Nations Bible

1 Corintios 15

Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ · Toca un versículo para ver sus referencias cruzadas.

Kjarni málsins

1Kæru vinir, nú vil ég minna ykkur á kjarna fagnaðarerindisins. Hann hefur ekki breyst – það er sami góði boðskapurinn sem ég flutti ykkur forðum. Þið tókuð við honum með fögnuði og gerið enn, því að trú ykkar er grundvölluð á þessum dásamlega boðskap. 2Hann mun verða ykkur til hjálpræðis ef þið haldið fast í trúna, annars ekki til neins.

3Ég sagði ykkur þegar frá byrjun, eins og mér hafði verið kennt, að Kristur dó vegna synda okkar – alveg eins og Biblían hafði sagt fyrir. 4Hann var grafinn og reis á þriðja degi frá dauðum, eins og spámennirnir höfðu talað um. 5Eftir það birtist hann Pétri og því næst hinum postulunum. 6Síðan sáu hann meira en fimm hundruð trúbræður okkar í einu og eru flestir þeirra á lífi enn í dag. 7Þá birtist hann líka Jakobi og loks postulunum öllum. 8Síðast allra birtist hann svo mér, löngu síðar – eins og ég hefði fæðst of seint – 9því að ég er sístur allra postulanna og reyndar ætti ég alls ekki að kallast postuli, því að ég ofsótti söfnuðinn – kirkju Guðs.

10En það sem ég er nú, er allt því að þakka að Guð veitti mér óverðskuldaða miskunn og náð. Það varð ekki heldur til einskis, því ég hef lagt harðar að mér en nokkur hinna postulanna. Slíkt er þó ekki mér að þakka heldur hefur Guð komið því til leiðar. 11Það skiptir ekki máli hver hefur unnið mest, ég eða þeir, mikilvægast er að við fluttum ykkur gleðiboðskapinn og að þið trúðuð honum.

12En bíðið nú við! Hvernig stendur á því að sum ykkar segja að hinir dauðu muni ekki lifna á ný, fyrst þið trúið boðskap okkar um að Kristur sé upprisinn frá dauðum? 13Ef ekki er til upprisa dauðra, þá hlýtur Kristur að liggja dáinn í gröf sinni. 14Og sé hann ekki upprisinn, þá höfum við predikað til ónýtis og þá er trú ykkar og traust á Guði einskis virði, og allt vonlaust! 15Þá erum við postularnir allir lygarar, því að við höfum staðhæft að Guð hafi reist Krist úr gröfinni – það er þá auðvitað ósatt ef dauðir geta ekki risið upp. 16Ef þeir geta það ekki, þá er Kristur ekki heldur upprisinn. 17Þá er líka trú ykkar, að Guð geti hjálpað ykkur og frelsað, tóm vitleysa og þið þar með enn ofurseld bölvun syndarinnar. 18Þá eru þeir allir glataðir, sem dáið hafa í trú á upprisu Krists, 19og við sem nú trúum vonlaus og aumust allra manna.

20Nei og aftur nei! Kristur er svo sannarlega upprisinn! Hann er hinn fyrsti allra þeirra sem eiga eftir að rísa upp frá dauðum.

21Dauðinn kom inn í þennan heim vegna syndar eins manns Adams, en fyrir tilverknað Krists er nú til upprisa dauðra. 22A sama hátt og allir deyja vegna þess að þeir eru afkomendur Adams, svo munu og allir þeir sem tilheyra Kristi, rísa upp frá dauðum. 23Þó hver í réttri röð: Kristur fyrst, og síðan – er Kristur kemur aftur – munu allir sem honum tilheyra rísa upp til lífsins á ný.

24Þegar hann hefur lagt að velli alla óvini sína, koma endalokin og hann afhendir Guði föður konungsvald sitt.

25Kristur mun verða konungur uns hann hefur sigrað alla óvini sína, 26þar á meðal síðasta óvininn, dauðann. 27Guð gefur Kristi allt vald á himni og jörðu, en Kristur ríkir þó auðvitað ekki yfir Guði föður, sem gaf honum þetta vald og ráð. 28Þegar Kristur hefur loks unnið sigur á öllum óvinum sínum, mun hann, sonur Guðs, fela allt undir vald föðurins, svo að Guð, sem hefur gefið honum sigur yfir öllu, mun verða allsráðandi og æðstur.

29Til hvers eru menn að láta skíra sig fyrir þá dánu, ef dánir menn rísa alls ekki upp?

30Og hvers vegna ættum við þá sífellt að leggja líf okkar í hættu? 31Dag hvern er ég í bráðri lífshættu. Það er eins satt og ég er hreykinn af því að hafa leitt ykkur til trúar á Drottin, Jesú Krist. 32Og hvaða vit væri þá í því að berjast við óargadýr, eins og í Efesus, ef það væri aðeins til þess að hljóta ávinning í þessu lífi? Ef Drottinn vekur okkur ekki upp frá dauðum þá skulum við bara borða, drekka, vera glöð og njóta líðandi stundar, því að á morgun deyjum við og þá er allt búið!

