Ephesians 5
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ · Tap a verse to see its cross-references.
Reynið að þóknast Guði
1Takið Guð til fyrirmyndar í öllu, eins og barn sem elskar föður sinn og hlýðir honum. 2Lifið í kærleika og fylgið þannig fordæmi Krists, sem elskaði ykkur og fórnaði sjálfum sér frammi fyrir Guði til að taka burt syndir ykkar. Kærleikur Krists til ykkar var Guði mjög að skapi, rétt eins og sætur ilmur.
3Lauslæti, óhreinleiki eða ágirnd á ekki að nefnast á nafn á meðal ykkar. 4Klúrar sögur, heimskulegt tal og grófir brandarar – slíkt hæfir ykkur ekki. Í stað þess skuluð þið minna hvert annað á gæsku Guðs og verið þakklát. 5Eitt getið þið verið viss um: Sá sem er lauslátur og lifir í óhreinleika og ágirnd mun ekki fá inngöngu í ríki Krists og Guðs. Hinn ágjarni er í raun og veru hjáguðadýrkandi – hann elskar og tignar lífsgæðin í stað Guðs. 6Látið ekki blekkjast af þeim sem afsaka þessar syndir, því að reiði Guðs kemur yfir alla sem þær drýgja. 7Hafið ekkert samband við slíkt fólk, 8því að þótt myrkrið hafi eitt sinn ríkt í hjörtum ykkar, þá eru þau nú böðuð ljósi Drottins. Líferni ykkar ætti að bera því gleggstan vott! 9Í ljósi Drottins eflist góðvild, réttlæti og sannleikur.
10Reynið að skilja hver er vilji Drottins. 11Takið engan þátt í því sem illt er – verkum myrkursins, þau leiða aðeins til spillingar. Bendið heldur á þau og flettið ofan af þeim. 12Það sem hinir óguðlegu leggja stund á í leyndum, er svo svívirðilegt, að mér er jafnvel ómögulegt að nefna það á nafn! 13Þegar þið flettið ofan af þessum hlutum, skín ljósið á syndir þeirra og þær verða augljósar. En þegar þeir sem þannig lifa, sjá hve illa þeir eru á vegi staddir, snúa sumir þeirra sér ef til vill til Guðs og verða börn ljóssins. 14Um þetta segir Guðs orð: „Vakna þú sem sefur og rís upp frá dauðum og þá mun Kristur lýsa þér.“
15Gætið vel að hegðun ykkar, því við lifum á erfiðum tímum. Verið ekki óskynsöm, heldur skynsöm! Notið til fullnustu hvert það tækifæri sem þið fáið til að gera hið góða. 17Gerið ekkert í hugsunarleysi en reynið að skilja hver er vilji Drottins og framkvæmið hann. 18Drekkið ykkur ekki drukkin af víni, því að drykkjuskapur leiðir aðeins til ills, fyllist heldur heilögum anda og látið stjórnast af honum.
19Ræðið saman um Drottin, vitnið í sálma og söngva, syngið andlega söngva. Syngið og leikið Drottni lof í hjörtum ykkar 20og þakkið Guði föður fyrir alla hluti í nafni Drottins Jesú Krists.
Reglur fyrir hamingjusamt heimili
21Verið hvert öðru undirgefin, slíkt hugarfar er Drottni velþóknanlegt. 22Eiginkonur, lútið eiginmönnum ykkar eins og um Drottin væri að ræða. 23Eiginmaður ber ábyrgð á konu sinni, á sama hátt og Kristur ber ábyrgð á líkama sínum, kirkjunni, en hann gaf líf sitt til að vernda hana og frelsa. 24Eiginkonur, lútið mönnum ykkar í öllu og það fúslega, á sama hátt og söfnuðurinn er undirgefinn Kristi. 25Eiginmenn! Sýnið konum ykkar sömu ást og umhyggju og Kristur söfnuðinum, þegar hann dó fyrir hann, 26til að helga, hreinsa og þvo hann í skírninni og orði Guðs. 27Þetta gerði hann til að geta leitt til sín fullkominn söfnuð, án bletts eða hrukku, heilagan og lýtalausan. 28Á sama hátt eiga eiginmenn að koma fram við konur sínar. Þeir eiga að elska þær sem hluta af sjálfum sér. Fyrst eiginmaðurinn og eiginkonan eru eitt, þá er maðurinn í raun og veru að gera sjálfum sér greiða og elska sjálfan sig, þegar hann elskar eiginkonu sína! 29Enginn hatar sinn eigin líkama, heldur gæta menn hans af mikilli umhyggju. Eins er með Krist, hann gætir líkama síns, safnaðarins, en við erum hvert um sig limir á þeim líkama.
