Hebreos 7
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ · Toca un versículo para ver sus referencias cruzadas.
Melkísedek mikli
1Melkísedek þessi var konungur í borginni Salem og jafnframt prestur hins hæsta Guðs. Eitt sinn, er Abraham var á heimleið eftir að hafa unnið mikla orustu við marga konunga, kom Melkísedek til móts við hann og blessaði hann. 2Tók þá Abraham tíund af öllu herfanginu og gaf Melkísedek.
Nafnið Melkísedek þýðir „konungur réttlætisins“. Hann er einnig friðarkonungur, því að Salem, nafnið á borg hans, merkir „friður“. 3Melkísedek átti hvorki föður né móður og ættartala hans er ekki til. Ævi hans er bæði án upphafs og endis, en líf hans er sem líf Guðs sonar – hann er prestur að eilífu.
4Virðum nú fyrir okkur tign Melkísedeks:
(a) Tign Melkísedeks sést á því að Abraham, hinn virðulegi forfaðir Guðs útvöldu þjóðar, gaf honum tíund af herfanginu, sem hann tók af konungunum sem hann hafði barist við. 5Þetta væri skiljanlegt hefði Melkísedek verið Gyðingaprestur, því að síðar var þess krafist með lögum af þjóð Guðs að hún legði fram gjafir til stuðnings prestunum, því að þeir tilheyrðu þjóðinni. 6Nú var Melkísedek ekki Gyðingaættar, en þrátt fyrir það gaf Abraham honum gjafir.
(b) Melkísedek blessaði hinn volduga Abraham 7og eins og allir vita, þá er sá meiri, sem vald hefur til að blessa, en sá er hlýtur blessunina.
8(c) Prestar Gyðinga tóku við tíund, og það þótt dauðlegir væru, en okkur er sagt að Melkísedek lifi áfram.
9(d) Það mætti jafnvel segja að sjálfur Leví (forfaðir allra Gyðingapresta – allra sem taka við tíund) hafi greitt Melkísedek tíund með höndum Abrahams. 10Því að þótt Leví væri þá ekki fæddur – þegar Abraham greiddi Melkísedek tíundina – þá var efnið samt til í Abraham, sem Leví var síðar myndaður af.
11(e) Ef Gyðingaprestarnir og lög þeirra hefðu getað frelsað okkur, hvers vegna var þá Guð að senda Krist, sem prest á borð við Melkísedek? Hefði honum ekki nægt að senda einhvern sem hefði haft sömu tign og Aron – það er að segja þá tign, sem allir Gyðingaprestarnir höfðu?
12Þegar Guð stofnar nýjan prestdóm, verður hann að breyta lögum sínum til þess að slíkt sé unnt. Eins og við vitum var Kristur ekki af ætt Leví, prestaættinni, heldur af ætt Júda, en sú ætt hafði ekki verið valin til prestþjónustu; Móse hafði aldrei falið henni slíkt. 15Af þessu getum við glögglega séð að Guð breytti til. Nýi æðsti presturinn, Kristur – prestur á borð við Melkísedek – 16varð ekki prestur vegna þess að hann uppfyllti þau gömlu skilyrði að vera af ætt Leví, heldur vegna þess að líf og kraftur streymdu út frá honum. 17Þetta bendir sálmaskáldið á er hann segir um Krist: „Þú ert prestur að eilífu á borð við Melkísedek.“
18Þessi gamla prestþjónusta, sem grundvölluð var á ættartengslum, var lögð niður, því að hún dugði ekki til. Hún var vanmáttug og kom ekki að gagni við að frelsa fólk. 19Í raun og veru gátu lögin og þessi prestþjónusta ekki réttlætt neinn mann í augum Guðs. Við eigum hins vegar betri von, því að Kristur gerir okkur þóknanleg í augum Guðs og opnar okkur leiðina til hans.
20Guð sór þess eið að Kristur yrði prestur um alla framtíð, 21en það hafði hann aldrei ætlað hinum prestunum. Þetta sagði hann við Krist, og aðeins hann: „Drottinn strengir þess heit og mun aldrei skipta um skoðun: Þú ert prestur að eilífu, að hætti Melkísedeks.“ 22Á grundvelli þessa heitis, getur Kristur að eilífu tryggt árangurinn af þessu nýja og betra fyrirkomulagi.
23Samkvæmt gamla fyrirkomulaginu þurfti marga presta, og þegar þeir dóu einn af öðrum, tóku hinir yngri við.
24En Jesús lifir að eilífu og heldur áfram að vera prestur, þar verða engin mannaskipti. 25Þess vegna getur hann fullkomlega frelsað alla, sem hans vegna ganga fram fyrir Guð, því að hann lifir ávallt á himni til að biðja fyrir þeim.
26Hann er einmitt presturinn sem við þörfnumst: Hann er heilagur, lýtalaus, óflekkaður og situr ekki á bekk með syndurum, heldur í heiðurssæti á himnum. 27Hann þarf ekki daglega að bera fram blóð úr fórnardýrunum eins og hinir prestarnir, sem þurftu að fórna fyrir sínar eigin syndir og syndir alls fólksins, því að hann bar fram eina fórn, í eitt skipti fyrir öll, er hann fórnaði sjálfum sér á krossinum. 28Meðan hinn gamli siður var í gildi, voru æðstu prestarnir syndugir menn, veikleika háðir eins og hverjir aðrir, en seinna skipaði Guð son sinn með eiði og sonurinn er fullkominn að eilífu.

