Nations Bible

Acts 7

Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ · Tap a verse to see its cross-references.

1Þá spurði æðsti presturinn hann: „Eru þessar ásakanir sannar?“

2Stefán útskýrði þá mál sitt ýtarlega með þessum orðum: „Áður en Abraham, forfaðir okkar, fluttist frá Mesópótamíu og til Haran, birtist Guð dýrðarinnar honum. 3Hann sagði honum að yfirgefa föðurland sitt, kveðja ættingja sína og leggja af stað til lands sem Guð myndi vísa honum á. 4Hann yfirgaf því land Kaldea, settist að í Haran í Sýrlandi og bjó þar uns faðir hans dó. Eftir það leiddi Guð hann hingað til Ísraelslands, 5en gaf honum samt ekkert landsvæði, ekki svo mikið sem smáskika.

Guð lofaði þó Abraham – sem þá átti ekkert barn – að hann og afkomendur hans myndu síðar eignast allt þetta land. 6Guð sagði enn fremur, að þessir afkomendur hans myndu flytjast burt úr landinu og setjast að annars staðar, þar sem þeir yrðu þrælar í 400 ár. 7„En ég mun refsa þjóðinni sem þrælkar þá,“ sagði Guð, „og síðan mun þjóð mín snúa aftur til Ísraelslands, og tilbiðja mig hér.“

8Um þetta leyti fyrirskipaði Guð Abraham að taka upp þá reglu, að umskera öll sveinbörn og þannig staðfesta sáttmálann milli sín og Abrahams og afkomenda hans. Ísak, sonur Abrahams, var því umskorinn þegar hann var átta daga gamall. Ísak eignaðist síðan Jakob og Jakob varð faðir hinna tólf ættfeðra Gyðingaþjóðarinnar. 9Synir Jakobs öfunduðu Jósef bróður sinn og seldu hann sem þræl til Egyptalands. En Guð var með Jósef, 10bjargaði honum úr þrengingum hans og lét hann ná vinsældum Egypta. Guð veitti Jósef einnig óvenju mikinn vísdóm svo að Faraó gerði hann landstjóra yfir öllu Egyptalandi og hirðstjóra konungsættarinnar.

11Þá varð hungursneyð í Egyptalandi og Kanaan og upphófust mjög erfiðir tímar fyrir forfeður okkar. Þegar allur matur var á þrotum, 12frétti Jakob að enn væri til korn í Egyptalandi og sendi því syni sína þangað til að kaupa korn. 13Þegar þeir komu þangað í annað sinn, sagði Jósef þeim hver hann væri og kynnti bræður sína fyrir Faraó. 14Síðan sendi hann eftir Jakobi, föður sínum, til þess að fá hann, bræður sína og fjölskyldur þeirra – alls sjötíu og fimm manns – til að flytjast til Egyptalands. 15Þannig fluttist Jakob til Egyptalands og þar dó hann og allir synir hans. 16Síðar voru þau öll flutt til Síkem og jörðuð í grafreitnum sem Abraham hafði keypt af sonum Hemors, föður Síkems.

17Gyðingaþjóðinni fjölgaði mjög eftir því sem nær dró þeirri stundu, er Guð ætlaði að uppfylla loforðið, sem hann hafði gefið Abraham, en það var að leysa afkomendur hans úr þrældómnum í Egyptalandi. Sá sem var konungur Egypta á þeim tíma skeytti engu um minningu Jósefs. 19Hann beitti þjóð okkar brögðum og neyddi foreldra til að bera út börn sín.

20A þessum tíma fæddist Móse. Hann var undurfagurt barn. Foreldrar hans leyndu honum heima í þrjá mánuði 21og loks, þegar þau gátu ekki leynt honum lengur, urðu þau að bera hann út. Þá fann dóttir Faraós hann og tók hann að sér sem sitt eigið barn. 22Hún kenndi honum öll fræði Egypta og hann varð voldugur í orði og verki.

23Dag einn datt Móse í hug – þá fertugum – að fara og heimsækja ættmenn sína, Ísraelsmenn. 24Þá sá hann Egypta misþyrma Ísraelsmanni. Hann vildi hefna ódæðisins og drap Egyptann. 25Móse hélt, að Ísraelsmenn skildu að Guð hefði sent hann þeim til hjálpar, en svo var ekki.

