Nations Bible

Galatians 3

Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ · Tap a verse to see its cross-references.

Lög Gyðinga frelsa engan

1Æ, þið heimsku Galatar! Hvaða galdrameistari hefur dáleitt ykkur og lagt á ykkur þessi illu álög? Sú var tíðin að þið sáuð tilganginn með dauða Jesú Krists, jafn skýrt og ég hefði sýnt ykkur mynd af Jesú á krossinum. 2Leyfið mér að spyrja ykkur einnar spurningar: Fenguð þið heilagan anda fyrir að halda lög Gyðinga? Nei, svo sannarlega ekki! Heilagur andi kom ekki yfir ykkur fyrr en þið höfðuð heyrt um Krist og tekið trú á hann. 3Eruð þið orðin rugluð eða hvað? Í fyrra sinnið mistókst ykkur að eignast andlegt líf, því að þið hélduð að leiðin til þess væri að halda lög Gyðinga. Hvernig getur ykkur þá dottið í hug að nú gætuð þið þroskast í trúnni á Krist, með því að hlýða þessum lögum? 4Þið sem hafið orðið að líða svo mikið vegna fagnaðarerindisins, ætlið þið nú að varpa öllu fyrir borð? Ég trúi því ekki?

5Ég spyr aftur: Gefur Guð ykkur kraft heilags anda og lætur hann ykkur vinna máttarverk vegna hlýðni ykkar við lög Gyðinga? Nei, auðvitað ekki! Slíkt gerist hins vegar þegar þið trúið Kristi og treystið honum algjörlega.

6Slík var einnig reynsla Abrahams. Guð lýsti hann réttlátan fyrir það eitt að hann trúði loforðum Guðs. 7Af þessu getið þið séð að hinir raunverulegu afkomendur Abrahams eru þeir sem trúa á Guð og treysta honum heilshugar.

8Auk þessa benti Biblían fram til þess tíma, er Guð mundi einnig frelsa heiðingjana vegna trúar þeirra. Fyrir löngu sagði Guð við Abraham: „Eins og ég hef blessað þig, svo mun ég og blessa aðra þá sem mér treysta, hverrar þjóðar sem þeir eru.“ Af þessu er auðséð að allir sem treysta Kristi, fá hlutdeild í blessun Abrahams.

10Þeir sem álíta að lög Gyðinga frelsi þá, eru undir bölvun Guðs. Biblían segir skýrt og skorinort: „Bölvaður er hver sá er brýtur lögin í lögbók minni, þótt ekki sé nema eitt ákvæði þeirra.“ 11Af þessu er ljóst að aldrei mun neinn geta unnið sér hylli Guðs með því að reyna að halda lög Gyðinga, því að Guð hefur sagt að eina leiðin til að verða réttlátur í hans augum sé leið trúarinnar. Um þetta segir spámaðurinn Habakúk: „Sá sem finnur lífið, finnur það í trúnni á Guð.“ 12Hvílíkur reginmunur á þessum vegi trúarinnar og vegi laganna. Vegur laganna er þessi: Ef þú hlýðir lögunum í hverju einstöku atriði, þá muntu frelsast. 13Nú hefur Kristur hins vegar keypt okkur laus undan dómi þessa vonlausa lagakerfis, með því að taka á sig bölvunina sem fylgdi óhlýðni okkar. Það gerði hann á krossinum og það minnir ykkur eflaust á orð Biblíunnar: „Bölvaður er hver sá sem á tré hangir.“

Loforð Guðs komu fyrst

14Nú getur Guð einnig blessað heiðingjana með sömu blessun og hann hét Abraham. Sömuleiðis getum við öll sem kristin erum, fengið heilagan anda með því að trúa, eins og okkur hafði verið lofað. 15Kæru vinir, við vitum að í daglegu lífi er það svo að gefi einhver skriflegt loforð og undirriti það, þá verður hann að halda það. Hann getur ekki allt í einu ákveðið að ganga á bak orða sinna.

16Nú var það svo að Guð gaf Abraham og barni hans ákveðin loforð. Takið eftir, að ekki er sagt að loforðin væru til barna hans, eins og ef um alla syni hans hefði verið að ræða – alla Gyðinga. – Nei, hér var talað um barn – og þar er auðvitað átt við Krist. 17Með þessu á ég við að loforð sem Guð gaf – ritaði og síðan staðfesti – um að við frelsumst fyrir trú, var útilokað að fella úr gildi eða breyta fjögur hundruð og þrjátíu árum síðar, þegar Guð birti lög sín. 18Ef hlýðni við þau lög gæti frelsað okkur, er augljóst að þar er um aðra leið að ræða til að ná vináttu Guðs, en þá sem Abraham fór, því hann trúði hiklaust loforði Guðs.

19En til hvers voru þá lögin? Jú, þeim var bætt við eftir að loforðið hafði verið gefið, til að sýna mönnunum hversu sekir þeir væru þegar þeir brytu lög Guðs. Þessi lög áttu aðeins að gilda þar til Kristur kæmi, en hann er barnið sem loforð Guðs snerist um. (Á þessu tvennu er reyndar enn meiri munur: Guð lét engla færa Móse lögin sem hann síðan færði fólkinu, 20en þegar Guð hins vegar gaf Abraham loforð sitt, þá gerði hann það sjálfur milliliðalaust.)

21Eru þá lög Guðs í andstöðu við loforð hans? Nei, vissulega ekki! Ef við gætum frelsast með því að halda lögin, þá hefði Guð ekki þurft að opna okkur aðra leið til að losna úr klóm syndarinnar – en Biblían leggur áherslu á að allir séu fangar hennar. Eina undankomuleiðin er trúin á Jesú Krist og hún er öllum opin.

