Santiago 2
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ · Toca un versículo para ver sus referencias cruzadas.
Forðist manngreinarálit
1Kæru vinir, hvernig getið þið sagst tilheyra Jesú Kristi, Drottni dýrðarinnar, ef þið upphefjið ríka á kostnað fátækra?
2Segjum svo að inn í kirkjuna ykkar komi maður, ríkmannlega klæddur, með dýrmæta gullhringi á fingrum sér, og um leið kæmi annar fátækur og illa til fara. 3Þá dekrið þið við ríka manninn og látið hann setjast á besta stað, en segið við þann fátæka: „Þú getur staðið þarna fjær ef þú vilt eða setið úti í horni.“ 4Þið farið í manngreinarálit ef þið vegið og metið menn eftir eigum þeirra.
5Takið eftir, kæru vinir: Guð hefur valið hina fátæku til að auðgast í trúnni og erfa ríki himnanna. Það er gjöfin, sem Guð hefur heitið öllum þeim sem elska hann. 6En í dæminu um mennina tvo, hafið þið lítilsvirt fátæka manninn. Vitið þið ekki að það eru venjulega þeir ríku, sem troða á rétti ykkar og draga ykkur fyrir dómstóla? 7Það eru oftast þeir sem hæðast að Jesú Kristi og hans göfuga nafni, sem nefnt var yfir ykkur.
8Vissulega er gott að þið hlýðið þannig þessari skipun Drottins: „Elskið og hjálpið meðbræðrum ykkar eins og þið elskið og annist ykkur sjálfa,“ 9en ef þið farið í manngreinarálit, þá brjótið þið þetta boðorð og syndgið.
10Þótt einhverjum tækist að halda allt lögmálið, en hrasaði í einu atriði, þá yrði hann jafnsekur þeim sem brýtur þau öll. 11Sá Guð, sem sagði að þið mættuð ekki ganga að eiga gifta konu, sagði einnig að óheimilt væri að fremja morð. Og þótt þú hafir ekki brotið hjúskaparlögin með því að drýgja hór, en þess í stað myrt einhvern, þá hefur þú fótum troðið lög Guðs.
12Þið verðið dæmd eftir því hvort þið gerið, eða látið ógert, það sem Kristur býður ykkur. Gætið því að hvað þið hugsið og gerið, 13því að þeim sem er miskunnarlaus við aðra, verður engin miskunn sýnd. En ef þið miskunnið, þurfið þið ekki að óttast dóm Guðs.
Trú og verk
14Kæru vinir, hvað gagnar það þótt þið segist eiga trú og vera kristnir, ef það sést ekki í hjálpsemi við aðra? Mun slík trú geta frelsað nokkurn? 15Þú segir við vin þinn, sem skortir bæði fæði og klæði: 16„Hafðu það gott og borðaðu þig saddan. Vertu sæll og Guð blessi þig!“ Hvaða gagn er í slíku, ef þú gefur honum hvorki föt né mat?
17Þið skiljið af þessu að trúin ein nægir ekki. Þið verðið einnig að gera öðrum gott til þess að sanna að þið eigið trúna. Trú, sem ekki birtist í góðum verkum, er alls engin trú. Slík trú er dauð og gagnslaus.
18Þú segir kannski: „Já, en trúin er eina leiðin til Guðs.“ Því svara ég: „Góð verk eru líka mikilvæg, því að án þeirra getur þú ekki sýnt að þú trúir. Verkin sanna trúna.“
19Eru fleiri á meðal ykkar, sem segja að það nægi „bara að trúa“? Trúa hverju? Því að aðeins sé til einn Guð? Því trúa illu andarnir líka og skjálfa við tilhugsunina! 20Fávísi maður! Hvenær ætlar þú að láta þér skiljast, að trúin er gagnslaus nema þú gerir Guðs vilja? Trú, sem ekki birtist í góðum verkum, er dauð trú.
21Þið munið að Abraham, faðir okkar, var einmitt úrskurðaður réttlátur vegna þess sem hann gerði, eftir að hann ákvað að hlýða Guði, jafnvel þótt það fæli í sér að hann þyrfti að fórna Ísaki syni sínum. 22Skiljið þið þetta? Abraham bar slíkt traust til Guðs að hann var fús að hlýða honum í einu og öllu. Trú hans fullkomnaðist í verkum hans. 23Gamla testamentið orðar þetta svo: Abraham trúði Guði og það réttlætti hann í augum Guðs. Abraham var meira að segja kallaður „vinur Guðs“. 24Af þessu sjáið þið að maðurinn frelsast af verkum, sem hann vinnur í trú.