26Daginn eftir heimsótti hann þá á ný og sá þá tvo Ísraelsmenn í áflogum. Hann reyndi að stilla til friðar og sagði: „Heyrið mig! Þið eruð bræður og eigið ekki að slást svona. Það er rangt!“

27Sá sem átti upptökin hrinti þá hinum frá sér og spurði: „Hver gerði þig að leiðtoga og dómara yfir okkur? 28Ætlarðu kannski að drepa mig eins og þú drapst Egyptann í gær?“

29Við þessi orð flýði Móse til fjalla og settist að í Midíanslandi. Þar eignaðist hann síðar tvo syni.

30Fjörutíu ár liðu og dag einn var hann staddur í eyðimörkinni við Sínaífjallið. Birtist honum þá engill í eldsloga, sem stóð upp úr runna nokkrum. 31Þegar Móse sá logann, varð hann undrandi og hljóp að runnanum til að kanna málið betur. Þá kallaði Guð til hans og sagði: 32„Ég er Guð feðra þinna – Abrahams, Ísaks og Jakobs.“ Móse varð hræddur og þorði ekki að koma nær.

33Þá sagði Drottinn við hann: „Farðu úr skónum, því að staðurinn, sem þú stendur á, er heilög jörð. 34Ég hef séð neyð þjóðar minnar í Egyptalandi og heyrt hróp hennar. Ég ætla að leysa fólkið úr ánauðinni. Komdu, ég ætla að senda þig til Egyptalands.“

35Þannig sendi Guð þennan mann aftur til þjóðar sinnar, sem áður hafði hafnað honum með þessum orðum: „Hver gerði þig að leiðtoga og dómara yfir okkur?“ Og Móse var sendur til að verða leiðtogi þeirra og lausnarmaður. 36Með mörgum athyglisverðum kraftaverkum leiddi hann Ísraelsmenn burt frá Egyptalandi, yfir Rauðahafið og síðan fram og aftur um eyðimörkina í fjörutíu ár.

37Það var þessi Móse sem sagði við Ísraelsmenn: „Guð mun reisa upp spámann líkan mér á meðal ykkar.“ 38Í eyðimörkinni var Móse milligöngumaðurinn – meðalgangari milli Ísraelsþjóðarinnar og engilsins, sem á Sínaífjalli afhenti þeim lög Guðs – hið lifandi orð.

39En feður okkar höfnuðu Móse og vildu snúa aftur til Egyptalands. 40Þeir sögðu við Aron: „Búðu til goð handa okkur, sem getur flutt okkur til baka, því að við vitum ekki hvað orðið hefur af þessum Móse, sem leiddi okkur burt frá Egyptalandi.“ 41Síðan bjuggu þeir til kálfslíkneski og færðu því fórnir eins og það væri Guð, og þeir glöddust yfir verki sínu.

42Þá sneri Guð sér frá þeim og leyfði þeim að fara sína leið og tilbiðja sólina, tunglið og stjörnurnar. Í spádómsbók Amosar spyr Guð: „Ísraelsmenn, færðuð þið mér fórnirnar þessi fjörutíu ár í eyðimörkinni? 43Nei, hugur ykkar var hjá heiðnu goðunum, hjá Mólok, hjá stjörnuguðnum Refan og öllum hinum skurðgoðunum, sem þið bjugguð til. Því ætla ég að senda ykkur í ánauð austur til Babýlon.“

44Forfeður okkar fluttu helgidóm sinn, tjaldbúðina, með sér á ferðum sínum um eyðimörkina. Í tjaldbúðinni geymdu þeir steintöflurnar, sem boðorðin tíu voru skráð á. Tjaldbúðin var gerð eftir nákvæmri fyrirmynd, sem engillinn sýndi Móse. 45Mörgum árum seinna, þegar Jósúa náði landinu af heiðingjunum, fluttu þeir hana með sér og notuðu fram á daga Davíðs konungs.