23Áður en Kristur kom, vorum við undir ströngu eftirliti laganna. Við vorum bókstaflega í fjötrum, þar til við eignuðumst trúna á frelsarann.

24Segja má að lögin hafi rekið okkur til Krists, sem síðan leiddi okkur með trúnni á veginn til Guðs. 25En fyrst Kristur er kominn, þurfum við ekki lengur á þessum lögum að halda til að gæta okkar og leiðbeina okkur til hans. 26Nú erum við börn Guðs fyrir trúna á Jesú Krist, 27og við sem skírð erum til að sameinast honum, höfum íklæðst honum. 28Nú skiptir engu máli hvort við erum Gyðingar eða Grikkir, frjálsir menn eða þrælar, karlar eða konur. Við erum öll kristin og eitt í Kristi Jesú. 29Nú tilheyrum við Kristi og erum því sannir afkomendur Abrahams og öll þau loforð sem Guð gaf honum, tilheyra okkur.

Artistic illustration — an interpretation, not a historical record.

Did you know?

Faith, the Promise, and the Law

  • This chapter says that Abraham believed God and that this was credited to him as righteousness, and that people of faith are sons of Abraham and heirs according to the promise. A dictionary entry calls him the heir of the promises and says he was named before his older brothers Nahor and Haran because he held that place.Sources: the Bible text itself · Abraham
  • The chapter teaches that a human covenant, once ratified, cannot be canceled or amended, and that the law which came 430 years later does not revoke the promise God had already granted to Abraham. A chronology dates the sojourn in Canaan and Egypt as beginning in 1920 BC and lasting 430 years.Sources: the Bible text itself · Sojourn in Canaan and Egypt
  • The chapter says that Scripture foresaw that God would justify the Gentiles by faith and foretold to Abraham the gospel that all nations would be blessed through him. Called the father of a multitude, he lived in Chaldea until the age of seventy, then left Ur because of a call from God and stayed fifteen years in Haran, some 300 miles to the north.Sources: the Bible text itself · Abraham

Notes written with AI assistance from open sources (Theographic Bible Metadata, CC BY-SA 4.0; Easton’s Bible Dictionary, public domain) and reviewed before publishing.

Credits and license for this translation
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Icelandic: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ (New Testament+)
copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc.
Language: Íslenska (Icelandic)
Contributor: Biblica, Inc.
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
Creative Commons License
Þetta verk er gert aðgengilegt samkvæmt CC BY-SA leyfinu (Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License). Til að skoða afrit af þessu leyfi skaltu fara á https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 eða senda bréf til Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, Bandaríkjunum.
Biblica® er vörumerki skráð af Biblica, Inc., og notkun á Biblica® vörumerkinu krefst skriflegs leyfis Biblica, Inc. Samkvæmt skilmálum CC BY-SA leyfisins geturðu afritað og endurdreift þessu óbreyttu verki svo framarlega sem þú heldur Biblica® vörumerkinu óskertu. Ef þú breytir afriti eða þýðir þetta verk og býrð þannig til afleitt verk, verður þú að fjarlægja Biblica® vörumerkið. Á afleidda verkinu verður þú að tilgreina hvaða breytingar þú hefur gert og eigna verkið á eftirfarandi hátt: "Upprunalega verkið eftir Biblica, Inc. er fáanlegt ókeypis á www.biblica.com og open.bible ."
Tilkynning um höfundarrétt verður að birtast á titla- eða höfundarréttarsíðu verksins sem hér segir:
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
Þú verður einnig að gera afleidda verkið þítt aðgengilegt samkvæmt sama leyfi (CC BY-SA).
Ef þú vilt láta Biblica, Inc. vita um þýðingu þína á þessu verki, vinsamlegast hafðu samband við okkur á https://open.bible/contact .
This work is made available under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License (CC BY-SA). To view a copy of this license, visit https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 or send a letter to Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, USA.
Biblica® is a trademark registered by Biblica, Inc., and use of the Biblica® trademark requires the written permission of Biblica, Inc. Under the terms of the CC BY-SA license, you may copy and redistribute this unmodified work as long as you keep the Biblica® trademark intact. If you modify a copy or translate this work, thereby creating a derivative work, you must remove the Biblica® trademark. On the derivative work, you must indicate what changes you have made and attribute the work as follows: “The original work by Biblica, Inc. is available for free at www.biblica.com and open.bible .”
Notice of copyright must appear on the title or copyright page of the work as follows:
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
You must also make your derivative work available under the same license (CC BY-SA).
If you would like to notify Biblica, Inc. regarding your translation of this work, please contact us at https://open.bible/contact .
This translation is made available to you under the terms of the
Creative Commons Attribution Share-Alike license 4.0.
You have permission to share and redistribute this Bible translation in any format and to make reasonable revisions and adaptations of this translation, provided that:
You include the above copyright and source information.
If you make any changes to the text, you must indicate that you did so in a way that makes it clear that the original licensor is not necessarily endorsing your changes.
If you redistribute this text, you must distribute your contributions under the same license as the original.
Pictures included with Scriptures and other documents on this site are licensed just for use with those Scriptures and documents.
For other uses, please contact the respective copyright owners.
Note that in addition to the rules above, revising and adapting God's Word involves a great responsibility to be true to God's Word. See Revelation 22:18-19.
2025-05-03

Source: http://ebible.org/isl/ · eBible.org

Talk to us

Tell us where you read from, how the Bible has helped you, or what we could improve. We read every message.