Romans 5
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ · Tap a verse to see its cross-references.
Trúin eflir þolinmæði
1Fyrst við erum sýknuð og réttlát í augum Guðs vegna trúarinnar á fyrirheit hans, þá getum við lifað í friði og sátt við hann vegna þess sem Jesús Kristur, Drottinn okkar, gerði fyrir okkur. 2Vegna trúar okkar hefur hann veitt okkur hin æðstu forréttindi og þannig er aðstaða okkar nú. Við horfum með djörfung og gleði fram til alls þess sem Guð ætlar okkur að verða. 3Þegar við lendum í erfiðleikum og raunum þá getum við líka glaðst, því að við vitum að slíkt verður okkur til góðs. Það eflir þolgæði okkar, 4styrkir persónuleikann og það auðveldar okkur að treysta Guði æ betur, eða þangað til trú okkar verður að lokum sterk og óhagganleg. 5Þegar þessu marki er náð, getum við verið hughraust, hvað sem á dynur því að þá vitum við að allt muni fara vel. Við vitum að Guð elskar okkur og hann hefur gefið okkur heilagan anda og fyllt hjörtu okkar af kærleika sínum. Við finnum að við erum umvafin kærleika hans!
Kristur í okkar stað
6Við vorum hjálparvana og sáum enga undankomuleið. Þá kom Kristur á réttum tíma og dó fyrir okkur syndarana, enda þótt við bæðum hann ekki um slíkt. 7Þess er varla að vænta að nokkur hafi viljað deyja fyrir okkur, jafnvel þótt við hefðum verið góðir menn, þó að það sé auðvitað hugsanlegt. 8En Guð sýndi okkur takmarkalausan kærleika sinn, er hann sendi Krist í dauðann fyrir okkur meðan við vorum enn fjötruð í synd og aðskilin frá honum. 9Allt þetta gerði Kristur fyrir okkur syndarana með dauða sínum og hversu miklu meira skyldi hann þá ekki vilja gera fyrir okkur nú, eftir að hann hefur sýknað okkur? Nú vill hann forða okkur undan dómi Guðs sem er í vændum. 10Við vorum óvinir Guðs, en fyrst hann, þrátt fyrir það, leiddi okkur aftur til sín fyrir dauða sonar síns, hvílíka blessun hlýtur hann þá ekki að hafa búið okkur nú, eftir að við erum orðnir vinir hans? 11Við gleðjumst vegna þessa nýja og undursamlega sambands okkar við Guð og allt er það að þakka því sem Jesús Kristur, Drottinn okkar, gerði, þegar hann dó fyrir syndir okkar og sætti okkur við Guð.
Dauði í Adam – líf í Kristi
12Þegar Adam syndgaði, kom syndin inn í líf allra manna. Með synd hans hélt dauðinn innreið sína í þennan heim og þar sem allir syndguðu, tók allt að hrörna og deyja. 13Við vitum að synd Adams var orsök alls þessa en þrátt fyrir syndir mannanna, allt frá dögum Adams og til Móse, þá dæmdi Guð þá ekki til dauða fyrir að brjóta lögin, því þá hafði hann ekki enn birt þeim þau né sagt þeim hvað hann vildi að þeir gerðu. 14Þegar þessir menn dóu, var það ekki vegna þess að þeir höfðu syndgað, því að þeir höfðu aldrei brotið það boðorð Guðs að borða forboðna ávöxtinn, eins og Adam hafði gert. 15Hvílíkur reginmunur var á Adam og Kristi – honum sem koma átti. Hvílíkur munur einnig á synd mannsins og fyrirgefningu Guðs! Þessi eini maður, Adam, leiddi marga í dauðann með synd sinni. Jesús Kristur veitti mörgum fyrirgefningu vegna miskunnar Guðs. 16Annars vegar leiddi þessi eina synd Adams dauðadóm yfir marga, en hins vegar fjarlægir Kristur fúslega syndir hinna mörgu og gefur dýrlegt líf í staðinn. 17Synd þessa eina manns, Adams, gerði dauðann að húsbónda í lífi mannanna en allir sem taka á móti gjöf Guðs – fyrirgefningu og sýknun – fá mátt til að lifa vegna hins eina manns, Jesú Krists. 18Synd Adams leiddi hegningu yfir alla, 19en réttlæti Krists leiddi hins vegar af sér, að margir verða þóknanlegir í augum Guðs.
