Hebrews 2
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ · Tap a verse to see its cross-references.
Kristur dó fyrir alla menn
1Munum þennan sannleika sem við höfum heyrt, svo að við villumst ekki burt frá honum. 2Við vitum að boðskapur englanna reyndist sannur og við vitum líka að fólk hefur aldrei komist hjá hegningu, hafi það óhlýðnast honum. 3Hvers vegna höldum við þá að við getum komist upp með kæruleysi, varðandi þetta mikla hjálpræði, sem sjálfur Drottinn Jesús flutti fyrst og þeir síðan, sem heyrðu hann tala?
4Frá byrjun hefur Guð sýnt sannleiksgildi boðskaparins með táknum, undrun og margvíslegum kraftaverkum. Einnig hefur hann gefið þeim sem trúa sérstakar gjafir heilags anda, og slíkum gjöfum hefur hann úthlutað sérhverju okkar.
5Hinn komandi heimur, sem við höfum talað um, mun ekki verða undir stjórn engla. 6Það sést í Sálmunum. Þar spyr Davíð Guð: „Hvers virði er maðurinn, fyrst þú lætur þér svo annt um hann, sem raun ber vitni? Hver er þessi mannssonur sem þú metur svo mikils? 7Þótt þú gerðir hann englum lægri skamma stund, hefur þú nú krýnt hann heiðri og dýrð 8og sett hann yfir allt sem til er, og þar er ekkert undanskilið.“
Enn höfum við ekki orðið vitni að öllu þessu, 9en þó sjáum við Jesú – hann sem um stund var gerður englunum lægri – krýndan heiðri og dýrð af hendi Guðs, vegna þess að hann leið þjáningar dauðans okkar vegna. Vegna hins mikla kærleika Guðs, gekk Jesús í dauðann fyrir alla menn á þessari jörð. 10Það var rétt af Guði, sem skapað hefur alla hluti sér til dýrðar, að láta Jesú þjást, því að á þann hátt fékk hann leitt mikinn fjölda af fólki sínu til himna – þá sem honum treysta. Vegna þjáninganna varð Jesús fullkominn leiðtogi, fær um að leiða fólkið til hjálpræðis.
11Nú eigum við, sem Jesús hefur helgað, sama föður og hann og því blygðast Jesús sín ekki heldur fyrir að kalla okkur bræður og systur. 12Hann segir í Sálmunum: „Ég vil tala við systkini mín um Guð, föður minn, og við munum lofsyngja hann sameiginlega.“ 13Í annað sinn sagði hann: „Ég mun halda áfram að treysta Guði.“ Og í enn eitt skipti sagði hann: „Sjá, hér er ég og börnin, sem Guð gaf mér.“
14Fyrst við, börn Guðs, erum mannlegar verur holdi klæddar, þá varð hann einnig hold og blóð er hann fæddist sem maður, því aðeins á þann hátt gat hann dáið og með dauða sínum brotið vald djöfulsins, sem hafði vald dauðans. 15Þetta var eina leið hans til að frelsa þá, sem hafa lifað allt sitt líf í stöðugum ótta við dauðann.
16Við vitum öll að hann kom ekki sem engill, heldur sem maður – sem Gyðingur. 17Það var nauðsynlegt að Jesús yrði líkur okkur bræðrum sínum, til þess að hann gæti orðið okkur trúr og miskunnsamur æðsti prestur, frammi fyrir Guði, prestur, sem bæði væri okkur náðugur og Guði trúr í því að friðþægja fyrir syndir mannanna. 18Sjálfur stóðst hann allar þjáningar og freistingar. Hann þekkir vel líðan okkar þegar við þjáumst og verðum fyrir freistingum og þess vegna er hann fær um að hjálpa þeim, sem er freistað.

Did you know?
