Mark 14
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ · Tap a verse to see its cross-references.
Jesús svikinn og handtekinn
1Tveim dögum síðar hófst páskahátíðin – en þá neyta Gyðingar ekki brauðs með súru geri. Æðstu prestarnir og aðrir leiðtogar þjóðarinnar voru enn að leita að tækifæri til að handtaka Jesú svo lítið bæri á og lífláta hann. 2„En það er útilokað á páskahátíðinni,“ sögðu þeir, „því þá færi allt í bál og brand.“
3Jesús var um þessar mundir staddur í Betaníu, heima hjá Símoni holdsveika. Meðan þeir voru að borða kvöldverð, kom kona inn með fallega flösku með dýrri ilmolíu. Hún braut innsiglið af flöskunni og hellti innihaldinu yfir höfuð Jesú.
4Sumir, sem þarna voru, hneyksluðust á þessari „sóun“ eins og þeir kölluðu það. „Hvað á þetta að þýða,“ tautuðu þeir. „Hún hefði getað selt ilmolíuna fyrir stórfé og gefið það fátækum.“
6„Látið hana í friði,“ sagði Jesús. „Af hverju gagnrýnið þið hana fyrir gott verk? 7Fátæka hafið þið ávallt hjá ykkur og þeim getið þið liðsinnt hvenær sem þið viljið, en mig hafið þið ekki ávallt.
8Hún gerði það sem hún gat og hún hefur smurt líkama minn fyrir fram til greftrunar. 9Ég segi ykkur satt: Hvar sem fagnaðarerindið verður boðað í þessum heimi, mun þess getið sem hún gerði og það lofað.“
10Þegar hér var komið, fór Júdas Ískaríot til æðstu prestanna, staðráðinn í að svíkja Jesú í hendur þeirra.
11Þegar þeim varð ljóst erindi Júdasar, lifnaði yfir þeim og þeir hétu honum launum. Eftir það leitaði Júdas að hentugu tækifæri til að svíkja Jesú.
12Á fyrsta degi páskahátíðarinnar, þegar lömbunum var slátrað, spurðu lærisveinar Jesú hann hvar hann ætlaði að neyta páskamáltíðarinnar. 13Þá sendi hann tvo þeirra til Jerúsalem til að undirbúa máltíðina.
„Þegar þið komið inn í borgina,“ sagði hann, „munuð þið sjá mann koma á móti ykkur með vatnskrús. Fylgið honum eftir. 14Þar sem hann fer inn í hús, skuluð þið segja við húsráðandann: „Meistari okkar sendi okkur til að líta á herbergið, sem þú ætlaðir okkur til að neyta páskamáltíðarinnar í.“ 15Þá mun hann fara með ykkur upp á loft og inn í stórt herbergi, búið þægindum. Þar skuluð þið undirbúa kvöldmáltíð okkar.“
16Lærisveinarnir tveir fóru því til borgarinnar og fundu allt eins og Jesús hafði sagt og undirbjuggu hátíðarverðinn.
17Um kvöldið kom Jesús ásamt lærisveinunum. 18Þegar þeir voru sestir við borðið sagði Jesús: „Ég segi ykkur satt: Einn ykkar mun svíkja mig, einn ykkar, sem hér sitjið og borðið með mér.“
19Lærisveinunum brá mjög við þessi orð og mikil spenna lá í loftinu. „Er það ég?“ spurðu þeir einn af öðrum. 20„Já, það er einn ykkar tólf, sem nú borðið hér með mér,“ svaraði Jesús.
21„Ég verð að deyja eins og spámennirnir sögðu fyrir, en mikil er ógæfa þess sem mig svíkur. Betra væri að hann hefði aldrei fæðst.“
22Meðan á máltíðinni stóð tók Jesús brauð, og þakkaði Guði. Hann braut það í bita, rétti þeim og sagði: „Borðið þetta – það er líkami minn.“
23Síðan tók hann bikar með víni, þakkaði og rétti þeim og þeir drukku allir af honum. 24Síðan sagði hann: „Þetta er blóð mitt, sem úthellt er fyrir marga. Það er innsigli hins nýja sáttmála milli Guðs og manna. 25Ég segi ykkur satt að ég mun ekki bragða vín fyrr en ég drekk nýja vínið í guðsríki.“
26Síðan sungu þeir sálm og að því búnu fóru þeir út til Olíufjallsins.