¿Sabías que…?
Melquisedec y un sacerdocio sin fin
- La historia de Melquisedec se limita a su encuentro con Abraham en Génesis; el Antiguo Testamento vuelve a mencionarlo solo en el Salmo 110. Hebreos explica su nombre como “rey de justicia”, y “rey de Salem” como “rey de paz”. Salem, nombre que significa paz, se supone comúnmente que es otro nombre de Jerusalén.Fuentes: Melchisedec · Salem · el propio texto bíblico
- Hebreos sostiene que Melquisedec era mayor que Abraham: Abraham le entregó el diezmo del botín, y Melquisedec bendijo al hombre que tenía las promesas. Leví, tercer hijo de Jacob y antepasado de los sacerdotes que después cobraban el diezmo, aún no había nacido; la carta dice que, por así decirlo, él pagó ese diezmo cuando todavía estaba en Abraham.Fuentes: el propio texto bíblico · Levi (patriarch) · Melchisedec
- Los sacerdotes a quienes la ley mandaba cobrar el diezmo pertenecían al linaje de Aarón, hijo mayor de Amram y de Jocabed, hija de Leví. Hebreos contrasta ese orden hereditario con Jesús, de quien la carta dice que descendió de Judá, tribu acerca de la cual Moisés no dijo nada respecto de los sacerdotes.Fuentes: Aaron · el propio texto bíblico
Notas escritas con ayuda de IA a partir de fuentes abiertas (Theographic Bible Metadata, CC BY-SA 4.0; Easton’s Bible Dictionary, dominio público) y revisadas antes de publicarse.
Lugares de este capítulo
Solo aparecen lugares identificados con alta confianza (90 % o más según las fuentes académicas reunidas por OpenBible). Mapa de la época: DARE (Digital Atlas of the Roman Empire), CC BY 4.0; mapa actual: © colaboradores de OpenStreetMap; lugares: OpenBible.info (CC BY 4.0).
Créditos y licencia de esta traducción
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Icelandic: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ (New Testament+) copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc. Language: Íslenska (Icelandic) Contributor: Biblica, Inc. Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. Creative Commons License Þetta verk er gert aðgengilegt samkvæmt CC BY-SA leyfinu (Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License). Til að skoða afrit af þessu leyfi skaltu fara á https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 eða senda bréf til Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, Bandaríkjunum. Biblica® er vörumerki skráð af Biblica, Inc., og notkun á Biblica® vörumerkinu krefst skriflegs leyfis Biblica, Inc. Samkvæmt skilmálum CC BY-SA leyfisins geturðu afritað og endurdreift þessu óbreyttu verki svo framarlega sem þú heldur Biblica® vörumerkinu óskertu. Ef þú breytir afriti eða þýðir þetta verk og býrð þannig til afleitt verk, verður þú að fjarlægja Biblica® vörumerkið. Á afleidda verkinu verður þú að tilgreina hvaða breytingar þú hefur gert og eigna verkið á eftirfarandi hátt: "Upprunalega verkið eftir Biblica, Inc. er fáanlegt ókeypis á www.biblica.com og open.bible ." Tilkynning um höfundarrétt verður að birtast á titla- eða höfundarréttarsíðu verksins sem hér segir: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. Þú verður einnig að gera afleidda verkið þítt aðgengilegt samkvæmt sama leyfi (CC BY-SA). Ef þú vilt láta Biblica, Inc. vita um þýðingu þína á þessu verki, vinsamlegast hafðu samband við okkur á https://open.bible/contact . This work is made available under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License (CC BY-SA). To view a copy of this license, visit https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 or send a letter to Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, USA. Biblica® is a trademark registered by Biblica, Inc., and use of the Biblica® trademark requires the written permission of Biblica, Inc. Under the terms of the CC BY-SA license, you may copy and redistribute this unmodified work as long as you keep the Biblica® trademark intact. If you modify a copy or translate this work, thereby creating a derivative work, you must remove the Biblica® trademark. On the derivative work, you must indicate what changes you have made and attribute the work as follows: “The original work by Biblica, Inc. is available for free at www.biblica.com and open.bible .” Notice of copyright must appear on the title or copyright page of the work as follows: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. You must also make your derivative work available under the same license (CC BY-SA). If you would like to notify Biblica, Inc. regarding your translation of this work, please contact us at https://open.bible/contact . This translation is made available to you under the terms of the Creative Commons Attribution Share-Alike license 4.0. You have permission to share and redistribute this Bible translation in any format and to make reasonable revisions and adaptations of this translation, provided that: You include the above copyright and source information. If you make any changes to the text, you must indicate that you did so in a way that makes it clear that the original licensor is not necessarily endorsing your changes. If you redistribute this text, you must distribute your contributions under the same license as the original. Pictures included with Scriptures and other documents on this site are licensed just for use with those Scriptures and documents. For other uses, please contact the respective copyright owners. Note that in addition to the rules above, revising and adapting God's Word involves a great responsibility to be true to God's Word. See Revelation 22:18-19. 2025-05-03
Fuente: http://ebible.org/isl/ · eBible.org