Nations Bible

Psalms 89

Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ · Tap a verse to see its cross-references.

1Ég vil syngja um miskunn Drottins að eilífu! Ungir sem gamlir skulu fá að heyra um trúfesti þína. 3Elska þín og náð vara að eilífu og trúfesti þín stendur óhögguð eins og himinninn.

4Svo segir Drottinn Guð: „Ég hef gert sáttmála við Davíð, minn útvalda þjón. Ég hef unnið þann eið, að afkomendur hans skuli sitja á konungsstóli héðan í frá og að eilífu!“

6Himinninn lofi máttarverk þín, Drottinn og herskarar englanna vegsami trúfesti þína. 7Því að hver á himnum kemst í samjöfnuð við Guð? Hinn mesti meðal englanna, hver er hann við hlið Drottins?! 8Hinir voldugu englar nálgast hann með ótta og virðingu. Hann er ægilegur í þeirra augum. 9Drottinn, þú konungur hinna himnesku hersveita, enginn kemst í samjöfnuð við þig! Trúfestin er einkenni þitt!

10Þú hefur hemil á ofstopa hafsins, stöðvar óveðursöldur. Með einu orði lægir þú þær. 11Þú rotaðir skrímslið, það lá marflatt – og tvístraðir óvinum þínum með undramætti. 12Himinninn og jörðin, allt er það þitt. Þú skapaðir það. 13Þú skapaðir norðrið og suðrið líka. Tabor og Hermon kætast, hin háu fjöll, sem hönd þín gjörði. 14Mikill er máttur þinn! Hægri hönd þín er upphafin í mætti og dýrð!

15Tvær eru undirstöður hásætis þíns: Réttvísi og réttlæti, og miskunn og trúfesti eru fylgdarsveinar þínir. Sælir eru þeir sem heyra fagnaðarópið – þeir sem ganga í ljósinu sem stafar frá Drottni. 17Þín vegna gleðjast þeir alla daga og fagna yfir þínum réttlátu verkum. 18Þú ert styrkur þeirra. Þetta er undursamlegt! Já, við hressumst og gleðjumst því við vitum að þú hefur velþóknun á okkur! 19Sjálfur Drottinn er okkar vörn og hann, hinn heilagi í Ísrael – sjálfur Guð – hefur gefið okkur konung.

20Þú talaðir við spámann þinn í sýn og sagðir: „Ég hef fundið rétta manninn meðal fólksins, hann skal verða konungur! 21Það er Davíð, þjónn minn! Ég hef smurt hann minni heilögu olíu.

22Ég vil veita honum kraft og styrkja hann á göngunni. 23Óvinir hans skulu ekki fella hann, né illmennin kúga hann. 24Ég mun láta hann sjá er ég eyði óvinum hans og þurrka út hatursmenn hans.

25Ég mun stöðugt vernda hann og blessa og umvefja hann elsku minni. Mín vegna mun hann verða mikill. 26Ríki hans mun ná frá Miðjarðarhafi til Evfratfljóts. 27Hann mun segja við mig: „Þú ert faðir minn, Guð minn, klettur hjálpræðis míns.“

28Ég mun líta á hann sem frumgetinn son minn og gera hann fremstan meðal konunga jarðarinnar. 29Ég mun elska hann að eilífu og vera honum góður. Ég mun halda sáttmála minn við hann að eilífu. 30Hann mun aldrei skorta erfingja og hásæti hans mun standa um eilífð eins og himinninn. 31Ef afkomendur hans hafna lögmáli mínu og óhlýðnast mér, þá mun ég hegna þeim, 34en aldrei mun ég þó hætta að miskunna þeim, né bregðast loforði mínu. 35Nei, sáttmála minn mun ég alls ekki rjúfa. Ekkert orða minna tek ég aftur. 36Ég hef heitið Davíð því (og hinn heilagi Guð talar sannleika) að konungsætt hans mun vara um aldir alda, já rétt eins og sólin! 38Konungdómur hans skal standa að eilífu eins og tunglið, – trúfasta vitnið á himninum!“

39En, – hvers vegna hefur þú þá útskúfað mér?! Hafnað þeim sem þú valdir til konungs? 40Hefur þú rofið sáttmálann við hann? Þú sem kastaðir kórónu hans í skítinn! 41Múra hans hefur þú brotið og rifið niður varnarvirkin. 42Allir vegfarendur ræna hann. Hann er til háðungar nágrönnum sínum. 43Þú magnaðir óvini hans gegn honum, og nú kætast þeir! 44Þú slóst sverð hans til jarðar og neitaðir honum um hjálp í bardaganum. 45Þú hefur bundið enda á vegsemd hans og hrint hásæti hans um koll. 46Hann lítur út sem öldungur þótt ungur sé, og það er af þínum völdum. Þú hefur hulið hann skömm.

47Ó, Drottinn, hve lengi á þetta ástand að vara? Ætlar þú að fela þig fyrir mér að eilífu? Hve lengi á reiði þín að brenna?

48Mundu hve mannsævin er stutt og að verk okkar flestra eru hégómleg og smá. 49Enginn maður lifir endalaust. Öll deyjum við að lokum. Og hver getur stigið upp úr gröf sinni?

