Nations Bible

2 Corintios 11

Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ · Toca un versículo para ver sus referencias cruzadas.

1Ég vona að þið umberið mig þótt ég haldi áfram að tala eins og heimskingi. Umberið mig og leyfið mér að segja það sem mér liggur á hjarta. 2Mér stendur ekki á sama um ykkur – ég ber sömu umhyggju fyrir ykkur og Guð. Ó, hve ég þrái að kærleikur ykkar beinist að Kristi einum, á sama hátt og ung og hrein stúlka geymir ást sína handa þeim sem hún elskar, og síðar giftist. 3En eitt óttast ég og það er að hugsanir ykkar spillist og einlægni ykkar gagnvart Drottni fari dvínandi, rétt eins og þegar Satan tældi Evu í Edensgarði. 4Þið virðist svo auðtrúa! Þið trúið öllu sem ykkur er sagt. Þið trúið jafnvel mönnum sem koma og boða annan Jesú en þann sem við boðum, annan anda en heilagan anda sem þið tókuð á móti og aðra leið til hjálpræðis en þá sem við sýndum ykkur. Þið gleypið við öllu.

Þessir menn eru svikarar!

5Mér finnast þessir „stórkostlegu sendimenn Guðs“, eins og þeir kalla sig, ekki standa mér framar í neinu. 6Þótt ég sé lélegur ræðumaður þá veit ég þó hvað ég segi, það vona ég að ykkur sé ljóst.

7Ég flutti ykkur fagnaðarerindið en ég krafðist einskis af ykkur í staðinn. Voru það mistök hjá mér? Átti ég að fara fram á einhverja þóknun og var rangt af mér að auðmýkja mig? 8Ég rúði aðra söfnuði og lifði á því sem þeir sendu mér, einnig þann tíma sem ég var hjá ykkur. Þannig þjónaði ég ykkur án þess að það kostaði ykkur neitt. Og þótt allt þryti og ég liði skort, þá bað ég ykkur samt ekki um neitt, því að hinir kristnu í Makedóníu færðu mér aðra gjöf. Ég hef aldrei beðið ykkur um krónu og mun aldrei gera það. 10Þetta skal ég standa við og segja öllum í Grikklandi. 11Hvers vegna? Er það vegna þess að mér þyki ekki vænt um ykkur? Nei, Guð veit að mér þykir það. 12En þetta geri ég til að kippa fótunum undan þeim sem stæra sig og segjast vinna verk Guðs eins og við.

13Þessir menn eru ekki sendir af Guði, það er áreiðanlegt. Þeir eru svikarar sem hafa fengið ykkur til að halda að þeir séu postular Krists. 14Það undrar mig reyndar ekki. Satan getur brugðið sér í gervi ljósengils. 15Verum því ekki hissa þótt þjónar hans geti gert það sama og látist vera þjónar Guðs. Þessir menn munu þó að lokum verða að súpa seyðið af illverkum sínum, rétt eins og þeir eiga skilið.

16Ég bið ykkur enn, og það vegna þessara orða, að halda ekki að ég sé búinn að missa vitið. En þótt þið haldið að svo sé, þá hlustið samt á mig – glórulausan manninn – heimskingjann. Nú ætla ég að hrósa mér dálítið á sama hátt og þeir. 17Slíkt grobb er ekki að vilja Guðs og því tala ég nú eins og algjör fáviti. 18Þessir menn eru sífellt að ræða við ykkur um hæfileika sína. 19Þið álítið ykkur skynsöm, en hlustið samt með ánægju á þessa heimskingja. Ykkur er alveg sama þótt þeir geri ykkur að þrælum, taki frá ykkur allt sem þið eigið, græði á ykkur og setji síðan upp merkissvip og slái ykkur utan undir. 21Mér þykir leitt, en ég mundi aldrei áræða að gera slíkt. En hverju sem þeir stæra sig af – og nú tala ég aftur eins og bjáni – þá get ég það líka. Jæja, lítum nú á hvað þeir segja.

