Nations Bible

Philippians 2

Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ · Tap a verse to see its cross-references.

Kærleikur Krists – ykkar fyrirmynd

1Eiga kristnir menn ekki að uppörva hver annan? Elskið þið mig svo mikið að þið viljið hjálpa mér? Hefur það einhverja þýðingu fyrir ykkur að við erum systkini í Drottni og eigum öll heilagan anda? Finnst einhver ástúð og meðaumkun hjá ykkur? 2Ef svo er, þá gleðjið mig með því að elska hvert annað og standa saman sem einn maður, einhuga með sameiginlegt takmark.

3Verið ekki eigingjörn! Sækist ekki eftir því að vaxa í áliti hjá öðrum. Verið auðmjúk. Haldið ykkur ekki betri en aðra. 4Hugsið ekki aðeins um eigin hag, heldur sýnið öðrum áhuga og því sem þeir hafa fyrir stafni.

5Hafið sama huga og Jesús Kristur hafði. 6Þótt hann væri Guð, þá krafðist hann þess ekki að fá að halda rétti sínum sem Guð, 7heldur lagði til hliðar mátt sinn og dýrð, varð maður og gekk um sem þjónn.

8En auðmýkingu hans var ekki þar með lokið. Hann gekk svo langt að deyja á krossi, eins og glæpamaður. 9Einmitt þess vegna hóf Guð hann upp til hæstu himna og gaf honum nafn, sem hverju öðru nafni er æðra. 10Svo að fyrir nafni Jesú skuli hvert kné krjúpa, á himni, jörðu eða undir jörðinni, 11og hver tunga játa að Jesús Kristur er Drottinn, Guði föður til dýrðar.

12Kæru vinir, ég man að meðan ég var hjá ykkur, þá fóruð þið fúslega eftir ráðleggingum mínum. Og fyrst þið eruð frelsuð, þá hljótið þið nú, að mér fjarverandi, að ástunda hið góða af enn meiri áhuga en áður. Þið hljótið einnig að heiðra Guð og hlýða honum heilshugar og halda ykkur frá öllu því sem honum er á móti skapi. 13Guð hefur þau áhrif á ykkur að þið bæði viljið og framkvæmið það sem honum er þóknanlegt.

14Hvert sem starf ykkar er, þá gætið þess að kvarta hvorki né deila, 15því að þá hefur enginn ástæðu til að tala illa um ykkur. Lifið hreinu, saklausu lífi, eins og börn Guðs, í myrkum heimi óheiðarleika og miskunnarleysis. Þið eruð leiðarljós sem á að vísa öðrum veginn til himins.

16Ég hvet ykkur til að halda fast við orð lífsins, því þá hef ég tilefni til að gleðjast þegar Kristur kemur aftur. Þá hefur starf mitt og erfiði ykkar á meðal, ekki verið til einskis. 17Jafnvel þótt blóði mínu yrði úthellt við þjónustu mína, við trú ykkar og mér fórnað – svo ég noti líkingu, það er að segja ef ég ætti að deyja fyrir ykkur – þá mundi ég samt geta glaðst og samglaðst ykkur. 18Þið ættuð einnig að gleðjast yfir slíku og samgleðjast mér, að ég skuli hafa þau forréttindi að mega deyja fyrir ykkur.

Páll þráir að sjá vini sína

19Sé það vilji Drottins, þá sendi ég bráðlega Tímóteus til ykkar. Þegar hann síðan kemur aftur, mun hann geta uppörvað mig með fréttum af ykkur. 20Tímóteus er sérlega áhugasamur um hagi ykkar. 21Allir aðrir virðast niðursokknir í sín eigin áhugamál og hafa því engan tíma til að spyrja um vilja Jesú Krists. 22Þið þekkið Tímóteus, hann hefur verið mér sem sonur og aðstoðað mig við útbreiðslu gleðiboðskaparins. 23Ég vona að ég geti sent hann til ykkar strax og ég veit hvað um mig verður. 24Ég treysti því að Drottinn muni einnig leyfa mér að koma til ykkar áður en langt um líður.

25Mér fannst rétt af mér að senda Epafrodítus aftur til ykkar. Þið senduð hann til að bæta úr þörf minni og ég get sagt ykkur að við urðum góðir vinir, störfuðum saman og stóðum hlið við hlið í baráttunni. 26Ég sendi hann nú aftur til ykkar, því að hann hefur orðið svo mikla heimþrá og langar að sjá ykkur á ný. Hann varð mjög leiður þegar hann vissi að þið hefðuð frétt að hann hefði veikst. 27Reyndar varð hann svo hættulega veikur að hann var nær dauða en lífi, en Guð miskunnaði bæði honum og mér, svo að ég þyrfti ekki að bera sorg hans vegna, ofan á allt annað.

