Mark 5
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ · Tap a verse to see its cross-references.
Svínin deyja – en maðurinn lifir
1Þeir komu að landi austan megin vatnsins. Þegar Jesús var að stíga upp úr bátnum, hljóp þar að maður, haldinn illum anda.
3Hann hélt sig annars í og við grafirnar, og var slíkt heljarmenni að í hvert skipti sem hann var fjötraður – og það gerðist oft – sleit hann í sundur handjárnin, reif af sér hlekkina og fór sína leið. Enginn hafði afl til að yfirbuga hann. 5Hann æddi nætur og daga æpandi um milli grafanna og út í auðnina, og risti sig til blóðs með hvössum steinum.
6Maðurinn hafði séð til bátsins úti á vatninu. Hann kom hlaupandi til móts við Jesú og varpaði sér að fótum hans.
7Jesús sagði þá við illa andann sem í manninum var: „Út með þig, illi andi.“ Andinn rak þá upp skelfilegt öskur og spurði: „Hvað ætlar þú að gera við okkur, Jesús, sonur hins æðsta Guðs? Við biðjum þig, láttu okkur ekki kveljast.“
9„Hvað heitir þú?“ spurði Jesús. „Hersing.“ svaraði andinn, „því við erum margir í þessum manni.“
10Því næst báðu andarnir hann að senda sig ekki burt. 11Meðan þetta gerðist var stór svínahjörð á beit í hlíðinni upp af vatninu. 12„Sendu okkur í svínin þarna,“ báðu andarnir.
13Jesús leyfði þeim það. Þá fóru andarnir úr manninum og í svínin. Við það tók öll hjörðin á rás og æddi niður bratta hlíðina, fram af klettunum og drukknaði í vatninu. 14Svínahirðarnir flýðu til nærliggjandi bæja og sögðu, á hlaupunum, frá því sem gerst hafði. Fjöldi fólks þusti þá af stað til að sjá þetta með eigin augum. 15Og þegar fólkið sá manninn sitja þar, klæddan og með fullu viti, varð það hrætt. 16Þeir sem vitni höfðu orðið að atburðinum, sögðu öðrum frá 17og þegar fólkið hafði heyrt frásögnina, bað það Jesú að fara og láta sig í friði! 18Jesús fór því aftur um borð í bátinn, en þá bað maðurinn, sem haft hafði illu andana, hann að leyfa sér að koma með, 19en Jesús leyfði það ekki. „Farðu heim til þín og þinna,“ sagði hann; „og segðu þeim hve mikið Guð hefur gert fyrir þig, og hversu hann hefur miskunnað þér.“
20Maðurinn fór því til þorpanna tíu þar í héraðinu og sagði öllum frá þeim stórkostlegu hlutum sem Jesús hafði gert fyrir hann, og undruðust það allir.
Lækningakraftaverk
21Þegar Jesús var kominn til baka yfir vatnið, safnaðist að honum fjöldi fólks.
22Jaírus, forstöðumaður samkomuhúss staðarins, kom þangað, laut honum, 23og bað hann heitt og innilega að lækna litlu dóttur sína.
„Hún er að deyja,“ sagði hann, angistarfullur. „Gerðu það fyrir mig að koma og leggja hendur þínar yfir hana, svo að hún lifi og verði heilbrigð.“
24Jesús fór með honum og allt fólkið fylgdi á eftir. 25Í mannþrönginni að baki Jesú var kona sem hafði haft innvortis blæðingar í tólf ár. 26Árum saman hafði hún þolað þjáningarfullar aðgerðir lækna og eytt í það aleigu sinni, en henni hafði stöðugt versnað. 27Hún hafði heyrt um dásamleg kraftaverk sem Jesús vann, og því læddist hún nú aftan að honum í mannþyrpingunni og snerti föt hans.
28Hún hugsaði: „Ef ég bara gæti snert hann, þá verð ég heilbrigð.“ 29Og það gerðist einmitt! Um leið og hún kom við hann, stöðvaðist blæðingin og hún fann að hún hafði læknast!
30Jesús varð á sömu stund var við að lækningakraftur fór út af honum. Hann sneri sér því við í mannfjöldanum og spurði: „Hver snerti mig?“
31„Fólkið þrýstir að þér á alla vegu og þú spyrð hver hafi snert þig,“ svöruðu lærisveinarnir undrandi.
32En Jesús horfði í kring um sig til að finna þann sem hafði snert hann. 33Þegar konan sá það, kom hún, hrædd og skjálfandi, kraup niður og sagði honum alla söguna. 34„Dóttir,“ sagði Jesús við hana, „trú þín hefur læknað þig. Þú ert heilbrigð af sjúkdómi þínum, farðu í friði.“ 35Meðan hann var að tala við hana, kom sendiboði frá heimili Jaírusar. Hann sagði að nú væri allt orðið um seinan – stúlkan væri dáin og tilgangslaust að láta Jesú koma úr þessu. 36En Jesús lét sem hann heyrði þetta ekki og sagði við Jaírus: „Vertu ekki hræddur. Trúðu á mig og treystu mér.“
37Jesús bað nú mannfjöldann að nema staðar og leyfði engum að fara með sér inn í hús Jaírusar, nema Pétri, Jakobi og Jóhannesi. 38Þegar inn kom sá Jesús að allt var þar í uppnámi, fólkið grét og kveinaði. 39Hann sagði við það: „Hvað á allur þessi grátur og hávaði að þýða? Barnið er ekki dáið, það sefur.“ 40Þá hló fólkið að honum, en hann skipaði því að fara út og tók síðan með sér lærisveinana þrjá og foreldra stúlkunnar og fór inn til hennar.
