John 7
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ · Tap a verse to see its cross-references.
Áköf deila um Jesú
1Eftir þetta fór Jesús til Galíleu og ferðaðist frá einu þorpinu til annars. Hann vildi ekki vera í Júdeu því að leiðtogarnir þar sátu um líf hans. 2Brátt leið að laufskálahátíðinni, en það er ein hinna árlegu trúarhátíða Gyðinga. 3Bræður Jesú hvöttu hann til að fara til Júdeu á hátíðina og sögðu ertnislega:
„Farðu þangað, því að þá geta miklu fleiri séð kraftaverk þín. 4Þú verður ekki frægur af því að fela þig. Og fyrst þú ert svona mikill, skaltu reyna að sanna það fyrir heiminum!“ 5Bræður Jesú trúðu sem sagt ekki á hann.
6Jesús svaraði: „Minn tími til að fara er enn ekki kominn. Þið getið hins vegar farið hvenær sem þið viljið, það breytir engu, 7því heimurinn er ekki á móti ykkur. Hann er á móti mér, því ég ásaka hann fyrir illt athæfi og syndir. 8Þið skuluð fara; ég kem seinna þegar minn tími er kominn.“ 9Af þessari ástæðu varð Jesús eftir í Galíleu.
10En þegar bræður hans voru farnir til hátíðarinnar fór Jesús líka, en á laun og lét ekkert á sér bera. 11Leiðtogar þjóðarinnar reyndu að finna hann á hátíðinni og héldu uppi spurnum um hann. 12Fólkið ræddi mikið um hann sín á milli og sumir sögðu: „Hann er dásamlegur maður.“ Aðrir sögðu: „Nei, hann blekkir fólkið.“ 13Enginn þorði að taka málstað hans opinberlega af ótta við leiðtoga þjóðarinnar.
14Þegar hátíðin var hálfnuð gekk Jesús inn í musterið og predikaði opinberlega. 15Leiðtogar þjóðarinnar undruðust orð hans og spurðu: „Hvaðan hefur hann þessa þekkingu? Hann hefur aldrei gengið í skóla hjá okkur.“
16Jesús sagði þá við þá: „Ég kenni ekki eigin hugmyndir, heldur orð Guðs sem sendi mig. 17Ef einhver ykkar vill gera vilja Guðs í raun og veru, þá mun hann örugglega sjá hvort boðskapur minn er frá Guði eða frá sjálfum mér. 18Sá sem talar af sjálfum sér vonast eftir hrósi, en sá sem heiðrar þann sem sendi hann, er trúr og sannur. 19Móse gaf ykkur lögin en hvers vegna hlýðið þið þeim þá ekki? Hvers vegna segið þið að ég brjóti þau og hver er ástæða þess að þið viljið lífláta mig?“
20Fólkið svaraði: „Þú ert ekki með öllum mjalla! Hver er það sem situr um líf þitt?“
21Jesús svaraði: „Ég læknaði mann á helgidegi og það kom ykkur á óvart, en samt vinnið þið sjálf á helgidögum þegar þið umskerið samkvæmt lögum Móse – reyndar er umskurnin eldri en lögmál Móse. Ef umskurnardag ber upp á helgidag, þá framkvæmið þið umskurnina eins og ekkert sé. Hvers vegna dæmið þið mig þá fyrir að lækna mann á helgidegi? 24Hugsið þetta mál og þá munuð þið komast að raun um að ég hef á réttu að standa.“
25Sumir íbúar Jerúsalem sögðu þá: „Er þetta ekki maðurinn sem leiðtogar okkar vilja feigan? 26Hvernig stendur þá á því að hann fær að predika óáreittur á almannafæri og þeir gera enga athugasemd? Getur verið að þeir hafi loksins komist að raun um að hann sé Kristur? 27En hvernig ætti hann annars að vera það? Við vitum, jú, hvar hann er fæddur, en þegar Kristur kemur mun enginn vita hvaðan hann kemur, hann mun birtast allt í einu.“
28Þetta varð til þess að eitt sinn er Jesús var að predika í musterinu, kallaði hann hátt: „Já, þið þekkið mig og vitið hvar ég fæddist og hvar ég ólst upp, en ég tala máli þess sem þið þekkið ekki og hann er sannleikurinn. 29Ég þekki hann því ég var hjá honum og hann sendi mig til ykkar.“ 30Þegar leiðtogarnir heyrðu hann segja þetta leituðust þeir við að handtaka hann.
