1 Juan 4
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ · Toca un versículo para ver sus referencias cruzadas.
Elskið hvert annað
1Elsku vinir, trúið ekki öllu sem þið heyrið, enda þótt menn segi að það sé boðskapur frá Guði. Sannprófið það fyrst. Margir falskennendur eru nú á ferð um heiminn. 2Til að vita hvort boðskapur þeirra sé frá heilögum anda, skulum við spyrja hvort Jesús Kristur, sonur Guðs, hafi orðið maður og komið í mannslíkama. Ef þeir viðurkenna það, þá er boðskapur þeirra frá Guði, 3ef ekki, þá er hann frá andstæðingi Krists – andkristinum – sem þið hafið heyrt að koma muni, og áhrifa hans gætir nú þegar í heiminum.
4Kæru ungu vinir, þið tilheyrið Guði og hafið þegar unnið sigur á andstæðingum Krists, því að sá sem er í ykkur, er máttugri en allir falskennendur þessa óguðlega heims. 5Þeir eru af þessum heimi og hafa þess vegna allan hugann við það sem heimsins er, og heimurinn hefur áhuga á þeim. 6En við erum Guðs börn og þess vegna vilja þeir einir hlusta á okkur, sem hafa samfélag við Guð. Aðrir hafa ekki áhuga. Við höfum einnig aðra leið til að sannprófa hvort einhver boðskapur sé frá Guði: Ef hann er frá Guði, vill heimurinn ekki hlusta.
7Kæru vinir, elskum hvert annað, því kærleikurinn er frá Guði. Þeir sem iðka kærleika og umhyggju, sýna að þeir eru börn Guðs og þekking þeirra á honum fer vaxandi. 8Sá sem ekki sýnir kærleika, þekkir ekki Guð, því að Guð er kærleikur.
9Guð hefur sýnt kærleika sinn með því að senda einkason sinn, í þennan hrjáða heim, til að deyja fyrir okkur og gefa okkur eilíft líf. 10Kærleikurinn birtist ekki í því að við elskuðum Guð, heldur í því að hann elskaði okkur og sendi son sinn til að afplána refsingu fyrir syndir okkar.
11Kæru vinir, fyrst Guð hefur elskað okkur svo heitt, ber okkur einnig að elska hvert annað, 12Enginn hefur nokkru sinni séð Guð eins og hann er í raun og veru, en samt lifir hann í okkur, það er að segja, þegar við elskum hvert annað og leyfum kærleika hans að vaxa í okkur. 13Guð hefur einnig gefið okkur heilagan anda og það sýnir að við lifum í samfélagi við hann. 14Við höfum séð með eigin augum og vitnum fyrir öllum heiminum, að Guð sendi son sinn til að verða frelsara allra manna. 15Hver sá sem trúir og játar að Jesús sé sonur Guðs, á Guð í hjarta sínu og lifir í samfélagi við hann.
16Við vitum að Guð elskar okkur – við höfum fundið kærleika hans! Við vitum það einnig vegna þess að við trúum orðum hans, að hann elski okkur. Guð er kærleikur og sá sem sýnir kærleika í verki, lifir í Guði og Guð í honum. 17Ef við lifum í Kristi, vex kærleikur okkar og nær fullkomnun og þá verðum við okkur ekki til skammar eða háðungar á degi dómsins. Þá getum við glöð og hugrökk horfst í augu við hann, því að hann elskar okkur og við elskum hann.
18Okkur er óþarft að óttast þann, sem elskar okkur, því að hans fullkomni kærleikur rekur burt allan ótta. Ef við erum hrædd, þá er það vegna þess að við höldum að Guð muni refsa okkur – við erum ekki fyllilega sannfærð um að hann elski okkur. 19Af þessu má sjá að kærleikur okkar til hans er afleiðing af kærleika hans til okkar.
20Ef einhver segir: „Ég elska Guð,“ og heldur áfram að hata bróður sinn, sem hann umgengst og sér, hvernig getur hann þá elskað Guð, sem hann hefur aldrei séð? 21Boðorð Guðs er svona: „Sá, sem elskar Guð, á einnig að elska bróður sinn.“

¿Sabías que…?