28Þrá ykkar eftir honum varð mér því sterk hvatning til að senda hann aftur heim. Ég veit að þið fagnið honum og það gleður mig. 29Takið á móti honum með fögnuði í nafni Drottins og sýnið honum heiður. 30Hann hætti lífi sínu í þjónustu Krists og var í dauðann kominn er hann reyndi að gera fyrir mig, það sem þið gátuð ekki vegna fjarveru ykkar.

Did you know?

Unity and the Humility of Christ

  • Timothy was a young disciple and Paul’s companion on many journeys, and Paul called him his own son in the faith; the name Timotheus is explained as meaning “Honouring God.” In Philippians 2 Paul says he has no one else like Timothy, who will genuinely care for the Philippians’ needs, and that Timothy has served with him as a child with his father to advance the gospel.Sources: Timotheus · the Bible text itself
  • In Philippians 2 Paul sends back Epaphroditus, calling him his brother, fellow worker, and fellow soldier, and also the Philippians’ messenger and the one who ministered to Paul’s needs. Epaphroditus had been ill, nearly to death, and Paul says he risked his life for the work of Christ to make up for the service the Philippians could not give in person.Sources: the Bible text itself
  • In Philippians 2 Paul asks the Philippians to have the same mind that was in Christ Jesus: existing in the form of God, he did not consider equality with God something to be grasped, but emptied himself, took the form of a servant, and became obedient to death, even death on a cross. The chapter says God therefore exalted him and gave him the name above every name, so that every tongue would confess that Jesus Christ is Lord, to the glory of God the Father.Sources: the Bible text itself

Notes written with AI assistance from open sources (Theographic Bible Metadata, CC BY-SA 4.0; Easton’s Bible Dictionary, public domain) and reviewed before publishing.

Credits and license for this translation
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Icelandic: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ (New Testament+)
copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc.
Language: Íslenska (Icelandic)
Contributor: Biblica, Inc.
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
Creative Commons License
Þetta verk er gert aðgengilegt samkvæmt CC BY-SA leyfinu (Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License). Til að skoða afrit af þessu leyfi skaltu fara á https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 eða senda bréf til Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, Bandaríkjunum.
Biblica® er vörumerki skráð af Biblica, Inc., og notkun á Biblica® vörumerkinu krefst skriflegs leyfis Biblica, Inc. Samkvæmt skilmálum CC BY-SA leyfisins geturðu afritað og endurdreift þessu óbreyttu verki svo framarlega sem þú heldur Biblica® vörumerkinu óskertu. Ef þú breytir afriti eða þýðir þetta verk og býrð þannig til afleitt verk, verður þú að fjarlægja Biblica® vörumerkið. Á afleidda verkinu verður þú að tilgreina hvaða breytingar þú hefur gert og eigna verkið á eftirfarandi hátt: "Upprunalega verkið eftir Biblica, Inc. er fáanlegt ókeypis á www.biblica.com og open.bible ."
Tilkynning um höfundarrétt verður að birtast á titla- eða höfundarréttarsíðu verksins sem hér segir:
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
Þú verður einnig að gera afleidda verkið þítt aðgengilegt samkvæmt sama leyfi (CC BY-SA).
Ef þú vilt láta Biblica, Inc. vita um þýðingu þína á þessu verki, vinsamlegast hafðu samband við okkur á https://open.bible/contact .
This work is made available under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License (CC BY-SA). To view a copy of this license, visit https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 or send a letter to Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, USA.
Biblica® is a trademark registered by Biblica, Inc., and use of the Biblica® trademark requires the written permission of Biblica, Inc. Under the terms of the CC BY-SA license, you may copy and redistribute this unmodified work as long as you keep the Biblica® trademark intact. If you modify a copy or translate this work, thereby creating a derivative work, you must remove the Biblica® trademark. On the derivative work, you must indicate what changes you have made and attribute the work as follows: “The original work by Biblica, Inc. is available for free at www.biblica.com and open.bible .”
Notice of copyright must appear on the title or copyright page of the work as follows:
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
You must also make your derivative work available under the same license (CC BY-SA).
If you would like to notify Biblica, Inc. regarding your translation of this work, please contact us at https://open.bible/contact .
This translation is made available to you under the terms of the
Creative Commons Attribution Share-Alike license 4.0.
You have permission to share and redistribute this Bible translation in any format and to make reasonable revisions and adaptations of this translation, provided that:
You include the above copyright and source information.
If you make any changes to the text, you must indicate that you did so in a way that makes it clear that the original licensor is not necessarily endorsing your changes.
If you redistribute this text, you must distribute your contributions under the same license as the original.
Pictures included with Scriptures and other documents on this site are licensed just for use with those Scriptures and documents.
For other uses, please contact the respective copyright owners.
Note that in addition to the rules above, revising and adapting God's Word involves a great responsibility to be true to God's Word. See Revelation 22:18-19.
2025-05-03

Source: http://ebible.org/isl/ · eBible.org

Talk to us

Tell us where you read from, how the Bible has helped you, or what we could improve. We read every message.