Mark 4
316-biblían · Tap a verse to see its cross-references.
1Síðar var Jesús aftur að kenna við vatnið. Svo mikill fjöldi fólks kom að hlusta á kennslu hans að hann neyddist til að fara á bát út á vatnið og kenna þaðan meðan fólkið hlustaði á hann af ströndinni. 2Hann notaði ýmsar líkingar og dæmisögur til að kenna þeim og sagði: 3„Einu sinni var bóndi sem fór út að sá fræjum. 4Þegar hann dreifði fræjunum lentu sum þeirra útfyrir – og fuglarnir komu og átu þau fræ. 5Önnur fræ lentu ekki í djúpri mold heldur í þunnu moldarlagi með grjóti undir. Þau spruttu fljótt upp vegna þess að moldin yfir grjótinu var mjög grunn 6en þegar sólin skein á spírurnar visnuðu þær fljótt og dóu vegna þess að þær höfðu engar rætur. 7Enn önnur fræ lentu innan um illgresi, sem kæfði spírurnar þannig að þær náðu ekki að spretta. 8En önnur fræ lentu í djúpri og góðri mold, þar sem þau spíruðu og urðu að sterkum og heilbrigðum plöntum sem gáfu af sér mikinn og góðan ávöxt. 9Hugsið um það sem þið hafið heyrt og veltið því vel fyrir ykkur.“
10Seinna, þegar þeir voru orðnir einir, spurðu lærisveinarnir Jesú út í þessa dæmisögu. 11„Þið hafið kannski fengið að skilja leyndarmál konungsríkis Guðs,“ sagði hann, „en allir hinir fá þessa dæmisögu til þess að útskýra þetta fyrir þeim. 12Þeir horfa án þess að sjá og heyra án þess að skilja, en með þessu fá þeir sem það vilja tækifæri til þess að snúa sér frá syndum sínum og fá fyrirgefningu.
13Skiljið þið enn ekki dæmisöguna?“ spurði hann lærisveinana. „Hvernig ætlið þið þá að skilja allar hinar dæmisögurnar? 14Fræin sem bóndinn sáir eru orð Guðs. 15Fræin sem lenda útfyrir eru fólkið sem heyrir þetta orð en Satan kemur síðan um leið og rífur upp orðið sem var sáð í hjörtu þess. 16Síðan eru það fræin sem lenda í grunnu moldinni. Þau eru fólkið sem heyrir orðið og bregst vel við því í fyrstu, 17en það tímabil varir stutt vegna þess að það hefur engar rætur. Um leið og það lendir í einhverjum erfiðleikum vegna orðsins missir það áhugann. 18Fræin sem lenda í illgresinu eru fólkið sem heyrir orðið 19en áhyggjurnar í lífinu, og ýmsar freistingar eins og peningar, læðast að því og kæfa orðið þannig að það nær ekki að spretta í lífi þess. 20En fræin sem lenda í djúpu og góðu moldinni eru fólkið sem heyrir orðið, tekur við því og ber þess vegna mikinn og góðan ávöxt.“
21„Mynduð þið fela lampa undir fötu eða undir rúmi?“ spurði hann þá. „Mynduð þið ekki stilla honum upp þar sem hann gæti lýst? 22Það er ekkert falið sem verður ekki gert opinbert. 23Hugsið vel um það sem þið hafið heyrt.“ 24Síðan sagði hann: „Það sem þið hafið heyrt er ofboðslega mikilvægt. Þið verðið mældir í samræmi við það hvernig þið mælið sjálfir - þeir sem heyra munu fá meira. 25Sá sem hefur eitthvað fær meira, og sá sem hefur ekki neitt missir það litla sem hann hafði.“
26Og hann sagði: „Konungsríki Guðs er eins og þegar maður dreifir fræjum á jörðina. 27Hann fer leiðar sinnar, dagarnir líða og fræin vaxa og dafna án þess að hann viti af því. 28Plönturnar spretta af sjálfum sér upp úr jörðinni – fyrst stönglarnir, svo blómin, og loks ávextirnir sjálfir. 29En þegar ávextirnir eru komnir fram kemur maðurinn og tínir þá, því þá eru þeir orðnir fullþroskaðir.“
30Og hann sagði: „Hvað er hægt að bera konungsríki Guðs saman við? Hvernig er best að lýsa því? 31Það er eins og pínulítið fræ sem er sáð í jörðina 32en þegar það sprettur og vex verður það stærra en allar hinar plönturnar - það verður á endanum að risastóru tré með svo stórar greinar að fuglarnir safnast saman á þeim.“ 33Hann sagði þeim fjölmargar aðrar dæmisögur, eins margar og þeir gátu skilið. 34Hann talaði til fólksins í dæmisögum, en seinna þegar þeir voru einir útskýrði hann dæmisögurnar fyrir lærisveinunum.
