Nations Bible

John 18

Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ · Tap a verse to see its cross-references.

Jesús handtekinn

1Að svo mæltu, fór Jesús ásamt lærisveinum sínum yfir Kedronlækinn og kom í grasgarð sem þar er. 2Júdas, sá sem sveik hann, vissi um þennan stað, því að oft hafði Jesús farið þangað áður með lærisveinum sínum.

3Júdas lagði af stað ásamt flokki hermanna og lögreglu, sem æðstu prestarnir og farísearnir sendu með honum. Skyndilega birtust þeir, í grasgarðinum, vopnaðir, með lugtir og logandi blys.

4Jesú var fullljóst hvað til stóð og verða mundi. Hann gekk því fram til að taka á móti þeim og spurði: „Að hverjum leitið þið?“ „Jesú frá Nasaret,“ svöruðu þeir.

„Ég er hann!“ sagði Jesús. 6Um leið og hann sagði þetta hopuðu þeir á hæl og féllu til jarðar!

7Hann spurði aftur: „Hvers leitið þið?“

Og aftur svöruðu þeir: „Jesú frá Nasaret.“

8„Ég sagði ykkur að ég væri hann,“ sagði Jesús, „og fyrst þið eruð aðeins að leita að mér, leyfið þá hinum að fara.“ 9Þetta sagði hann til að spádómurinn rættist, sem sagði: „Ég gætti allra þeirra sem þú gafst mér.“

10Allt í einu dró Símon Pétur upp sverð og hjó hægra eyrað af Malkusi, þjóni æðsta prestsins.

11Þá sagði Jesús við Pétur: „Slíðraðu sverðið! Á ég ekki að drekka bikarinn sem faðirinn hefur rétt mér?“

12Hermennirnir, ásamt foringja sínum og lögreglu, handtóku nú Jesú og bundu hann. 13Fyrst fóru þeir með hann til Annasar, tengdaföður Kaífasar, sem það árið var æðsti prestur. 14Kaífas var sá sem sagt hafði við hina forystumennina: „Betra er að einn deyi fyrir alla.“ 15Símon Pétur fylgdi í humátt á eftir, auk annars lærisveins, sem kunnugur var æðsta prestinum. Þeim lærisveini var nú leyft að koma inn í garðinn ásamt Jesú, 16en Pétur varð að standa utan við hliðið. Hinn lærisveinninn talaði við dyravörðinn, sem þá leyfði Pétri að koma inn. 17Þjónustustúlkan, sem gætti dyranna, sneri sér að Pétri og spurði: „Ert þú ekki einn af lærisveinum Jesú?“

„Nei!“ svaraði hann, „það er ég ekki.“

18Lögreglan og þjónustufólkið í húsinu stóðu umhverfis eld sem kveiktur hafði verið, því að kalt var í veðri. Stóð Pétur þar ásamt þeim og vermdi sig.

19Inni í húsinu var æðsti presturinn að hefja rannsókn í máli Jesú. Spurði hann Jesú um fylgjendur hans og hvað hann hefði kennt þeim.

20„Það er öllum ljóst,“ svaraði Jesús, „því ég predikaði reglulega í samkomuhúsunum og musterinu. Allir leiðtogar Gyðinga hafa hlustað á mig. Það sem ég kenndi, kenndi ég opinberlega. 21Hvers vegna spyrðu mig þessarar spurningar? Spyrðu heldur þá sem hafa hlustað á mál mitt. Hér eru til dæmis nokkrir þeirra. Þeir vita hvað ég hef sagt.“

22Einn af hermönnunum, sem þarna stóð, sló þá Jesú og spurði hranalega: „Svarar þú æðsta prestinum svona?“

23„Ef þetta eru ósannindi, þá skaltu sanna það,“ svaraði Jesús, „en ef það er satt, hvers vegna slærðu mig þá?“

24Eftir þetta sendi Annas Jesú, í böndum, til Kaífasar æðsta prests.

25Á meðan þetta fór fram, stóð Pétur við eldinn og nú fékk hann aftur að heyra sömu spurninguna: „Ert þú ekki einn af lærisveinum hans?“

„Nei, alls ekki,“ svaraði Pétur.

