Hebrews 10
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ · Tap a verse to see its cross-references.
Andstæður gamla og nýja sáttmálans
1Hið gamla lagakerfi Gyðinga gaf aðeins óljósa hugmynd um allt hið góða, sem Kristur ætlaði að veita okkur. Fórnirnar, sem færðar voru samkvæmt þessu gamla lagakerfi, voru endurteknar sí og æ, ár eftir ár, en samt sem áður gátu þær ekki frelsað neinn sem lifði eftir lögunum. 2Ef svo hefði verið, þá hefði ein fórn verið nóg, menn hefðu hreinsast í eitt skipti fyrir öll og sektarkennd þeirra þar með verið fjarlægð. 3En það var öðru nær. Í stað þess að létta á samvisku manna, minnti þessi árlega fórn þá á óhlýðni þeirra og sekt. 4Það er útilokað að blóð nauta og geita geti hreinsað burt syndir nokkurs manns.
5Þetta er ástæða þess, sem Kristur sagði þegar hann kom í heiminn: „Guð, þú lætur þér ekki nægja blóð nauta og geita, og því hefur þú gefið mér þennan líkama, til þess að ég leggi hann sem fórn á altari þitt. 6Þú gerðir þig ekki ánægðan með dýrafórnir – að dýrum væri slátrað og þau síðan brennd frammi fyrir þér sem syndafórn. 7Sjá, ég er kominn til að hlýða vilja þínum, til að fórna lífi mínu, eins og spádómar Biblíunnar sögðu fyrir um.“
8Fyrst sagði Kristur að Guð gerði sér ekki að góðu hinar ýmsu fórnir og gjafir, sem krafist var samkvæmt lögmálinu. 9Síðan bætti hann við: „Hér er ég. Ég er kominn til að fórna lífi mínu.“
Þá afnam hann gamla kerfið og innleiddi þess í stað annað miklu betra. 10Samkvæmt þessari nýju hjálpræðisleið fáum við fyrirgefningu og hreinsun í eitt skipti fyrir öll, vegna þess að Kristur dó fyrir okkur. 11Samkvæmt gamla sáttmálanum stóðu prestarnir frammi fyrir altarinu dag eftir dag og báru fram fórnir, sem alls ekki gátu tekið burt syndir okkar. 12Kristur fórnaði hins vegar sjálfum sér fyrir syndir okkar frammi fyrir Guði í eitt skipti fyrir öll. Að því loknu settist hann við hægri hönd Guðs, í æðsta heiðurssæti sem til er, 13og bíður þess þar að óvinir hans verði lagðir að fótum hans. 14Með þessari einu fórn fullkomnaði hann þá sem helga sig Guði.
15Þetta staðfestir heilagur andi er hann segir: 16„Þennan sáttmála vil ég gera við Ísraelsmenn, enda þótt þeir hafi rofið fyrri sáttmálann: „Lög mín vil ég grópa í hugskot þeirra svo að þeir þekki vilja minn. Ég mun rita lög mín í hjörtu þeirra, svo að þeir þrái að hlýða mér“.“ 17Síðan bætir hann við: „Aldrei framar mun ég minnast synda þeirra né afbrota.“
18Af því að syndirnar eru nú fyrirgefnar og gleymdar að eilífu, þá er fórnanna ekki lengur þörf. 19Nú er svo komið, kæru vinir, að við getum gengið með djörfung inn í hið allra helgasta, þar sem Guð er, og er það dauða Jesú að þakka. 20Þetta er hinn nýi og lifandi vegur, sem Kristur opnaði okkur þegar hann klauf í sundur fortjaldið – sinn jarðneska líkama – svo að við gætum gengið fram fyrir auglit heilags Guðs.
21Fyrst þessi mikli æðsti prestur okkar hefur með höndum stjórnina á húsi Guðs, 22þá skulum við ganga rakleitt fram fyrir Guð. Verum einlæg, með hreina samvisku og treystum því að hann taki á móti okkur, vegna þess að blóði Krists hefur verið „stökkt á okkur“ og líkamar okkar verið þvegnir hreinu vatni.
