1 Timothy 5
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ · Tap a verse to see its cross-references.
1Gættu þess að ávíta aldrei roskinn mann harðlega en fræddu hann með hógværð og virðingu, eins og hann væri faðir þinn. Unga menn skaltu áminna sem elskaða bræður, 2aldraðar konur sem mæður, stúlkur sem systur og gættu þess að hugur þinn sé hreinn gagnvart þeim.
3Ef ekkjur hafa engan til að sjá fyrir sér, þá á söfnuðurinn að sýna þeim kærleika og annast þær. 4Ef þær hins vegar eiga börn eða barnabörn, þá ber þeim skylda til að annast þær. Því að kærleikurinn á að eiga upphaf sitt á heimilunum og birtast í aðstoð við foreldrana, það er vilji Guðs.
5Söfnuðurinn á að annast fátækar ekkjur, sem engan eiga að, sem treysta Guði og lifa bænalífi. 6Hins vegar ber söfnuðinum ekki skylda til þess, ef þær nota tíma sinn til að rápa um og segja slúðursögur, sjálfum sér til gamans en jafnframt til tjóns. 7Þetta skaltu hafa fyrir reglu í söfnuði þínum, og í kirkju Krists yfirleitt, svo að menn viti hvað rétt er og fari eftir því.
8Ef einhver neitar að hjálpa ættingjum sínum sem eru hjálpar þurfi, og þá sérstaklega ef um fjölskyldumeðlimi hans er að ræða, þá hefur hann engan rétt á að kalla sig kristinn. Slíkur maður er verri en heiðingi!
9Ekkja sem óskar eftir að vera á framfæri safnaðarins verður að minnsta kosti að hafa náð sextugsaldri og hafa aðeins verið gift einu sinni. 10Hún verður að hafa gott orð á sér meðal fólks vegna góðra verka. Hefur hún alið börnin sín vel upp, verið gestrisin og þjónað trúsystkinum sínum? Hefur hún hjúkrað slösuðum og sjúkum, verið vingjarnleg og hjálpfús?
11Ungar ekkjur ætti ekki að taka í þennan sérstaka hóp, því að þær munu líklega áður en langt um líður, gifta sig á ný 12og rjúfa þannig heitið sem þær gáfu Kristi. 13Þær munu venja sig á iðjuleysi og rápa milli húsa til að segja nýjustu „söguna“ og hnýsast í einkamál annarra. 14Ég álít því að betra sé fyrir þessar ungu ekkjur að gifta sig á ný, eignast börn og hugsa um sitt eigið heimili, því að þá mun enginn hafa ástæðu til að klaga þær fyrir neitt. 15Þetta segi ég, því ég er hræddur um að þær hafi nú þegar villst burt frá söfnuðinum og látið Satan leiða sig afvega.
16Ég minni þig aftur á að ættingjum ber sjálfum að annast þær ekkjur, sem þeim eru skyldar, en ekki að koma því yfir á söfnuðinn. Söfnuðurinn á að geta notað eigið fé til að aðstoða ekkjur, sem eru raunverulegir einstæðingar og eiga hvergi höfði sínu að að halla.
Gerið vel við prestana
17Prestar og forstöðumenn sem vinna störf sín vel, skulu hafðir í miklum metum og fá þau laun sem þeir þurfa, sérstaklega þeir sem leggja hart að sér við predikun og uppfræðslu. 18Um þetta segir Biblían: „Bittu ekki fyrir munninn á uxanum meðan hann þreskir kornið, heldur leyfðu honum að éta meðan hann vinnur.“ Og á öðrum stað: „Verður er verkamaður launa sinna.“
19Taktu ekki mark á því þótt einhver kvarti út af safnaðarleiðtoganum, nema þá að aðrir tveir eða þrír beri einnig vitni gegn honum. 20Og hafi hann syndgað í raun og veru, þá skal hann ávítaður frammi fyrir öllum söfnuðinum, svo að enginn fari að dæmi hans.
21Ég brýni alvarlega fyrir þér, og það frammi fyrir augliti Guðs og Drottins Jesú Krists og heilagra engla, að fara eftir þessu, hvort sem viðkomandi leiðtogi er sérstakur vinur þinn eða ekki. Hér verður eitt yfir alla að ganga. 22Flýttu þér aldrei að velja prest eða safnaðarleiðtoga, því að vera kann að þú þekkir ekki syndir hans og þá gætu menn haldið að þú takir þær ekki svo alvarlega. Gættu þess vandlega að þú flækist ekki í syndir annarra. 23Drekktu ekki einungis vatn, heldur líka dálítið af víni, því það mun hafa góð áhrif á meltinguna hjá þér.
