Nations Bible

Acts 9

Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ · Tap a verse to see its cross-references.

Afturhvarf Páls

1Páll hélt linnulaust áfram að útrýma kristnum mönnum. Í ákafa sínum fór hann til æðstaprestsins í Jerúsalem 2og bað hann um bréf, áritað til safnaða Gyðinga í Damaskus. Í bréfinu var farið fram á aðstoð þeirra við ofsóknir gegn þeim, sem þar væru kristnir, körlum jafnt sem konum, svo að Páll gæti flutt þau hlekkjuð til Jerúsalem.

3Þegar Páll nálgaðist Damaskus í þessum erindagjörðum, leiftraði skyndilega um hann bjart ljós frá himni. 4Hann féll til jarðar og heyrði rödd sem sagði: „Páll, Páll! Hví ofsækir þú mig?“

5„Hver ert þú, herra?“ spurði Páll.

Röddin svaraði: „Ég er Jesús, sem þú ofsækir. 6Stattu nú upp, farðu inn í borgina og þar mun þér sagt verða hvað þú átt að gera.“

7Fylgdarmenn Páls stóðu orðlausir af undrun. Þeir heyrðu röddina, en sáu engan. 8Þegar Páll staulaðist á fætur, varð honum ljóst að hann var orðinn blindur. Það varð því að leiða hann inn í Damaskus. Í þrjá daga var hann blindur og át hvorki né drakk.

10Í Damaskus bjó kristinn maður, Ananías að nafni. Drottinn talaði til hans í sýn og sagði: „Ananías!“

„Já, Drottinn,“ svaraði hann.

11„Farðu yfir í Strætið beina,“ sagði Drottinn, „heim til Júdasar, og spurðu eftir Páli frá Tarsus. Þessa stundina er hann á bæn. 12Ég lét hann sjá sýn og í sýninni komst þú, Ananías, til hans og lagðir hendur yfir hann til að hann fengi aftur sjónina.“

13„Já, en Drottinn!“ hrópaði Ananías og varð mikið niðri fyrir, „ég hef heyrt að þessi maður hafi valdið þeim kristnu í Jerúsalem miklum hörmungum. 14Auk þess höfum við frétt að hann hafi umboð frá æðstu prestunum til að handtaka alla þá sem hér eru kristnir!“

15„Farðu og gerðu eins og ég segi þér,“ sagði Drottinn. „Ég hef útvalið Pál til að flytja þjóðum og konungum boðskap minn, svo og Ísraelsmönnum, 16og ég mun sýna honum hve mikið hann verður að þjást mín vegna.“

17Ananías fór og fann Pál, lagði hendur sínar yfir hann og sagði: „Bróðir Páll, Drottinn Jesús, sem birtist þér á veginum, sendi mig hingað til þess að þú mættir fyllast heilögum anda og fengir aftur sjónina.“

18Jafnskjótt fékk Páll sjónina (það var eins og hreistur félli af augum hans) og hann lét skírast þegar í stað. 19Síðan mataðist hann og styrktist. Hann dvaldist nokkra daga hjá bræðrunum í Damaskus 20og fór í samkomuhús Gyðinga þar í borginni. Þar flutti hann öllum gleðiboðskapinn um Jesú og sagði að Jesús væri sannarlega sonur Guðs.

21Þeir sem hlustuðu, urðu forviða og spurðu: „Er þetta ekki sá sem stóð fyrir ofsóknunum gegn fylgjendum Jesú í Jerúsalem? Okkur skildist að hann hefði komið hingað til að handtaka hina kristnu og fara með þá í fjötrum til æðstu prestanna.“

22En Páll varð stöðugt djarfari í predikunum sínum og Gyðingarnir í Damaskus gátu með engu móti hrakið röksemdir hans um að Jesús væri Kristur.

23Það leið því ekki á löngu uns Gyðingarnir ákváðu að drepa hann. 24Páll frétti af áformum þeirra. Þar á meðal því að þeir hefðu njósnara við borgarhliðin allan sólarhringinn, tilbúna að drepa hann. 25Nokkrir þeirra, sem hann hafði leitt til Krists, komu honum út úr borginni nótt eina, með því að láta hann síga í körfu út um op á borgarmúrnum.