33Nei, látið ekki þá sem svona tala blekkja ykkur. Ef þið hlustið á þá, þá farið þið fljótlega að líkja eftir þeim. 34Verið á verði og syndgið ekki. Ykkur til blygðunar segi ég: Sum ykkar eru hreint ekki kristin og hafa aldrei kynnst Guði í raun og veru.

Upprisa okkar – nýr líkami

35Nú kann einhver að spyrja: „Hvernig munu dauðir rísa upp? Hvers konar líkama munu þeir fá?“ 36Svona spurning er óþörf. Líttu á garðinn þinn. Þegar þú sáir fræi í mold, þá verður það ekki að jurt nema það deyi fyrst. 37Græni sprotinn, sem springur út úr fræinu, er harla ólíkur fræinu sem þú sáðir. Það sem þú sáðir í moldina var örsmátt korn – hvort sem það var hveiti eða eitthvað annað. 38Síðan gefur Guð því nýjan líkama, einmitt af þeirri gerð sem hann sjálfur vill. Af hverri frætegund vex sérstök jurt, ólík öðrum tegundum. 39Rétt eins og til eru mismunandi tegundir jurta, þannig eru til mismunandi gerðir holds: Menn, dýr, fiskar, fuglar – allt er þetta sitt með hverju móti.

40Englarnir á himnum hafa líkama, sem eru gjörólíkir okkar. Fegurð þeirra og vegsemd er önnur en fegurð og vegsemd okkar. 41Sólin er dýrleg í ljóma sínum, og tunglið og stjörnurnar eru það líka, en þó á annan hátt, og innbyrðis ber stjarna af stjörnu í birtu og ljóma.

42Á sama hátt eru jarðneskir líkamar okkar, sem deyja og rotna, ólíkir þeim líkömum sem við fáum í upprisunni, því að þeir munu aldrei deyja. 43Þeir líkamar sem við höfum nú, valda okkur oft erfiðleikum, því að þeir sýkjast, hrörna og deyja, en í upprisunni munu þeir breytast á dýrlegan hátt. Nú eru þeir veikbyggðir og dauðlegir, en þá verða þeir þrungnir lífskrafti. 44Í dauðanum eru þeir mannlegir líkamar, en í upprisunni himneskir líkamar.

45Biblían segir að hinum fyrsta manni, Adam, hafi verið gefinn jarðneskur líkami en Kristur er meira en það, því að hann er lífgefandi andi.

46Sem sagt: Fyrst höfum við jarðneskan líkama, en síðan gefur Guð okkur andlegan, himneskan líkama. 47Adam var myndaður af efnum jarðar, en Kristur kemur af himnum. 48Sérhver maður hefur líkama af sömu gerð og Adam, úr jarðnesku efni, en allir sem Kristi tilheyra, munu hljóta sams konar líkama og hann – himneskan líkama. 49Eins og við nú höfum sams konar líkama og Adam, munum við í upprisunni fá sams konar líkama og Kristur.

50Því segi ég ykkur, kæru vinir, jarðneskur líkami úr holdi og blóði getur ekki komist inn í guðsríki, því að okkar dauðlegu líkamar geta ekki lifað að eilífu. 51En nú segi ég ykkur furðulegan og dásamlegan leyndardóm: Við munum ekki öll deyja, en þó munum við öll fá nýjan líkama – við munum umbreytast! Allt mun þetta gerast á svipstundu, þegar síðasti lúðurinn hljómar. 52Þá munu allir kristnir menn, sem dánir eru, rísa upp, íklæddir nýjum líkömum, sem aldrei hrörna eða deyja. Þeir sem þá verða enn á lífi, munu allt í einu umbreytast og fá nýjan líkama eins og hinir. 53Þessir jarðnesku dauðlegu líkamar okkar, sem við berum nú, verða að umbreytast í himneska líkama sem aldrei deyja.

54Þegar þetta gerist, munu rætast þessi orð Biblíunnar: „Dauðinn er uppsvelgdur í sigur. 55Dauði, hvar er sigur þinn? Hvar er broddur þinn?“ Syndin – broddurinn sem veldur dauða – verður þá orðin að engu og lögmálið, sem afhjúpar syndir okkar, mun ekki lengur dæma okkur.

57Þökkum Guði fyrir allt þetta. Það er Guð sem gefur okkur sigurinn fyrir Drottin, Jesú Krist.

58Kæru vinir – framtíðarsigurinn er tryggður! Verið því sterk, óbifanleg, sístarfandi fyrir Drottin, og vitið að ekkert, sem þið gerið fyrir hann, er til einskis.

Ilustración artística: una interpretación, no un registro histórico.

¿Sabías que…?

