Romans 9
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ · Tap a verse to see its cross-references.
Gyðingar hafna Kristi
1Æ! Ísrael, þjóð mín! Gyðingar, samlandar mínir. Ó, hve ég vildi að þeir hefðu tekið við Kristi! 2Þetta veldur mér angist og kvöl, jafnt daga sem nætur. 3Bæði Kristur og heilagur andi vita að ég er ekki að hræsna þótt ég segi að ég sé fús að velja eilífa glötun, ef það gæti orðið þeim til hjálpræðis. 4Guð hefur verið þeim góður en samt vilja þeir ekki hlýða honum. Hann tók þá að sér sem útvalda þjóð og leiddi þá áfram í björtu og dýrlegu skýi og sýndi þeim blessun sína. Hann setti þeim lög og reglur til að fara eftir í daglegu lífi, svo að þeir þekktu vilja hans. Hann leyfði þeim að tilbiðja sig og hann gaf þeim mikil fyrirheit. 5Forfeður þeirra voru miklar trúarhetjur og sjálfur var Kristur einn af þeim. Hann fæddist sem Gyðingur en nú er hann öllum æðri. Dýrð sé Guði um aldur og ævi!
6Já, en hefur Guð þá ekki getað staðið við loforðin sem hann gaf Gyðingunum? Jú, (en athugið að þessi loforð eru einungis ætluð þeim sem eru sannir Gyðingar).
Höfnun Gyðinga og ætlun Guðs
Ekki eru allir þeir, sem fæðast Gyðingar, sannir Gyðingar. 7Það eitt að þeir eru afkomendur Abrahams, gerir þá ekki að sönnum börnum Abrahams. Abraham átti mörg börn, en Gamla testamentið segir að loforðin séu aðeins ætluð Ísak syni hans og afkomendum hans. 8Þetta þýðir að ekki hafa allir afkomendur Abrahams verið börn Guðs, heldur þeir einir sem trúa loforðinu sem Guð gaf Abraham um hjálpræðið. 9Loforðið var þannig: „Á næsta ári mun ég gefa ykkur, þér og Söru, son.“ 10Og árin liðu og þessi sonur, Ísak, óx og þegar hann var orðinn fullorðinn, giftist hann konu sem hét Rebekka. Þegar Rebekka eignaðist tvíbura, sagði Guð henni að Esaú, barnið sem fæddist fyrst, myndi verða þjónn Jakobs, tvíburabróður síns. Gamla testamentið lýsir þessu svo: „Jakob mun ég blessa en ekki Esaú.“ Þetta sagði Guð áður en drengirnir fæddust, áður en þeir höfðu tækifæri til að gera gott eða illt. Af þessu má sjá að Guð var að framkvæma fyrirætlun sína, sem hann hafði ákveðið löngu áður, en hann var ekki að launa drengjunum fyrir neitt, hvorki gott né illt.