Sharing humanity, crowned through suffering
- Hebrews 2 recalls that the message spoken by angels was binding, and that every transgression and disobedience received its just punishment, then asks how anyone can escape who neglects so great a salvation. That salvation was first announced by the Lord, confirmed to us by those who heard him, and affirmed by God through signs, wonders, various miracles, and gifts of the Holy Spirit distributed according to his will.Sources: the Bible text itself
- The chapter quotes a testimony that man was made a little lower than the angels, crowned with glory and honor, with everything placed under his feet. When God subjected all things to him, he left nothing outside his control, yet at present we do not see everything subject to him. Jesus, made a little lower than the angels, is now crowned with glory and honor because he suffered death, so that by the grace of God he might taste death for everyone.Sources: the Bible text itself
- Hebrews 2 says Jesus helps not angels but the descendants of Abraham, and that he had to be made like his brothers in every way so that he might become a merciful and faithful high priest in service to God, to make atonement for the sins of the people. Abraham, son of Terah, is called father of a multitude and described as the heir of the promises.Sources: the Bible text itself · Abraham
Notes written with AI assistance from open sources (Theographic Bible Metadata, CC BY-SA 4.0; Easton’s Bible Dictionary, public domain) and reviewed before publishing.
Credits and license for this translation
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Icelandic: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ (New Testament+) copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc. Language: Íslenska (Icelandic) Contributor: Biblica, Inc. Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. Creative Commons License Þetta verk er gert aðgengilegt samkvæmt CC BY-SA leyfinu (Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License). Til að skoða afrit af þessu leyfi skaltu fara á https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 eða senda bréf til Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, Bandaríkjunum. Biblica® er vörumerki skráð af Biblica, Inc., og notkun á Biblica® vörumerkinu krefst skriflegs leyfis Biblica, Inc. Samkvæmt skilmálum CC BY-SA leyfisins geturðu afritað og endurdreift þessu óbreyttu verki svo framarlega sem þú heldur Biblica® vörumerkinu óskertu. Ef þú breytir afriti eða þýðir þetta verk og býrð þannig til afleitt verk, verður þú að fjarlægja Biblica® vörumerkið. Á afleidda verkinu verður þú að tilgreina hvaða breytingar þú hefur gert og eigna verkið á eftirfarandi hátt: "Upprunalega verkið eftir Biblica, Inc. er fáanlegt ókeypis á www.biblica.com og open.bible ." Tilkynning um höfundarrétt verður að birtast á titla- eða höfundarréttarsíðu verksins sem hér segir: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. Þú verður einnig að gera afleidda verkið þítt aðgengilegt samkvæmt sama leyfi (CC BY-SA). Ef þú vilt láta Biblica, Inc. vita um þýðingu þína á þessu verki, vinsamlegast hafðu samband við okkur á https://open.bible/contact . This work is made available under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License (CC BY-SA). To view a copy of this license, visit https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 or send a letter to Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, USA. Biblica® is a trademark registered by Biblica, Inc., and use of the Biblica® trademark requires the written permission of Biblica, Inc. Under the terms of the CC BY-SA license, you may copy and redistribute this unmodified work as long as you keep the Biblica® trademark intact. If you modify a copy or translate this work, thereby creating a derivative work, you must remove the Biblica® trademark. On the derivative work, you must indicate what changes you have made and attribute the work as follows: “The original work by Biblica, Inc. is available for free at www.biblica.com and open.bible .” Notice of copyright must appear on the title or copyright page of the work as follows: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. You must also make your derivative work available under the same license (CC BY-SA). If you would like to notify Biblica, Inc. regarding your translation of this work, please contact us at https://open.bible/contact . This translation is made available to you under the terms of the Creative Commons Attribution Share-Alike license 4.0. You have permission to share and redistribute this Bible translation in any format and to make reasonable revisions and adaptations of this translation, provided that: You include the above copyright and source information. If you make any changes to the text, you must indicate that you did so in a way that makes it clear that the original licensor is not necessarily endorsing your changes. If you redistribute this text, you must distribute your contributions under the same license as the original. Pictures included with Scriptures and other documents on this site are licensed just for use with those Scriptures and documents. For other uses, please contact the respective copyright owners. Note that in addition to the rules above, revising and adapting God's Word involves a great responsibility to be true to God's Word. See Revelation 22:18-19. 2025-05-03
Source: http://ebible.org/isl/ · eBible.org