Nations Bible

Mark 2

316-biblían · Tap a verse to see its cross-references.

1Nokkrum dögum síðar kom hann aftur til Kapernaúm. Þegar það fréttist að hann væri í bænum 2flykktist svo margt fólk að húsinu að það var ekki einu sinni hægt að komast nálægt dyrunum. Og Jesús prédikaði til þeirra. 3Fjórir menn komu til hans og báru með sér lamaðan mann. 4Þegar þeir sáu að þeir kæmust ekki að Jesú klifruðu þeir upp á þak hússins, rifu það upp og létu lamaða manninn síga niður í húsið á börum. 5Jesús sá þetta sem merki um trú þeirra og sagði við lamaða manninn: „Sonur minn, syndir þínar eru fyrirgefnar.“ 6En nokkrir af lögmálskennurunum, sem voru á staðnum og sáu þetta, hugsuðu með sér: 7„Hvaða guðlast er þetta í manninum? Enginn getur fyrirgefið syndir nema Guð!“ 8Jesús vissi strax í anda sínum að þeir hefðu hugsað þetta. „Af hverju hugsið þið svona?“ spurði hann þá. 9„Hvort er auðveldara að að segja lömuðum manni að syndir hans séu fyrirgefnar, eða að segja honum að taka börurnar sínar og standa upp? 10En ég skal sýna ykkur að Mannssonurinn hefur vald til að fyrirgefa syndir hér á jörðinni.“ Og hann sneri sér að lamaða manninum og sagði: 11„Stattu upp, taktu börurnar þínar og farðu heim.“ 12Um leið og Jesús hafði sleppt orðinu stóð maðurinn upp, tók upp börurnar sínar og gekk af stað út úr húsinu í gegnum furðu lostinn mannfjöldann. „Ég hef aldrei séð neitt þessu líkt!“ sagði fólkið hvert við annað, og lofaði Guð.

13Nokkru síðar fór Jesús aftur út að vatninu, þar sem hann kenndi mannfjöldanum sem fylgdi honum hvert sem hann fór. 14Á leiðinni þangað sá hann Leví Alfeusarson þar sem hann sat og vann í skattkofanum sínum. „Fylgdu mér!“ sagði Jesús við hann – og Leví stóð upp og fylgdi honum. 15Jesús fór heim til hans og sat þar til borðs með bæði skattheimtumönnum og syndurum og lærisveinum sínum, sem voru orðnir margir. 16Það hneykslaði lögmálskennarana og faríseana þegar þeir sáu að hann sat til borðs með skattheimtumönnum og syndurum. „Hvernig getur hann borðað með svona fólki?“ spurðu þeir lærisveinana. 17Þegar Jesús heyrði þetta sagði hann við þá: „Það er veikt fólk sem þarf að hitta lækni, ekki heilbrigt fólk. Ég er ekki kominn til þess að leiða réttlátt fólk til iðrunar, heldur syndara.“

18Lærisveinar Jóhannesar og faríseanna voru vanir að fasta. „Af hverju fasta lærisveinarnir þínir ekki eins og lærisveinar Jóhannesar og faríseanna?“ spurðu þeir Jesú. 19„Af hverju ættu gestir brúðgumans að fasta meðan brúðguminn er hjá þeim?“ spurði Jesús þá á móti. „Það er ekkert vit í því að þeir geri það meðan hann er hjá þeim. 20Þeir hafa næg tækifæri til þess að fasta þegar brúðguminn verður farinn frá þeim.“ 21„Það notar enginn glænýtt, ómýkt efni í bót á gamla flík – hún rifnar bara frá gamla, slitna efninu og gerir rifuna verri. 22Það setur heldur enginn nýtt vín í gamlar flöskur – nýja vínið sprengir bara flöskurnar svo þær eyðileggjast og vínið fer út um allt. Nýtt vín þarf að setja í nýjar flöskur.“

23Einu sinni þegar Jesús var á göngu á kornakri á hvíldardeginum fóru lærisveinar hans að tína kornöxin. 24Farísearnir sem sáu þetta sögðu við hann: „Hvernig geta þeir gert þetta? Það er bannað á hvíldardeginum.“ 25„Muniði ekki hvað Davíð konungur gerði,“ svaraði Jesús, „þegar hann og menn hans voru hætt komnir af hungri? 26Þeir fóru inn í hús Guðs í stjórnartíð Abíatars æðstaprests og átu brauðið sem enginn nema prestarnir áttu að mega borða. 27Hvíldardagurinn á að þjóna manninum, ekki öfugt. 28Þess vegna ræður Mannssonurinn yfir hvíldardeginum.“

Artistic illustration — an interpretation, not a historical record.

