Hebrews 12
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ · Tap a verse to see its cross-references.
1Virðum nú fyrir okkur þessar trúarhetjur og látum þær verða okkur til hvatningar. Losum okkur við allt, sem hindrar okkur og fjötrar. Þá á ég sérstaklega við syndir, sem vafist hafa um fætur okkar og hindrað okkur í að ganga áfram veg trúarinnar. Hlaupum þolgóð skeiðið, sem Guð hefur ætlað okkur.
2Horfum stöðugt á Jesú, höfund og leiðtoga trúar okkar. Hann var fús að deyja smánardauða á krossi, vegna gleðinnar, sem hann vissi að biði hans, og nú situr hann í heiðurssæti við hástól Guðs. 3Ef þið viljið komast hjá því að missa kjarkinn og gefast upp, minnist þá þolinmæði hans er hann þjáðist af völdum syndugra manna. 4Enn hafið þið ekki þurft að berjast svo gegn synd og freistingum að sviti ykkar hafi orðið að blóðdropum.
Refsing Guðs verður okkur til góðs
5Hafið þið alveg gleymt þessum hvatningarorðum sem Guð sagði við ykkur, börnin sín: „Sonur minn, reiðstu ekki þótt Drottinn refsi þér. Misstu ekki kjarkinn, þótt hann bendi þér á mistök þín, 6því að refsing hans sannar að hann elskar þig. Ef hann hirtir þig, þá sýnir það aðeins að þú ert í raun og veru barn hans.“
7Leyfðu Guði að aga þig, því að það gera allir feður sem elska börnin sín. Hafið þið nokkru sinni heyrt talað um son sem aldrei hlaut umvöndun? 8Ef Guð lætur hjá líða að refsa ykkur, þegar þið eigið það skilið – eins og feður almennt refsa börnum sínum – þá er það merki þess að þið séuð alls ekki hans börn og tilheyrið þar af leiðandi ekki fjölskyldu hans. 9Við virðum okkar jarðnesku feður, enda þótt þeir refsi okkur, ættum við þá ekki enn frekar að taka ögun Guðs, svo við lærum að lifa lífinu á réttan hátt? 10Okkar jarðnesku feður öguðu okkur aðeins í nokkur ár og aðeins í góðum tilgangi. Ögun Guðs er alltaf rétt og okkur fyrir bestu, því að hún veitir okkur hlutdeild í heilagleika hans. 11Refsing er óþægileg meðan á henni stendur, og jafnvel sársaukafull! En hver er árangurinn? Persónuleiki og skilningur mannsins vex og þroskast.
12Herðið nú tökin, þið lúnu hendur, og réttið úr ykkur, magnþrota hné! 13Ryðjið öllum hindrunum úr vegi svo að þeir sem á eftir koma, veikir og vanmegna, hrasi ekki á göngunni, heldur styrkist í hverju skrefi.
14Forðist allar deilur og leitist við að lifa hreinu og heilögu lífi, því að án helgunar mun enginn sjá Drottin. 15Gefið gætur hvert að öðru, svo að þið missið ekki af blessun Guðs. Gætið þess að verða ekki beisk hvert við annað, því að beiskjan er trúnni til mikils tjóns. 16Hafið gát a að enginn lifi lauslæti eða fjarlægist Guð, eins og Esaú. Hann mat frumburðarrétt sinn til jafns við einn málsverð. 17Síðar, þegar hann vildi endurheimta réttindi sín, var allt um seinan og beisk iðrunartár hans fengu engu breytt. Munið þetta og gætið ykkar vel.
Mikilleiki Guðs
18Þið hafið ekki þurft að horfast í augu við ógnir, æðandi eld, sorta, myrkur og óveður, eins og Ísraelsmenn á Sínaífjalli, þegar Guð gaf þeim lögmálið. 19Þá kvað við skær lúðurhljómur og rödd sem flutti þvílíkan boðskap að fólkið bað Guð að hætta að tala. 20Og þegar Guð sagði að sérhver skepna sem snerti fjallið myndi deyja, þá hopaði fólkið á hæl. 21Sjálfur Móse varð svo hræddur við þessa sýn að hann skalf af ótta.
22Nú eruð þið komin að Síonfjalli, til borgar lifandi Guðs, hinnar himnesku Jerúsalem, til fundar við óteljandi engla, 23til kirkju Krists, sem telur alla sem skráðir eru á himnum, til Guðs, sem alla dæmir, til hinna endurleystu anda, sem fullkomnir eru orðnir, 24til sjálfs Jesú, sem færði okkur nýjan og dásamlegan sáttmála sinn, og til blóðsins, sem úthellt var og veitir náð og fyrirgefningu í stað þess að hrópa á hefnd, eins og blóð Abels.
25Gætið þess að hlýða honum, sem talar til ykkar. Ísraelsmönnum varð ekki bjargað eftir að þeir neituðu að hlýða á Móse, sem þó var aðeins maður. Við erum ekki síður í skelfilegri hættu, ef við óhlýðnumst Guði, sem talar til okkar frá himnum. 26Þegar Guð talaði frá Sínaífjalli var rödd hans svo sterk að jörðin skalf. „En næst,“ segir hann, „mun ég ekki aðeins hrista jörðina, heldur einnig himininn!“ 27Með þessu á hann við að hann muni fjarlægja allt, sem ekki fær staðist, svo einungis það sem stenst verði eftir.
