Nations Bible

2 Timoteo 2

Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ · Toca un versículo para ver sus referencias cruzadas.

Lifðu í krafti Krists

1Tímóteus, sonur minn, lifðu í krafti Jesú Krists! 2Þitt hlutverk er að fræða aðra um það, sem þú heyrðir mig tala í áheyrn margra votta. Þann sannleika skaltu kenna mönnum sem hægt er að treysta, svo að þeir geti kennt öðrum. 3Vertu fús að þjást eins og sannur hermaður Jesú Krists, því að það ber okkur að gera. 4Og sem hermaður Krists skaltu ekki binda þig við nein aukastörf, því hvaða hermaður heldur þú að stundi aukavinnu annars staðar? Sá kæmi varla að miklum notum! 5Sá sem stundar íþróttir, verður að fara eftir settum reglum til að geta sigrað, annars verður hann dæmdur úr leik og á enga von um verðlaun. 6Og bóndinn – hann leggur hart að sér til að ná góðri uppskeru. Eins gerum við. 7Hugleiddu þessi þrjú dæmi – hermanninn, íþróttamanninn og bóndann, og Drottinn hjálpi þér að skilja hvernig þau geta átt við þig.

8Umfram allt, mundu eftir Jesú Kristi. Hann fæddist sem maður af ætt Davíðs konungs og sigraði dauðann með upprisu sinni. 9Þennan mikla sannleika hef ég boðað. Þess vegna hef ég verið ofsóttur og setið í fangelsi eins og afbrotamaður. En þótt ég sé fjötraður, þá verður orð Guðs ekki fjötrað! 10Ég er fús að þjást, ef það verður til þess að þeir, sem Guð hefur útvalið, öðlist hjálpræðið og dýrð Jesú Krists.

11Ég veit að það er satt, að ef við deyjum fyrir Krist, þá fáum við að lifa með honum á himnum. 12Ef við stöndum stöðugir í trúnni og þjónustunni, þá munum við fá að ríkja með honum. En ef við snúumst gegn Kristi og afneitum honum, þá hlýtur hann einnig að hafna okkur. 13En skorti okkur þrek og sé trú okkar alveg á þrotum, þá er hann samt trúr og hjálpar, því hann getur ekki afneitað okkur – við erum hluti af honum sjálfum. Loforð hans munu standa!

Forðastu einskisnýtar rökræður

14Þennan sannleika skaltu minna hina trúuðu á og bjóða þeim í nafni Drottins að deila ekki um einskisverða hluti. Slíkar rökræður rugla menn bara í ríminu. Þær eru algjörlega gagnslausar og meira að segja skaðlegar. 15Starfaðu af trúmennsku svo að Guð geti gefið þér góðan vitnisburð og þú þurfir ekki að blygðast þín þegar Guð prófar verk þín. Þú verður að þekkja orð hans, vita hvað það segir og hvað það þýðir. 16Forðastu heimskulegar rökræður sem leiða af sér synd og illindi manna á milli. 17Sum orð valda sári er seint grær. Dæmi um menn sem ánægju hafa af slíku þrasi eru Hýmeneus og Fíletus. 18Þeir hafa villst af vegi sannleikans og segja upprisu dáinna þegar um garð gengna og rugla fólk þannig í trúnni.

19En sannleikur Guðs er óhagganlegur og honum getur enginn breytt. Þar er skráð: „Drottinn þekkir sína,“ og „sá sem telur sig kristinn, forðist ranglæti.“

20Á ríkum heimilum eru sum ílát hver úr gulli og silfri, önnur úr tré og leir. Þau fyrrnefndu eru notuð fyrir gesti, en hin í eldhúsinu eða undir úrgang. 21Forðist þú syndina, líkist þú gullkeri – því besta sem til er á heimilinu – og þá mun sjálfur Kristur nota þig til þess sem göfugt er.

22Haltu þig frá öllu sem vekur illar hugsanir, eins og oft sækja á unga menn, en kepptu eftir því sem gott er. Reyndu að vaxa í trú og kærleika og sækja eftir félagsskap þeirra sem elska Drottin og eru hjartahreinir.

23Og enn segi ég: Láttu ekki leiða þig út í heimskulegar þrætur, sem aðeins valda ófriði og illdeilum. 24Þjónar Drottins mega ekki vera þrasgjarnir, heldur ljúfir og uppfræða fólk með þolinmæði. 25Vertu hógvær þegar þú leiðbeinir þeim sem ekki þekkja sannleikann, og mótmæla þér. Þess meiri líkur eru á að þeir snúi sér frá villu sinni með Guðs hjálp og trúi sannleikanum. 26Þannig gætu þeir áttað sig og losnað úr gildru Satans. Hann reynir sífellt að fjötra menn í þrældóm syndarinnar og fá þá til að þjóna sér.

Ilustración artística: una interpretación, no un registro histórico.

¿Sabías que…?

