Luke 18
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ · Tap a verse to see its cross-references.
Þreytist ekki á að biðja
1Eitt sinn sagði Jesús lærisveinum sínum þessa sögu til að hvetja þá til að gefast ekki upp að biðja, fyrr en svarið kæmi:
2„Í borg einni var dómari, sem ekki trúði á Guð, og fyrirleit alla menn. 3Ekkja, sem þar bjó, kom oft til hans og bað hann að leita réttar síns gegn manni, sem brotið hafði gegn henni. 4Í fyrstu gaf dómarinn henni engan gaum, en að lokum fór hún að fara í taugarnar á honum.
„Ég hræðist hvorki Guð né menn,“ sagði hann við sjálfan sig, „en þessi kona veldur mér ónæði. Ég ætla að sjá til þess að hún nái rétti sínum, því ég er orðinn leiður á henni, hún er alltaf að koma.“
6Drottinn sagði: „Haldið þið að Guð láti ekki sitt fólk ná rétti sínum, ef það hrópar til hans dag og nótt, fyrst hægt er að hafa áhrif á vondan dómara? 8Jú, áreiðanlega! Og hann mun svara því fljótt! Spurningin er hve marga trúaða og bænrækna ég finn þegar ég, Kristur, kem aftur.“
9Síðan sagði hann þeim, sem stærðu sig af verkum sínum og fyrirlitu aðra, eftirfarandi sögu:
10„Tveir men fóru upp í musterið til að biðjast fyrir. Annar var farísei, en hinn var skattheimtumaður. 11Faríseinn bað þannig: „Guð, ég þakka þér að ég er ekki eins og syndararnir, til dæmis eins og þessi skattheimtumaður! Ég stel aldrei, ég drýgi ekki hór, 12ég fasta tvisvar í viku og gef tíund af öllu sem ég vinn mér inn.“
13Óprúttni skattheimtumaðurinn stóð langt frá og þorði ekki einu sinni að horfa upp til himins meðan hann bað, heldur barði sér hryggur á brjóst og sagði: „Guð, vertu mér syndugum líknsamur.“ 14Ég segi ykkur: Þessi syndari fékk fyrirgefningu, en ekki faríseinn! Hinir hrokafullu verða niðurlægðir, en auðmjúkum veitt náð.“
15Dag einn komu mæður með börnin sín til Jesú til að hann snerti þau og blessaði, en lærisveinarnir skipuðu þeim burt.
16Þá kallaði Jesús börnin til sín og sagði við lærisveinana: „Leyfið börnunum að koma til mín, en hindrið þau ekki. Guðsríki er fyrir þá sem hafa hjartalag og trú eins og þessi litlu börn, en sá sem ekki hefur trú eins og þau, mun aldrei þangað komast.“
Ríki maðurinn og vandamál hans
18Höfðingi nokkur spurði Jesú: „Góði meistari, hvað á ég að gera til að eignast eilíft líf?“
19„Veistu hvað þú ert að segja þegar þú kallar mig góðan?“ spurði Jesús. „Aðeins einn er góður í raun og veru, og það er Guð. 20Þú þekkir boðorðin: Þú skalt ekki drýgja hór, þú skalt ekki myrða, ekki stela, ekki ljúga, heiðraðu föður þinn og móður þína,“
21Maðurinn svaraði: „Ég hef hlýðnast öllum þessum boðum frá barnæsku.“ 22„Eitt vantar þig enn,“ sagði Jesús, „og það er þetta: Seldu allt sem þú átt, gefðu fátækum andvirðið og þá muntu eignast fjársjóð á himnum – komdu síðan og fylgdu mér.“
23Þegar maðurinn heyrði þetta, fór hann hryggur í burtu, því að hann var mjög ríkur.
24Jesús horfði á eftir honum og sagði síðan við lærisveina sína: „Það er erfitt fyrir hina ríku að komast inn í guðsríki! 25Það er auðveldara fyrir úlfalda að smjúga gegnum nálarauga, en fyrir ríkan mann að komast inn í guðsríki.“
26Þegar lærisveinarnir heyrðu þetta hrópuðu þeir: „Hver getur þá orðið hólpinn, fyrst það er svona erfitt?“
27„Guð getur það sem menn geta ekki,“ svaraði Jesús.
28Þá sagði Pétur: „Við höfum yfirgefið heimili okkar og fylgt þér.“
29„Já,“ svaraði Jesús, „allir sem yfirgefa heimili, konu, bræður, foreldra eða börn vegna guðsríkisins, 30munu fá margföld laun í þessum heimi, auk eilífs lífs í hinum komandi.“
31Síðan kallaði hann þá tólf saman og sagði: „Þið vitið að við erum á leiðinni til Jerúsalem. Þegar þangað kemur, mun allt rætast sem hinir fornu spámenn sögðu um mig. 32Ég verð framseldur heiðingjunum, en þeir munu hæða mig og spotta. Einnig munu þeir hrækja á mig, 33húðstrýkja og loks lífláta, en á þriðja degi mun ég rísa upp.“
34Þeir skildu ekki hvað hann var að segja og fannst það algjör ráðgáta.