28Fyrst ríki okkar er ósigrandi, skulum við þóknast Guði með því að þjóna honum með þakklátum hjörtum, heilögum ótta og lotningu, 29því að Guð er eyðandi eldur.

Did you know?
The Race, Discipline, and Mount Zion
- Hebrews 12 warns against being godless like Esau, who sold his birthright for a single meal. Esau, Rebekah’s firstborn twin, was a huntsman; coming back hungry from the chase, he sold that right to his brother Jacob for red lentil stew, and from this he also received the name Edom, “red.” Afterward, the chapter says, he sought the blessing with tears and was rejected.Sources: Esau (Edom) · the Bible text itself
- Hebrews 12 says its readers have come not to a mountain that can be touched and burns with fire, in darkness, gloom, and storm—where even Moses said, “I am trembling with fear”—but to Mount Zion and the heavenly Jerusalem, the city of the living God. Mount Zion was the south-eastern hill of Jerusalem; David took it from the Jebusites, built a citadel and a palace there, and it became the city of David. The name Jerusalem is explained as “possession of peace” or “foundation of peace,” and the city was also called the holy city.Sources: the Bible text itself · Mount Zion · Jerusalem
- Hebrews 12 speaks of “the sprinkled blood that speaks a better word than the blood of Abel.” Abel, the second son of Adam and Eve, was put to death by his brother Cain after the Lord looked with favor on Abel and his offering of the flock’s firstlings, but not on Cain and his offering of the field’s fruits.Sources: the Bible text itself · Abel
Notes written with AI assistance from open sources (Theographic Bible Metadata, CC BY-SA 4.0; Easton’s Bible Dictionary, public domain) and reviewed before publishing.
Places in this chapter
Only places identified with high confidence are shown (90% or more according to the scholarly sources compiled by OpenBible). Period map: DARE (Digital Atlas of the Roman Empire), CC BY 4.0; modern map: © OpenStreetMap contributors; places: OpenBible.info (CC BY 4.0).
Credits and license for this translation
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Icelandic: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ (New Testament+) copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc. Language: Íslenska (Icelandic) Contributor: Biblica, Inc. Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. Creative Commons License Þetta verk er gert aðgengilegt samkvæmt CC BY-SA leyfinu (Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License). Til að skoða afrit af þessu leyfi skaltu fara á https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 eða senda bréf til Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, Bandaríkjunum. Biblica® er vörumerki skráð af Biblica, Inc., og notkun á Biblica® vörumerkinu krefst skriflegs leyfis Biblica, Inc. Samkvæmt skilmálum CC BY-SA leyfisins geturðu afritað og endurdreift þessu óbreyttu verki svo framarlega sem þú heldur Biblica® vörumerkinu óskertu. Ef þú breytir afriti eða þýðir þetta verk og býrð þannig til afleitt verk, verður þú að fjarlægja Biblica® vörumerkið. Á afleidda verkinu verður þú að tilgreina hvaða breytingar þú hefur gert og eigna verkið á eftirfarandi hátt: "Upprunalega verkið eftir Biblica, Inc. er fáanlegt ókeypis á www.biblica.com og open.bible ." Tilkynning um höfundarrétt verður að birtast á titla- eða höfundarréttarsíðu verksins sem hér segir: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. Þú verður einnig að gera afleidda verkið þítt aðgengilegt samkvæmt sama leyfi (CC BY-SA). Ef þú vilt láta Biblica, Inc. vita um þýðingu þína á þessu verki, vinsamlegast hafðu samband við okkur á https://open.bible/contact . This work is made available under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License (CC BY-SA). To view a copy of this license, visit https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 or send a letter to Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, USA. Biblica® is a trademark registered by Biblica, Inc., and use of the Biblica® trademark requires the written permission of Biblica, Inc. Under the terms of the CC BY-SA license, you may copy and redistribute this unmodified work as long as you keep the Biblica® trademark intact. If you modify a copy or translate this work, thereby creating a derivative work, you must remove the Biblica® trademark. On the derivative work, you must indicate what changes you have made and attribute the work as follows: “The original work by Biblica, Inc. is available for free at www.biblica.com and open.bible .” Notice of copyright must appear on the title or copyright page of the work as follows: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. You must also make your derivative work available under the same license (CC BY-SA). If you would like to notify Biblica, Inc. regarding your translation of this work, please contact us at https://open.bible/contact . This translation is made available to you under the terms of the Creative Commons Attribution Share-Alike license 4.0. You have permission to share and redistribute this Bible translation in any format and to make reasonable revisions and adaptations of this translation, provided that: You include the above copyright and source information. If you make any changes to the text, you must indicate that you did so in a way that makes it clear that the original licensor is not necessarily endorsing your changes. If you redistribute this text, you must distribute your contributions under the same license as the original. Pictures included with Scriptures and other documents on this site are licensed just for use with those Scriptures and documents. For other uses, please contact the respective copyright owners. Note that in addition to the rules above, revising and adapting God's Word involves a great responsibility to be true to God's Word. See Revelation 22:18-19. 2025-05-03
Source: http://ebible.org/isl/ · eBible.org