Nations Bible

Juan 11

Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ · Toca un versículo para ver sus referencias cruzadas.

Lasarus deyr

1Maður nokkur hét Lasarus og bjó í Betaníu ásamt systrum sínum, Maríu og Mörtu. 2María var sú sem eitt sinn hellti dýrri ilmolíu yfir fætur Jesú og þurrkaði þá með hári sínu. 3Systurnar Marta og María sendu nú svohljóðandi boð til Jesú: „Herra, sá sem þú elskar, Lasarus, er hættulega veikur.“

4Þegar Jesús fékk skilaboðin, sagði hann: „Þessi veikindi munu ekki enda með dauða, heldur er þeim ætlað að verða Guði til dýrðar og vegsama mig, son Guðs.“

5Jesú þótti mjög vænt um Mörtu, Maríu og Lasarus, 6en dvaldist þó enn í tvo daga þar sem hann var og sýndi ekki á sér fararsnið. 7Loks, að þeim tíma liðnum, sagði hann við lærisveina sína: „Við skulum fara til Júdeu.“

8„Já, en meistari!“ sögðu lærisveinarnir, „það eru aðeins nokkrir dagar síðan leiðtogarnir í Júdeu reyndu að drepa þig. Ætlarðu að fara þangað aftur?“

9„Það er bjart tólf stundir á dag,“ svaraði Jesús, „og þá getur maður gengið um öruggur án þess að hrasa, 10en á nóttunni er manni hætt við að hrasa vegna myrkursins.“ 11Síðan bætti hann við og sagði: „Lasarus, vinur okkar, er sofnaður, en nú ætla ég að fara og vekja hann!“

12Lærisveinarnir héldu þá að Lasarus hefði fengið góðan nætursvefn og sögðu: „Það er gott að heyra, þá hlýtur honum að vera farið að batna!“ Jesús átti hins vegar við að Lasarus væri dáinn.

14Jesús sagði því við þá berum orðum: „Lasarus er dáinn, 15en það gleður mig ykkar vegna, því að þetta mun styrkja ykkur í trúnni. Komið, við skulum fara til hans.“

16Tómas, sem kallaður var „tvíburinn“, sagði þá við hina lærisveinana: „Við skulum fara líka og deyja með honum.“

17Þegar þeir komu til Betaníu var þeim sagt að Lasarus væri þegar búinn að liggja fjóra daga í gröfinni. 18Betanía var aðeins um þrjá kílómetra frá Jerúsalem. 19Margir leiðtogar Gyðinga voru komnir til að láta samúð sína í ljós og hugga Mörtu og Maríu. 20Þegar Mörtu var sagt að Jesús væri að koma fór hún út til móts við hann, en María var kyrr heima.

21Marta sagði við Jesú: „Herra, ef þú hefðir komið fyrr væri bróðir minn ekki dáinn. 22Ég veit að Guð veitir þér allt sem þú biður hann um.“

23Þá sagði Jesús: „Bróðir þinn mun rísa upp.“

24„Já, það mun hann gera eins og allir aðrir á degi upprisunnar,“ sagði Marta.

25„Ég er sá sem reisi hina dauðu og gef þeim líf,“ sagði Jesús. „Hver sem trúir á mig mun lifa þótt hann deyi. 26Og sá sem eignast lífið í trúnni á mig, mun aldrei að eilífu deyja. Marta, trúir þú þessu?“

27„Já, herra,“ svaraði hún, „ég trúi að þú sért Kristur, sonur Guðs, sem koma átti í heiminn.“

28Þegar hún hafði sagt þetta, fór hún og kallaði á systur sína og sagði við hana einslega: „Meistarinn er hér og vill finna þig.“ 29Þegar María heyrði þetta fór hún þegar í stað út til hans.

Jesús vekur Lasarus upp frá dauðum

30Jesús hafði staldrað við utan við bæinn, þar sem hann hitti Mörtu fyrst. 31Þegar mennirnir, sem voru í húsinu að reyna að hugga Maríu, sáu hana fara út í flýti, álitu þeir að hún væri að fara út að gröf Lasarusar til að gráta þar, svo að þeir fóru á eftir henni.

32Þegar María kom þangað sem Jesús var, kraup hún við fætur hans og sagði: „Herra, ef þú hefðir verið hér væri bróðir minn enn á lífi.“

33Þegar Jesús sá hana gráta ásamt mönnunum, varð hann gramur, byrsti sig og spurði: 34„Hvar er hann grafinn?“

„Komdu, við skulum sýna þér það,“ svöruðu þeir. 35Þá táraðist Jesús.