22Þeir hrósa sér af því að vera Hebrear. Gott og vel, það er ég líka. Þeir segjast vera Ísraelsmenn og tilheyra Guðs útvöldu þjóð, ekki satt? Ég líka. Segjast þeir ekki vera afkomendur Abrahams? Sama er að segja um mig. 23Þeir halda því fram að þeir þjóni Kristi. Ég hef þjónað honum betur en þeir allir. (Nú tala ég eins og vitfirringur!) Ég hef lagt á mig meira erfiði en þeir, verið oftar í fangelsi, verið húðstrýktur mörgum sinnum og horfst í augu við dauðann hvað eftir annað. 24Fimm sinnum létu Gyðingar húðstrýkja mig, þrjátíu og níu högg í hvert sinn. Það var hræðilegt. 25Þrisvar hef ég verið barinn með prikum. Eitt sinn grýttur, þrisvar hef ég liðið skipbrot og eitt skiptið var ég sólarhring í sjó. 26Það er mörg leiðin og erfið sem ég hef orðið að ganga. Oft hef ég komist í hann krappan. Ég hef þurft að vaða vatnsmiklar ár. Ræningjar hafa verið á leið minni og lent hef ég í kasti við landa mína Gyðinga jafnt sem heiðingja. Margsinnis hef ég verið í lífshættu. Víða í borgum hef ég verið umkringdur af æstum múg. 27Ég hef verið útslitinn, sárþjáður, og margar andvökunæturnar hef ég átt. Oft hef ég þurft að þola hungur og þorsta, verið klæðlítill og þjáðst af kulda.

28Auk alls þessa hef ég sífelldar áhyggjur af því hvernig söfnuðunum líður. 29Hver gerir mistök án þess að ég verði hryggur? Hver fellur án þess að ég hafi áhuga á að reisa hann á fætur?

30Ef ég á annað borð verð að hrósa mér, þá vil ég heldur hrósa mér af veikleika mínum. 31Guð, faðir Drottins Jesú Krists, hann sem lofaður verður um aldir alda, veit að ég segi satt. 32Í Damaskus lét til dæmis landshöfðingi Areta konungs setja varðmenn við borgarhliðin til að handsama mig. 33En þá var ég látinn síga í körfu út um gat á borgarmúrnum og þannig slapp ég. (Eftirsóttur? Já, það má nú segja!)

Ilustración artística: una interpretación, no un registro histórico.

¿Sabías que…?

La jactancia insensata y los falsos apóstoles

  • El capítulo termina con la huida de Pablo de Damasco, donde el gobernador del rey Aretas había puesto la ciudad bajo vigilancia para arrestarlo, y fue bajado en una canasta por una ventana de la muralla. El Easton's Bible Dictionary (1897) identifica a Aretas como rey de Arabia Pétrea y dice que, tras la muerte del emperador Tiberio en el año 37 d.C., Aretas tomó posesión de Damasco, cuando Pablo regresó allí desde Arabia. El mismo diccionario llama a Damasco la más antigua de las ciudades orientales y la capital de Siria, a unas 133 millas al norte de Jerusalén.Fuentes: el propio texto bíblico · Aretas · Damascus
  • Pablo dice que, cuando estaba con ellos y tenía necesidad, no fue una carga para nadie, porque hermanos venidos de Macedonia suplieron sus necesidades, y que esta jactancia no será silenciada en las regiones de Acaya. En tiempos del Nuevo Testamento, Macedonia era una provincia romana al norte de Grecia, gobernada por un propretor con el título de procónsul. Acaya, en el sentido en que el nombre se usa en el Nuevo Testamento, era la otra provincia romana, que abarcaba el Peloponeso y el sur de Grecia.Fuentes: el propio texto bíblico · Macedonia · Achaia
  • Pablo teme que las mentes de sus lectores sean extraviadas de su sencilla y pura devoción a Cristo, así como Eva fue engañada por la astucia de la serpiente, y advierte que falsos apóstoles se disfrazan de apóstoles de Cristo. Añade que esto no es de extrañar, pues Satanás mismo se disfraza de ángel de luz, y sus siervos, de siervos de justicia. Un artículo de diccionario señala que Satanás, que significa adversario o acusador, también es llamado la serpiente antigua y, en esta misma carta, el dios de este mundo.Fuentes: el propio texto bíblico · Satan

Notas escritas con ayuda de IA a partir de fuentes abiertas (Theographic Bible Metadata, CC BY-SA 4.0; Easton’s Bible Dictionary, dominio público) y revisadas antes de publicarse.

