Hechos 20
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ · Toca un versículo para ver sus referencias cruzadas.
1Eftir uppþotið kallaði Páll saman lærisveinana, uppörvaði þá og kvaddi og hélt síðan til Grikklands. 2Á leiðinni þangað predikaði hann í hverjum bæ, þar sem kristna menn var að finna. 3Eftir þriggja mánaða dvöl í Grikklandi, bjó hann sig undir að sigla til Sýrlands, en komst þá á snoðir um að Gyðingarnir höfðu gert samsæri um að lífláta hann. Hann ákvað því að breyta ferðaáætluninni og fara fyrst norður til Makedóníu.
4Í fylgd með Páli voru þessir menn: Sópater Pýrrusson frá Beroju, Aristarkus og Sekúndus frá Þessaloníku, Gajus frá Derbe, Tímóteus, og Týkíkus og Trófímus, báðir frá Litlu-Asíu. 5Þeir fóru á undan og biðu okkar í Tróas. 6Eftir páskahátíðina sigldum við frá Filippí, áleiðis til Tróas og tók ferðin alls fimm daga. Í Tróas dvöldumst við eina viku.
Ungur maður fellur út um glugga
7Á sunnudeginum komum við saman til heilagrar kvöldmáltíðar. Páll predikaði og vegna þess að hann ætlaði að halda ferðinni áfram næsta dag, talaði hann alveg til miðnættis. 8Loftsalurinn, sem við vorum í, var lýstur upp með mörgum lömpum. 9Páll hafði talað lengi þegar drengur, sem Evtýkus hét og sat í gluggakistunni, sofnaði undir ræðunni og féll út um gluggann, niður af þriðju hæð. Var hann látinn þegar að var komið. 10Páll fór niður til hans og tók hann í fangið. „Hafið engar áhyggjur,“ sagði hann, „hann lifir.“ Það reyndist rétt! Fólkið endurheimti gleði sína og síðan fóru allir upp í loftsalinn og neyttu saman kvöldmáltíðar Drottins. Eftir það hélt Páll áfram máli sínu og talaði lengi. Þegar hann hélt loks leiðar sinnar, var kominn morgunn!
13Páll fór landleiðina til Assus en við fórum á undan honum með skipi. 14Í Assus hittum við hann og sigldum svo saman til Mitýlene. 15Daginn eftir sigldum við fram hjá Kíos, næsta dag komum við til Samos og þar næsta til Míletus.
Kveðjuorð Páls til safnaðarleiðtoganna í Efesus
16Páll hafði ákveðið að koma ekki við í Efesus. Hann vildi flýta sér til Jerúsalem til þess að komast á hvítasunnuhátíðina, ef mögulegt væri. 17Þegar við komum að landi í Míletus sendi hann skilaboð til leiðtoga safnaðarins í Efesus og bað þá að koma og hitta sig.
18Þegar þeir komu sagði hann: „Þið vitið að frá þeirri stundu er ég steig fyrst fæti á Litlu-Asíu og fram á þennan dag, 19hef ég unnið verk Drottins auðmjúkur og með tárum. Oft hef ég horfst í augu við dauðann vegna þeirra launráða, sem Gyðingarnir hafa bruggað mér. 20Samt skoraðist ég aldrei undan að segja ykkur sannleikann, hvort sem það var opinberlega eða á heimilum ykkar. 21Ég hef vitnað um það, bæði fyrir Gyðingum og heiðingjum, að við verðum að snúa baki við syndinni og gefast Guði á vald, í trúnni á Drottin Jesú Krist.
22Nú er ég á leið til Jerúsalem, þangað knýr heilagur andi mig og við því fæ ég ekkert gert. Ekki veit ég hvað bíður mín þar, 23en eitt veit ég þó: Heilagur andi segir við mig, hvert sem ég fer, að mín bíði fangelsi og þjáningar. 24En líf mitt er ekki til neins annars en að vinna það verk, sem Drottinn Jesús fól mér – að flytja öðrum fagnaðarerindið um kærleika og náð Guðs.