27„Þið munuð allir yfirgefa mig,“ sagði Jesús, „því Guðs orð segir: „Ég mun slá hirðinn og hjörðin mun tvístrast.“ 28En eftir að ég er risinn upp frá dauðum, mun ég fara til Galíleu og hitta ykkur þar.“
29Þá sagði Pétur: „Ég mun aldrei yfirgefa þig, hvað sem hinir gera.“
30„Pétur,“ sagði Jesús, „áður en haninn hefur galað tvisvar í fyrramálið muntu þrisvar afneita mér.“
31„Nei!“ hrópaði Pétur. „Ég mun aldrei afneita þér, jafnvel þótt ég ætti að deyja með þér.“ Og allir hinir tóku í sama streng.
32Þeir komu í garð sem heitir Getsemane og þar sagði Jesús við lærisveinana: „Setjist hérna og bíðið meðan ég fer og biðst fyrir.“
33Síðan gekk hann lengra ásamt Pétri, Jakobi og Jóhannesi. Þá varð hann angistarfullur og tók að skjálfa. 34Hann sagði við þá: „Ég er hryggur og fullur örvæntingar á stund dauðans – bíðið hér og vakið með mér.“
35Hann gekk spölkorn lengra, féll til jarðar og bað þess að sú hræðilega stund, sem biði hans, rynni aldrei upp, ef unnt væri.
36„Faðir,“ sagði hann, „allt er þér mögulegt. Taktu þennan þjáningarbikar frá mér, en verði samt þinn vilji en ekki minn.“
37Síðan gekk hann þangað sem lærisveinarnir þrír voru og fann þá sofandi.
„Símon!“ sagði hann. „Ertu sofandi? Gastu ekki einu sinni vakað með mér eina stund? 38Vakið og biðjið til þess að þið fallið ekki í freistni. Þótt andinn sé fús, er holdið veikt.“
39Síðan fór hann aftur frá þeim og bað sömu bænar. 40Eftir það kom hann til þeirra og fann þá enn sofandi. Þeir voru mjög þreyttir og vissu ekki hvað þeir áttu að segja.
41Í þriðja skipti kom hann til þeirra og sagði: „Sofið þið enn og hvílist? Nú er ekki tími til að sofa! Ég hef verið svikinn í hendur vondra manna. 42Standið upp, við verðum að fara! Sjáið! Svikari minn er að koma!“
43Áður en hann hafði sleppt orðinu, kom Júdas (einn af lærisveinum hans) með hóp manna vopnaða sverðum og kylfum. Menn þessa höfðu æðstu prestarnir og aðrir leiðtogar þjóðarinnar sent. 44Júdas hafði sagt við þá: „Handtakið þann sem ég heilsa. Það verður auðvelt að ná honum.“
45Jafnskjótt og þeir komu, gekk Júdas til Jesú og sagði glaðlega: „Meistari!“ og kyssti hann. 46Og þeir lögðu hendur á Jesú og tóku hann. 47Einhver brá sverði á loft og hjó til þjóns æðsta prestsins og sneið af honum eyrað.
48Jesús sagði við hópinn: „Er ég þá hættulegur ræningi? Þið komið alvopnaðir til að handtaka mig. 49Af hverju tókuð þið mig ekki í musterinu? Þar kenndi ég á hverjum degi! En svona á þetta reyndar að fara, til þess að spádómarnir um mig rætist.“
50Meðan Jesús var að tala, yfirgáfu allir lærisveinarnir hann og flýðu. 51Og hópurinn lagði af stað með Jesú. En ungur maður, klæddur náttslopp einum saman, kom í humátt á eftir og þegar mennirnir ætluðu að grípa hann, rifnaði sloppurinn og hann flýði nakinn.