24Mundu að sumir menn lifa syndugu lífi, og það í allra augsýn en sumar syndir sjást ekki og dómsdagurinn einn mun leiða þær í ljós. 25Á sama hátt eru sum góðverk augljós, en um önnur veit enginn fyrr en löngu síðar.

Did you know?
Caring for Widows and Honoring Elders
- This chapter separates widows who are truly alone from those who still have children or grandchildren to care for them. A widow was to be enrolled only if she was at least sixty, had been the wife of one man, and was known for good deeds such as bringing up children, welcoming strangers, washing the feet of the saints, and helping the afflicted. Younger widows were not to be enrolled; they were advised to marry, have children, and manage their households.Sources: the Bible text itself
- The advice to younger widows is meant to deny the adversary any occasion for slander, and the chapter notes that some have already turned aside to follow Satan. Satan’s name means adversary or accuser, and in the New Testament it is used interchangeably with Diabolos, or the devil, more than thirty times.Sources: the Bible text itself · Satan
- Elders who lead well are called worthy of double honor, especially those who work hard at preaching and teaching. The chapter supports that with two sayings: an ox should not be muzzled while treading out the grain, and the worker is worthy of his wages. An accusation against an elder was not to be received except on the testimony of two or three witnesses.Sources: the Bible text itself
Notes written with AI assistance from open sources (Theographic Bible Metadata, CC BY-SA 4.0; Easton’s Bible Dictionary, public domain) and reviewed before publishing.
Credits and license for this translation
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Icelandic: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ (New Testament+) copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc. Language: Íslenska (Icelandic) Contributor: Biblica, Inc. Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. Creative Commons License Þetta verk er gert aðgengilegt samkvæmt CC BY-SA leyfinu (Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License). Til að skoða afrit af þessu leyfi skaltu fara á https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 eða senda bréf til Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, Bandaríkjunum. Biblica® er vörumerki skráð af Biblica, Inc., og notkun á Biblica® vörumerkinu krefst skriflegs leyfis Biblica, Inc. Samkvæmt skilmálum CC BY-SA leyfisins geturðu afritað og endurdreift þessu óbreyttu verki svo framarlega sem þú heldur Biblica® vörumerkinu óskertu. Ef þú breytir afriti eða þýðir þetta verk og býrð þannig til afleitt verk, verður þú að fjarlægja Biblica® vörumerkið. Á afleidda verkinu verður þú að tilgreina hvaða breytingar þú hefur gert og eigna verkið á eftirfarandi hátt: "Upprunalega verkið eftir Biblica, Inc. er fáanlegt ókeypis á www.biblica.com og open.bible ." Tilkynning um höfundarrétt verður að birtast á titla- eða höfundarréttarsíðu verksins sem hér segir: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. Þú verður einnig að gera afleidda verkið þítt aðgengilegt samkvæmt sama leyfi (CC BY-SA). Ef þú vilt láta Biblica, Inc. vita um þýðingu þína á þessu verki, vinsamlegast hafðu samband við okkur á https://open.bible/contact . This work is made available under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License (CC BY-SA). To view a copy of this license, visit https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 or send a letter to Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, USA. Biblica® is a trademark registered by Biblica, Inc., and use of the Biblica® trademark requires the written permission of Biblica, Inc. Under the terms of the CC BY-SA license, you may copy and redistribute this unmodified work as long as you keep the Biblica® trademark intact. If you modify a copy or translate this work, thereby creating a derivative work, you must remove the Biblica® trademark. On the derivative work, you must indicate what changes you have made and attribute the work as follows: “The original work by Biblica, Inc. is available for free at www.biblica.com and open.bible .” Notice of copyright must appear on the title or copyright page of the work as follows: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. You must also make your derivative work available under the same license (CC BY-SA). If you would like to notify Biblica, Inc. regarding your translation of this work, please contact us at https://open.bible/contact . This translation is made available to you under the terms of the Creative Commons Attribution Share-Alike license 4.0. You have permission to share and redistribute this Bible translation in any format and to make reasonable revisions and adaptations of this translation, provided that: You include the above copyright and source information. If you make any changes to the text, you must indicate that you did so in a way that makes it clear that the original licensor is not necessarily endorsing your changes. If you redistribute this text, you must distribute your contributions under the same license as the original. Pictures included with Scriptures and other documents on this site are licensed just for use with those Scriptures and documents. For other uses, please contact the respective copyright owners. Note that in addition to the rules above, revising and adapting God's Word involves a great responsibility to be true to God's Word. See Revelation 22:18-19. 2025-05-03
Source: http://ebible.org/isl/ · eBible.org