46Guð blessaði Davíð ríkulega. Hann bað Guð þess að fá að byggja honum, Guði Jakobs, varanlegt musteri, 47en það verk kom í hlut Salómons. 48En eitt er víst: Guð býr ekki í musterum sem menn hafa byggt. „Himnarnir eru hásæti mitt og jörðin er fótskör mín,“ segir Drottinn með orðum spámannanna, og hann spyr: „Hvers konar hús getið þið byggt handa mér? Mundi ég dvelja þar? 50Var það ekki ég sem skapaði bæði himin og jörð?“

51En þið, þið eruð engu betri en heiðingjarnir, því að þið eruð harðir og ósveigjanlegir! Ætlið þið líka að standa gegn heilögum anda, eins og forfeður ykkar? 52Nefnið mér einhvern spámann, sem forfeður ykkar ofsóttu ekki? Þeir drápu meira að segja þá, sem sögðu fyrir komu hins réttláta – Krists – sem þið svikuð síðan og myrtuð! 53Já, þið fótumtroðið lög Guðs af ásettu ráði, enda þótt þið hafið fengið þau úr höndum engla.“

Stefán grýttur til dauða

54Þegar meðlimir ráðsins heyrðu þessar ásakanir Stefáns, urðu þeir trylltir og gnístu tönnum af reiði. 55En Stefán horfði til himins, fylltur heilögum anda og sá dýrð Guðs og Jesú standa til hægri handar Guði. 56„Sjáið!“ sagði hann, „ég sé himnana opna og Jesú, sem er Kristur, standa við hægri hönd Guðs!“

57Þá æptu þeir til hans ókvæðisorð, gripu fyrir eyrun og yfirgnæfðu hann með hrópum sínum. 58Síðan hröktu þeir hann úr borginni og grýttu hann. Þeir, sem vitni urðu að þessum atburði, eða framkvæmdu aftökuna, fóru úr yfirhöfnum sínum og lögðu þær við fætur ungs manns, sem Páll hét.

59Þegar grjótið dundi á Stefáni bað hann: „Jesús, tak þú við anda mínum.“ 60Hann féll á kné og hrópaði: „Drottinn, fyrirgefðu þeim þessa synd!“ og með þessi orð á vörum, dó hann.

Artistic illustration — an interpretation, not a historical record.

Did you know?

Stephen retells Israel's story

  • Stephen opens his speech with Abraham still in Mesopotamia, before he settled in Haran, when he was told to leave his country and his kindred. Mesopotamia—Hebrew Aram-naharaim, “Syria of the two rivers”—was the name Greeks and Romans gave the region between the Euphrates and the Tigris; the Old Testament also calls it Padan-aram, “the plain of Aram,” and the north of that plateau was the early home of the Hebrews’ ancestors. Easton's Bible Dictionary (1897) notes that this first call is not mentioned in the Old Testament, though Genesis 12 implies it, and that Abraham left Ur in Chaldea and traveled about 300 miles north to Haran.Sources: the Bible text itself · Mesopotamia · Abraham
  • Stephen says the bones of Jacob and the fathers were carried back to Shechem and placed in the tomb Abraham had bought from the sons of Hamor. Easton's Bible Dictionary (1897) identifies Hamor as a Hivite whose name means “he-ass,” notes that Acts 7:16 calls him Emmor, and says Jacob bought from him the plot at Shechem in which Joseph was later buried. The entry adds that Hamor’s son Shechem founded the city that took his name.Sources: the Bible text itself · Hamor
  • Stephen places the burning bush in the desert near Mount Sinai and says Moses received living words there from the angel who spoke to him on the mountain. Easton's Bible Dictionary (1897) treats Sinai—a name linked with Sin, a moon god—as the same mountain district also called Horeb. The entry says the Hebrews reached that region in the third month after the Exodus, after a journey of about 150 miles from the Red Sea, including all the windings of the route, and remained encamped for about a year.Sources: the Bible text itself · Mount Sinai

Notes written with AI assistance from open sources (Theographic Bible Metadata, CC BY-SA 4.0; Easton’s Bible Dictionary, public domain) and reviewed before publishing.