Pétur neitar því að þekkja Jesú
53Nú var farið með Jesú til hallar æðsta prestsins og þar söfnuðust fljótlega saman allir æðstu prestarnir og aðrir leiðtogar. 54Pétur kom langt á eftir og smeygði sér, svo lítið bar á, inn fyrir hliðið við bústað æðsta prestsins og settist við eldinn í garðinum ásamt þjónunum sem þar voru.
55Inni í húsinu reyndi hæstiréttur Gyðinga að finna einhverja sök á hendur Jesú, sem nægja mundi til dauðadóms, en árangurslaust. 56Fjöldi falsvitna gaf sig fram, en framburði þeirra bar ekki saman.
57Loksins stóðu upp nokkrir menn og báru lognar sakir á Jesú. 58Þeir sögðu: „Við heyrðum hann segja: „Ég mun rífa niður þetta musteri sem byggt er af mannahöndum og byggja annað á þrem dögum, án þess að hönd komi þar nærri“.“ 59En ekki bar þeim heldur saman um þetta.
60Þá reis æðsti presturinn upp og spurði Jesú frammi fyrir réttinum: „Þú svarar engu. Hvað viltu segja þér til varnar?“
61Jesús svaraði honum ekki einu orði. Þá spurði æðsti presturinn: „Ert þú Kristur, sonur Guðs?“
62Jesús svaraði: „Já, það er ég og þú munt sjá mig sitja við hægri hönd Guðs og birtast öllum mönnum í skýjum himinsins.“
63Þá reif æðsti presturinn föt sín og hrópaði: „Þurfum við framar vitnanna við! Þið heyrðuð sjálfir guðlastið. Hvað finnst ykkur?“ Og þeir dæmdu hann til dauða einum rómi.
65Nokkrir viðstaddra tóku að hrækja á Jesú, héldu fyrir augu hans og slógu hann í andlitið. „Spámaður!“ æptu þeir hæðnislega, „hver sló þig núna?“ Jafnvel verðirnir slógu hann, þegar þeir leiddu hann burt.
66Meðan þetta gerðist var Pétur niðri í garðinum. Ein þjónustustúlka æðsta prestsins tók þá eftir honum, þar sem hann var að ylja sér við eldinn. Hún veitti honum nánari athygli og sagði síðan: „Þú varst áreiðanlega með Jesú frá Nasaret.“
68Pétur neitaði og sagði: „Ég skil ekki hvað þú átt við!“ Síðan færði hann sig nær hliðinu. Þá gól haninn!
69Eftir stundarkorn kom stúlkan aftur auga á Pétur og sagði við nærstadda: „Þarna er hann! Þarna er þessi lærisveinn Jesú.“
70En hann neitaði aftur. Stuttu síðar sögðu aðrir, sem stóðu umhverfis eldinn, við Pétur: „Þú ert líka einn af þeim, því þú ert frá Galíleu.“
71Þá tók hann að blóta og formæla og sagði: „Ég þekki alls ekki þennan mann!“
72Þá gól haninn í annað sinn. Og Pétur minntist orða Jesú: „Áður en haninn galar tvisvar, muntu þrisvar afneita mér.“
Þá brast Pétur í grát.

Did you know?
Anointing, Betrayal, and Arrest
- The anointing took place in Bethany, a village on the south-eastern slope of the Mount of Olives, about two miles east of Jerusalem on the road to Jericho. There Jesus reclined at table in the house of Simon the Leper while a woman broke open an alabaster jar of pure nard and poured it on his head.Sources: Bethany · Simon · the Bible text itself
- After the meal, Jesus and the Twelve sang a hymn and went out to the Mount of Olives, a ridge east of Jerusalem, separated from the city by the Kidron valley and named for the olive trees covering its slopes. At its foot lay Gethsemane, an olive yard whose name means "oil-press," where Jesus was accustomed to withdraw with his disciples.Sources: Mount of Olives · Gethsemane · the Bible text itself
- Judas, surnamed Iscariot, that is, a man of Kerioth, is always named last among the apostles in the lists of the first three Gospels. After the anointing he went to the chief priests to betray Jesus; they were delighted and promised him money, and he later identified Jesus to the armed crowd by a kiss.Sources: Judas Iscariot · the Bible text itself
Notes written with AI assistance from open sources (Theographic Bible Metadata, CC BY-SA 4.0; Easton’s Bible Dictionary, public domain) and reviewed before publishing.