36„Þeir voru mjög nánir vinir,“ sögðu Gyðingarnir. „Sjáið bara hve honum hefur þótt vænt um hann.“

37Aðrir sögðu: „Þessi maður læknaði blindan mann – af hverju kom hann þá ekki í veg fyrir að Lasarus dæi?“ Þegar Jesús heyrði þetta varð hann aftur gramur. Þau gengu að gröfinni, en hún var hellir og hafði stórum steini verið velt fyrir dyrnar.

39„Veltið steininum frá,“ sagði Jesús. „Já, en það er komin nálykt af honum,“ sagði Marta, systir hins látna. „Hann hefur legið hér í fjóra daga!“

40„Sagði ég þér ekki: „Ef þú trúir, muntu sjá dýrð Guðs?“ “ spurði Jesús.

41Síðan var steininum velt frá. Jesús leit upp til himins og sagði: „Faðir, ég þakka þér að þú hefur heyrt bæn mína. 42Auðvitað veit ég að þú bænheyrir mig í hverju sem er, en ég sagði þetta til þess að fólkið, sem hér stendur, trúi að þú hafir sent mig.“ 43Síðan kallaði hann: „Lasarus, komdu út!“

44Og Lasarus kom! Hann var vafinn líkblæjum og höfuð hans hulið með klút. „Takið af honum líkblæjurnar og látið hann fara.“ sagði Jesús.

45Margir Gyðinganna, sem þarna voru með Maríu, tóku nú loks trú á Jesú, 46en aðrir fóru til faríseanna til að skýra þeim frá þessu.

47Æðstu prestarnir og farísearnir skutu þá á ráðstefnu til að ræða málin.

„Hvað eigum við að gera?“ spurðu þeir. „Þessi maður gerir sannarlega kraftaverk. 48Ef við látum hann eiga sig, mun öll þjóðin elta hann. Og þá mun rómverski herinn koma, drepa okkur og kollvarpa heimastjórn okkar Gyðinganna.“

49Þá sagði Kaífas, en hann var æðsti prestur þetta árið: „Eruð þið alveg skilningslausir? 50Það er betra að einn maður deyi fyrir fólkið, en að öll þjóðin farist.“

51Spádómsorð þessi, að Jesús ætti að deyja fyrir allt fólkið, flutti Kaífas meðan hann var í stöðu æðsta prestsins. Þessi orð komu ekki frá honum sjálfum, heldur voru þau blásin honum í brjóst. 52Þetta var spádómur um að Jesús mundi ekki einungis deyja fyrir þjóðina, heldur og fyrir öll börn Guðs sem dreifð eru um jörðina. 53Frá þessari stundu, unnu leiðtogar Gyðinga markvisst að því að lífláta Jesú.

54Eftir þetta starfaði Jesús því ekki opinberlega meðal fólksins, heldur fór frá Jerúsalem til bæjarins Efraím við eyðimörkina og þar dvaldist hann með lærisveinum sínum. 55Páskarnir, mesta hátíð Gyðinga, voru á næsta leiti. Margt sveitafólk kom til Jerúsalem nokkrum dögum fyrir hátíðina til að hreinsa sig, samkvæmt siðum þeirra, áður en sjálf hátíðin hæfist. 56Fólk þetta langaði að sjá Jesú og mikið var skrafað í musterinu. „Skyldi hann koma á páskahátíðina?“ spurðu menn hver annan. 57Farísearnir og æðstu prestarnir höfðu tilkynnt opinberlega að hver sem sæi Jesú, yrði strax að láta þá vita, svo að þeir gætu handtekið hann.

Ilustración artística: una interpretación, no un registro histórico.

¿Sabías que…?

Lázaro resucitado en Betania

  • Juan sitúa Betania, la aldea de Lázaro y de sus hermanas María y Marta, a poco menos de dos millas de Jerusalén. El diccionario bíblico de Easton (1897) la ubica en la ladera sureste del monte de los Olivos, en el camino a Jericó, y dice que el nombre venía de las palmeras que crecían allí y que la aldea era conocida como el-Azariyeh, “lugar de Lázaro”.Fuentes: Bethany · el propio texto bíblico
  • Tomás, uno de los doce, también era llamado Dídimo, el equivalente griego de su nombre, que significa “gemelo”. Cuando Jesús decidió volver a Judea, donde poco antes habían intentado apedrearlo, Tomás dijo a los otros discípulos: “Vayamos también nosotros, para morir con él”.Fuentes: Thomas · el propio texto bíblico
  • Después de que algunos contaron lo que Jesús había hecho, los principales sacerdotes y los fariseos reunieron al Sanedrín, temiendo que, si todos creían en Jesús, los romanos les quitaran su lugar y su nación. Caifás, sumo sacerdote aquel año y, según el diccionario bíblico de Easton (1897), un saduceo que ocupó el cargo del 27 al 36 d.C., dijo que era mejor que un hombre muriera por el pueblo a que pereciera toda la nación. Juan dice que, como sumo sacerdote aquel año, profetizaba que Jesús moriría por la nación, y desde ese día tramaron matarlo.Fuentes: Caiaphas · el propio texto bíblico

Notas escritas con ayuda de IA a partir de fuentes abiertas (Theographic Bible Metadata, CC BY-SA 4.0; Easton’s Bible Dictionary, dominio público) y revisadas antes de publicarse.