26Þá spurði einn af þjónum æðsta prestsins – en sá var skyldur manninum sem Pétur hjó af eyrað: „Sá ég þig ekki úti í garðinum með Jesú?“

27En Pétur neitaði enn og um leið galaði hani.

Jesús frammi fyrir Pílatusi

28Rannsókn Kaífasar í máli Jesú lauk árla morguns og að því loknu var farið með hann til hallar rómverska landstjórans. Sjálfir vildu ákærendur hans ekki fara þangað inn, því að þá hefðu þeir „óhreinkast“, að eigin sögn, og þar með ekki mátt neyta páskalambsins. 29Pílatus landstjóri fór því út til þeirra og spurði: „Hvað hafið þið á móti þessum manni? Hver er ákæra ykkar?“

30„Ef hann væri ekki afbrotamaður, hefðum við ekki handtekið hann.“ svöruðu þeir hvassyrtir.

31„Farið þá með hann og dæmið hann sjálfir, eftir ykkar eigin lögum,“ sagði Pílatus.

„En við höfum ekki leyfi til að taka mann af lífi,“ svöruðu þeir, „þú verður að gefa okkur leyfi til þess.“

32Með þessum orðum rættist spádómur Jesú, um hvernig dauða hans bæri að.

33Pílatus fór þá aftur inn í höllina og lét leiða Jesú fram fyrir sig. „Ert þú konungur Gyðinga?“ spurði hann.

34„Hvað áttu við með orðinu „konungur“?“ spurði Jesús, „leggur þú í það skilning Rómverja eða Gyðinga?“

35„Er ég þá Gyðingur?“ spurði Pílatus byrstur. „Samlandar þínir og æðstu prestarnir komu með þig hingað. En hvers vegna gerðu þeir það? Hvað hefur þú aðhafst?“

36„Ríki mitt er ekki af þessum heimi,“ svaraði Jesús. „Ef svo væri, hefðu fylgjendur mínir barist þegar leiðtogar Gyðinga handtóku mig. Nei, mitt ríki er ekki af þessum heimi.“

37„Þú ert þá konungur?“ spurði Pílatus.

„Já,“ svaraði Jesús, „til þess fæddist ég. Ég kom til að flytja heiminum sannleikann. Þeir sem elska sannleikann fylgja mér.“

38„Hvað er sannleikur?“ sagði þá Pílatus. Síðan fór hann aftur út til fólksins og sagði: „Þessi maður er ekki sekur um neinn glæp. 39Það er venja hjá ykkur að biðja mig að sleppa einhverjum fanga um páskana og ég skal gjarnan láta lausan „konung Gyðinga“, ef þið viljið.“

40En mannfjöldinn hrópaði á móti og sagði: „Nei! Ekki hann, heldur Barrabas!“ En Barrabas var ræningi.

Artistic illustration — an interpretation, not a historical record.

Did you know?

The Arrest and the Trials

  • Jesus went out with his disciples across the Kidron Valley and entered a garden that Judas, his betrayer, already knew, because Jesus had often met the disciples there. Easton's Bible Dictionary (1897) calls the Kidron “the black torrent,” the brook flowing through the ravine below Jerusalem’s eastern wall.Sources: the Bible text itself · Brook Kidron
  • The soldiers and officers brought Jesus first to Annas, father-in-law of Caiaphas, the high priest that year, and Annas then sent him, still bound, to Caiaphas. Easton's Bible Dictionary (1897) says Annas had been high priest from A.D. 7 to 14 and was deposed by the Roman procurator, yet, because Mosaic law held the office for life, the Jews may still have regarded him as legally high priest. The same dictionary identifies Caiaphas as a Sadducee who served throughout Pilate’s administration and who had advised that it would be better if one man died for the people.Sources: the Bible text itself · Annas · Caiaphas
  • Pontius Pilate, the sixth Roman procurator of Judea (A.D. 26–36), kept headquarters at Caesarea but often went up to Jerusalem; that early morning he came out of the Praetorium because the Jews would not enter and risk being defiled, unable to eat the Passover. He offered to release one prisoner at the Passover, calling it their custom, but they demanded Barabbas. This chapter calls Barabbas an insurrectionist, while Easton's Bible Dictionary (1897) calls him a notorious robber and explains the name as “son of Abba” or “son of a father.”Sources: the Bible text itself · Pontius Pilate · Barabbas

Notes written with AI assistance from open sources (Theographic Bible Metadata, CC BY-SA 4.0; Easton’s Bible Dictionary, public domain) and reviewed before publishing.