35Seinna þennan sama dag, um kvöldið, sagði hann við þá að þeir skyldu fara yfir vatnið. 36Þegar mannfjöldinn var farinn lögðu þeir af stað með honum yfir vatnið á litlum bátum. 37Skyndilega sigldu þeir inn í mikið hvassviðri – öldurnar skullu á bátnum svo vatnið flæddi inn yfir borðstokkinn. 38Lærisveinarnir flýttu sér að vekja Jesú, sem lá aftast í bátnum og svaf. „Kennari!“ hrópuðu þeir. „Við erum að sökkva, er þér alveg sama?“ 39Jesús vaknaði og skipaði bæði vindinum og vatninu að lægja sig. Um leið lægði vindinn og allt varð kyrrt og hljótt úti á vatninu. 40„Við hvað eruð þið svona hræddir?“ spurði hann lærisveinana. „Hafið þið svona litla trú?“ 41Þeir urðu mjög skelkaðir. „Hver er þessi maður eiginlega?“ spurðu þeir hver annan. „Meira að segja vindarnir og vatnið hlýða honum.“

Did you know?
Parables of the Kingdom by the Sea
- Mark 4 begins with Jesus teaching a large crowd from a boat on the sea and ends with a violent windstorm on that water. A chronology of the episode dates these seaside parables and the miracle to a single day in AD 28.Sources: the Bible text itself · Seaside Parables and Miracle
- In explaining the sower, Jesus says that Satan comes and takes away the word sown along the path. The name Satan means adversary or accuser, and in the New Testament it is used interchangeably with the devil more than thirty times.Sources: the Bible text itself · Satan
- Jesus says the kingdom of God is like seed that sprouts and grows while the sower sleeps and wakes, though he does not know how: the earth produces the crop by itself, first the stalk, then the head, then grain that ripens. He also compares it to a mustard seed, the smallest of all seeds sown on the earth, which becomes the largest of all garden plants, with birds nesting in its shade. He told the crowds nothing without a parable, but privately explained everything to his own disciples.Sources: the Bible text itself
Notes written with AI assistance from open sources (Theographic Bible Metadata, CC BY-SA 4.0; Easton’s Bible Dictionary, public domain) and reviewed before publishing.
Credits and license for this translation
316-biblían Portions of the Holy Bible in Icelandic, 316-biblían translation copyright © 2026 Every Nation Iceland Language: Íslenska (Icelandic) https://316.is/316-biblian/ https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4.0/deed.is Þér er frjálst að: Deila — afrita og dreifa efninu á hvaða sniði eða miðli sem er í hvaða tilgangi sem er, jafnvel gegn gjaldi. Aðlaga — endurvinna, umbreyta, og byggja á efninu í hvaða tilgangi sem er, jafnvel gegn gjaldi. Leyfisveitandanum er óheimilt að afturkalla þetta frelsi svo framarlega að þú fylgir skilyrðum leyfisins. Samkvæmt eftirfarandi skilyrðum: TilvísunHöfundar — Þú verður að gefa upp viðeigandi tilvísanir, gefa upp tengil á notkunarleyfi, og gefa til kynna ef breytingar hafa verið gerðar. Þú mátt gera þetta á einhvern skynsamlegan hátt, en þó ekki þannig að gefið sé til kynna að leyfisgjafinn styðji við þig eða notkun þína. DeilaEins — Ef þú endurvinnur, umbreytir, eða byggir á efninu, verðurðu að dreifa breytingunum þínum með sama notkunarleyfi og upprunalega efnið er með. Engar frekari takmarkanir — Þú mátt ekki setja inn lagaleg ákvæði eða tæknilegar úrlausnir sem gætu hindrað aðra á lagalega vísu við að gera eitthvað það sem notkunarleyfið heimilar. Athugasemdir: Þú þarft ekki að uppfylla ákvæði notkunarleyfisins fyrir þá hluta efnisins sem séu í almannaeigu (public domain) eða þar sem notkun þín sé leyfð samkvæmt undanþágum eða takmörkunum. Engin ábyrgð fylgir. Notkunarleyfið gæti ekki gefið þér allar nauðsynlegar heimildir fyrir þá notkun sem þú hafðir í huga. Til dæmis, önnur réttarákvæði sem varða birtingu, friðhelgi, eða sæmdarrétt gætu takmarkað hvernig þú getur notað efnið. This translation is made available to you under the terms of the Creative Commons Attribution Share-Alike license 4.0. You have permission to share and redistribute this Bible translation in any format and to make reasonable revisions and adaptations of this translation, provided that: You include the above copyright and source information. If you make any changes to the text, you must indicate that you did so in a way that makes it clear that the original licensor is not necessarily endorsing your changes. If you redistribute this text, you must distribute your contributions under the same license as the original. Pictures included with Scriptures and other documents on this site are licensed just for use with those Scriptures and documents. For other uses, please contact the respective copyright owners. Note that in addition to the rules above, revising and adapting God's Word involves a great responsibility to be true to God's Word. See Revelation 22:18-19. 2026-09-25
Source: http://ebible.org/isl316/ · eBible.org