Luke 2
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ · Tap a verse to see its cross-references.
Fæðing Jesú
1Um þetta leyti fyrirskipaði rómverski keisarinn, Ágústus, að manntal skyldi tekið um allt Rómaveldi. 2Þetta fyrsta manntal var gert þegar Kýreníus var landstjóri á Sýrlandi.
3Þess vegna urðu allir að fara til ættborgar sinnar og láta skrá sig þar. 4Þar sem Jósef var af ætt Davíðs konungs, varð hann að fara frá heimabæ sínum, Nasaret í Galíleu, til Betlehem í Júdeu, hinnar fornu borgar Davíðs, 5ásamt Maríu unnustu sinni sem þá var að því komin að eiga barn. 6Meðan þau voru í Betlehem, fæddi hún sitt fyrsta barn og var það drengur. Hún vafði hann reifum og lagði hann í jötu, því ekkert rúm var fyrir þau í gistihúsinu.
8Þessa sömu nótt voru fjárhirðar á völlunum utan við þorpið og gættu hjarðar sinnar. 9Allt í einu birtist þeim engill og ljóminn af dýrð Drottins lýsti upp umhverfið. Hirðarnir urðu skelkaðir, 10en engillinn hughreysti þá og sagði: „Verið óhræddir! Ég flyt ykkur miklar gleðifréttir sem berast eiga öllum mönnum: 11Frelsari ykkar, sjálfur konungurinn Kristur, fæddist í nótt í Betlehem! 12Þið munuð finna reifabarn, liggjandi í jötu – það er hann!“
13Um leið var með englunum fjöldi annarra engla – herskarar himnanna – og þeir lofuðu Guð og sungu: 14„Dýrð sé Guði í upphæðum og friður á jörðu með öllum þeim sem hann elskar.“ 15Þegar englarnir voru farnir aftur til himna, sögðu hirðarnir hver við annan: „Flýtum okkur til Betlehem og sjáum þennan stórkostlega atburð, sem Drottinn hefur sagt okkur frá!“
16Þeir hlupu til þorpsins og fundu bæði Maríu, Jósef og barnið í jötunni. 17Fjárhirðarnir sögðu síðan öllum hvað gerst hafði og hvað engillinn hafði sagt þeim um þetta barn. 18Allir sem heyrðu frásögn hirðanna, undruðust mjög, 19en María lagði allt þetta vel á minnið og hugleiddi það með sjálfri sér.
20Fjárhirðarnir fóru nú aftur út í hagann og lofuðu Guð fyrir allt sem þeir höfðu heyrt og séð, og engillinn hafði sagt þeim.
21Að átta dögum liðnum var drengurinn umskorinn og gefið nafnið Jesús, eins og engillinn nefndi hann, áður en hann var getinn í móðurlífi.
22Þegar tími var kominn til að María færði hreinsunarfórn í musterinu, eins og lög Móse krefjast þegar barn hefur fæðst, fóru foreldrar Jesú með hann upp til Jerúsalem til að færa hann Drottni. 23Guð segir svo í þessum lögum: „Ef kona fæðir dreng fyrstan barna sinna, skal hann helgaður Drottni.“
24Um leið færðu foreldrar Jesú einnig hreinsunarfórnina, sem lögin kröfðust, en hún varð annað hvort að vera tvær turtildúfur eða tvær ungar dúfur. 25Í Jerúsalem bjó maður sem Símeon hét. Hann var góður maður og guðrækinn, fylltur heilögum anda og vænti komu Krists, konungsins, sem Guð hafði lofað að senda. 26Heilagur andi hafði gert honum ljóst að hann mundi ekki deyja fyrr en hann hefði fengið að sjá konunginn Krist. 27Þennan dag hafði hann einmitt fengið vísbendingu frá heilögum anda um að fara í helgidóminn. Þangað kom hann er María og Jósef komu með barnið til að færa það Drottni, eins og lögin mæltu fyrir um. 28Símeon tók barnið í fang sér og lofaði Guð.
29Hann sagði: „Drottinn, nú get ég glaður dáið, því ég hef séð þann sem þú lofaðir að ég skyldi sjá. Ég hef augum litið frelsara heimsins! 32Hann er ljósið, sem lýsa mun þjóðunum, og hann verður vegsemd þjóðar þinnar Ísrael.“
33Jósef og María stóðu hjá og hlustuðu undrandi á það sem Símeon sagði um Jesú.