25Ég kom til ykkar og fræddi ykkur um guðsríki, en nú er mér ljóst, að þetta er í síðasta skipti sem þið sjáið mig. 26Það er skoðun mín að ekki sé það mér að kenna þótt einhverjir glatist,“ 27því að ég flutti ykkur allt Guðs orð og dró ekkert undan.
28Gætið ykkar og safnaðarins vel. Heilagur andi hefur falið ykkur þá ábyrgð að vera leiðtogar fyrir hjörð Guðs og annast hana – kirkjuna, sem hann keypti með sínu dýrmæta blóði. 29Ég veit að þegar ég er farinn frá ykkur, munu falskennendur koma fram á meðal ykkar. Þeir líkjast gráðugum og grimmum úlfum, sem ráðast á hjörðina. 30Sumir úr ykkar hópi munu rangsnúa sannleikanum til að safna að sér fylgjendum. 31Gætið vel að öllu! Minnist þessara þriggja ára er ég dvaldist meðal ykkar. Munið hvernig ég annaðist ykkur dag og nótt og gleymið ekki tárunum, sem runnu ykkar vegna. 32Nú fel ég ykkur Guði og orði máttar hans, sem megnar að efla trú ykkar og gefa ykkur arf með öllum þeim, sem hann hefur helgað sér.
33Hvorki girntist ég fé né fatnað nokkurs manns. 34Þið vitið sjálfir að hendur mínar unnu fyrir lífsviðurværi mínu og jafnvel þörfum þeirra sem með mér voru. 35Ég var ykkur fyrirmynd í því að hjálpa snauðum, minnugur orða Drottins Jesú: „Sælla er að gefa en þiggja.“
36Þegar Páll hafði lokið máli sínu, kraup hann niður og bað með þeim. 37Þeir grétu og föðmuðu hann að sér að skilnaði, 38og þótti sárt að heyra að hann mundi aldrei sjá þá framar. Síðan fylgdu þeir honum til skips.

¿Sabías que…?
Despedida camino a Jerusalén
- Al salir de Troas, Pablo envió a sus compañeros por delante en el barco y caminó hasta Assos por el camino romano. Assos era un puerto de la Asia proconsular, en Misia, en la costa norte del golfo de Adramitio; el trayecto a pie era de unas 20 millas, el de mar de unas 30, y la isla de Lesbos quedaba a unas 7 millas de la costa.Fuentes: el propio texto bíblico · Assos
- Pablo pasó de largo frente a Éfeso para no demorarse en la provincia de Asia —la provincia romana del oeste de Asia Menor, cuya capital era Éfeso—, porque esperaba, si era posible, llegar a Jerusalén para el día de Pentecostés. Se detuvo en Mileto, un puerto y la antigua capital de Jonia, a unas 36 millas al sur de Éfeso, y mandó llamar a los ancianos de la iglesia de Éfeso.Fuentes: el propio texto bíblico · Asia · Miletus
- Siete hombres viajaban con él: Sópater de Berea, Aristarco y Segundo de Tesalónica, Gayo de Derbe, Timoteo, y Tíquico y Trófimo de Asia. Aristarco, de Tesalónica, más tarde compartió el encarcelamiento de Pablo en Roma, y Trófimo, efesio, lo acompañó en esta parte del viaje y estuvo con él en Jerusalén.Fuentes: el propio texto bíblico · Aristarchus · Trophimus
Notas escritas con ayuda de IA a partir de fuentes abiertas (Theographic Bible Metadata, CC BY-SA 4.0; Easton’s Bible Dictionary, dominio público) y revisadas antes de publicarse.