Places in this chapter
- Jerusalem · 31.777, 35.234 · verse 13
- Mount of Olives · 31.778, 35.246 · verse 26
- Galilee · 32.760, 35.527 · verse 28
- Gethsemane · 31.779, 35.239 · verse 32
- Nazareth · 32.702, 35.298 · verse 67
Only places identified with high confidence are shown (90% or more according to the scholarly sources compiled by OpenBible). Period map: DARE (Digital Atlas of the Roman Empire), CC BY 4.0; modern map: © OpenStreetMap contributors; places: OpenBible.info (CC BY 4.0).
Credits and license for this translation
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Icelandic: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ (New Testament+) copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc. Language: Íslenska (Icelandic) Contributor: Biblica, Inc. Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. Creative Commons License Þetta verk er gert aðgengilegt samkvæmt CC BY-SA leyfinu (Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License). Til að skoða afrit af þessu leyfi skaltu fara á https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 eða senda bréf til Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, Bandaríkjunum. Biblica® er vörumerki skráð af Biblica, Inc., og notkun á Biblica® vörumerkinu krefst skriflegs leyfis Biblica, Inc. Samkvæmt skilmálum CC BY-SA leyfisins geturðu afritað og endurdreift þessu óbreyttu verki svo framarlega sem þú heldur Biblica® vörumerkinu óskertu. Ef þú breytir afriti eða þýðir þetta verk og býrð þannig til afleitt verk, verður þú að fjarlægja Biblica® vörumerkið. Á afleidda verkinu verður þú að tilgreina hvaða breytingar þú hefur gert og eigna verkið á eftirfarandi hátt: "Upprunalega verkið eftir Biblica, Inc. er fáanlegt ókeypis á www.biblica.com og open.bible ." Tilkynning um höfundarrétt verður að birtast á titla- eða höfundarréttarsíðu verksins sem hér segir: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. Þú verður einnig að gera afleidda verkið þítt aðgengilegt samkvæmt sama leyfi (CC BY-SA). Ef þú vilt láta Biblica, Inc. vita um þýðingu þína á þessu verki, vinsamlegast hafðu samband við okkur á https://open.bible/contact . This work is made available under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License (CC BY-SA). To view a copy of this license, visit https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 or send a letter to Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, USA. Biblica® is a trademark registered by Biblica, Inc., and use of the Biblica® trademark requires the written permission of Biblica, Inc. Under the terms of the CC BY-SA license, you may copy and redistribute this unmodified work as long as you keep the Biblica® trademark intact. If you modify a copy or translate this work, thereby creating a derivative work, you must remove the Biblica® trademark. On the derivative work, you must indicate what changes you have made and attribute the work as follows: “The original work by Biblica, Inc. is available for free at www.biblica.com and open.bible .” Notice of copyright must appear on the title or copyright page of the work as follows: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. You must also make your derivative work available under the same license (CC BY-SA). If you would like to notify Biblica, Inc. regarding your translation of this work, please contact us at https://open.bible/contact . This translation is made available to you under the terms of the Creative Commons Attribution Share-Alike license 4.0. You have permission to share and redistribute this Bible translation in any format and to make reasonable revisions and adaptations of this translation, provided that: You include the above copyright and source information. If you make any changes to the text, you must indicate that you did so in a way that makes it clear that the original licensor is not necessarily endorsing your changes. If you redistribute this text, you must distribute your contributions under the same license as the original. Pictures included with Scriptures and other documents on this site are licensed just for use with those Scriptures and documents. For other uses, please contact the respective copyright owners. Note that in addition to the rules above, revising and adapting God's Word involves a great responsibility to be true to God's Word. See Revelation 22:18-19. 2025-05-03
Source: http://ebible.org/isl/ · eBible.org