Places in this chapter

  • Haran · Today: Harran · 36.864, 39.033 · verses 2, 4
  • Mesopotamia · Today: Aram-naharaim · 36.864, 39.033 · verse 2
  • Chaldea · 30.962, 46.104 · verse 4
  • Egypt · 30.129, 31.308 · verses 9, 10, 11, 12, 14, 15, 17, 18, 34, 36, 39, 40
  • Canaan · 32.767, 35.333 · verse 11
  • Shechem · Today: Tell Balatah · 32.214, 35.282 · verse 16
  • Nile · Today: Nile River · 31.465, 30.367 · verse 19
  • Midian · 28.495, 35.012 · verse 29
  • Babylon · 32.543, 44.422 · verse 43

Only places identified with high confidence are shown (90% or more according to the scholarly sources compiled by OpenBible). Period map: DARE (Digital Atlas of the Roman Empire), CC BY 4.0; modern map: © OpenStreetMap contributors; places: OpenBible.info (CC BY 4.0).

Credits and license for this translation
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Icelandic: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ (New Testament+)
copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc.
Language: Íslenska (Icelandic)
Contributor: Biblica, Inc.
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
Creative Commons License
Þetta verk er gert aðgengilegt samkvæmt CC BY-SA leyfinu (Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License). Til að skoða afrit af þessu leyfi skaltu fara á https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 eða senda bréf til Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, Bandaríkjunum.
Biblica® er vörumerki skráð af Biblica, Inc., og notkun á Biblica® vörumerkinu krefst skriflegs leyfis Biblica, Inc. Samkvæmt skilmálum CC BY-SA leyfisins geturðu afritað og endurdreift þessu óbreyttu verki svo framarlega sem þú heldur Biblica® vörumerkinu óskertu. Ef þú breytir afriti eða þýðir þetta verk og býrð þannig til afleitt verk, verður þú að fjarlægja Biblica® vörumerkið. Á afleidda verkinu verður þú að tilgreina hvaða breytingar þú hefur gert og eigna verkið á eftirfarandi hátt: "Upprunalega verkið eftir Biblica, Inc. er fáanlegt ókeypis á www.biblica.com og open.bible ."
Tilkynning um höfundarrétt verður að birtast á titla- eða höfundarréttarsíðu verksins sem hér segir:
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
Þú verður einnig að gera afleidda verkið þítt aðgengilegt samkvæmt sama leyfi (CC BY-SA).
Ef þú vilt láta Biblica, Inc. vita um þýðingu þína á þessu verki, vinsamlegast hafðu samband við okkur á https://open.bible/contact .
This work is made available under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License (CC BY-SA). To view a copy of this license, visit https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 or send a letter to Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, USA.
Biblica® is a trademark registered by Biblica, Inc., and use of the Biblica® trademark requires the written permission of Biblica, Inc. Under the terms of the CC BY-SA license, you may copy and redistribute this unmodified work as long as you keep the Biblica® trademark intact. If you modify a copy or translate this work, thereby creating a derivative work, you must remove the Biblica® trademark. On the derivative work, you must indicate what changes you have made and attribute the work as follows: “The original work by Biblica, Inc. is available for free at www.biblica.com and open.bible .”
Notice of copyright must appear on the title or copyright page of the work as follows:
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
You must also make your derivative work available under the same license (CC BY-SA).
If you would like to notify Biblica, Inc. regarding your translation of this work, please contact us at https://open.bible/contact .
This translation is made available to you under the terms of the
Creative Commons Attribution Share-Alike license 4.0.
You have permission to share and redistribute this Bible translation in any format and to make reasonable revisions and adaptations of this translation, provided that:
You include the above copyright and source information.
If you make any changes to the text, you must indicate that you did so in a way that makes it clear that the original licensor is not necessarily endorsing your changes.
If you redistribute this text, you must distribute your contributions under the same license as the original.
Pictures included with Scriptures and other documents on this site are licensed just for use with those Scriptures and documents.
For other uses, please contact the respective copyright owners.
Note that in addition to the rules above, revising and adapting God's Word involves a great responsibility to be true to God's Word. See Revelation 22:18-19.
2025-05-03

Source: http://ebible.org/isl/ · eBible.org

Talk to us

Tell us where you read from, how the Bible has helped you, or what we could improve. We read every message.