John 20
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ · Tap a verse to see its cross-references.
Jesús lifir
1Snemma að morgni sunnudagsins, meðan enn var dimmt, kom María Magdalena að gröfinni og sá hún þá að steinninn hafði verið færður frá grafardyrunum.
2Hún hleypur því burt, finnur Símon Pétur og mig og segir: „Þeir hafa tekið líkama Drottins úr gröfinni og ég veit ekki hvar þeir hafa lagt hann!“
3Við hlupum út að gröfinni til að athuga þetta. Ég hljóp hraðar en Pétur og náði því þangað á undan honum 5og gægðist inn. Sá ég þá léreftsdúkinn liggja þar, en ekki fór ég inn. 6Rétt í því bar Símon Pétur að og fór hann rakleitt inn í gröfina. Hann sá líka dúkinn 7og klútinn, sem hulið hafði höfuð Jesú. 8Þá fór ég einnig inn á eftir honum. Ég sá og trúði (að hann hefði risið upp) 9en til þessa höfðum við ekki skilið orð Biblíunnar um upprisu hans.
10Við snerum aftur heimleiðis, 11en um svipað leyti fór María aftur út að gröfinni og stóð þar úti fyrir og grét. Hún gægðist grátandi inn í gröfina. 12Sá hún þá tvo engla í hvítum kyrtlum sitja þar, annan við höfðalagið, en hinn til fóta, þar sem líkami Jesú hafði legið.
13„Hví grætur þú?“ spurðu englarnir.
„Vegna þess að þeir hafa tekið Drottin minn í burtu og ég veit ekki hvar þeir hafa lagt hann.“ 14Síðan leit hún um öxl rétt sem snöggvast og sá einhvern standa fyrir aftan sig. Það var Jesús, en hún þekkti hann ekki.
15„Hvers vegna grætur þú?“ spurði hann, „og að hverjum ertu að leita?“ Hún hélt að þetta væri eftirlitsmaður garðsins og sagði: „Herra, segðu mér hvar þú hefur lagt hann, ef þú hefur farið með hann burt, svo að ég geti sótt hann.“
16„María!“ sagði Jesús.
Hún sneri sér að honum. „Meistari!“ hrópaði hún.
17„Snertu mig ekki,“ sagði hann ákveðinn, „því að ég er ekki enn stiginn upp til föður míns. Farðu nú og finndu bræður þína og segðu þeim að ég muni stíga upp til föður míns og föður ykkar, Guðs míns og Guðs ykkar.“
18María Magdalena fór og fann lærisveinana og sagði við þá: „Ég hef séð Drottin!“ Síðan flutti hún þeim skilaboðin.
19Þetta kvöld komu lærisveinarnir saman og læstu að sér af ótta við leiðtoga þjóðarinnar. En skyndilega stóð Jesús þar mitt á meðal þeirra.
„Friður sé með ykkur!“ sagði hann.
20Því næst sýndi hann þeim hendur sínar og síðusárið. Lærisveinarnir urðu mjög glaðir er þeir sáu Drottin.
21Þá talaði hann aftur til þeirra og sagði: „Friður sé með ykkur! Eins og faðirinn sendi mig, sendi ég ykkur líka.“ 22Síðan blés hann á þá og sagði: „Meðtakið heilagan anda. 23Ef þið fyrirgefið einhverjum syndir hans, þá eru þær fyrirgefnar. Ef þið neitið honum um fyrirgefningu, þá fær hann hana ekki.“
Tómas efasemdamaður
24Einn af lærisveinunum, Tómas, kallaður „tvíburinn“, var ekki viðstaddur þegar þetta gerðist. 25Seinna, þegar hinir sögðu honum að þeir hefðu séð Drottin, svaraði hann: „Ég trúi því ekki, nema ég sjái sárin eftir naglana í lófum hans og geti stungið fingrum mínum í þau og lagt höndina á síðusárið.“
26Viku síðar voru lærisveinarnir aftur samankomnir og í þetta sinn var Tómas með þeim. Dyrunum hafði verið læst, en skyndilega – og á sama hátt og áður – stóð Jesús á meðal þeirra og sagði: „Friður sé með ykkur!“
27Síðan sagði hann við Tómas: „Stingdu fingri þínum í lófa mér og leggðu höndina á síðusárið. Vertu nú ekki vantrúaður heldur trúaður.“
28„Drottinn minn og Guð minn!“ sagði Tómas.
29Jesús sagði þá við hann: „Þú trúðir af því að þú hefur séð mig, en sælir eru þeir sem ekki sáu, en trúðu þó!“
30Lærisveinarnir sáu hann gera mörg önnur kraftaverk en þau sem hér hefur verið lýst. En þessi bók er rituð til þess að þú trúir að Jesús sé Kristur, Guðssonurinn, og til þess að þú, með trúnni, eignist lífið í samfélaginu við hann.