50Drottinn, hvar er nú kærleikur þinn til mín? Hvar er gæskan sem þú lofaðir Davíð með eiði? 51Veistu það, Drottinn, að öll þjóðin hæðist að mér! 52Óvinir þínir spotta mig, manninn sem þú útvaldir til konungs.

53En þrátt fyrir allt og allt, sé Drottinn lofaður um eilífð! Amen, amen.

Artistic illustration — an interpretation, not a historical record.

Did you know?

God's Covenant with David and the Broken Crown

  • Attributed to Ethan the Ezrahite, Psalm 89 recalls God's enduring covenant promising to establish King David's throne forever, while also voicing a lament over the later defeat of the Davidic ruler and the destruction of his strongholds.Sources: David · the Bible text itself
  • The name Rahab in verse 10 is a poetic term meaning insolence or pride, used in biblical poetry to represent the proud empire of Egypt.Sources: Rahab · the Bible text itself
  • Verse 12 poetically pairs Mount Tabor, a prominent cone-shaped peak west of the Sea of Galilee, with Mount Hermon, the towering range on the northern boundary of Palestine, as emblems of the natural world rejoicing in God's creation.Sources: Tabor (Mountain) · Hermon · the Bible text itself

Notes written with AI assistance from open sources (Theographic Bible Metadata, CC BY-SA 4.0; Easton’s Bible Dictionary, public domain) and reviewed before publishing.

Places in this chapter

  • Mount Hermon · 33.400, 35.850 · verse 12
  • Mount Tabor · Today: Jebel et Tur · 32.686, 35.393 · verse 12

Only places identified with high confidence are shown (90% or more according to the scholarly sources compiled by OpenBible). Period map: DARE (Digital Atlas of the Roman Empire), CC BY 4.0; modern map: © OpenStreetMap contributors; places: OpenBible.info (CC BY 4.0).

Credits and license for this translation
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Icelandic: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ (New Testament+)
copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc.
Language: Íslenska (Icelandic)
Contributor: Biblica, Inc.
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
Creative Commons License
Þetta verk er gert aðgengilegt samkvæmt CC BY-SA leyfinu (Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License). Til að skoða afrit af þessu leyfi skaltu fara á https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 eða senda bréf til Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, Bandaríkjunum.
Biblica® er vörumerki skráð af Biblica, Inc., og notkun á Biblica® vörumerkinu krefst skriflegs leyfis Biblica, Inc. Samkvæmt skilmálum CC BY-SA leyfisins geturðu afritað og endurdreift þessu óbreyttu verki svo framarlega sem þú heldur Biblica® vörumerkinu óskertu. Ef þú breytir afriti eða þýðir þetta verk og býrð þannig til afleitt verk, verður þú að fjarlægja Biblica® vörumerkið. Á afleidda verkinu verður þú að tilgreina hvaða breytingar þú hefur gert og eigna verkið á eftirfarandi hátt: "Upprunalega verkið eftir Biblica, Inc. er fáanlegt ókeypis á www.biblica.com og open.bible ."
Tilkynning um höfundarrétt verður að birtast á titla- eða höfundarréttarsíðu verksins sem hér segir:
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
Þú verður einnig að gera afleidda verkið þítt aðgengilegt samkvæmt sama leyfi (CC BY-SA).
Ef þú vilt láta Biblica, Inc. vita um þýðingu þína á þessu verki, vinsamlegast hafðu samband við okkur á https://open.bible/contact .
This work is made available under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License (CC BY-SA). To view a copy of this license, visit https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 or send a letter to Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, USA.
Biblica® is a trademark registered by Biblica, Inc., and use of the Biblica® trademark requires the written permission of Biblica, Inc. Under the terms of the CC BY-SA license, you may copy and redistribute this unmodified work as long as you keep the Biblica® trademark intact. If you modify a copy or translate this work, thereby creating a derivative work, you must remove the Biblica® trademark. On the derivative work, you must indicate what changes you have made and attribute the work as follows: “The original work by Biblica, Inc. is available for free at www.biblica.com and open.bible .”
Notice of copyright must appear on the title or copyright page of the work as follows:
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
You must also make your derivative work available under the same license (CC BY-SA).
If you would like to notify Biblica, Inc. regarding your translation of this work, please contact us at https://open.bible/contact .
This translation is made available to you under the terms of the
Creative Commons Attribution Share-Alike license 4.0.
You have permission to share and redistribute this Bible translation in any format and to make reasonable revisions and adaptations of this translation, provided that:
You include the above copyright and source information.
If you make any changes to the text, you must indicate that you did so in a way that makes it clear that the original licensor is not necessarily endorsing your changes.
If you redistribute this text, you must distribute your contributions under the same license as the original.
Pictures included with Scriptures and other documents on this site are licensed just for use with those Scriptures and documents.
For other uses, please contact the respective copyright owners.
Note that in addition to the rules above, revising and adapting God's Word involves a great responsibility to be true to God's Word. See Revelation 22:18-19.
2025-05-03

Source: http://ebible.org/isl/ · eBible.org

Talk to us

Tell us where you read from, how the Bible has helped you, or what we could improve. We read every message.