Nations Bible

Matthew 18

Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ · Tap a verse to see its cross-references.

Hver er mestur

1Rétt í þessu komu lærisveinarnir til Jesú og spurðu hann hver þeirra yrði mestur í ríki himnanna. 2Jesús kallaði þá á lítið barn sem stóð þar hjá 3og sagði: „Ef þið snúið ykkur ekki frá syndinni, til Guðs, og verðið eins og börnin, munuð þið aldrei komast inn í himnaríki. 4Sá sem er auðmjúkur, eins og þetta litla barn, verður mestur í himnaríki. 5Ef þið, sem lærisveinar mínir, takið vel á móti barni eins og þessu, þá takið þið á móti mér.

Jesús varar við hneykslunum

6En snúi eitthvert þessara barna, sem á mig trúa, við mér baki ykkar vegna, þá væri þeim manni betra að láta kasta sér í hafið með stein bundinn um háls sér. 7Miklar hörmungar bíða þessa heims vegna illsku hans. Við komumst reyndar ekki hjá því að verða fyrir freistingum, en vei þeim manni sem freistingunum veldur. 8Ef hönd þín eða fótur kemur þér til að syndga, er betra að skera liminn af, kasta honum burt og koma bæklaður til himins, en hafa bæði hendur og fætur, og lenda í helvíti. 9Ef auga þitt fær þig til að syndga, skaltu stinga það úr og fleygja því. Betra er fyrir þig að ná til himna eineygður, en að fara alsjáandi til helvítis.

Dæmisagan um týnda sauðinn

10Gætið þess að fyrirlíta ekki neitt þessara barna. Ég segi ykkur satt: Englar þeirra eru í nánum tengslum við föður minn á himnum, 11og ég, Kristur, kom til þess að frelsa þau sem týnd eru. 12Hvað gerir sá sem á hundrað sauði ef einn þeirra villist? Skilur hann ekki hina níutíu og níu eftir og fer að leita þess sem týndist? 13Ef hann finnur hann, gleðst hann meira vegna hans en hinna níutíu og níu sem eru öruggir heima. 14Á sama hátt vill faðir minn ekki að eitt einasta þessara barna glatist.

Um syndugan meðbróður

15Ef einhver í söfnuðinum syndgar, skaltu fara til hans og ræða við hann einslega um mistök hans. Ef hann hlustar og játar sekt sína, hefur þú bjargað honum. 16En ef hann lætur sér ekki segjast við orð þín, skaltu fara til hans á ný og fá með þér einn eða tvo til viðbótar til að staðfesta mál þitt. 17Ef honum verður ekki þokað þrátt fyrir það, skaltu láta taka málið upp í söfnuðinum. Ef úrskurður safnaðarins verður þér í vil, en bróðir þinn vill ekki beygja sig fyrir honum, skal honum vísað úr söfnuðinum. 18Ég segi ykkur hér með: Hvað sem þið bindið á jörðu, mun bundið á himnum, og hvað sem þið leysið á jörðu, verður leyst á himnum.

19Ég segi ykkur einnig að verði tveir ykkar sammála um að biðja einhvers, mun faðir minn á himnum veita ykkur það. 20Því að hvar sem tveir eða þrír eru samankomnir mín vegna, er ég mitt á meðal þeirra.“

Dæmisagan um miskunnarlausa þrjótinn

21Þá kom Pétur til hans og spurði: „Herra; hve oft á ég að fyrirgefa þeim sem syndgar gegn mér? Sjö sinnum?“

22„Nei, sjötíu sinnum sjö, – endalaust!“ svaraði Jesús. 23„Himnaríki má líkja við konung, sem ákvað að gera upp við þá sem skulduðu honum. 24Meðan á uppgjörinu stóð, var komið með mann sem skuldaði honum margar milljónir. 25Hann gat ekki borgað, og þá skipaði konungurinn svo fyrir að hann, kona hans og börn skyldu seld, ásamt öllum eigum hans, til þess að skuldin yrði greidd.

26Þá varpaði maðurinn sér í gólfið við fætur konungsins og sagði: „Ó, herra minn, miskunnaðu mér og ég mun borga þér alla skuldina!“

27Þá kenndi konungurinn í brjósti um hann og gaf honum upp alla skuldina!

28Þegar þessi maður kom út frá konunginum, hitti hann félaga sinn sem skuldaði honum smáræði. Hann greip um kverkar honum og skipaði honum að greiða alla skuldina tafarlaust. 29Maðurinn kraup þá við fætur hans og grátbað hann: „Veittu mér dálítinn frest og ég mun greiða þér það sem ég skulda.“

30En hinn vildi ekki bíða og lét handtaka skuldunaut sinn og varpa honum í fangelsi, þar varð hann að dúsa uns skuldin var að fullu greidd.