34Símeon blessaði þau en sagði síðan við Maríu: „Sverð mun nísta sál þína, því margir í Ísrael munu hafna þessu barni og það mun verða þeim til falls, en öðrum verður hann uppspretta gleðinnar. Þannig mun afstaða og hugsanir margra koma fram í ljósið.“
36Spákona nokkur, Anna að nafni, var einnig stödd í musterinu þennan dag. Hún var Fanúelsdóttir og af ætt Assers. Hún var orðin háöldruð og hafði verið ekkja í áttatíu og fjögur ár eftir sjö ára búskap. Hún fór aldrei út úr musterinu, heldur dvaldist þar dag og nótt. Hún helgaði líf sitt Guði og lofaði hann með bænahaldi og föstu.
38Nú kom hún þar að sem Símeon var að tala við Maríu og Jósef og byrjaði einnig að þakka Guði. Hún tók að segja öllum í Jerúsalem, sem væntu komu frelsarans, að Kristur væri loksins kominn.
Heim til Nasaret
39Þegar foreldrar Jesú höfðu gert allt sem lögin kröfðust, fóru þau aftur heim til Nasaret í Galíleu.
40Drengurinn óx og þroskaðist og Guð blessaði hann.
41Foreldrar Jesú fóru ár hvert til Jerúsalem á páskahátíðina, og þegar Jesús var tólf ára, fékk hann i fyrsta skipti að fara með. 43Þegar lagt var af stað heim til Nasaret, að hátíðahöldunum loknum, varð Jesús eftir í Jerúsalem.
Fyrsta dag heimferðarinnar söknuðu María og Jósef hans ekki, 44því að þau héldu að hann væri meðal kunningja sem áttu samleið. En þegar hann skilaði sér ekki um kvöldið, fóru þau að leita hans meðal vina og ættingja. 45Leitin varð árangurslaus, og því sneru þau aftur til Jerúsalem til að leita hans þar.
46Þau fundu hann ekki fyrr en eftir þrjá daga. Þá sat hann í musterinu meðal lögvitringanna og ræddi við þá háleit málefni. Undruðust allir skilning hans og svör.
48Foreldrar hans vissu ekki sitt rjúkandi ráð: „Elsku drengurinn minn,“ sagði móðir hans, „af hverju gerðirðu okkur þetta? Við faðir þinn vorum dauðhrædd um þig og höfum leitað þín um allt!“
49„Hvers vegna voruð þið að leita að mér?“ spurði hann, „vissuð þið ekki að mér bar að vera í musterinu, húsi föður míns?“ 50En þau skildu ekki við hvað hann átti.
51Síðan fór hann með þeim heim til Nasaret og var þeim hlýðinn, en móðir hans lagði alla þessa atburði vel á minnið. 52Jesús óx að visku og vexti og allir elskuðu hann, bæði Guð og menn.

Did you know?
The Birth and Early Years of Jesus
- Luke places Jesus’ birth at the time of a decree from Caesar Augustus that a census be taken of the whole empire. Augustus was the cognomen of the first Roman emperor, C. Julius Caesar Octavianus; the title, meaning “majesty” or “venerable,” was first given by the senate. Luke calls this the first census while Quirinius was governor of Syria—Cyrenius being the Greek form of Publius Sulpicius Quirinus.Sources: the Bible text itself · Augustus · Cyrenius
- Joseph lived in Nazareth in Galilee, and he went up from there to Judea, to Bethlehem, the city of David, because he belonged to David’s house and line. Bethlehem lies in the hill country of Judah and was David’s own city: David, the eighth and youngest son of Jesse, was a citizen of Bethlehem. Mary, pledged to Joseph in marriage and expecting a child, traveled with him to register.Sources: the Bible text itself · Joseph (Mary's Husband) · Bethlehem · David
- When the time of purification required by the Law of Moses was complete, the parents brought the child to Jerusalem to present him to the Lord, offering a pair of turtledoves or two young pigeons. In the temple they met Simeon and Anna, a prophetess, daughter of Phanuel, of the tribe of Asher. She had been married for seven years and then was a widow to the age of eighty-four, and she never left the temple, worshiping night and day, fasting and praying.Sources: the Bible text itself · Anna
Notes written with AI assistance from open sources (Theographic Bible Metadata, CC BY-SA 4.0; Easton’s Bible Dictionary, public domain) and reviewed before publishing.
