2 Peter 2
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ · Tap a verse to see its cross-references.
Falsspámenn – og svarið við þeim
1Falsspámenn komu einnig fram í þá daga og hið sama mun gerast hjá ykkur. Þeir munu beita kænsku við að breiða út lygi um Guð. Þeir munu jafnvel ganga svo langt að afneita Drottni sínum, sem frelsaði þá, og þegar svo er komið eru afdrif þeirra augljós: Bráð glötun. 2Margir munu aðhyllast villukenningar þeirra og þeir munu fá fólk til að hlæja að Kristi og kenningum hans.
3Þessir fræðarar munu segja ykkur allt sem þeim dettur í hug, til þess eins að græða á ykkur og komast yfir peningana ykkar. Langt er síðan Guð fordæmdi slíka menn og nú bíður þeirra ekkert nema glötun. 4Ekki hlífði Guð englunum sem syndguðu, heldur varpaði hann þeim niður til heljar, þar sem þeir bíða dómsdags, læstir inni í dimmum og drungalegum hellum. 5Ekki hlífði hann heldur fólkinu sem lifði fyrr á öldum, á dögum flóðsins, að Nóa undanskildum, manninum sem játaði trú sína á Guð ásamt sjö öðrum í fjölskyldu sinni. Í þessu gífurlega flóði eyddi Guð hinum óguðlega heimi.
6Síðar gerði hann borgirnar Sódómu og Gómorru að rjúkandi rúst. Hann þurrkaði þær út af yfirborði jarðarinnar og setti þær sem víti til varnaðar, öllum óguðlegum mönnum framtíðarinnar, svo að þeir mættu minnast þeirra og skelfast.
7En á sama tíma bjargaði Drottinn Lot út úr Sódómu, vegna þess að hann var góður maður. Öll sú hræðilega illska, sem Lot varð vitni að dag eftir dag, olli honum sárri kvöl. 9Fyrst Drottinn gat bjargað Lot, þá getur hann einnig bjargað þér og mér út úr þeim freistingum sem umkringja okkur, og hann getur einnig refsað hinum óguðlegu, allt til þess dags er lokadómurinn verður kveðinn upp. 10Drottinn mun kveða upp þungan dóm yfir þeim sem láta leiðast af girnd sinni og illum hugsunum; einnig þeim sem eru stoltir og einþykkir og dirfast að hæðast að dýrð hans. 11Þetta gera þessir falskennendur enda þótt englarnir, sem standa frammi fyrir Drottni á himnum – og eru þeir miklu æðri að tign og mætti – fari aldrei niðrandi orðum um þessi illu máttarvöld.
12Þessir falskennendur eru heimskir. Þeir eru engu betri en dýrin, sem aðeins láta stjórnast af hvötum sínum og eru fædd til þess eins að verða slátrað. Þeir hlæja að hinum voldugu, sem þeir þekkja ekki hót. Slíkir menn munu fá það sem þeir eiga skilið fyrir illverk sín – glötun.
13Það verða launin sem þeir munu fá fyrir syndir sínar, því að þeir eru munaðarseggir sem sækjast stöðugt eftir því sem illt er. Þeir eru til skammar og svívirðingar á meðal ykkar. Þeir draga ykkur á tálar, því að bæði lifa þeir í viðbjóðslegri synd og svo taka þeir þátt í kærleiksmáltíðum ykkar eins og allt væri í besta lagi. 14Engin kona kemst hjá syndsamlegum augnagotum þeirra og af hórdómi fá þeir aldrei nóg. Þeir leika sér að því að tæla óstöðugar konur og æsa þar með upp í sér girndina – bölvun dómsins bíður þeirra. 15Þeir hafa yfirgefið hinn rétta veg og villst eins og Bíleam, sonur Beórs, sem elskaði rangfenginn gróða. 16En Bíleam var stöðvaður á villubraut sinni, er asninn hans tók að tala við hann mannamál og ávíta hann.
17Þessir menn eru eins og lindir sem þornað hafa upp. Þeir lofuðu góðu, en svo brugðust þeir. Þeir eru eins og ský sem hrekjast fyrir vindi. Þeir eru dæmdir til að falla í hin eilífu hyldýpi myrkursins. 18Þeir hrósa sér fjálglega af syndum sínum og árangri í kvennamálum og nota girnd sína sem beitu til að draga þá, sem nýsloppnir eru úr slíku spillingarfeni, aftur út í syndina.
19Þeir segja: „Fagnaðarerindið gefur þér rétt til að gera hvað sem þig langar til. Vertu frjáls!“
Fræðarar, sem bjóða slíkt „frelsi“ frá boðorðunum, eru sjálfir þrælar syndar og spillingar. Sérhver maður er þræll þess sem hefur vald yfir honum. 20Sá sem hefur sloppið úr greipum hins illa í þessum heimi, með því að kynnast Drottni okkar og frelsara Jesú Kristi, en flækist síðan aftur í neti syndarinnar og verður þræll hennar að nýju, er verr staddur en áður en hann varð kristinn. 21Betra hefði verið fyrir hann að kynnast aldrei Kristi, en að kynnast honum og snúa síðan bakinu við hinum heilögu boðorðum, sem honum voru gefin. 22Gamall málsháttur hljóðar svo: „Hundur snýr aftur til spýju sinnar og þvegið svín veltir sér í saur.“ Þannig fer fyrir þeim sem snúa sér aftur að syndinni.