35Þegar þeir nálguðust Jeríkó sat blindur betlari við veginn. 36Þegar hann heyrði að mikill mannfjöldi var að nálgast, spurði hann hvað um væri að vera. 37Honum var þá sagt að Jesús frá Nasaret væri þar á ferð. 38Þá fór hann að hrópa í sífellu: „Jesús, sonur Davíðs, miskunnaðu mér!“
39Fólkið sem gekk á undan Jesú, reyndi að þagga niður í honum. En þá hrópaði hann enn hærra: „Sonur Davíðs, miskunna þú mér!“
40Þegar Jesús kom nær, nam hann staðar og sagði: „Komið með blinda manninn hingað.“ 41Síðan spurði Jesús hann: „Hvað viltu að ég geri fyrir þig?“ „Drottinn,“ sagði hann biðjandi, „mig langar að fá sjónina.“
42„Nú getur þú séð,“ sagði Jesús. „Trú þín hefur læknað þig.“
43Samstundis fékk maðurinn sjónina og fylgdi Jesú og lofaði Guð. Allir sem þetta sáu lofuðu Guð.

Did you know?
Prayer, Humility, and Mercy on the Way
- As Jesus draws near Jericho, a blind man sits begging beside the road. Easton's Bible Dictionary (1897) calls Jericho a “place of fragrance”: a fenced city amid a vast grove of palm trees on the plain of the Jordan, about five miles west of the river, and the most important city of that valley.Sources: the Bible text itself · Jericho
- The crowd tells the blind man that Jesus of Nazareth is passing by, and he cries out, “Son of David, have mercy on me.” David, whose name is explained as “beloved,” was the eighth and youngest son of Jesse and a citizen of Bethlehem; Nazareth, which is not mentioned in the Old Testament, was the home of Joseph and Mary.Sources: the Bible text itself · David · Nazareth
- Jesus takes the Twelve aside and tells them they are going up to Jerusalem, where everything the prophets wrote about the Son of Man will be fulfilled. The name is in a dual form meaning “possession of peace” or “foundation of peace,” probably referring to the mountains Zion and Moriah on which the city was built, though some connect it with the upper and lower city; Jerusalem is also called the holy city and described as a mountain city.Sources: the Bible text itself · Jerusalem
Notes written with AI assistance from open sources (Theographic Bible Metadata, CC BY-SA 4.0; Easton’s Bible Dictionary, public domain) and reviewed before publishing.
Places in this chapter
- Jerusalem · 31.777, 35.234 · verse 31
- Jericho · Today: Tell el Alayiq · 31.852, 35.436 · verse 35
- Nazareth · 32.702, 35.298 · verse 37
Only places identified with high confidence are shown (90% or more according to the scholarly sources compiled by OpenBible). Period map: DARE (Digital Atlas of the Roman Empire), CC BY 4.0; modern map: © OpenStreetMap contributors; places: OpenBible.info (CC BY 4.0).
Credits and license for this translation
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Icelandic: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ (New Testament+) copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc. Language: Íslenska (Icelandic) Contributor: Biblica, Inc. Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. Creative Commons License Þetta verk er gert aðgengilegt samkvæmt CC BY-SA leyfinu (Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License). Til að skoða afrit af þessu leyfi skaltu fara á https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 eða senda bréf til Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, Bandaríkjunum. Biblica® er vörumerki skráð af Biblica, Inc., og notkun á Biblica® vörumerkinu krefst skriflegs leyfis Biblica, Inc. Samkvæmt skilmálum CC BY-SA leyfisins geturðu afritað og endurdreift þessu óbreyttu verki svo framarlega sem þú heldur Biblica® vörumerkinu óskertu. Ef þú breytir afriti eða þýðir þetta verk og býrð þannig til afleitt verk, verður þú að fjarlægja Biblica® vörumerkið. Á afleidda verkinu verður þú að tilgreina hvaða breytingar þú hefur gert og eigna verkið á eftirfarandi hátt: "Upprunalega verkið eftir Biblica, Inc. er fáanlegt ókeypis á www.biblica.com og open.bible ." Tilkynning um höfundarrétt verður að birtast á titla- eða höfundarréttarsíðu verksins sem hér segir: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. Þú verður einnig að gera afleidda verkið þítt aðgengilegt samkvæmt sama leyfi (CC BY-SA). Ef þú vilt láta Biblica, Inc. vita um þýðingu þína á þessu verki, vinsamlegast hafðu samband við okkur á https://open.bible/contact . This work is made available under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License (CC BY-SA). To view a copy of this license, visit https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 or send a letter to Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, USA. Biblica® is a trademark registered by Biblica, Inc., and use of the Biblica® trademark requires the written permission of Biblica, Inc. Under the terms of the CC BY-SA license, you may copy and redistribute this unmodified work as long as you keep the Biblica® trademark intact. If you modify a copy or translate this work, thereby creating a derivative work, you must remove the Biblica® trademark. On the derivative work, you must indicate what changes you have made and attribute the work as follows: “The original work by Biblica, Inc. is available for free at www.biblica.com and open.bible .” Notice of copyright must appear on the title or copyright page of the work as follows: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. You must also make your derivative work available under the same license (CC BY-SA). If you would like to notify Biblica, Inc. regarding your translation of this work, please contact us at https://open.bible/contact . This translation is made available to you under the terms of the Creative Commons Attribution Share-Alike license 4.0. You have permission to share and redistribute this Bible translation in any format and to make reasonable revisions and adaptations of this translation, provided that: You include the above copyright and source information. If you make any changes to the text, you must indicate that you did so in a way that makes it clear that the original licensor is not necessarily endorsing your changes. If you redistribute this text, you must distribute your contributions under the same license as the original. Pictures included with Scriptures and other documents on this site are licensed just for use with those Scriptures and documents. For other uses, please contact the respective copyright owners. Note that in addition to the rules above, revising and adapting God's Word involves a great responsibility to be true to God's Word. See Revelation 22:18-19. 2025-05-03
Source: http://ebible.org/isl/ · eBible.org