Lugares de este capítulo

  • Macedonia · 41.600, 22.540 · versículo 9
  • Achaia · 38.720, 22.540 · versículo 10
  • Damascus · 33.511, 36.306 · versículo 32

Solo aparecen lugares identificados con alta confianza (90 % o más según las fuentes académicas reunidas por OpenBible). Mapa de la época: DARE (Digital Atlas of the Roman Empire), CC BY 4.0; mapa actual: © colaboradores de OpenStreetMap; lugares: OpenBible.info (CC BY 4.0).

Créditos y licencia de esta traducción
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Icelandic: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ (New Testament+)
copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc.
Language: Íslenska (Icelandic)
Contributor: Biblica, Inc.
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
Creative Commons License
Þetta verk er gert aðgengilegt samkvæmt CC BY-SA leyfinu (Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License). Til að skoða afrit af þessu leyfi skaltu fara á https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 eða senda bréf til Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, Bandaríkjunum.
Biblica® er vörumerki skráð af Biblica, Inc., og notkun á Biblica® vörumerkinu krefst skriflegs leyfis Biblica, Inc. Samkvæmt skilmálum CC BY-SA leyfisins geturðu afritað og endurdreift þessu óbreyttu verki svo framarlega sem þú heldur Biblica® vörumerkinu óskertu. Ef þú breytir afriti eða þýðir þetta verk og býrð þannig til afleitt verk, verður þú að fjarlægja Biblica® vörumerkið. Á afleidda verkinu verður þú að tilgreina hvaða breytingar þú hefur gert og eigna verkið á eftirfarandi hátt: "Upprunalega verkið eftir Biblica, Inc. er fáanlegt ókeypis á www.biblica.com og open.bible ."
Tilkynning um höfundarrétt verður að birtast á titla- eða höfundarréttarsíðu verksins sem hér segir:
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
Þú verður einnig að gera afleidda verkið þítt aðgengilegt samkvæmt sama leyfi (CC BY-SA).
Ef þú vilt láta Biblica, Inc. vita um þýðingu þína á þessu verki, vinsamlegast hafðu samband við okkur á https://open.bible/contact .
This work is made available under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License (CC BY-SA). To view a copy of this license, visit https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 or send a letter to Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, USA.
Biblica® is a trademark registered by Biblica, Inc., and use of the Biblica® trademark requires the written permission of Biblica, Inc. Under the terms of the CC BY-SA license, you may copy and redistribute this unmodified work as long as you keep the Biblica® trademark intact. If you modify a copy or translate this work, thereby creating a derivative work, you must remove the Biblica® trademark. On the derivative work, you must indicate what changes you have made and attribute the work as follows: “The original work by Biblica, Inc. is available for free at www.biblica.com and open.bible .”
Notice of copyright must appear on the title or copyright page of the work as follows:
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
You must also make your derivative work available under the same license (CC BY-SA).
If you would like to notify Biblica, Inc. regarding your translation of this work, please contact us at https://open.bible/contact .
This translation is made available to you under the terms of the
Creative Commons Attribution Share-Alike license 4.0.
You have permission to share and redistribute this Bible translation in any format and to make reasonable revisions and adaptations of this translation, provided that:
You include the above copyright and source information.
If you make any changes to the text, you must indicate that you did so in a way that makes it clear that the original licensor is not necessarily endorsing your changes.
If you redistribute this text, you must distribute your contributions under the same license as the original.
Pictures included with Scriptures and other documents on this site are licensed just for use with those Scriptures and documents.
For other uses, please contact the respective copyright owners.
Note that in addition to the rules above, revising and adapting God's Word involves a great responsibility to be true to God's Word. See Revelation 22:18-19.
2025-05-03

Fuente: http://ebible.org/isl/ · eBible.org

Habla con nosotros

Cuéntanos desde dónde lees, cómo te ha ayudado la Biblia o qué podemos mejorar. Leemos todos los mensajes.