31Margir þeirra sem komu reglulega í musterið trúðu á hann og sögðu: „Hvaða kraftaverk haldið þið að Kristur geri, sem þessi maður hefur ekki gert?“ 32Þegar farísearnir heyrðu þetta sendu þeir og æðstu prestarnir lögregluna til að handtaka hann.
33Þá sagði Jesús: „Bíðið með þetta! Mér ber að vera hér enn um stund, en að því loknu sný ég aftur til hans sem sendi mig. 34Þið munuð leita mín en án árangurs, því að þangað sem ég fer komist þið ekki.“
35Leiðtogarnir urðu undrandi á þessum tilsvörum og spurðu: „Hvert skyldi hann ætla? Skyldi hann ætla úr landi til að útbreiða kenningar sínar meðal Gyðinga í öðrum löndum, eða jafnvel meðal heiðingjanna? 36Hvað á hann við þegar hann segir að við munum leita hans, en ekki finna? Og hvað þýðir þetta: Þið komist ekki þangað sem ég fer?“
37Síðasta daginn – helgasta dag þjóðarinnar – hrópaði Jesús út yfir mannfjöldann: „Ef nokkurn þyrstir þá komi hann til mín og drekki, 38því Biblían segir um þann sem trúir á mig, að frá hans innra manni muni streyma lækir lifandi vatns.“ 39Hér átti hann við heilagan anda, sem þeir mundu fá, sem tryðu á hann. En ennþá var andinn ekki gefinn, því að Jesús hafði þá ekki enn snúið aftur til dýrðar sinnar á himnum.
40Þegar mannfjöldinn heyrði þetta sögðu sumir: „Þessi maður er áreiðanlega spámaðurinn, sem á að koma á undan Kristi.“ 41Aðrir sögðu: „Hann er Kristur.“ Enn aðrir sögðu: „Það er útilokað að hann sé Kristur. Haldið þið að Kristur komi frá Galíleu? Biblían segir að Kristur muni verða af ætt Davíðs og fæðast í Betlehem þar sem Davíð fæddist.“
43Fólkið hafði sem sagt ýmsar skoðanir á Jesú. 44Sumir vildu láta handtaka hann, en þó gerði það enginn.
45Musterislögreglan, sem send hafði verið til að handtaka hann, sneri því tómhent aftur til æðstu prestanna og faríseanna. „Hvers vegna komið þið ekki með hann?“ spurðu þeir reiðilega.
46„Hann segir svo margt stórkostlegt!“ svöruðu þeir. „Við höfum aldrei áður heyrt neitt þessu líkt.“
47„Jæja, er þá líka búið að villa um fyrir ykkur?“ spurðu farísearnir hæðnislega. 48„Hver af okkar leiðtogum eða faríseunum trúir að hann sé Kristur? 49Fólkið trúir því, satt er það, en það er heimskt og hefur ekkert vit á slíkum hlutum, enda hvílir bölvun yfir því!“
50Þá spurði Nikódemus, einn af leiðtogum þjóðarinnar, sem heimsótti Jesú eitt sinn á laun til að ræða við hann: 51„Er leyfilegt að dæma nokkurn áður en hann hefur verið ákærður?“
52„Ha?“ spurðu hinir, „ert þú kannski einn af þessum auvirðilegu Galíleumönnum? Lestu Biblíuna – enginn spámannanna kom frá Galíleu!“
53Eftir þetta leystist fundurinn upp og fór hver heim til sín.

Did you know?
Jesus at the Feast of Tabernacles
- As the Jewish Feast of Tabernacles, a seven-day feast, drew near, Jesus stayed in Galilee and avoided Judea, where people were trying to kill him. In his time Judea was the southernmost of the three Roman divisions of Palestine, distinct from Galilee and Samaria; he later went up to the feast in secret and taught in the temple courts.Sources: the Bible text itself · Feast of Tabernacles · Judea
- The crowds were divided over where the Christ would come from. Some said that Scripture places him in David's line and in Bethlehem, the village where David, the eighth and youngest son of Jesse, lived; others objected that he could not come from Galilee, a region long called Galilee of the Gentiles, and the Pharisees insisted that no prophet comes from there.Sources: the Bible text itself · David · Galilee
- Nicodemus, a Pharisee and a member of the Sanhedrin, had earlier come to Jesus at night. When the officers sent to arrest Jesus returned without him, Nicodemus protested and asked whether their law condemned a man before hearing him and finding out what he had done.Sources: the Bible text itself · Nicodemus
Notes written with AI assistance from open sources (Theographic Bible Metadata, CC BY-SA 4.0; Easton’s Bible Dictionary, public domain) and reviewed before publishing.