23Nú getum við með öruggri vissu horft fram til þess sem Guð hefur heitið okkur. Ekki er lengur rúm fyrir efann. Nú getum við óhikað sagt að við eigum hjálpræðið, og það samkvæmt orði Guðs.
Einbeitið ykkur að því að gera hið góða
24Gætum hvert að öðru og hvetjum hvert annað til að sýna hjálpsemi og að gera öðrum gott.
25Vanrækjum ekki söfnuð okkar eins og sumir gera, heldur hvetjum og áminnum hvert annað, sérstaklega nú er endurkoma Jesú nálgast.
26Ef við syndgum af ásettu ráði, eftir að hafa kynnst sannleikanum um fyrirgefningu Guðs, þá gagnar dauði Krists okkur ekki, og ekki er lengur um neina undankomuleið að ræða frá syndinni. 27Þá tekur aðeins við hræðileg bið eftir dómi, því að reiði Guðs mun þurrka út alla óvini hans. 28Hver sá, sem neitaði að hlýða lögum Móse, var skilyrðislaust tekinn af lífi, ef tvö eða þrjú vitni voru að synd hans. 29Hugsið ykkur þá hve miklu þyngri refsingu sá hlýtur, sem fótum treður son Guðs og lítilsvirðir blóð hans – metur það vanheilagt – og hryggir þar með og smánar heilagan anda, sem boðar mönnunum miskunn Guðs.
30Við þekkjum þann sem sagði: „Réttvísin er í mínum höndum og mitt er að refsa.“ Hann sagði einnig: „Drottinn mun sjálfur dæma í málum þessara manna.“ 31Hræðilegt er að falla í hendur hins lifandi Guðs.
32Gleymið ekki þeim dýrlega tíma er þið fyrst heyrðuð um Krist. Munið hversu fast þið hélduð ykkur að Drottni, þrátt fyrir erfiðleikana sem ykkur mættu, 33og þótt hlegið væri að ykkur eða þið barin. Þið studduð aðra, sem urðu fyrir sama aðkasti, 34og þjáðust með þeim sem varpað var í fangelsi. Og jafnvel þótt allt, sem þið ættuð, væri tekið frá ykkur, hélduð þið samt gleði ykkar, því að þið vissuð að á himnum ættuð þið í vændum það sem betra var, nokkuð sem enginn gæti nokkru sinni tekið frá ykkur.
35Látið nú ekkert, hvað sem á dynur, ræna ykkur gleði ykkar og traustinu á Drottni. Minnist launanna, sem ykkar bíða. 36Ef þið ætlist til að Guð standi við loforðin, sem hann hefur gefið ykkur, þá verðið þið einnig að sýna úthald og fara eftir hans vilja. 37Endurkomu Drottins er ekki langt að bíða. 38Þeir, sem öðlast hafa réttlæti Guðs fyrir trú, verða að lifa í trú og treysta honum í einu og öllu. Ef þeir hins vegar skjóta sér undan, þá eru þeir ekki Guði að skapi.
39En við erum ekki menn sem snúa baki við Guði og hjálpræði hans. Nei, við erum menn trúarinnar og munum erfa hjálpræði hans.

Did you know?
A Sacrifice Offered Once for All
- The law is called only a shadow of the good things to come. Sacrifices repeated year after year, and the blood of bulls and goats, are said to remind worshipers of sins rather than take those sins away; by contrast, the sacrifice of the body of Jesus Christ is presented as sanctifying people once for all.Sources: the Bible text itself
- Every priest is pictured standing day after day to offer the same sacrifices, which can never take away sins. After one sacrifice for sins, this Priest is said to have sat down at the right hand of God, and the chapter speaks of a new and living way into the Most Holy Place through the curtain of his body.Sources: the Bible text itself
- Rejecting the law of Moses, the chapter says, brought death without mercy on the testimony of two or three witnesses. It then recalls an earlier time when the readers endured public ridicule and persecution, stood with those so treated, sympathized with people in prison, and joyfully accepted the confiscation of their property.Sources: the Bible text itself
Notes written with AI assistance from open sources (Theographic Bible Metadata, CC BY-SA 4.0; Easton’s Bible Dictionary, public domain) and reviewed before publishing.
