2 Corintios 5
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ · Toca un versículo para ver sus referencias cruzadas.
1Við vitum að þegar tjaldið sem við nú búum í – okkar jarðneski líkami – verður fellt, en það gerist þegar við deyjum, þá munum við fá nýja líkama á himnum – bústað sem endist okkur um alla eilífð. Sá bústaður verður ekki gerður af manna höndum, heldur af Guði sjálfum. 2Við þreytumst í þessu lífi og því hlökkum við til þess dags er við fáum hina himnesku líkama, sem við íklæðumst eins og nýjum fötum, 3því að ekki munum við vera andar án líkama. 4Í þessu lífi er mæða og strit en samt kvíðum við dauðanum, af því að allt hið líkamlega og jarðneska er okkur svo kært. En við viljum íklæðast nýju líkömunum, svo að þessir deyjandi líkamar umbreytist til eilífs lífs. 5Þessu hefur Guð lofað okkur og því til staðfestingar hefur hann gefið okkur sinn heilaga anda.
6Nú horfum við glöð fram til þess tíma er við fáum þessa himnesku líkama okkar. En minnumst þess jafnframt að hvert andartak, sem við lifum í jarðnesku líkömunum, er tími sem við eyðum fjarri okkar eilífa heimili á himnum hjá Jesú. 7Þetta sjáum við ekki með líkamlegum augum, heldur með augum trúarinnar. 8Við erum alls óhrædd við dauðann, því að þá fáum við að fara heim til Drottins. 9Markmið okkar er því ávallt að þóknast honum í öllu sem við gerum, hvort sem það er í líkamanum, á jörðu, eða á himnum hjá Drottni. 10Öll verðum við að standa frammi fyrir dómstóli Krists. Hann mun rannsaka líf okkar og kveða upp sinn dóm. Þá mun sérhver fá endurgoldið eins og hann hefur til unnið, eftir því hvort hann hefur gert gott eða illt meðan hann lifði hér á jörðu.
Erindrekar Krists
11Vegna þess að við óttumst Drottin – elskum hann, virðum og heiðrum – þá leggjum við hart að okkur við að ávinna menn til trúar á hann. Guð þekkir hjörtu okkar og einlægni í þessu efni og ég vona að þið gerið það einnig.
12Erum við nú enn að reyna að hæla sjálfum okkur? Nei, en ég er að fá ykkur í hendur ágætt vopn. Þetta vopn getið þið notað gegn predikurum þeim sem stæra sig af útliti sínu og ræðum og láta stjórnast af óhreinu hugarfari. En hvað sem því líður, þá getið þið verið hreykin af heiðarleika okkar og góðum ásetningi. 13Sumir telja okkur ruglaða, en allt sem við gerum er vegna Guðs, vegna þess að kærleikur Krists knýr okkur. Fyrst við trúum því að Kristur hafi dáið fyrir okkur öll, þá eigum við einnig að trúa því að við séum dáin því lífi sem við lifðum. 15Hann dó fyrir alla til að allir sem lifa – og hafa eignast eilíft líf hjá honum – lifi ekki framar til að þóknast sjálfum sér, heldur honum sem dó og reis upp þeirra vegna. 16Hættið því að vega og meta kristna menn eftir því hvað heimurinn segir um þá eða eftir útliti þeirra. Áður fyrr leit ég á Krist aðeins frá mannlegu sjónarmiði, en þar urðu mér á mikil mistök. Nú hef ég svo sannarlega aðra skoðun. 17Sá sem verður kristinn, verður nýr maður. Hann er ekki lengur sá sami, því hann hefur eignast nýtt líf!
18Allt þetta nýja er frá Guði, sem leiddi okkur aftur til sín með því sem Kristur Jesús gerði. Því næst veitti Guð okkur þau forréttindi að fá að hvetja alla menn til að koma og sættast við hann. 19Guð sætti heiminn við sig í Kristi og hann ákærir mennina ekki lengur fyrir syndir þeirra, heldur fyrirgefur þeim. Þennan stórkostlega boðskap hefur hann falið okkur að flytja öllum mönnum. 20Við erum erindrekar Krists. Við biðjum í Krists stað: Sættist við Guð! 21Guð lagði syndir okkar á Krist, sem var syndlaus, en í staðinn jós hann kærleika sínum yfir okkur.

¿Sabías que…?