Places in this chapter
- Galilee · 32.760, 35.527 · verses 1, 3, 9, 41, 52
- Judea · Today: Judea 1 · 31.777, 35.234 · verses 1, 3
- Jerusalem · 31.777, 35.234 · verse 25
- Bethlehem · 31.704, 35.208 · verse 42
Only places identified with high confidence are shown (90% or more according to the scholarly sources compiled by OpenBible). Period map: DARE (Digital Atlas of the Roman Empire), CC BY 4.0; modern map: © OpenStreetMap contributors; places: OpenBible.info (CC BY 4.0).
Credits and license for this translation
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Icelandic: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ (New Testament+) copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc. Language: Íslenska (Icelandic) Contributor: Biblica, Inc. Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. Creative Commons License Þetta verk er gert aðgengilegt samkvæmt CC BY-SA leyfinu (Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License). Til að skoða afrit af þessu leyfi skaltu fara á https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 eða senda bréf til Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, Bandaríkjunum. Biblica® er vörumerki skráð af Biblica, Inc., og notkun á Biblica® vörumerkinu krefst skriflegs leyfis Biblica, Inc. Samkvæmt skilmálum CC BY-SA leyfisins geturðu afritað og endurdreift þessu óbreyttu verki svo framarlega sem þú heldur Biblica® vörumerkinu óskertu. Ef þú breytir afriti eða þýðir þetta verk og býrð þannig til afleitt verk, verður þú að fjarlægja Biblica® vörumerkið. Á afleidda verkinu verður þú að tilgreina hvaða breytingar þú hefur gert og eigna verkið á eftirfarandi hátt: "Upprunalega verkið eftir Biblica, Inc. er fáanlegt ókeypis á www.biblica.com og open.bible ." Tilkynning um höfundarrétt verður að birtast á titla- eða höfundarréttarsíðu verksins sem hér segir: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. Þú verður einnig að gera afleidda verkið þítt aðgengilegt samkvæmt sama leyfi (CC BY-SA). Ef þú vilt láta Biblica, Inc. vita um þýðingu þína á þessu verki, vinsamlegast hafðu samband við okkur á https://open.bible/contact . This work is made available under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License (CC BY-SA). To view a copy of this license, visit https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 or send a letter to Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, USA. Biblica® is a trademark registered by Biblica, Inc., and use of the Biblica® trademark requires the written permission of Biblica, Inc. Under the terms of the CC BY-SA license, you may copy and redistribute this unmodified work as long as you keep the Biblica® trademark intact. If you modify a copy or translate this work, thereby creating a derivative work, you must remove the Biblica® trademark. On the derivative work, you must indicate what changes you have made and attribute the work as follows: “The original work by Biblica, Inc. is available for free at www.biblica.com and open.bible .” Notice of copyright must appear on the title or copyright page of the work as follows: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. You must also make your derivative work available under the same license (CC BY-SA). If you would like to notify Biblica, Inc. regarding your translation of this work, please contact us at https://open.bible/contact . This translation is made available to you under the terms of the Creative Commons Attribution Share-Alike license 4.0. You have permission to share and redistribute this Bible translation in any format and to make reasonable revisions and adaptations of this translation, provided that: You include the above copyright and source information. If you make any changes to the text, you must indicate that you did so in a way that makes it clear that the original licensor is not necessarily endorsing your changes. If you redistribute this text, you must distribute your contributions under the same license as the original. Pictures included with Scriptures and other documents on this site are licensed just for use with those Scriptures and documents. For other uses, please contact the respective copyright owners. Note that in addition to the rules above, revising and adapting God's Word involves a great responsibility to be true to God's Word. See Revelation 22:18-19. 2025-05-03
Source: http://ebible.org/isl/ · eBible.org