20Boðorðin tíu voru gefin mönnunum til þess að þeir sæju að í eigin mætti er þeim ómögulegt að hlýða lögum Guðs, því betur sem við sjáum syndina – því ljósari verður okkur takmarkalaus miskunn Guðs og fyrirgefning. 21Áður fyrr ríkti syndin í lífi allra manna og dró þá til dauða, en nú ríkir gæska Guðs og hún veitir okkur á ný samfélag við Guð og hlut í eilífa lífinu sem fæst fyrir Jesú Krist, Drottin okkar og frelsara.

Did you know?
Adam, Christ, and the Reign of Grace
- The one man through whom Romans 5 says sin entered the world, and death through sin, is Adam. A reference note calls Adam a Babylonian word meaning red, the general name for a human being in Hebrew and Assyrian, and links it to his being formed from the dust of the earth. The account of his creation and fall is given in the first book of Moses.Sources: Adam · the Bible text itself
- Romans 5 says death reigned from Adam until Moses, even over those who did not sin in the way Adam transgressed. It adds that sin was already in the world before the law was given, yet sin is not taken into account when there is no law. Adam is called a pattern of the one who was to come.Sources: the Bible text itself
- The chapter sets that one trespass beside the gift that came by the grace of Jesus Christ. Judgment after a single sin brought condemnation, while the gift after many trespasses brought justification. The law, it says, came in so that the trespass would increase, yet where sin increased, grace increased all the more.Sources: the Bible text itself
Notes written with AI assistance from open sources (Theographic Bible Metadata, CC BY-SA 4.0; Easton’s Bible Dictionary, public domain) and reviewed before publishing.
Credits and license for this translation
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Icelandic: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ (New Testament+) copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc. Language: Íslenska (Icelandic) Contributor: Biblica, Inc. Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. Creative Commons License Þetta verk er gert aðgengilegt samkvæmt CC BY-SA leyfinu (Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License). Til að skoða afrit af þessu leyfi skaltu fara á https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 eða senda bréf til Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, Bandaríkjunum. Biblica® er vörumerki skráð af Biblica, Inc., og notkun á Biblica® vörumerkinu krefst skriflegs leyfis Biblica, Inc. Samkvæmt skilmálum CC BY-SA leyfisins geturðu afritað og endurdreift þessu óbreyttu verki svo framarlega sem þú heldur Biblica® vörumerkinu óskertu. Ef þú breytir afriti eða þýðir þetta verk og býrð þannig til afleitt verk, verður þú að fjarlægja Biblica® vörumerkið. Á afleidda verkinu verður þú að tilgreina hvaða breytingar þú hefur gert og eigna verkið á eftirfarandi hátt: "Upprunalega verkið eftir Biblica, Inc. er fáanlegt ókeypis á www.biblica.com og open.bible ." Tilkynning um höfundarrétt verður að birtast á titla- eða höfundarréttarsíðu verksins sem hér segir: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. Þú verður einnig að gera afleidda verkið þítt aðgengilegt samkvæmt sama leyfi (CC BY-SA). Ef þú vilt láta Biblica, Inc. vita um þýðingu þína á þessu verki, vinsamlegast hafðu samband við okkur á https://open.bible/contact . This work is made available under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License (CC BY-SA). To view a copy of this license, visit https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 or send a letter to Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, USA. Biblica® is a trademark registered by Biblica, Inc., and use of the Biblica® trademark requires the written permission of Biblica, Inc. Under the terms of the CC BY-SA license, you may copy and redistribute this unmodified work as long as you keep the Biblica® trademark intact. If you modify a copy or translate this work, thereby creating a derivative work, you must remove the Biblica® trademark. On the derivative work, you must indicate what changes you have made and attribute the work as follows: “The original work by Biblica, Inc. is available for free at www.biblica.com and open.bible .” Notice of copyright must appear on the title or copyright page of the work as follows: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. You must also make your derivative work available under the same license (CC BY-SA). If you would like to notify Biblica, Inc. regarding your translation of this work, please contact us at https://open.bible/contact . This translation is made available to you under the terms of the Creative Commons Attribution Share-Alike license 4.0. You have permission to share and redistribute this Bible translation in any format and to make reasonable revisions and adaptations of this translation, provided that: You include the above copyright and source information. If you make any changes to the text, you must indicate that you did so in a way that makes it clear that the original licensor is not necessarily endorsing your changes. If you redistribute this text, you must distribute your contributions under the same license as the original. Pictures included with Scriptures and other documents on this site are licensed just for use with those Scriptures and documents. For other uses, please contact the respective copyright owners. Note that in addition to the rules above, revising and adapting God's Word involves a great responsibility to be true to God's Word. See Revelation 22:18-19. 2025-05-03
Source: http://ebible.org/isl/ · eBible.org