31Biblían sýnir ljóslega með eftirfarandi orðum að eiginmaður og eiginkona séu einn líkami: „Þegar maðurinn giftist verður hann að yfirgefa föður sinn og móður, svo að hann geti að fullu og öllu sameinast konunni og þau tvö orðið eitt.“ 32Ég veit að þetta er torskilið, en sambandið milli Krists og safnaðar hans hjálpar okkur þó að skilja það. 33Ég endurtek því: Maðurinn verður að elska konu sína sem hluta af sjálfum sér og konan verður að gæta þess að heiðra mann sinn og hlýða honum.

Did you know?
Love, light, and the household
- Ephesians 5 opens by calling readers to imitate God as beloved children and to walk in love, just as Christ loved them and gave himself up for them as a fragrant sacrificial offering to God.Sources: the Bible text itself
- The chapter says its readers were once darkness but are now light in the Lord, and that the fruit of the light is all goodness, righteousness, and truth. It also cites a saying that calls the sleeper to wake and rise from the dead, promising that Christ will shine on that person.Sources: the Bible text itself
- A call to submit to one another out of reverence for Christ introduces the instructions for wives and husbands. Husbands are told to love their wives as Christ loved the church and gave himself up for her, and the chapter calls the union of husband and wife a profound mystery concerning Christ and the church.Sources: the Bible text itself
Notes written with AI assistance from open sources (Theographic Bible Metadata, CC BY-SA 4.0; Easton’s Bible Dictionary, public domain) and reviewed before publishing.
Credits and license for this translation
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Icelandic: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ (New Testament+) copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc. Language: Íslenska (Icelandic) Contributor: Biblica, Inc. Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. Creative Commons License Þetta verk er gert aðgengilegt samkvæmt CC BY-SA leyfinu (Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License). Til að skoða afrit af þessu leyfi skaltu fara á https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 eða senda bréf til Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, Bandaríkjunum. Biblica® er vörumerki skráð af Biblica, Inc., og notkun á Biblica® vörumerkinu krefst skriflegs leyfis Biblica, Inc. Samkvæmt skilmálum CC BY-SA leyfisins geturðu afritað og endurdreift þessu óbreyttu verki svo framarlega sem þú heldur Biblica® vörumerkinu óskertu. Ef þú breytir afriti eða þýðir þetta verk og býrð þannig til afleitt verk, verður þú að fjarlægja Biblica® vörumerkið. Á afleidda verkinu verður þú að tilgreina hvaða breytingar þú hefur gert og eigna verkið á eftirfarandi hátt: "Upprunalega verkið eftir Biblica, Inc. er fáanlegt ókeypis á www.biblica.com og open.bible ." Tilkynning um höfundarrétt verður að birtast á titla- eða höfundarréttarsíðu verksins sem hér segir: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. Þú verður einnig að gera afleidda verkið þítt aðgengilegt samkvæmt sama leyfi (CC BY-SA). Ef þú vilt láta Biblica, Inc. vita um þýðingu þína á þessu verki, vinsamlegast hafðu samband við okkur á https://open.bible/contact . This work is made available under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License (CC BY-SA). To view a copy of this license, visit https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 or send a letter to Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, USA. Biblica® is a trademark registered by Biblica, Inc., and use of the Biblica® trademark requires the written permission of Biblica, Inc. Under the terms of the CC BY-SA license, you may copy and redistribute this unmodified work as long as you keep the Biblica® trademark intact. If you modify a copy or translate this work, thereby creating a derivative work, you must remove the Biblica® trademark. On the derivative work, you must indicate what changes you have made and attribute the work as follows: “The original work by Biblica, Inc. is available for free at www.biblica.com and open.bible .” Notice of copyright must appear on the title or copyright page of the work as follows: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. You must also make your derivative work available under the same license (CC BY-SA). If you would like to notify Biblica, Inc. regarding your translation of this work, please contact us at https://open.bible/contact . This translation is made available to you under the terms of the Creative Commons Attribution Share-Alike license 4.0. You have permission to share and redistribute this Bible translation in any format and to make reasonable revisions and adaptations of this translation, provided that: You include the above copyright and source information. If you make any changes to the text, you must indicate that you did so in a way that makes it clear that the original licensor is not necessarily endorsing your changes. If you redistribute this text, you must distribute your contributions under the same license as the original. Pictures included with Scriptures and other documents on this site are licensed just for use with those Scriptures and documents. For other uses, please contact the respective copyright owners. Note that in addition to the rules above, revising and adapting God's Word involves a great responsibility to be true to God's Word. See Revelation 22:18-19. 2025-05-03
Source: http://ebible.org/isl/ · eBible.org