Did you know?
False Teachers and Past Judgments
- 2 Peter points to Sodom and Gomorrah, reduced to ashes, as an example of what is coming on the ungodly. Easton's Bible Dictionary (1897) describes Sodom as a walled city in the vale of Siddim, destroyed by fire from heaven, and Gomorrah as one of five cities of that plain, always named next after Sodom. It says those cities probably stood close together near the northern end of what is now the Dead Sea, and that no trace of Sodom or the other cities of the plain has been found.Sources: the Bible text itself · Sodom · Gomorrah
- The chapter says these false teachers left the straight way to follow Balaam son of Beor, who loved the wages of wickedness and was rebuked by a donkey, otherwise without speech, that spoke with a human voice. Easton's Bible Dictionary describes Balaam as a man of some rank among the Midianites who lived at Pethor in Mesopotamia; though he dwelt among idolaters, he had some knowledge of the true God, and Balak sent for him to curse Israel. The same dictionary notes that Beor, Balaam's father, is called Bosor in 2 Peter 2:15.Sources: the Bible text itself · Balaam · Beor
- 2 Peter calls Noah a preacher of righteousness and says he was preserved among eight people when the flood came on the ungodly of the ancient world. Easton's Bible Dictionary identifies him as the son of Lamech and the grandson of Methuselah, and describes him as a link between the old world and the new and as the second great progenitor of the human family. It records that he lived five hundred years before his three sons, Shem, Ham, and Japheth, were born.Sources: the Bible text itself · Noah
Notes written with AI assistance from open sources (Theographic Bible Metadata, CC BY-SA 4.0; Easton’s Bible Dictionary, public domain) and reviewed before publishing.
Credits and license for this translation
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Icelandic: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ (New Testament+) copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc. Language: Íslenska (Icelandic) Contributor: Biblica, Inc. Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. Creative Commons License Þetta verk er gert aðgengilegt samkvæmt CC BY-SA leyfinu (Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License). Til að skoða afrit af þessu leyfi skaltu fara á https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 eða senda bréf til Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, Bandaríkjunum. Biblica® er vörumerki skráð af Biblica, Inc., og notkun á Biblica® vörumerkinu krefst skriflegs leyfis Biblica, Inc. Samkvæmt skilmálum CC BY-SA leyfisins geturðu afritað og endurdreift þessu óbreyttu verki svo framarlega sem þú heldur Biblica® vörumerkinu óskertu. Ef þú breytir afriti eða þýðir þetta verk og býrð þannig til afleitt verk, verður þú að fjarlægja Biblica® vörumerkið. Á afleidda verkinu verður þú að tilgreina hvaða breytingar þú hefur gert og eigna verkið á eftirfarandi hátt: "Upprunalega verkið eftir Biblica, Inc. er fáanlegt ókeypis á www.biblica.com og open.bible ." Tilkynning um höfundarrétt verður að birtast á titla- eða höfundarréttarsíðu verksins sem hér segir: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. Þú verður einnig að gera afleidda verkið þítt aðgengilegt samkvæmt sama leyfi (CC BY-SA). Ef þú vilt láta Biblica, Inc. vita um þýðingu þína á þessu verki, vinsamlegast hafðu samband við okkur á https://open.bible/contact . This work is made available under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License (CC BY-SA). To view a copy of this license, visit https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 or send a letter to Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, USA. Biblica® is a trademark registered by Biblica, Inc., and use of the Biblica® trademark requires the written permission of Biblica, Inc. Under the terms of the CC BY-SA license, you may copy and redistribute this unmodified work as long as you keep the Biblica® trademark intact. If you modify a copy or translate this work, thereby creating a derivative work, you must remove the Biblica® trademark. On the derivative work, you must indicate what changes you have made and attribute the work as follows: “The original work by Biblica, Inc. is available for free at www.biblica.com and open.bible .” Notice of copyright must appear on the title or copyright page of the work as follows: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. You must also make your derivative work available under the same license (CC BY-SA). If you would like to notify Biblica, Inc. regarding your translation of this work, please contact us at https://open.bible/contact . This translation is made available to you under the terms of the Creative Commons Attribution Share-Alike license 4.0. You have permission to share and redistribute this Bible translation in any format and to make reasonable revisions and adaptations of this translation, provided that: You include the above copyright and source information. If you make any changes to the text, you must indicate that you did so in a way that makes it clear that the original licensor is not necessarily endorsing your changes. If you redistribute this text, you must distribute your contributions under the same license as the original. Pictures included with Scriptures and other documents on this site are licensed just for use with those Scriptures and documents. For other uses, please contact the respective copyright owners. Note that in addition to the rules above, revising and adapting God's Word involves a great responsibility to be true to God's Word. See Revelation 22:18-19. 2025-05-03
Source: http://ebible.org/isl/ · eBible.org