Nations Bible

Luke 16

Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ · Tap a verse to see its cross-references.

Fleiri lærdómsríkar dæmisögur

1Jesús sagði lærisveinum sínum eftirfarandi sögu: „Ríkur maður réð til sín framkvæmdastjóra til að annast viðskipti sín. Fljótlega tók að kvisast út að maðurinn væri óheiðarlegur.

2Þá kallaði ríki maðurinn hann fyrir sig og sagði: „Er það satt sem ég heyri, að þú stelir frá mér? Viltu gjöra svo vel að koma reglu á bókhaldið og síðan geturðu farið.“

3Maðurinn hugsaði með sjálfum sér: „Nú, jæja, þá er búið að segja mér upp! Hvað á ég nú að gera? Ég hef ekki þrek til að grafa skurði og er of stoltur til að betla. 4Nú veit ég hvað ég geri til þess að eignast marga vini, sem geta hjálpað mér þegar ég fer héðan.“

5Síðan bauð hann hverjum skuldunaut fyrir sig að koma og ræða um skuldina. Hann spurði þann fyrsta: „Hve mikið skuldar þú atvinnurekanda mínum?“ „3.500 lítra af ólífuolíu,“ svaraði maðurinn. „Já, rétt er það“ sagði framkvæmdastjórinn, „hérna er samningurinn sem þú undirritaðir. En nú skaltu rífa hann og skrifa annan, fyrir helmingnum af þessu magni.“

7„Hve mikið skuldar þú?“ spurði hann næsta mann. „1.000 tunnur af hveiti,“ var svarið.

„Hérna,“ sagði hinn, „hirtu samninginn þinn og gerðu nýjan, upp á 800 tunnur.“

8Ríki maðurinn var tilneyddur að dást að þorpara þessum fyrir slægð hans.

Satt er það, að guðleysingjarnir eru kænni í viðskiptum sínum við heiminn en hinir trúuðu. 9En ég segi ykkur: Notið eigur ykkar til þess að afla ykkur vina, svo að þeir fagni ykkur í eilífðinni, þegar þið verðið að skiljast við þær.

10Sá sem er trúr í litlu, verður einnig trúr í stóru. Sá sem svindlar í því sem lítið er, mun einnig fara óheiðarlega með það sem meira er.

11Ef ekki er hægt að treysta ykkur í hinu veraldlega, hver mun þá trúa ykkur fyrir hinum miklu auðæfum himnanna? 12Ef þið farið illa með fjármuni annarra, hvernig er þá hægt að treysta ykkur fyrir eigin fjármunum?

13Enginn getur þjónað tveim húsbændum – ekki þið heldur. Þið munuð hata annan en aðhyllast hinn – láta ykkur annt um annan en fyrirlíta hinn. Þið getið ekki gert hvort tveggja í senn, þjónað Guði og peningunum.“

14Þegar farísearnir heyrðu þetta, hlógu þeir háðslega, því að þeir voru fégjarnir menn.

15Jesús sagði því við þá: „Þið gangið um með virðuleika – og helgisvip – en Guð þekkir illsku ykkar. Með framkomu ykkar aflið þið ykkur lýðhylli, en þetta er viðbjóðslegt í augum Guðs. 16Lög Móse og boðskapur spámannanna var ykkur leiðarljós, þar til Jóhannes skírari kom. Hann flutti þær gleðifréttir að guðsríki væri á næsta leiti og fólkið þyrptist að til að komast þangað. 17Guðs lög hafa þó ekki í hinu minnsta atriði misst kraft sinn, því að þau eru óhagganlegri en himinn og jörð.

18Ef einhver skilur við konu sína, drýgir hann hór og sama er að segja um þann sem kvænist fráskilinni konu.“

19Jesús hélt áfram og sagði: „Maður nokkur, ríkur, klæddist dýrindisfatnaði og lifði dag hvern í gleðskap og allsnægtum. 20Dag einn var sjúkur betlari, Lasarus að nafni, lagður við dyr hans. 21Þar lá hann og vonaðist eftir leifum af borði ríka mannsins, en hundar komu og sleiktu sár hans. 22Að lokum dó betlarinn og englar báru hann til Abrahams. Ríki maðurinn dó einnig, var grafinn 23og fór til heljar. En er hann kvaldist þar, sá hann Lasarus álengdar hjá Abraham.

24„Faðir Abraham,“ kallaði hann, „miskunnaðu mér! Sendu Lasarus hingað til þess að dýfa fingri í vatn og kæla tungu mína, því ég kvelst í þessum loga.“

25En Abraham svaraði: „Sonur, mundu að meðan þú lifðir hafðir þú allt sem þú þurftir, en Lasarus var allslaus. Hér huggast hann, en þú kvelst. 26Auk þess er mikið djúp okkar á milli og þeir sem vilja komast héðan yfir til þín, geta það ekki og enginn kemst frá ykkur yfir til okkar.“

27Þá sagði ríki maðurinn: „Ó, faðir Abraham, gerðu þá annað, sendu hann heim til föður míns 28– því að ég á fimm bræður og varaðu þá við þessum kvalastað, svo að þeir lendi ekki hér líka þegar þeir deyja.“

29Þá svaraði Abraham: „Þeir hafa Biblíuna, hlýði þeir henni.“

30„Nei, faðir Abraham,“ svaraði ríki maðurinn. „En ef einhver kæmi til þeirra frá hinum dauðu, þá myndu þeir áreiðanlega snúa sér frá syndum sínum.“

31En Abraham svaraði: „Ef þeir hlýða ekki orðum Biblíunnar – Móse og spámönnunum – munu þeir ekki heldur láta sannfærast þótt einhver rísi upp frá dauðum.“ “

Artistic illustration — an interpretation, not a historical record.