26Þegar Páll kom til Jerúsalem reyndi hann að komast í samband við hina trúuðu, en þeir forðuðust hann og héldu að þar væru svik í tafli. 27Barnabas fór þá með hann til postulanna og skýrði þeim frá hvernig Páll hefði séð Drottin á leiðinni til Damaskus, hvað Drottinn hefði sagt við hann og einnig hve djarflega hann hefði predikað um Jesú. 28Þá tóku þeir við honum og eftir það var hann stöðugt með hinum trúuðu 29og predikaði djarflega í nafni Drottins. Grískumælandi Gyðingar, sem hann hafði deilt við, gerðu nú samsæri um að myrða hann. 30Trúaðir menn komust á snoðir um þessa hættu, fórn með hann til Sesareu og sendu hann þaðan til Tarsus, heimabæjar hans. 31Um þessar mundir fékk kirkjan frið í Júdeu, Galíleu og Samaríu og óx og styrktist. Hinir trúuðu lærðu að ganga fram í undirgefni og hlýðni við Drottin og hlutu uppörvun heilags anda.

Tvö merkileg kraftaverk

32Pétur ferðaðist um og heimsótti kristið fólk. Í einni ferð sinni kom hann til bæjarins Lýddu. 33Þar hitti hann mann sem hét Eneas. Hann var lamaður og hafði legið rúmfastur í átta ár.

34Pétur gekk til hans og sagði: „Eneas! Jesús Kristur hefur læknað þig. Farðu á fætur og búðu um þig.“ Og maðurinn læknaðist á samri stundu. 35Þegar íbúar Lýddu og Saron sáu að Eneas gat gengið, sneru þeir sér allir til Drottins.

36Í bænum Joppe var kona að nafni Dorkas (sem þýðir hind). Hún var kristin og afar fús að hjálpa öðrum, þó sérstaklega fátækum. 37Um þessar mundir veiktist hún og dó. Á meðan vinir hennar undirbjuggu útförina, var líkið geymt í loftherbergi einu. 38Þegar þeir fréttu að Pétur væri í nágrannabænum Lýddu, sendu þeir tvo menn til hans, til að biðja hann um að koma til Joppe. 39Pétur féllst á það og þegar þangað kom, var farið með hann á loftið, þar sem Dorkas lá. Herbergið var fullt af grátandi ekkjum, sem voru að sýna hver annarri yfirhafnir og flíkur, sem Dorkas hafði gert handa þeim. 40Pétur bað þær að yfirgefa herbergið, síðan kraup hann og bað. Eftir það sneri hann sér að líkinu og sagði: „Dorkas, rístu upp!“ Þá opnaði hún augun, 41en Pétur rétti henni höndina og reisti hana á fætur. Síðan kallaði hann á trúaða fólkið og ekkjurnar og sýndi þeim hana.

42Fréttin barst um bæinn eins og eldur í sinu og margir tóku trú á Drottin. 43Svo fór að Pétur dvaldist allmarga daga í Joppe og gisti hjá Símoni sútara.

Artistic illustration — an interpretation, not a historical record.

Did you know?

Saul's Conversion and Peter's Ministry

  • The persecutor in this chapter is called Saul, a man from Tarsus. Saul was the name he received at circumcision, his Hebrew name at home; the name Paul was probably also given to him in infancy for use in the Gentile world. Tarsus, the capital of Cilicia, a Roman province in southeast Asia Minor, stood on the river Cydnus, navigable that far, was distinguished for its wealth from trade with Mediterranean lands and central Asia Minor, and was the seat of a famous university whose schools are described as rivaling those of Athens and Alexandria.Sources: Paul · Tarsus · the Bible text itself
  • Damascus, which Saul was approaching with letters from the high priest so that he could bring men and women of the Way as prisoners to Jerusalem, is described as the most ancient of the cities of the East and the capital of Syria, about 133 miles north of Jerusalem. Ananias was sent to the house of Judas, a Jew of Damascus, on the street called Straight, a long broad street running east to west for about a mile and forming the city's principal thoroughfare, unlike the narrow and irregular streets usual in towns of the East. That street is identified with the street of bazaars, where a so-called house of Judas has been pointed out.Sources: Damascus · Straight Gate · Judas (Jew of Damascus) · the Bible text itself
  • Lydda, where Peter found Aeneas, paralyzed and bedridden for eight years, lay about nine miles east of Joppa, on the road from that seaport to Jerusalem. Joppa stood on a sandy promontory about thirty miles northwest of Jerusalem and was the chief seaport of Judea. There the disciple Tabitha is also called Dorcas, a Greek name meaning gazelle; she was known for works of kindness and charity, and the widows showed Peter the tunics and other clothing she had made.Sources: Lydda · Joppa · Dorcas · the Bible text itself

Notes written with AI assistance from open sources (Theographic Bible Metadata, CC BY-SA 4.0; Easton’s Bible Dictionary, public domain) and reviewed before publishing.