La resurrección de los muertos

  • Cuando este capítulo pregunta qué se ganó al luchar con fieras en Éfeso, nombra una ciudad que el Easton's Bible Dictionary llama capital del Asia proconsular, conocida por un teatro a cielo abierto —el más grande del mundo, capaz de albergar a 50.000 espectadores— donde se presentaban luchas de fieras y de hombres contra fieras.Fuentes: Ephesus · el propio texto bíblico
  • El Easton's Bible Dictionary explica que Adán, palabra babilónica que significa rojo y el nombre común de hombre en hebreo y en asirio, fue el primer hombre, formado del polvo de la tierra, y por eso recibió ese nombre. Este capítulo retoma esa imagen: la muerte vino por medio de un hombre, el primer hombre era del polvo, y el último Adán es espíritu vivificante.Fuentes: Adam · el propio texto bíblico
  • El Easton's Bible Dictionary (1897) identifica al Jacobo a quien Cristo se apareció después de la resurrección, como registra este capítulo, como hermano o pariente cercano de Jesús, también llamado Jacobo el Menor, y dice que después encabezó la iglesia en Jerusalén.Fuentes: James (Brother of Jesus) · el propio texto bíblico

Notas escritas con ayuda de IA a partir de fuentes abiertas (Theographic Bible Metadata, CC BY-SA 4.0; Easton’s Bible Dictionary, dominio público) y revisadas antes de publicarse.

Lugares de este capítulo

  • Ephesus · 37.939, 27.341 · versículo 32

Solo aparecen lugares identificados con alta confianza (90 % o más según las fuentes académicas reunidas por OpenBible). Mapa de la época: DARE (Digital Atlas of the Roman Empire), CC BY 4.0; mapa actual: © colaboradores de OpenStreetMap; lugares: OpenBible.info (CC BY 4.0).

Créditos y licencia de esta traducción
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Icelandic: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ (New Testament+)
copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc.
Language: Íslenska (Icelandic)
Contributor: Biblica, Inc.
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
Creative Commons License
Þetta verk er gert aðgengilegt samkvæmt CC BY-SA leyfinu (Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License). Til að skoða afrit af þessu leyfi skaltu fara á https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 eða senda bréf til Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, Bandaríkjunum.
Biblica® er vörumerki skráð af Biblica, Inc., og notkun á Biblica® vörumerkinu krefst skriflegs leyfis Biblica, Inc. Samkvæmt skilmálum CC BY-SA leyfisins geturðu afritað og endurdreift þessu óbreyttu verki svo framarlega sem þú heldur Biblica® vörumerkinu óskertu. Ef þú breytir afriti eða þýðir þetta verk og býrð þannig til afleitt verk, verður þú að fjarlægja Biblica® vörumerkið. Á afleidda verkinu verður þú að tilgreina hvaða breytingar þú hefur gert og eigna verkið á eftirfarandi hátt: "Upprunalega verkið eftir Biblica, Inc. er fáanlegt ókeypis á www.biblica.com og open.bible ."
Tilkynning um höfundarrétt verður að birtast á titla- eða höfundarréttarsíðu verksins sem hér segir:
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
Þú verður einnig að gera afleidda verkið þítt aðgengilegt samkvæmt sama leyfi (CC BY-SA).
Ef þú vilt láta Biblica, Inc. vita um þýðingu þína á þessu verki, vinsamlegast hafðu samband við okkur á https://open.bible/contact .
This work is made available under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License (CC BY-SA). To view a copy of this license, visit https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 or send a letter to Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, USA.
Biblica® is a trademark registered by Biblica, Inc., and use of the Biblica® trademark requires the written permission of Biblica, Inc. Under the terms of the CC BY-SA license, you may copy and redistribute this unmodified work as long as you keep the Biblica® trademark intact. If you modify a copy or translate this work, thereby creating a derivative work, you must remove the Biblica® trademark. On the derivative work, you must indicate what changes you have made and attribute the work as follows: “The original work by Biblica, Inc. is available for free at www.biblica.com and open.bible .”
Notice of copyright must appear on the title or copyright page of the work as follows:
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
You must also make your derivative work available under the same license (CC BY-SA).
If you would like to notify Biblica, Inc. regarding your translation of this work, please contact us at https://open.bible/contact .
This translation is made available to you under the terms of the
Creative Commons Attribution Share-Alike license 4.0.
You have permission to share and redistribute this Bible translation in any format and to make reasonable revisions and adaptations of this translation, provided that:
You include the above copyright and source information.
If you make any changes to the text, you must indicate that you did so in a way that makes it clear that the original licensor is not necessarily endorsing your changes.
If you redistribute this text, you must distribute your contributions under the same license as the original.
Pictures included with Scriptures and other documents on this site are licensed just for use with those Scriptures and documents.
For other uses, please contact the respective copyright owners.
Note that in addition to the rules above, revising and adapting God's Word involves a great responsibility to be true to God's Word. See Revelation 22:18-19.
2025-05-03

Fuente: http://ebible.org/isl/ · eBible.org

Habla con nosotros

Cuéntanos desde dónde lees, cómo te ha ayudado la Biblia o qué podemos mejorar. Leemos todos los mensajes.