Lugares de este capítulo

  • Judea · Hoy: Judea 1 · 31.777, 35.234 · versículos 7, 8, 54
  • Jerusalem · 31.777, 35.234 · versículos 18, 54, 55
  • Ephraim · Hoy: Taybeh · 31.954, 35.300 · versículo 54

Solo aparecen lugares identificados con alta confianza (90 % o más según las fuentes académicas reunidas por OpenBible). Mapa de la época: DARE (Digital Atlas of the Roman Empire), CC BY 4.0; mapa actual: © colaboradores de OpenStreetMap; lugares: OpenBible.info (CC BY 4.0).

Créditos y licencia de esta traducción
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Icelandic: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ (New Testament+)
copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc.
Language: Íslenska (Icelandic)
Contributor: Biblica, Inc.
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
Creative Commons License
Þetta verk er gert aðgengilegt samkvæmt CC BY-SA leyfinu (Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License). Til að skoða afrit af þessu leyfi skaltu fara á https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 eða senda bréf til Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, Bandaríkjunum.
Biblica® er vörumerki skráð af Biblica, Inc., og notkun á Biblica® vörumerkinu krefst skriflegs leyfis Biblica, Inc. Samkvæmt skilmálum CC BY-SA leyfisins geturðu afritað og endurdreift þessu óbreyttu verki svo framarlega sem þú heldur Biblica® vörumerkinu óskertu. Ef þú breytir afriti eða þýðir þetta verk og býrð þannig til afleitt verk, verður þú að fjarlægja Biblica® vörumerkið. Á afleidda verkinu verður þú að tilgreina hvaða breytingar þú hefur gert og eigna verkið á eftirfarandi hátt: "Upprunalega verkið eftir Biblica, Inc. er fáanlegt ókeypis á www.biblica.com og open.bible ."
Tilkynning um höfundarrétt verður að birtast á titla- eða höfundarréttarsíðu verksins sem hér segir:
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
Þú verður einnig að gera afleidda verkið þítt aðgengilegt samkvæmt sama leyfi (CC BY-SA).
Ef þú vilt láta Biblica, Inc. vita um þýðingu þína á þessu verki, vinsamlegast hafðu samband við okkur á https://open.bible/contact .
This work is made available under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License (CC BY-SA). To view a copy of this license, visit https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 or send a letter to Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, USA.
Biblica® is a trademark registered by Biblica, Inc., and use of the Biblica® trademark requires the written permission of Biblica, Inc. Under the terms of the CC BY-SA license, you may copy and redistribute this unmodified work as long as you keep the Biblica® trademark intact. If you modify a copy or translate this work, thereby creating a derivative work, you must remove the Biblica® trademark. On the derivative work, you must indicate what changes you have made and attribute the work as follows: “The original work by Biblica, Inc. is available for free at www.biblica.com and open.bible .”
Notice of copyright must appear on the title or copyright page of the work as follows:
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
You must also make your derivative work available under the same license (CC BY-SA).
If you would like to notify Biblica, Inc. regarding your translation of this work, please contact us at https://open.bible/contact .
This translation is made available to you under the terms of the
Creative Commons Attribution Share-Alike license 4.0.
You have permission to share and redistribute this Bible translation in any format and to make reasonable revisions and adaptations of this translation, provided that:
You include the above copyright and source information.
If you make any changes to the text, you must indicate that you did so in a way that makes it clear that the original licensor is not necessarily endorsing your changes.
If you redistribute this text, you must distribute your contributions under the same license as the original.
Pictures included with Scriptures and other documents on this site are licensed just for use with those Scriptures and documents.
For other uses, please contact the respective copyright owners.
Note that in addition to the rules above, revising and adapting God's Word involves a great responsibility to be true to God's Word. See Revelation 22:18-19.
2025-05-03

Fuente: http://ebible.org/isl/ · eBible.org

Habla con nosotros

Cuéntanos desde dónde lees, cómo te ha ayudado la Biblia o qué podemos mejorar. Leemos todos los mensajes.