25Skækjan Rahab er enn eitt dæmið um þetta. Hún bjargaðist vegna þess sem hún gerði. Hún faldi sendiboðana og kom þeim síðan undan. 26Eins og líkaminn deyr þegar andinn yfirgefur hann, þannig er trúin líka dauð, ef hún birtist ekki í góðum verkum.

¿Sabías que…?
Imparcialidad y fe viva
- Santiago recuerda que Abraham fue justificado al ofrecer a su hijo Isaac en el altar, su fe obrando junto con sus acciones y perfeccionada por lo que hizo. Isaac, el único hijo de Abraham con Sara, fue aquel a quien Dios mandó a Abraham ofrecer en sacrificio en un monte en la tierra de Moriah.Fuentes: el propio texto bíblico · Isaac
- Santiago también cita a Rahab la prostituta, justificada por acoger a los espías y enviarlos por otro camino. Los dos espías, enviados por Josué mientras los hebreos estaban acampados en Sitim frente a Jericó, habían ido a su casa, enfrentaron peligro en la ciudad y fueron salvados por su fidelidad.Fuentes: el propio texto bíblico · Rahab
Notas escritas con ayuda de IA a partir de fuentes abiertas (Theographic Bible Metadata, CC BY-SA 4.0; Easton’s Bible Dictionary, dominio público) y revisadas antes de publicarse.
Créditos y licencia de esta traducción
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Icelandic: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ (New Testament+) copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc. Language: Íslenska (Icelandic) Contributor: Biblica, Inc. Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. Creative Commons License Þetta verk er gert aðgengilegt samkvæmt CC BY-SA leyfinu (Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License). Til að skoða afrit af þessu leyfi skaltu fara á https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 eða senda bréf til Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, Bandaríkjunum. Biblica® er vörumerki skráð af Biblica, Inc., og notkun á Biblica® vörumerkinu krefst skriflegs leyfis Biblica, Inc. Samkvæmt skilmálum CC BY-SA leyfisins geturðu afritað og endurdreift þessu óbreyttu verki svo framarlega sem þú heldur Biblica® vörumerkinu óskertu. Ef þú breytir afriti eða þýðir þetta verk og býrð þannig til afleitt verk, verður þú að fjarlægja Biblica® vörumerkið. Á afleidda verkinu verður þú að tilgreina hvaða breytingar þú hefur gert og eigna verkið á eftirfarandi hátt: "Upprunalega verkið eftir Biblica, Inc. er fáanlegt ókeypis á www.biblica.com og open.bible ." Tilkynning um höfundarrétt verður að birtast á titla- eða höfundarréttarsíðu verksins sem hér segir: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. Þú verður einnig að gera afleidda verkið þítt aðgengilegt samkvæmt sama leyfi (CC BY-SA). Ef þú vilt láta Biblica, Inc. vita um þýðingu þína á þessu verki, vinsamlegast hafðu samband við okkur á https://open.bible/contact . This work is made available under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License (CC BY-SA). To view a copy of this license, visit https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 or send a letter to Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, USA. Biblica® is a trademark registered by Biblica, Inc., and use of the Biblica® trademark requires the written permission of Biblica, Inc. Under the terms of the CC BY-SA license, you may copy and redistribute this unmodified work as long as you keep the Biblica® trademark intact. If you modify a copy or translate this work, thereby creating a derivative work, you must remove the Biblica® trademark. On the derivative work, you must indicate what changes you have made and attribute the work as follows: “The original work by Biblica, Inc. is available for free at www.biblica.com and open.bible .” Notice of copyright must appear on the title or copyright page of the work as follows: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. You must also make your derivative work available under the same license (CC BY-SA). If you would like to notify Biblica, Inc. regarding your translation of this work, please contact us at https://open.bible/contact . This translation is made available to you under the terms of the Creative Commons Attribution Share-Alike license 4.0. You have permission to share and redistribute this Bible translation in any format and to make reasonable revisions and adaptations of this translation, provided that: You include the above copyright and source information. If you make any changes to the text, you must indicate that you did so in a way that makes it clear that the original licensor is not necessarily endorsing your changes. If you redistribute this text, you must distribute your contributions under the same license as the original. Pictures included with Scriptures and other documents on this site are licensed just for use with those Scriptures and documents. For other uses, please contact the respective copyright owners. Note that in addition to the rules above, revising and adapting God's Word involves a great responsibility to be true to God's Word. See Revelation 22:18-19. 2025-05-03
Fuente: http://ebible.org/isl/ · eBible.org