La reconciliación y la esperanza de un hogar celestial
- Este capítulo compara la vida presente con una tienda terrenal que puede desarmarse y la contrapone a un edificio de Dios: una casa eterna en el cielo, no construida por manos humanas. En esa tienda gimen, anhelando ser vestidos con la morada celestial en vez de quedar desnudos, para que la mortalidad sea tragada por la vida.Fuentes: el propio texto bíblico
- El autor dice que Dios los preparó para esto y les dio el Espíritu como garantía de lo que ha de venir. Están confiados, pero mientras están en casa en el cuerpo están lejos del Señor, caminando por fe y no por vista; todos deben comparecer ante el tribunal de Cristo para recibir lo que les corresponde por lo hecho en el cuerpo, sea bueno o malo.Fuentes: el propio texto bíblico
- El amor de Cristo los impulsa, pues uno murió por todos, para que los que viven ya no vivan para sí mismos, sino para quien murió por ellos y resucitó. Quien está en Cristo es una nueva creación — lo viejo pasó y lo nuevo ha llegado — y son embajadores de Cristo, portadores de un mensaje de reconciliación: Dios hizo pecado, en favor de ellos, a quien no conoció pecado, para que en él llegaran a ser justicia de Dios.Fuentes: el propio texto bíblico
Notas escritas con ayuda de IA a partir de fuentes abiertas (Theographic Bible Metadata, CC BY-SA 4.0; Easton’s Bible Dictionary, dominio público) y revisadas antes de publicarse.
Créditos y licencia de esta traducción
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Icelandic: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ (New Testament+) copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc. Language: Íslenska (Icelandic) Contributor: Biblica, Inc. Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. Creative Commons License Þetta verk er gert aðgengilegt samkvæmt CC BY-SA leyfinu (Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License). Til að skoða afrit af þessu leyfi skaltu fara á https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 eða senda bréf til Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, Bandaríkjunum. Biblica® er vörumerki skráð af Biblica, Inc., og notkun á Biblica® vörumerkinu krefst skriflegs leyfis Biblica, Inc. Samkvæmt skilmálum CC BY-SA leyfisins geturðu afritað og endurdreift þessu óbreyttu verki svo framarlega sem þú heldur Biblica® vörumerkinu óskertu. Ef þú breytir afriti eða þýðir þetta verk og býrð þannig til afleitt verk, verður þú að fjarlægja Biblica® vörumerkið. Á afleidda verkinu verður þú að tilgreina hvaða breytingar þú hefur gert og eigna verkið á eftirfarandi hátt: "Upprunalega verkið eftir Biblica, Inc. er fáanlegt ókeypis á www.biblica.com og open.bible ." Tilkynning um höfundarrétt verður að birtast á titla- eða höfundarréttarsíðu verksins sem hér segir: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. Þú verður einnig að gera afleidda verkið þítt aðgengilegt samkvæmt sama leyfi (CC BY-SA). Ef þú vilt láta Biblica, Inc. vita um þýðingu þína á þessu verki, vinsamlegast hafðu samband við okkur á https://open.bible/contact . This work is made available under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License (CC BY-SA). To view a copy of this license, visit https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 or send a letter to Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, USA. Biblica® is a trademark registered by Biblica, Inc., and use of the Biblica® trademark requires the written permission of Biblica, Inc. Under the terms of the CC BY-SA license, you may copy and redistribute this unmodified work as long as you keep the Biblica® trademark intact. If you modify a copy or translate this work, thereby creating a derivative work, you must remove the Biblica® trademark. On the derivative work, you must indicate what changes you have made and attribute the work as follows: “The original work by Biblica, Inc. is available for free at www.biblica.com and open.bible .” Notice of copyright must appear on the title or copyright page of the work as follows: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. You must also make your derivative work available under the same license (CC BY-SA). If you would like to notify Biblica, Inc. regarding your translation of this work, please contact us at https://open.bible/contact . This translation is made available to you under the terms of the Creative Commons Attribution Share-Alike license 4.0. You have permission to share and redistribute this Bible translation in any format and to make reasonable revisions and adaptations of this translation, provided that: You include the above copyright and source information. If you make any changes to the text, you must indicate that you did so in a way that makes it clear that the original licensor is not necessarily endorsing your changes. If you redistribute this text, you must distribute your contributions under the same license as the original. Pictures included with Scriptures and other documents on this site are licensed just for use with those Scriptures and documents. For other uses, please contact the respective copyright owners. Note that in addition to the rules above, revising and adapting God's Word involves a great responsibility to be true to God's Word. See Revelation 22:18-19. 2025-05-03
Fuente: http://ebible.org/isl/ · eBible.org