Un maestro fiel bajo presión

  • Este capítulo advierte que la charla de Himeneo y Fileto se extiende como gangrena: se han desviado de la verdad al decir que la resurrección ya ocurrió, y así socavan la fe de algunos. El Easton's Bible Dictionary (1897) sitúa a Fileto, con Himeneo, en Éfeso, y describe esa afirmación, de que la resurrección ya había pasado, como una herejía gnóstica sostenida por los nicolaítas.Fuentes: el propio texto bíblico · Philetus
  • El autor pide que se recuerde a Jesucristo resucitado de entre los muertos y descendiente de David, el mensaje que él llama su evangelio. El Easton's Bible Dictionary (1897) describe a David como el octavo y más joven hijo de Isaí, ciudadano de Belén, cuyo trabajo inicial era cuidar las ovejas de su padre en las tierras altas de Judá.Fuentes: el propio texto bíblico · David
  • El servicio fiel se ilustra con tres imágenes: un soldado que evita los asuntos civiles para agradar a quien lo reclutó; un competidor que solo recibe la corona si compite según las reglas; y un agricultor trabajador, que debe ser el primero en participar de la cosecha. El autor también dice que sufre encadenado como un criminal, pero insiste en que la palabra de Dios no puede ser encadenada.Fuentes: el propio texto bíblico

Notas escritas con ayuda de IA a partir de fuentes abiertas (Theographic Bible Metadata, CC BY-SA 4.0; Easton’s Bible Dictionary, dominio público) y revisadas antes de publicarse.

Créditos y licencia de esta traducción
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Icelandic: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ (New Testament+)
copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc.
Language: Íslenska (Icelandic)
Contributor: Biblica, Inc.
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
Creative Commons License
Þetta verk er gert aðgengilegt samkvæmt CC BY-SA leyfinu (Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License). Til að skoða afrit af þessu leyfi skaltu fara á https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 eða senda bréf til Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, Bandaríkjunum.
Biblica® er vörumerki skráð af Biblica, Inc., og notkun á Biblica® vörumerkinu krefst skriflegs leyfis Biblica, Inc. Samkvæmt skilmálum CC BY-SA leyfisins geturðu afritað og endurdreift þessu óbreyttu verki svo framarlega sem þú heldur Biblica® vörumerkinu óskertu. Ef þú breytir afriti eða þýðir þetta verk og býrð þannig til afleitt verk, verður þú að fjarlægja Biblica® vörumerkið. Á afleidda verkinu verður þú að tilgreina hvaða breytingar þú hefur gert og eigna verkið á eftirfarandi hátt: "Upprunalega verkið eftir Biblica, Inc. er fáanlegt ókeypis á www.biblica.com og open.bible ."
Tilkynning um höfundarrétt verður að birtast á titla- eða höfundarréttarsíðu verksins sem hér segir:
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
Þú verður einnig að gera afleidda verkið þítt aðgengilegt samkvæmt sama leyfi (CC BY-SA).
Ef þú vilt láta Biblica, Inc. vita um þýðingu þína á þessu verki, vinsamlegast hafðu samband við okkur á https://open.bible/contact .
This work is made available under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License (CC BY-SA). To view a copy of this license, visit https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 or send a letter to Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, USA.
Biblica® is a trademark registered by Biblica, Inc., and use of the Biblica® trademark requires the written permission of Biblica, Inc. Under the terms of the CC BY-SA license, you may copy and redistribute this unmodified work as long as you keep the Biblica® trademark intact. If you modify a copy or translate this work, thereby creating a derivative work, you must remove the Biblica® trademark. On the derivative work, you must indicate what changes you have made and attribute the work as follows: “The original work by Biblica, Inc. is available for free at www.biblica.com and open.bible .”
Notice of copyright must appear on the title or copyright page of the work as follows:
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
You must also make your derivative work available under the same license (CC BY-SA).
If you would like to notify Biblica, Inc. regarding your translation of this work, please contact us at https://open.bible/contact .
This translation is made available to you under the terms of the
Creative Commons Attribution Share-Alike license 4.0.
You have permission to share and redistribute this Bible translation in any format and to make reasonable revisions and adaptations of this translation, provided that:
You include the above copyright and source information.
If you make any changes to the text, you must indicate that you did so in a way that makes it clear that the original licensor is not necessarily endorsing your changes.
If you redistribute this text, you must distribute your contributions under the same license as the original.
Pictures included with Scriptures and other documents on this site are licensed just for use with those Scriptures and documents.
For other uses, please contact the respective copyright owners.
Note that in addition to the rules above, revising and adapting God's Word involves a great responsibility to be true to God's Word. See Revelation 22:18-19.
2025-05-03

Fuente: http://ebible.org/isl/ · eBible.org

Habla con nosotros

Cuéntanos desde dónde lees, cómo te ha ayudado la Biblia o qué podemos mejorar. Leemos todos los mensajes.