Places in this chapter
Only places identified with high confidence are shown (90% or more according to the scholarly sources compiled by OpenBible). Period map: DARE (Digital Atlas of the Roman Empire), CC BY 4.0; modern map: © OpenStreetMap contributors; places: OpenBible.info (CC BY 4.0).
Credits and license for this translation
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Icelandic: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ (New Testament+) copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc. Language: Íslenska (Icelandic) Contributor: Biblica, Inc. Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. Creative Commons License Þetta verk er gert aðgengilegt samkvæmt CC BY-SA leyfinu (Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License). Til að skoða afrit af þessu leyfi skaltu fara á https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 eða senda bréf til Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, Bandaríkjunum. Biblica® er vörumerki skráð af Biblica, Inc., og notkun á Biblica® vörumerkinu krefst skriflegs leyfis Biblica, Inc. Samkvæmt skilmálum CC BY-SA leyfisins geturðu afritað og endurdreift þessu óbreyttu verki svo framarlega sem þú heldur Biblica® vörumerkinu óskertu. Ef þú breytir afriti eða þýðir þetta verk og býrð þannig til afleitt verk, verður þú að fjarlægja Biblica® vörumerkið. Á afleidda verkinu verður þú að tilgreina hvaða breytingar þú hefur gert og eigna verkið á eftirfarandi hátt: "Upprunalega verkið eftir Biblica, Inc. er fáanlegt ókeypis á www.biblica.com og open.bible ." Tilkynning um höfundarrétt verður að birtast á titla- eða höfundarréttarsíðu verksins sem hér segir: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. Þú verður einnig að gera afleidda verkið þítt aðgengilegt samkvæmt sama leyfi (CC BY-SA). Ef þú vilt láta Biblica, Inc. vita um þýðingu þína á þessu verki, vinsamlegast hafðu samband við okkur á https://open.bible/contact . This work is made available under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License (CC BY-SA). To view a copy of this license, visit https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 or send a letter to Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, USA. Biblica® is a trademark registered by Biblica, Inc., and use of the Biblica® trademark requires the written permission of Biblica, Inc. Under the terms of the CC BY-SA license, you may copy and redistribute this unmodified work as long as you keep the Biblica® trademark intact. If you modify a copy or translate this work, thereby creating a derivative work, you must remove the Biblica® trademark. On the derivative work, you must indicate what changes you have made and attribute the work as follows: “The original work by Biblica, Inc. is available for free at www.biblica.com and open.bible .” Notice of copyright must appear on the title or copyright page of the work as follows: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. You must also make your derivative work available under the same license (CC BY-SA). If you would like to notify Biblica, Inc. regarding your translation of this work, please contact us at https://open.bible/contact . This translation is made available to you under the terms of the Creative Commons Attribution Share-Alike license 4.0. You have permission to share and redistribute this Bible translation in any format and to make reasonable revisions and adaptations of this translation, provided that: You include the above copyright and source information. If you make any changes to the text, you must indicate that you did so in a way that makes it clear that the original licensor is not necessarily endorsing your changes. If you redistribute this text, you must distribute your contributions under the same license as the original. Pictures included with Scriptures and other documents on this site are licensed just for use with those Scriptures and documents. For other uses, please contact the respective copyright owners. Note that in addition to the rules above, revising and adapting God's Word involves a great responsibility to be true to God's Word. See Revelation 22:18-19. 2025-05-03
Source: http://ebible.org/isl/ · eBible.org