigna verkið á eftirfarandi hátt: "Upprunalega verkið eftir Biblica, Inc. er fáanlegt ókeypis á www.biblica.com og open.bible ." Tilkynning um höfundarrétt verður að birtast á titla- eða höfundarréttarsíðu verksins sem hér segir: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. Þú verður einnig að gera afleidda verkið þítt aðgengilegt samkvæmt sama leyfi (CC BY-SA). Ef þú vilt láta Biblica, Inc. vita um þýðingu þína á þessu verki, vinsamlegast hafðu samband við okkur á https://open.bible/contact . This work is made available under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License (CC BY-SA). To view a copy of this license, visit https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 or send a letter to Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, USA. Biblica® is a trademark registered by Biblica, Inc., and use of the Biblica® trademark requires the written permission of Biblica, Inc. Under the terms of the CC BY-SA license, you may copy and redistribute this unmodified work as long as you keep the Biblica® trademark intact. If you modify a copy or translate this work, thereby creating a derivative work, you must remove the Biblica® trademark. On the derivative work, you must indicate what changes you have made and attribute the work as follows: “The original work by Biblica, Inc. is available for free at www.biblica.com and open.bible .” Notice of copyright must appear on the title or copyright page of the work as follows: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. You must also make your derivative work available under the same license (CC BY-SA). If you would like to notify Biblica, Inc. regarding your translation of this work, please contact us at https://open.bible/contact . This translation is made available to you under the terms of the Creative Commons Attribution Share-Alike license 4.0. You have permission to share and redistribute this Bible translation in any format and to make reasonable revisions and adaptations of this translation, provided that: You include the above copyright and source information. If you make any changes to the text, you must indicate that you did so in a way that makes it clear that the original licensor is not necessarily endorsing your changes. If you redistribute this text, you must distribute your contributions under the same license as the original. Pictures included with Scriptures and other documents on this site are licensed just for use with those Scriptures and documents. For other uses, please contact the respective copyright owners. Note that in addition to the rules above, revising and adapting God's Word involves a great responsibility to be true to God's Word. See Revelation 22:18-19. 2025-05-03
Fuente: http://ebible.org/isl/ · eBible.org