Lugares de este capítulo
- Macedonia · 41.600, 22.540 · versículos 1, 3, 6
- Greece · 37.972, 23.727 · versículo 2
- Syria · Hoy: Syria 2 · 33.511, 36.306 · versículo 3
- Asia · 38.400, 28.300 · versículos 4, 16, 18
- Berea · Hoy: Veria · 40.518, 22.200 · versículo 4
- Thessalonica · Hoy: Thessaloniki · 40.638, 22.946 · versículo 4
- Troas · Hoy: Alexandria Troas · 39.752, 26.159 · versículos 5, 6
- Philippi · 41.012, 24.285 · versículo 6
- Assos · 39.491, 26.337 · versículos 13, 14
- Mitylene · Hoy: ancient theater at Mitylene · 39.110, 26.547 · versículo 14
- Chios · 38.373, 26.137 · versículo 15
- Miletus · 37.531, 27.276 · versículos 15, 17
- Samos · 37.750, 26.833 · versículo 15
- Trogyllium · Hoy: Cape Mycale · 37.659, 27.003 · versículo 15
- Ephesus · 37.939, 27.341 · versículos 16, 17
- Jerusalem · 31.777, 35.234 · versículos 16, 22
Solo aparecen lugares identificados con alta confianza (90 % o más según las fuentes académicas reunidas por OpenBible). Mapa de la época: DARE (Digital Atlas of the Roman Empire), CC BY 4.0; mapa actual: © colaboradores de OpenStreetMap; lugares: OpenBible.info (CC BY 4.0).
Créditos y licencia de esta traducción
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Icelandic: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ (New Testament+) copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc. Language: Íslenska (Icelandic) Contributor: Biblica, Inc. Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. Creative Commons License Þetta verk er gert aðgengilegt samkvæmt CC BY-SA leyfinu (Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License). Til að skoða afrit af þessu leyfi skaltu fara á https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 eða senda bréf til Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, Bandaríkjunum. Biblica® er vörumerki skráð af Biblica, Inc., og notkun á Biblica® vörumerkinu krefst skriflegs leyfis Biblica, Inc. Samkvæmt skilmálum CC BY-SA leyfisins geturðu afritað og endurdreift þessu óbreyttu verki svo framarlega sem þú heldur Biblica® vörumerkinu óskertu. Ef þú breytir afriti eða þýðir þetta verk og býrð þannig til afleitt verk, verður þú að fjarlægja Biblica® vörumerkið. Á afleidda verkinu verður þú að tilgreina hvaða breytingar þú hefur gert og eigna verkið á eftirfarandi hátt: "Upprunalega verkið eftir Biblica, Inc. er fáanlegt ókeypis á www.biblica.com og open.bible ." Tilkynning um höfundarrétt verður að birtast á titla- eða höfundarréttarsíðu verksins sem hér segir: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. Þú verður einnig að gera afleidda verkið þítt aðgengilegt samkvæmt sama leyfi (CC BY-SA). Ef þú vilt láta Biblica, Inc. vita um þýðingu þína á þessu verki, vinsamlegast hafðu samband við okkur á https://open.bible/contact . This work is made available under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License (CC BY-SA). To view a copy of this license, visit https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 or send a letter to Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, USA. Biblica® is a trademark registered by Biblica, Inc., and use of the Biblica® trademark requires the written permission of Biblica, Inc. Under the terms of the CC BY-SA license, you may copy and redistribute this unmodified work as long as you keep the Biblica® trademark intact. If you modify a copy or translate this work, thereby creating a derivative work, you must remove the Biblica® trademark. On the derivative work, you must indicate what changes you have made and attribute the work as follows: “The original work by Biblica, Inc. is available for free at www.biblica.com and open.bible .” Notice of copyright must appear on the title or copyright page of the work as follows: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. You must also make your derivative work available under the same license (CC BY-SA). If you would like to notify Biblica, Inc. regarding your translation of this work, please contact us at https://open.bible/contact . This translation is made available to you under the terms of the Creative Commons Attribution Share-Alike license 4.0. You have permission to share and redistribute this Bible translation in any format and to make reasonable revisions and adaptations of this translation, provided that: You include the above copyright and source information. If you make any changes to the text, you must indicate that you did so in a way that makes it clear that the original licensor is not necessarily endorsing your changes. If you redistribute this text, you must distribute your contributions under the same license as the original. Pictures included with Scriptures and other documents on this site are licensed just for use with those Scriptures and documents. For other uses, please contact the respective copyright owners. Note that in addition to the rules above, revising and adapting God's Word involves a great responsibility to be true to God's Word. See Revelation 22:18-19. 2025-05-03
Fuente: http://ebible.org/isl/ · eBible.org