Höfnun Gyðinga og réttlæti Guðs
14Var Guð ósanngjarn að fara þannig að? Nei, vissulega ekki. 15Guð sagði við Móse: „Vilji ég sýna einhverjum góðvild, þá geri ég það. Ég miskunna þeim sem mér sjálfum sýnist.“ 16Blessun Guðs veitist ekki þeim einum sem ákveðið hafa að öðlast hana og sem leggja á sig erfiði í þeim tilgangi, heldur þeim sem Guð hefur ákveðið að miskunna. 17Gott dæmi um þetta er Faraó Egyptalandskonungur. Guð sagði við Faraó, að hann hefði gefið honum konungdóm yfir Egyptalandi til þess eins að sýna á honum sinn mikla mátt, svo að allur heimurinn fengi að heyra um mátt Guðs og mikilleika. 18Af þessu sjáið þið að Guð er góður við suma vegna þess eins að hann kýs að vera það og einnig kemur hann því til leiðar að aðrir vilja ekki hlusta. 19„Já, en,“ segir þú, „hvers vegna ásakar þá Guð þá um að vilja ekki hlusta? Var það ekki hann sjálfur sem olli því?“ 20Segðu þetta ekki. Telur þú þig geta gagnrýnt Guð? Á smíðisgripurinn að segja við smiðinn: „Af hverju gerðir þú mig svona?“ 21Leirkerasmiðurinn hefur jafnan rétt til að móta fagran skrautvasa og krukku undir rusl, úr leirnum. 22Hefur Guð ekki fullkominn rétt til að sýna mátt sinn og reiði gegn þeim sem hann hefur umborið lengi og bíða þess eins að verða eyðileggingu að bráð? 23Sömuleiðis hefur hann rétt til að hlífa öðrum – eins og til dæmis okkur. Hann skapaði okkur í þeim tilgangi að auðga okkur af allri dýrð sinni og þá er sama hvort við erum Gyðingar eða heiðingjar. Þetta gerði hann til að sýna okkur kærleika sinn, svo allir gætu séð hve dýrð hans er mikil. 25Munið þið eftir spádómi Hósea? Þar segir Guð að hann muni leita sér að öðrum börnum (sem ekki eru gyðingaættar) og hann muni elska þau, þótt enginn hafi elskað þau áður. 26Munið það sem eitt sinn var sagt um heiðingjana: „Ekki eruð þið mitt fólk,“ og þeir sömu munu kallaðir verða „synir hins lifandi Guðs.“ 27Jesaja kallaði til Gyðinganna: „Enda þótt þið skiptið milljónum, þá mun aðeins lítill hluti ykkar frelsast!“ 28„Drottinn mun fullnægja dómi sínum á jörðinni án tafar.“
29Á öðrum stað segir Jesaja, að væri Guð ekki miskunnsamur myndu allir Gyðingar farast – hver einn og einasti – rétt eins og þeir sem bjuggu í borgunum Sódómu og Gómorru.
Staða Gyðinga nú
30Hvað finnst ykkur um það, að Guð hefur gefið heiðingjunum tækifæri til að fá fyrirgefningu syndanna með því að trúa, þótt þeir í raun hafi alls ekki leitað Guðs? 31Gyðingarnir lögðu hins vegar mikið á sig til að þóknast Guði með því að hlýða lögum hans, en án árangurs. 32Hvers vegna? Vegna þess að þeir reyndu að frelsast með því að halda lögin og gera gott, í stað þess að treysta á leið trúarinnar. Þeir hafa hrasað um stóra hrösunarsteininn. 33Guð varaði þá við með þessum orðum í Gamla testamentinu:
„Ég hef lagt hornstein meðal Gyðinga, og um hann (Jesú) munu margir hrasa, en þeir sem á hann trúa verða aldrei fyrir vonbrigðum, né til skammar.“

Did you know?
Israel and the Children of the Promise
- These verses argue that God's word has not failed: not all who are descended from Israel are Israel, and not all of Abraham's descendants are his children. Isaac was Abraham's only son by Sarah, and the promise quoted here follows that line: offspring would be reckoned through Isaac, and at the appointed time Sarah would have a son. The name Sarah, meaning princess, was given when it was announced that she would be the mother of the promised child.Sources: the Bible text itself · Isaac · Sarah
- The argument then turns to Rebecca's twins, conceived by one man, Isaac. Esau, the first-born, was also called Edom, "red," from the red lentil pottage for which he sold his birthright; Jacob, the younger, bears a name meaning one who follows on another's heels, or supplanter. Before the twins were born or had done anything good or bad, Rebecca was told that the older would serve the younger, and it is written, "Jacob I loved, but Esau I hated."Sources: the Bible text itself · Esau (Edom) · Jacob (Israel)
- Isaiah, the son of Amoz, is quoted about a remnant: though the Israelites were like the sand of the sea, only the remnant would be saved, and without descendants left by the Lord of Hosts they would have become like Sodom and resembled Gomorrah. Sodom, a city in the vale of Siddim, was destroyed by fire from heaven, a destruction this chapter recalls, and no trace of it or of the other cities of the plain has been found. The chapter ends with a stumbling stone laid in Zion, the south-eastern hill of Jerusalem, which David took from the Jebusites, where he built a citadel and a palace, and which became the city of David.Sources: the Bible text itself · Isaiah · Sodom · Zion
Notes written with AI assistance from open sources (Theographic Bible Metadata, CC BY-SA 4.0; Easton’s Bible Dictionary, public domain) and reviewed before publishing.