Places in this chapter
- Syria · Today: Syria 2 · 33.511, 36.306 · verse 2
- Bethlehem · 31.704, 35.208 · verses 4, 11, 15
- Galilee · 32.760, 35.527 · verses 4, 39
- Judea · Today: Judea 1 · 31.777, 35.234 · verse 4
- Nazareth · 32.702, 35.298 · verses 4, 39, 43, 51
- Jerusalem · 31.777, 35.234 · verses 22, 25, 38, 41, 42, 43, 45
Only places identified with high confidence are shown (90% or more according to the scholarly sources compiled by OpenBible). Period map: DARE (Digital Atlas of the Roman Empire), CC BY 4.0; modern map: © OpenStreetMap contributors; places: OpenBible.info (CC BY 4.0).
Credits and license for this translation
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Icelandic: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ (New Testament+) copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc. Language: Íslenska (Icelandic) Contributor: Biblica, Inc. Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. Creative Commons License Þetta verk er gert aðgengilegt samkvæmt CC BY-SA leyfinu (Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License). Til að skoða afrit af þessu leyfi skaltu fara á https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 eða senda bréf til Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, Bandaríkjunum. Biblica® er vörumerki skráð af Biblica, Inc., og notkun á Biblica® vörumerkinu krefst skriflegs leyfis Biblica, Inc. Samkvæmt skilmálum CC BY-SA leyfisins geturðu afritað og endurdreift þessu óbreyttu verki svo framarlega sem þú heldur Biblica® vörumerkinu óskertu. Ef þú breytir afriti eða þýðir þetta verk og býrð þannig til afleitt verk, verður þú að fjarlægja Biblica® vörumerkið. Á afleidda verkinu verður þú að tilgreina hvaða breytingar þú hefur gert og eigna verkið á eftirfarandi hátt: "Upprunalega verkið eftir Biblica, Inc. er fáanlegt ókeypis á www.biblica.com og open.bible ." Tilkynning um höfundarrétt verður að birtast á titla- eða höfundarréttarsíðu verksins sem hér segir: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. Þú verður einnig að gera afleidda verkið þítt aðgengilegt samkvæmt sama leyfi (CC BY-SA). Ef þú vilt láta Biblica, Inc. vita um þýðingu þína á þessu verki, vinsamlegast hafðu samband við okkur á https://open.bible/contact . This work is made available under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License (CC BY-SA). To view a copy of this license, visit https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 or send a letter to Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, USA. Biblica® is a trademark registered by Biblica, Inc., and use of the Biblica® trademark requires the written permission of Biblica, Inc. Under the terms of the CC BY-SA license, you may copy and redistribute this unmodified work as long as you keep the Biblica® trademark intact. If you modify a copy or translate this work, thereby creating a derivative work, you must remove the Biblica® trademark. On the derivative work, you must indicate what changes you have made and attribute the work as follows: “The original work by Biblica, Inc. is available for free at www.biblica.com and open.bible .” Notice of copyright must appear on the title or copyright page of the work as follows: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. You must also make your derivative work available under the same license (CC BY-SA). If you would like to notify Biblica, Inc. regarding your translation of this work, please contact us at https://open.bible/contact . This translation is made available to you under the terms of the Creative Commons Attribution Share-Alike license 4.0. You have permission to share and redistribute this Bible translation in any format and to make reasonable revisions and adaptations of this translation, provided that: You include the above copyright and source information. If you make any changes to the text, you must indicate that you did so in a way that makes it clear that the original licensor is not necessarily endorsing your changes. If you redistribute this text, you must distribute your contributions under the same license as the original. Pictures included with Scriptures and other documents on this site are licensed just for use with those Scriptures and documents. For other uses, please contact the respective copyright owners. Note that in addition to the rules above, revising and adapting God's Word involves a great responsibility to be true to God's Word. See Revelation 22:18-19. 2025-05-03
Source: http://ebible.org/isl/ · eBible.org