Did you know?

Forgiveness, a Tax Collector, and the Sabbath

  • Capernaum, “Nahum’s town,” was a Galilean city not mentioned in the Old Testament. Easton's Bible Dictionary (1897) says that after Jesus was expelled from Nazareth it became his “own city,” which fits Mark’s report that people heard he was home and packed the house until there was no room even outside the door. Four men then uncovered the roof, made an opening, and lowered a paralyzed man on his mat.Sources: Capernaum · the Bible text itself
  • The man at the tax booth was Levi, son of Alphaeus, a tax collector in Capernaum. Easton's Bible Dictionary (1897) says he had been known as Levi and took the name Matthew—a common Jewish name after the Exile, meaning “gift of God”—possibly in grateful memory of his call. The same day, it says, he gave a great farewell feast for Jesus and his disciples, and probably for many former associates, the gathering Mark describes with tax collectors and sinners.Sources: Matthew · Alphaeus · the Bible text itself
  • Challenged because his disciples picked heads of grain on the Sabbath, Jesus spoke of David entering the house of God and eating the consecrated bread, lawful only for the priests, “during the high priesthood of Abiathar,” and sharing it with his hungry companions. Easton's Bible Dictionary (1897) identifies Abiathar as the son of the high priest Ahimelech, who escaped when his father and the priests of Nob were killed, carried away the ephod, and joined David in the cave of Adullam.Sources: Abiathar · the Bible text itself

Notes written with AI assistance from open sources (Theographic Bible Metadata, CC BY-SA 4.0; Easton’s Bible Dictionary, public domain) and reviewed before publishing.

Credits and license for this translation
316-biblían
Portions of the Holy Bible in Icelandic, 316-biblían translation
copyright © 2026 Every Nation Iceland
Language: Íslenska (Icelandic)
https://316.is/316-biblian/
https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4.0/deed.is
Þér er frjálst að:
Deila — afrita og dreifa efninu á hvaða sniði eða miðli sem er í hvaða tilgangi sem er, jafnvel gegn gjaldi.
Aðlaga — endurvinna, umbreyta, og byggja á efninu í hvaða tilgangi sem er, jafnvel gegn gjaldi.
Leyfisveitandanum er óheimilt að afturkalla þetta frelsi svo framarlega að þú fylgir skilyrðum leyfisins.
Samkvæmt eftirfarandi skilyrðum:
TilvísunHöfundar — Þú verður að gefa upp viðeigandi tilvísanir, gefa upp tengil á notkunarleyfi, og gefa til kynna ef breytingar hafa verið gerðar. Þú mátt gera þetta á einhvern skynsamlegan hátt, en þó ekki þannig að gefið sé til kynna að leyfisgjafinn styðji við þig eða notkun þína.
DeilaEins — Ef þú endurvinnur, umbreytir, eða byggir á efninu, verðurðu að dreifa breytingunum þínum með sama notkunarleyfi og upprunalega efnið er með.
Engar frekari takmarkanir — Þú mátt ekki setja inn lagaleg ákvæði eða tæknilegar úrlausnir sem gætu hindrað aðra á lagalega vísu við að gera eitthvað það sem notkunarleyfið heimilar.
Athugasemdir:
Þú þarft ekki að uppfylla ákvæði notkunarleyfisins fyrir þá hluta efnisins sem séu í almannaeigu (public domain) eða þar sem notkun þín sé leyfð samkvæmt undanþágum eða takmörkunum.
Engin ábyrgð fylgir. Notkunarleyfið gæti ekki gefið þér allar nauðsynlegar heimildir fyrir þá notkun sem þú hafðir í huga. Til dæmis, önnur réttarákvæði sem varða birtingu, friðhelgi, eða sæmdarrétt gætu takmarkað hvernig þú getur notað efnið.
This translation is made available to you under the terms of the
Creative Commons Attribution Share-Alike license 4.0.
You have permission to share and redistribute this Bible translation in any format and to make reasonable revisions and adaptations of this translation, provided that:
You include the above copyright and source information.
If you make any changes to the text, you must indicate that you did so in a way that makes it clear that the original licensor is not necessarily endorsing your changes.
If you redistribute this text, you must distribute your contributions under the same license as the original.
Pictures included with Scriptures and other documents on this site are licensed just for use with those Scriptures and documents.
For other uses, please contact the respective copyright owners.
Note that in addition to the rules above, revising and adapting God's Word involves a great responsibility to be true to God's Word. See Revelation 22:18-19.
2026-09-25

Source: http://ebible.org/isl316/ · eBible.org

Talk to us

Tell us where you read from, how the Bible has helped you, or what we could improve. We read every message.