Did you know?
Seeing the risen Jesus
- Mary Magdalene’s name comes from Magdala, the place of her birth, and was used to distinguish her from the other Marys in the Gospels. Easton's Bible Dictionary (1897) treats as mistaken the common idea that she was the woman called “a sinner” in Luke 7. In this chapter she finds the stone removed, later meets Jesus, and tells the disciples, “I have seen the Lord!”Sources: Mary Magdalene · the Bible text itself
- Thomas, one of the Twelve, was also called Didymus, the Greek equivalent of his Hebrew name, meaning “twin.” Easton's Bible Dictionary (1897) says that all we know of him is recorded in the Gospel of John. He was absent when Jesus first appeared to the disciples; he said he would not believe unless he saw the nail marks in Jesus’ hands and put his hand into his side, and eight days later he answered, “My Lord and my God!”Sources: Thomas · the Bible text itself
- When Mary recognized Jesus, she turned and addressed him in Hebrew as “Rabboni,” which the Gospel explains means “Teacher.” At first she had mistaken him for the gardener. That evening the disciples were together with the doors locked for fear of the Jews, when Jesus stood among them and said, “Peace be with you!”Sources: the Bible text itself
Notes written with AI assistance from open sources (Theographic Bible Metadata, CC BY-SA 4.0; Easton’s Bible Dictionary, public domain) and reviewed before publishing.
Credits and license for this translation
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Icelandic: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ (New Testament+) copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc. Language: Íslenska (Icelandic) Contributor: Biblica, Inc. Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. Creative Commons License Þetta verk er gert aðgengilegt samkvæmt CC BY-SA leyfinu (Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License). Til að skoða afrit af þessu leyfi skaltu fara á https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 eða senda bréf til Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, Bandaríkjunum. Biblica® er vörumerki skráð af Biblica, Inc., og notkun á Biblica® vörumerkinu krefst skriflegs leyfis Biblica, Inc. Samkvæmt skilmálum CC BY-SA leyfisins geturðu afritað og endurdreift þessu óbreyttu verki svo framarlega sem þú heldur Biblica® vörumerkinu óskertu. Ef þú breytir afriti eða þýðir þetta verk og býrð þannig til afleitt verk, verður þú að fjarlægja Biblica® vörumerkið. Á afleidda verkinu verður þú að tilgreina hvaða breytingar þú hefur gert og eigna verkið á eftirfarandi hátt: "Upprunalega verkið eftir Biblica, Inc. er fáanlegt ókeypis á www.biblica.com og open.bible ." Tilkynning um höfundarrétt verður að birtast á titla- eða höfundarréttarsíðu verksins sem hér segir: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. Þú verður einnig að gera afleidda verkið þítt aðgengilegt samkvæmt sama leyfi (CC BY-SA). Ef þú vilt láta Biblica, Inc. vita um þýðingu þína á þessu verki, vinsamlegast hafðu samband við okkur á https://open.bible/contact . This work is made available under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License (CC BY-SA). To view a copy of this license, visit https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 or send a letter to Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, USA. Biblica® is a trademark registered by Biblica, Inc., and use of the Biblica® trademark requires the written permission of Biblica, Inc. Under the terms of the CC BY-SA license, you may copy and redistribute this unmodified work as long as you keep the Biblica® trademark intact. If you modify a copy or translate this work, thereby creating a derivative work, you must remove the Biblica® trademark. On the derivative work, you must indicate what changes you have made and attribute the work as follows: “The original work by Biblica, Inc. is available for free at www.biblica.com and open.bible .” Notice of copyright must appear on the title or copyright page of the work as follows: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. You must also make your derivative work available under the same license (CC BY-SA). If you would like to notify Biblica, Inc. regarding your translation of this work, please contact us at https://open.bible/contact . This translation is made available to you under the terms of the Creative Commons Attribution Share-Alike license 4.0. You have permission to share and redistribute this Bible translation in any format and to make reasonable revisions and adaptations of this translation, provided that: You include the above copyright and source information. If you make any changes to the text, you must indicate that you did so in a way that makes it clear that the original licensor is not necessarily endorsing your changes. If you redistribute this text, you must distribute your contributions under the same license as the original. Pictures included with Scriptures and other documents on this site are licensed just for use with those Scriptures and documents. For other uses, please contact the respective copyright owners. Note that in addition to the rules above, revising and adapting God's Word involves a great responsibility to be true to God's Word. See Revelation 22:18-19. 2025-05-03
Source: http://ebible.org/isl/ · eBible.org