Places in this chapter

  • Damascus · 33.511, 36.306 · verses 2, 3, 8, 10, 19, 22, 27
  • Jerusalem · 31.777, 35.234 · verses 2, 13, 21, 26, 28
  • Straight Street · 33.509, 36.311 · verse 11
  • Tarsus · 36.913, 34.892 · verses 11, 30
  • Caesarea · Today: Caesarea Maritima · 32.500, 34.892 · verse 30
  • Galilee · 32.760, 35.527 · verse 31
  • Judea · Today: Judea 1 · 31.777, 35.234 · verse 31
  • Samaria · Today: Samaria 2 · 32.276, 35.195 · verse 31
  • Lod · 31.950, 34.900 · verses 32, 35, 38
  • Sharon · Today: Sharon Plain · 32.400, 34.883 · verse 35
  • Joppa · Today: Jaffa · 32.054, 34.753 · verses 36, 38, 42, 43

Only places identified with high confidence are shown (90% or more according to the scholarly sources compiled by OpenBible). Period map: DARE (Digital Atlas of the Roman Empire), CC BY 4.0; modern map: © OpenStreetMap contributors; places: OpenBible.info (CC BY 4.0).

Credits and license for this translation
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Icelandic: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ (New Testament+)
copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc.
Language: Íslenska (Icelandic)
Contributor: Biblica, Inc.
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
Creative Commons License
Þetta verk er gert aðgengilegt samkvæmt CC BY-SA leyfinu (Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License). Til að skoða afrit af þessu leyfi skaltu fara á https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 eða senda bréf til Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, Bandaríkjunum.
Biblica® er vörumerki skráð af Biblica, Inc., og notkun á Biblica® vörumerkinu krefst skriflegs leyfis Biblica, Inc. Samkvæmt skilmálum CC BY-SA leyfisins geturðu afritað og endurdreift þessu óbreyttu verki svo framarlega sem þú heldur Biblica® vörumerkinu óskertu. Ef þú breytir afriti eða þýðir þetta verk og býrð þannig til afleitt verk, verður þú að fjarlægja Biblica® vörumerkið. Á afleidda verkinu verður þú að tilgreina hvaða breytingar þú hefur gert og eigna verkið á eftirfarandi hátt: "Upprunalega verkið eftir Biblica, Inc. er fáanlegt ókeypis á www.biblica.com og open.bible ."
Tilkynning um höfundarrétt verður að birtast á titla- eða höfundarréttarsíðu verksins sem hér segir:
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
Þú verður einnig að gera afleidda verkið þítt aðgengilegt samkvæmt sama leyfi (CC BY-SA).
Ef þú vilt láta Biblica, Inc. vita um þýðingu þína á þessu verki, vinsamlegast hafðu samband við okkur á https://open.bible/contact .
This work is made available under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License (CC BY-SA). To view a copy of this license, visit https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 or send a letter to Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, USA.
Biblica® is a trademark registered by Biblica, Inc., and use of the Biblica® trademark requires the written permission of Biblica, Inc. Under the terms of the CC BY-SA license, you may copy and redistribute this unmodified work as long as you keep the Biblica® trademark intact. If you modify a copy or translate this work, thereby creating a derivative work, you must remove the Biblica® trademark. On the derivative work, you must indicate what changes you have made and attribute the work as follows: “The original work by Biblica, Inc. is available for free at www.biblica.com and open.bible .”
Notice of copyright must appear on the title or copyright page of the work as follows:
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
You must also make your derivative work available under the same license (CC BY-SA).
If you would like to notify Biblica, Inc. regarding your translation of this work, please contact us at https://open.bible/contact .
This translation is made available to you under the terms of the
Creative Commons Attribution Share-Alike license 4.0.
You have permission to share and redistribute this Bible translation in any format and to make reasonable revisions and adaptations of this translation, provided that:
You include the above copyright and source information.
If you make any changes to the text, you must indicate that you did so in a way that makes it clear that the original licensor is not necessarily endorsing your changes.
If you redistribute this text, you must distribute your contributions under the same license as the original.
Pictures included with Scriptures and other documents on this site are licensed just for use with those Scriptures and documents.
For other uses, please contact the respective copyright owners.
Note that in addition to the rules above, revising and adapting God's Word involves a great responsibility to be true to God's Word. See Revelation 22:18-19.
2025-05-03

Source: http://ebible.org/isl/ · eBible.org

Talk to us

Tell us where you read from, how the Bible has helped you, or what we could improve. We read every message.