Places in this chapter
- Zion · Today: Jerusalem · 31.777, 35.234 · verse 33
Only places identified with high confidence are shown (90% or more according to the scholarly sources compiled by OpenBible). Period map: DARE (Digital Atlas of the Roman Empire), CC BY 4.0; modern map: © OpenStreetMap contributors; places: OpenBible.info (CC BY 4.0).
Credits and license for this translation
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Icelandic: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ (New Testament+) copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc. Language: Íslenska (Icelandic) Contributor: Biblica, Inc. Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. Creative Commons License Þetta verk er gert aðgengilegt samkvæmt CC BY-SA leyfinu (Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License). Til að skoða afrit af þessu leyfi skaltu fara á https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 eða senda bréf til Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, Bandaríkjunum. Biblica® er vörumerki skráð af Biblica, Inc., og notkun á Biblica® vörumerkinu krefst skriflegs leyfis Biblica, Inc. Samkvæmt skilmálum CC BY-SA leyfisins geturðu afritað og endurdreift þessu óbreyttu verki svo framarlega sem þú heldur Biblica® vörumerkinu óskertu. Ef þú breytir afriti eða þýðir þetta verk og býrð þannig til afleitt verk, verður þú að fjarlægja Biblica® vörumerkið. Á afleidda verkinu verður þú að tilgreina hvaða breytingar þú hefur gert og eigna verkið á eftirfarandi hátt: "Upprunalega verkið eftir Biblica, Inc. er fáanlegt ókeypis á www.biblica.com og open.bible ." Tilkynning um höfundarrétt verður að birtast á titla- eða höfundarréttarsíðu verksins sem hér segir: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. Þú verður einnig að gera afleidda verkið þítt aðgengilegt samkvæmt sama leyfi (CC BY-SA). Ef þú vilt láta Biblica, Inc. vita um þýðingu þína á þessu verki, vinsamlegast hafðu samband við okkur á https://open.bible/contact . This work is made available under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License (CC BY-SA). To view a copy of this license, visit https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 or send a letter to Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, USA. Biblica® is a trademark registered by Biblica, Inc., and use of the Biblica® trademark requires the written permission of Biblica, Inc. Under the terms of the CC BY-SA license, you may copy and redistribute this unmodified work as long as you keep the Biblica® trademark intact. If you modify a copy or translate this work, thereby creating a derivative work, you must remove the Biblica® trademark. On the derivative work, you must indicate what changes you have made and attribute the work as follows: “The original work by Biblica, Inc. is available for free at www.biblica.com and open.bible .” Notice of copyright must appear on the title or copyright page of the work as follows: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. You must also make your derivative work available under the same license (CC BY-SA). If you would like to notify Biblica, Inc. regarding your translation of this work, please contact us at https://open.bible/contact . This translation is made available to you under the terms of the Creative Commons Attribution Share-Alike license 4.0. You have permission to share and redistribute this Bible translation in any format and to make reasonable revisions and adaptations of this translation, provided that: You include the above copyright and source information. If you make any changes to the text, you must indicate that you did so in a way that makes it clear that the original licensor is not necessarily endorsing your changes. If you redistribute this text, you must distribute your contributions under the same license as the original. Pictures included with Scriptures and other documents on this site are licensed just for use with those Scriptures and documents. For other uses, please contact the respective copyright owners. Note that in addition to the rules above, revising and adapting God's Word involves a great responsibility to be true to God's Word. See Revelation 22:18-19. 2025-05-03
Source: http://ebible.org/isl/ · eBible.org