31Samstarfsmönnum þeirra brá í brún og þeir fóru til konungsins og sögðu honum hvað gerst hafði. 32Konungurinn lét þá kalla til sín manninn sem hann hafði gefið upp skuldina og sagði: „Miskunnarlausi þrjótur! Ég gaf þér upp milljóna skuld vegna þess að þú baðst mig um það. 33Átt þú ekki að vera miskunnsamur við aðra eins og ég var miskunnsamur við þig?“

34Konungurinn varð reiður og sendi manninn til böðlanna sem skyldu gæta hans uns skuldin yrði að fullu greidd. 35Þannig mun faðir minn á himnum einnig fara að við ykkur, ef þið fyrirgefið ekki bræðrum ykkar af heilum hug.“

Artistic illustration — an interpretation, not a historical record.

Did you know?

Humility, reconciliation, and forgiveness

  • The disciples come to Jesus asking who is greatest in the kingdom of heaven, and he invites a little child to stand among them, saying that whoever humbles himself like that child is the greatest. A chronological outline dates these teachings on humility, temptation, and reconciliation to AD 29 and assigns them to a single day.Sources: the Bible text itself · Teachings on Humility/Temptation/Reconciliation
  • Peter, who asks how often he should forgive a brother who sins against him, was originally called Simon and had been trained as a fisherman at Bethsaida, on the western coast of the Sea of Galilee. He suggests seven times; Jesus answers not seven times, but seventy-seven times, and tells of a king who forgives a servant owing ten thousand talents. That servant later refuses to forgive a fellow servant who owed him a hundred denarii.Sources: the Bible text itself · Simon Peter
  • When a brother sins against you, the instruction is to confront him privately and, if he will not listen, to take one or two others so that every matter may be established by the testimony of two or three witnesses. If he still refuses, the matter is to be told to the church, and if he will not listen even to the church, he is to be regarded as a pagan or a tax collector.Sources: the Bible text itself

Notes written with AI assistance from open sources (Theographic Bible Metadata, CC BY-SA 4.0; Easton’s Bible Dictionary, public domain) and reviewed before publishing.

Credits and license for this translation
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Icelandic: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ (New Testament+)
copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc.
Language: Íslenska (Icelandic)
Contributor: Biblica, Inc.
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
Creative Commons License
Þetta verk er gert aðgengilegt samkvæmt CC BY-SA leyfinu (Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License). Til að skoða afrit af þessu leyfi skaltu fara á https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 eða senda bréf til Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, Bandaríkjunum.
Biblica® er vörumerki skráð af Biblica, Inc., og notkun á Biblica® vörumerkinu krefst skriflegs leyfis Biblica, Inc. Samkvæmt skilmálum CC BY-SA leyfisins geturðu afritað og endurdreift þessu óbreyttu verki svo framarlega sem þú heldur Biblica® vörumerkinu óskertu. Ef þú breytir afriti eða þýðir þetta verk og býrð þannig til afleitt verk, verður þú að fjarlægja Biblica® vörumerkið. Á afleidda verkinu verður þú að tilgreina hvaða breytingar þú hefur gert og eigna verkið á eftirfarandi hátt: "Upprunalega verkið eftir Biblica, Inc. er fáanlegt ókeypis á www.biblica.com og open.bible ."
Tilkynning um höfundarrétt verður að birtast á titla- eða höfundarréttarsíðu verksins sem hér segir:
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
Þú verður einnig að gera afleidda verkið þítt aðgengilegt samkvæmt sama leyfi (CC BY-SA).
Ef þú vilt láta Biblica, Inc. vita um þýðingu þína á þessu verki, vinsamlegast hafðu samband við okkur á https://open.bible/contact .
This work is made available under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License (CC BY-SA). To view a copy of this license, visit https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 or send a letter to Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, USA.
Biblica® is a trademark registered by Biblica, Inc., and use of the Biblica® trademark requires the written permission of Biblica, Inc. Under the terms of the CC BY-SA license, you may copy and redistribute this unmodified work as long as you keep the Biblica® trademark intact. If you modify a copy or translate this work, thereby creating a derivative work, you must remove the Biblica® trademark. On the derivative work, you must indicate what changes you have made and attribute the work as follows: “The original work by Biblica, Inc. is available for free at www.biblica.com and open.bible .”
Notice of copyright must appear on the title or copyright page of the work as follows:
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
You must also make your derivative work available under the same license (CC BY-SA).
If you would like to notify Biblica, Inc. regarding your translation of this work, please contact us at https://open.bible/contact .
This translation is made available to you under the terms of the
Creative Commons Attribution Share-Alike license 4.0.
You have permission to share and redistribute this Bible translation in any format and to make reasonable revisions and adaptations of this translation, provided that:
You include the above copyright and source information.
If you make any changes to the text, you must indicate that you did so in a way that makes it clear that the original licensor is not necessarily endorsing your changes.
If you redistribute this text, you must distribute your contributions under the same license as the original.
Pictures included with Scriptures and other documents on this site are licensed just for use with those Scriptures and documents.
For other uses, please contact the respective copyright owners.
Note that in addition to the rules above, revising and adapting God's Word involves a great responsibility to be true to God's Word. See Revelation 22:18-19.
2025-05-03

Source: http://ebible.org/isl/ · eBible.org

Talk to us

Tell us where you read from, how the Bible has helped you, or what we could improve. We read every message.