Did you know?

Wealth, two masters, and Lazarus

  • In Jesus' words about the rich man and Lazarus, the rich man cries out, 'Father Abraham,' and Abraham answers, 'Child.' Easton's Bible Dictionary (1897) explains the name Abraham as 'Father of a multitude' and describes him as the heir of the promises.Sources: the Bible text itself · Abraham
  • Speaking to Pharisees who were scoffing at him, Jesus says that the Law and the Prophets were proclaimed until John, and that since then the gospel of the kingdom of God is being preached. Easton's Bible Dictionary (1897) calls John the Baptist the 'forerunner of our Lord,' says that his mission was the subject of prophecy, including Isaiah 40:3 and Malachi 3:1, and states that his birth took place six months before that of Jesus.Sources: the Bible text itself · John the Baptist
  • A manager accused of wasting his master's possessions is told to turn in an account and give up his position. He has the debtors rewrite their bills, reducing a hundred measures of olive oil to fifty and a hundred measures of wheat to eighty, and the master commends the dishonest manager because he had acted shrewdly. Jesus then says that no servant can serve two masters, and that no one can serve both God and money.Sources: the Bible text itself

Notes written with AI assistance from open sources (Theographic Bible Metadata, CC BY-SA 4.0; Easton’s Bible Dictionary, public domain) and reviewed before publishing.

Credits and license for this translation
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Icelandic: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ (New Testament+)
copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc.
Language: Íslenska (Icelandic)
Contributor: Biblica, Inc.
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
Creative Commons License
Þetta verk er gert aðgengilegt samkvæmt CC BY-SA leyfinu (Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License). Til að skoða afrit af þessu leyfi skaltu fara á https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 eða senda bréf til Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, Bandaríkjunum.
Biblica® er vörumerki skráð af Biblica, Inc., og notkun á Biblica® vörumerkinu krefst skriflegs leyfis Biblica, Inc. Samkvæmt skilmálum CC BY-SA leyfisins geturðu afritað og endurdreift þessu óbreyttu verki svo framarlega sem þú heldur Biblica® vörumerkinu óskertu. Ef þú breytir afriti eða þýðir þetta verk og býrð þannig til afleitt verk, verður þú að fjarlægja Biblica® vörumerkið. Á afleidda verkinu verður þú að tilgreina hvaða breytingar þú hefur gert og eigna verkið á eftirfarandi hátt: "Upprunalega verkið eftir Biblica, Inc. er fáanlegt ókeypis á www.biblica.com og open.bible ."
Tilkynning um höfundarrétt verður að birtast á titla- eða höfundarréttarsíðu verksins sem hér segir:
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
Þú verður einnig að gera afleidda verkið þítt aðgengilegt samkvæmt sama leyfi (CC BY-SA).
Ef þú vilt láta Biblica, Inc. vita um þýðingu þína á þessu verki, vinsamlegast hafðu samband við okkur á https://open.bible/contact .
This work is made available under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License (CC BY-SA). To view a copy of this license, visit https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 or send a letter to Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, USA.
Biblica® is a trademark registered by Biblica, Inc., and use of the Biblica® trademark requires the written permission of Biblica, Inc. Under the terms of the CC BY-SA license, you may copy and redistribute this unmodified work as long as you keep the Biblica® trademark intact. If you modify a copy or translate this work, thereby creating a derivative work, you must remove the Biblica® trademark. On the derivative work, you must indicate what changes you have made and attribute the work as follows: “The original work by Biblica, Inc. is available for free at www.biblica.com and open.bible .”
Notice of copyright must appear on the title or copyright page of the work as follows:
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
You must also make your derivative work available under the same license (CC BY-SA).
If you would like to notify Biblica, Inc. regarding your translation of this work, please contact us at https://open.bible/contact .
This translation is made available to you under the terms of the
Creative Commons Attribution Share-Alike license 4.0.
You have permission to share and redistribute this Bible translation in any format and to make reasonable revisions and adaptations of this translation, provided that:
You include the above copyright and source information.
If you make any changes to the text, you must indicate that you did so in a way that makes it clear that the original licensor is not necessarily endorsing your changes.
If you redistribute this text, you must distribute your contributions under the same license as the original.
Pictures included with Scriptures and other documents on this site are licensed just for use with those Scriptures and documents.
For other uses, please contact the respective copyright owners.
Note that in addition to the rules above, revising and adapting God's Word involves a great responsibility to be true to God's Word. See Revelation 22:18-19.
2025-05-03

Source: http://ebible.org/isl/ · eBible.org

Talk to us

Tell us where you read from, how the Bible has helped you, or what we could improve. We read every message.