Places in this chapter

  • Kidron · Today: Kidron River · 31.780, 35.240 · verse 1
  • Nazareth · 32.702, 35.298 · verses 5, 7

Only places identified with high confidence are shown (90% or more according to the scholarly sources compiled by OpenBible). Period map: DARE (Digital Atlas of the Roman Empire), CC BY 4.0; modern map: © OpenStreetMap contributors; places: OpenBible.info (CC BY 4.0).

Credits and license for this translation
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Icelandic: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ (New Testament+)
copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc.
Language: Íslenska (Icelandic)
Contributor: Biblica, Inc.
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
Creative Commons License
Þetta verk er gert aðgengilegt samkvæmt CC BY-SA leyfinu (Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License). Til að skoða afrit af þessu leyfi skaltu fara á https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 eða senda bréf til Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, Bandaríkjunum.
Biblica® er vörumerki skráð af Biblica, Inc., og notkun á Biblica® vörumerkinu krefst skriflegs leyfis Biblica, Inc. Samkvæmt skilmálum CC BY-SA leyfisins geturðu afritað og endurdreift þessu óbreyttu verki svo framarlega sem þú heldur Biblica® vörumerkinu óskertu. Ef þú breytir afriti eða þýðir þetta verk og býrð þannig til afleitt verk, verður þú að fjarlægja Biblica® vörumerkið. Á afleidda verkinu verður þú að tilgreina hvaða breytingar þú hefur gert og eigna verkið á eftirfarandi hátt: "Upprunalega verkið eftir Biblica, Inc. er fáanlegt ókeypis á www.biblica.com og open.bible ."
Tilkynning um höfundarrétt verður að birtast á titla- eða höfundarréttarsíðu verksins sem hér segir:
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
Þú verður einnig að gera afleidda verkið þítt aðgengilegt samkvæmt sama leyfi (CC BY-SA).
Ef þú vilt láta Biblica, Inc. vita um þýðingu þína á þessu verki, vinsamlegast hafðu samband við okkur á https://open.bible/contact .
This work is made available under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License (CC BY-SA). To view a copy of this license, visit https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 or send a letter to Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, USA.
Biblica® is a trademark registered by Biblica, Inc., and use of the Biblica® trademark requires the written permission of Biblica, Inc. Under the terms of the CC BY-SA license, you may copy and redistribute this unmodified work as long as you keep the Biblica® trademark intact. If you modify a copy or translate this work, thereby creating a derivative work, you must remove the Biblica® trademark. On the derivative work, you must indicate what changes you have made and attribute the work as follows: “The original work by Biblica, Inc. is available for free at www.biblica.com and open.bible .”
Notice of copyright must appear on the title or copyright page of the work as follows:
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
You must also make your derivative work available under the same license (CC BY-SA).
If you would like to notify Biblica, Inc. regarding your translation of this work, please contact us at https://open.bible/contact .
This translation is made available to you under the terms of the
Creative Commons Attribution Share-Alike license 4.0.
You have permission to share and redistribute this Bible translation in any format and to make reasonable revisions and adaptations of this translation, provided that:
You include the above copyright and source information.
If you make any changes to the text, you must indicate that you did so in a way that makes it clear that the original licensor is not necessarily endorsing your changes.
If you redistribute this text, you must distribute your contributions under the same license as the original.
Pictures included with Scriptures and other documents on this site are licensed just for use with those Scriptures and documents.
For other uses, please contact the respective copyright owners.
Note that in addition to the rules above, revising and adapting God's Word involves a great responsibility to be true to God's Word. See Revelation 22:18-19.
2025-05-03

Source: http://ebible.org/isl/ · eBible.org

Talk to us

Tell us where you read from, how the Bible has helped you, or what we could improve. We read every message.