Probando los espíritus y el amor que viene de Dios
- A los lectores tratados como amados se les dice que no crean a todo espíritu, sino que prueben los espíritus, pues muchos falsos profetas han salido por el mundo. El Espíritu de Dios se reconoce cuando un espíritu confiesa que Jesucristo ha venido en carne; todo espíritu que no confiesa a Jesús no es de Dios y es el espíritu del anticristo, que ya está en el mundo.Fuentes: el propio texto bíblico
- El amor viene de Dios, y Dios es amor, de modo que quien no ama no conoce a Dios. El amor de Dios se reveló al enviar a su Hijo único al mundo como sacrificio expiatorio por los pecados, y a quienes han sido así amados se les dice que deben amarse unos a otros.Fuentes: el propio texto bíblico
- Nadie ha visto jamás a Dios, pero si nos amamos unos a otros, Dios permanece en nosotros y su amor se perfecciona en nosotros. Quien dice “Amo a Dios”, pero odia a su hermano, es mentiroso, pues quien no ama a su hermano, a quien ha visto, no puede amar a Dios, a quien no ha visto, y el mandamiento es que quien ama a Dios también ame a su hermano.Fuentes: el propio texto bíblico
Notas escritas con ayuda de IA a partir de fuentes abiertas (Theographic Bible Metadata, CC BY-SA 4.0; Easton’s Bible Dictionary, dominio público) y revisadas antes de publicarse.
Créditos y licencia de esta traducción
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Icelandic: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ (New Testament+) copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc. Language: Íslenska (Icelandic) Contributor: Biblica, Inc. Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. Creative Commons License Þetta verk er gert aðgengilegt samkvæmt CC BY-SA leyfinu (Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License). Til að skoða afrit af þessu leyfi skaltu fara á https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 eða senda bréf til Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, Bandaríkjunum. Biblica® er vörumerki skráð af Biblica, Inc., og notkun á Biblica® vörumerkinu krefst skriflegs leyfis Biblica, Inc. Samkvæmt skilmálum CC BY-SA leyfisins geturðu afritað og endurdreift þessu óbreyttu verki svo framarlega sem þú heldur Biblica® vörumerkinu óskertu. Ef þú breytir afriti eða þýðir þetta verk og býrð þannig til afleitt verk, verður þú að fjarlægja Biblica® vörumerkið. Á afleidda verkinu verður þú að tilgreina hvaða breytingar þú hefur gert og eigna verkið á eftirfarandi hátt: "Upprunalega verkið eftir Biblica, Inc. er fáanlegt ókeypis á www.biblica.com og open.bible ." Tilkynning um höfundarrétt verður að birtast á titla- eða höfundarréttarsíðu verksins sem hér segir: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. Þú verður einnig að gera afleidda verkið þítt aðgengilegt samkvæmt sama leyfi (CC BY-SA). Ef þú vilt láta Biblica, Inc. vita um þýðingu þína á þessu verki, vinsamlegast hafðu samband við okkur á https://open.bible/contact . This work is made available under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License (CC BY-SA). To view a copy of this license, visit https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 or send a letter to Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, USA. Biblica® is a trademark registered by Biblica, Inc., and use of the Biblica® trademark requires the written permission of Biblica, Inc. Under the terms of the CC BY-SA license, you may copy and redistribute this unmodified work as long as you keep the Biblica® trademark intact. If you modify a copy or translate this work, thereby creating a derivative work, you must remove the Biblica® trademark. On the derivative work, you must indicate what changes you have made and attribute the work as follows: “The original work by Biblica, Inc. is available for free at www.biblica.com and open.bible .” Notice of copyright must appear on the title or copyright page of the work as follows: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. You must also make your derivative work available under the same license (CC BY-SA). If you would like to notify Biblica, Inc. regarding your translation of this work, please contact us at https://open.bible/contact . This translation is made available to you under the terms of the Creative Commons Attribution Share-Alike license 4.0. You have permission to share and redistribute this Bible translation in any format and to make reasonable revisions and adaptations of this translation, provided that: You include the above copyright and source information. If you make any changes to the text, you must indicate that you did so in a way that makes it clear that the original licensor is not necessarily endorsing your changes. If you redistribute this text, you must distribute your contributions under the same license as the original. Pictures included with Scriptures and other documents on this site are licensed just for use with those Scriptures and documents. For other uses, please contact the respective copyright owners. Note that in addition to the rules above, revising and adapting God's Word involves a great responsibility to be true to God's Word. See Revelation 22:18-19. 2025-05-03
Fuente: http://ebible.org/isl/ · eBible.org