41Hann tók í höndina á barninu og sagði: „Stúlka litla, rís þú upp.“ Jafnskjótt reis hún á fætur og fór að ganga um gólfið! (Hún var tólf ára). Foreldrar hennar urðu frá sér numdir af gleði. 43Jesús lagði áherslu á að þau segðu þetta engum og bað þau síðan að gefa henni eitthvað að borða.

Did you know?
Restored on both shores of the sea
- Mark says they landed in the region of the Gerasenes, and the freed man then proclaimed throughout the Decapolis how much Jesus had done for him. The Decapolis was a district of ten cities east and south-east of the Sea of Galilee, chiefly inhabited by Greeks, and Gadara was one of them. A source heading also calls the episode the Gadarene demoniacs, a place-name different from Mark’s Gerasenes.Sources: the Bible text itself · Decapolis · Gadarene Demoniacs
- On the other shore, a synagogue leader named Jairus begged Jesus to come to his little daughter. Easton's Bible Dictionary (1897) identifies him as a ruler of the synagogue at Capernaum whose only daughter Jesus restored to life. Mark records “Talitha koum,” explained as “Little girl, I say to you, get up!”; the dictionary cites “Talitha cumi,” “Maid, arise,” and says Jesus ordered food to strengthen her and to show she was no ghost but had returned to ordinary life.Sources: the Bible text itself · Jairus
- Jesus allowed only Peter, James, and John to go in with the child’s father and mother. Easton's Bible Dictionary (1897) describes James as a fisherman, the son of Zebedee and an elder brother of John, in partnership with Peter, and notes that he was present at the raising of Jairus’s daughter.Sources: the Bible text itself · James (Son of Zebedee)
Notes written with AI assistance from open sources (Theographic Bible Metadata, CC BY-SA 4.0; Easton’s Bible Dictionary, public domain) and reviewed before publishing.
Places in this chapter
Only places identified with high confidence are shown (90% or more according to the scholarly sources compiled by OpenBible). Period map: DARE (Digital Atlas of the Roman Empire), CC BY 4.0; modern map: © OpenStreetMap contributors; places: OpenBible.info (CC BY 4.0).
Credits and license for this translation
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Icelandic: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ (New Testament+) copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc. Language: Íslenska (Icelandic) Contributor: Biblica, Inc. Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. Creative Commons License Þetta verk er gert aðgengilegt samkvæmt CC BY-SA leyfinu (Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License). Til að skoða afrit af þessu leyfi skaltu fara á https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 eða senda bréf til Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, Bandaríkjunum. Biblica® er vörumerki skráð af Biblica, Inc., og notkun á Biblica® vörumerkinu krefst skriflegs leyfis Biblica, Inc. Samkvæmt skilmálum CC BY-SA leyfisins geturðu afritað og endurdreift þessu óbreyttu verki svo framarlega sem þú heldur Biblica® vörumerkinu óskertu. Ef þú breytir afriti eða þýðir þetta verk og býrð þannig til afleitt verk, verður þú að fjarlægja Biblica® vörumerkið. Á afleidda verkinu verður þú að tilgreina hvaða breytingar þú hefur gert og eigna verkið á eftirfarandi hátt: "Upprunalega verkið eftir Biblica, Inc. er fáanlegt ókeypis á www.biblica.com og open.bible ." Tilkynning um höfundarrétt verður að birtast á titla- eða höfundarréttarsíðu verksins sem hér segir: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. Þú verður einnig að gera afleidda verkið þítt aðgengilegt samkvæmt sama leyfi (CC BY-SA). Ef þú vilt láta Biblica, Inc. vita um þýðingu þína á þessu verki, vinsamlegast hafðu samband við okkur á https://open.bible/contact . This work is made available under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License (CC BY-SA). To view a copy of this license, visit https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 or send a letter to Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, USA. Biblica® is a trademark registered by Biblica, Inc., and use of the Biblica® trademark requires the written permission of Biblica, Inc. Under the terms of the CC BY-SA license, you may copy and redistribute this unmodified work as long as you keep the Biblica® trademark intact. If you modify a copy or translate this work, thereby creating a derivative work, you must remove the Biblica® trademark. On the derivative work, you must indicate what changes you have made and attribute the work as follows: “The original work by Biblica, Inc. is available for free at www.biblica.com and open.bible .” Notice of copyright must appear on the title or copyright page of the work as follows: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. You must also make your derivative work available under the same license (CC BY-SA). If you would like to notify Biblica, Inc. regarding your translation of this work, please contact us at https://open.bible/contact . This translation is made available to you under the terms of the Creative Commons Attribution Share-Alike license 4.0. You have permission to share and redistribute this Bible translation in any format and to make reasonable revisions and adaptations of this translation, provided that: You include the above copyright and source information. If you make any changes to the text, you must indicate that you did so in a way that makes it clear that the original licensor is not necessarily endorsing your changes. If you redistribute this text, you must distribute your contributions under the same license as the original. Pictures included with Scriptures and other documents on this site are licensed just for use with those Scriptures and documents. For other uses, please contact the respective copyright owners. Note that in addition to the rules above, revising and adapting God's Word involves a great responsibility to be true to God's Word. See Revelation 22:18-19. 2025-05-03
Source: http://ebible.org/isl/ · eBible.org