Nations Bible

1 Peter 3

Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ · Tap a verse to see its cross-references.

Reglur fyrir hamingjusamt heimili

1Eiginkonur, hlýðið eiginmönnum ykkar. Það skuluð þið gera, jafnvel þótt þeir láti sér fátt um finnast þegar þið segið þeim frá Drottni, 2því að síðar meir kunna þeir að ávinnast vegna vandaðs lífernis ykkar.

3Hugsið ekki of mikið um skartgripi, hárgreiðslu og glæsileg föt. 4Fegurð ykkar á að vera innri fegurð hjartans, en hún birtist í hógværri og blíðri lund, sem er dýrmæt í augum Guðs. 5Það var slík fegurð sem einkenndi heilagar konur fyrri alda. Þær treystu Guði og hlýddu eiginmönnum sínum.

6Sara er dæmi um slíka konu. Hún hlýddi eiginmanni sínum Abraham og bar virðingu fyrir honum sem húsbónda heimilisins. Ef þið farið eins að, fetið þið í fótspor hennar eins og þið væruð dætur hennar og gerið það sem rétt er. Þá eigið þið ekki á hættu að reita menn ykkar til reiði.

7Eiginmenn, hugsið vel um konur ykkar! Sjáið þeim fyrir þörfum þeirra og berið virðingu fyrir þeim sem hinu veikara kyni. Munið að þið og konur ykkar meðtakið sameiginlega blessun Guðs. Ef þið komið fram við þær öðruvísi en ykkur ber, er hætt við að bænir ykkar beri engan árangur.

8Hér eru svo nokkur orð til ykkar allra: Verið sem ein stór og hamingjusöm fjölskylda. Sýnið hvert öðru fyllstu tillitssemi, elskið hvert annað af öllu hjarta og verið auðmjúk. 9Gjaldið ekki illt fyrir illt. Svarið ekki í sömu mynt, ef hreytt er í ykkur ónotum, biðjið heldur Guð að hjálpa þeim sem í hlut á, því að við eigum að vera góð við aðra og þá mun Guð blessa okkur.

10Gætið tungu ykkar, ef þið viljið lifa hamingjusömu og góðu lífi, og forðist öll ósannindi. 11Forðist hið illa, en leggið stund á hið góða. Ástundið frið og kappkostið að varðveita hann, svo að þið missið ekki af honum! 12Drottinn verndar börnin sín og hlustar á bænir þeirra, en hann snýr augliti sínu frá þeim sem illt gera.

13Hver mun gera ykkur illt, ef þið leggið ykkur fram um að gera gott? 14Jafnvel þótt ykkur sé gert illt eruð þið gæfusöm, því að Guð mun launa ykkur. 15Takið öllu með ró og stillingu og treystið Drottni, Jesú Kristi. Ef einhver spyr ykkur hvers vegna þið gerið það, verið þá reiðubúin að svara með hógværð og sýnið virðingu þeim sem spyr.

16Gerið það sem rétt er, en tali menn illa um ykkur þrátt fyrir það og kalli ykkur illum nöfnum, þá verða þeir aðeins sjálfum sér til minnkunar fyrir slíkt, því að þið hafið ekkert rangt aðhafst. 17Munið að ætli Guð ykkur að þjást, er betra að líða fyrir að hafa gert rétt, heldur en rangt!

Gildi þjáningarinnar

18Kristur varð einnig að þjást. Hann dó eitt sinn fyrir syndir okkar allra. Sjálfur var hann algjörlega saklaus og hafði aldrei drýgt neina synd, en hann dó eigi að síður fyrir okkur, seka syndarana, svo að hann gæti leitt okkur heilu og höldnu heim til Guðs. Líkami Jesú dó, en andi hans lifði áfram. 19Þannig fór hann til andanna sem voru í varðhaldi, og predikaði fyrir þeim. 20Þetta voru andar þeirra, sem fyrir löngu – á dögum Nóa – höfðu óhlýðnast Guði, enda þótt hann biði þeirra með mikilli þolinmæði meðan Nói var að smíða örkina. Í örkinni björguðust síðan aðeins átta manns úr flóðinu hræðilega. 21Þetta er einmitt fyrirmynd skírnarinnar, sem nú frelsar ykkur. Í skírninni sýnum við fram á frelsi okkar frá dauða og dómi fyrir upprisu Krists, ekki vegna þess að við höfum þvegið af okkur óhreinindi í vatninu, heldur snúum við okkur í henni til Guðs og biðjum hann um að hreinsa hjörtu okkar af syndinni. 22Nú er Kristur á himnum og situr þar í heiðurssæti við hlið Guðs föður og allir englar og kraftar himnanna lúta honum og hlýða.

Artistic illustration — an interpretation, not a historical record.

Did you know?

Conduct, Suffering, and Hope

  • In 1 Peter 3, the letter recalls the holy women of the past who put their hope in God and were submissive to their husbands, and it names Sarah, who obeyed Abraham and called him lord. It tells them they are her children if they do what is right and refuse to give way to fear. Easton's Bible Dictionary (1897) says that Sarah means “Princess,” and that this name was given when it was announced that she would be the mother of the promised child.Sources: the Bible text itself · Sarah
  • Abraham, the husband whom Sarah obeyed and called lord, is described by Easton's Bible Dictionary (1897) as “Father of a multitude.” The same entry calls him the son of Terah and the heir of the promises.Sources: the Bible text itself · Abraham
  • The chapter also looks back to the days of Noah, when God waited patiently while the ark was being built and only eight souls were saved through water; the letter says that this water symbolizes baptism. Easton's Bible Dictionary (1897) gives Noah’s name as meaning “Rest” and names his three sons as Shem, Ham, and Japheth.Sources: the Bible text itself · Noah

Notes written with AI assistance from open sources (Theographic Bible Metadata, CC BY-SA 4.0; Easton’s Bible Dictionary, public domain) and reviewed before publishing.

Credits and license for this translation
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Icelandic: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ (New Testament+)
copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc.
Language: Íslenska (Icelandic)
Contributor: Biblica, Inc.
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
Creative Commons License
Þetta verk er gert aðgengilegt samkvæmt CC BY-SA leyfinu (Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License). Til að skoða afrit af þessu leyfi skaltu fara á https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 eða senda bréf til Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, Bandaríkjunum.
Biblica® er vörumerki skráð af Biblica, Inc., og notkun á Biblica® vörumerkinu krefst skriflegs leyfis Biblica, Inc. Samkvæmt skilmálum CC BY-SA leyfisins geturðu afritað og endurdreift þessu óbreyttu verki svo framarlega sem þú heldur Biblica® vörumerkinu óskertu. Ef þú breytir afriti eða þýðir þetta verk og býrð þannig til afleitt verk, verður þú að fjarlægja Biblica® vörumerkið. Á afleidda verkinu verður þú að tilgreina hvaða breytingar þú hefur gert og eigna verkið á eftirfarandi hátt: "Upprunalega verkið eftir Biblica, Inc. er fáanlegt ókeypis á www.biblica.com og open.bible ."
Tilkynning um höfundarrétt verður að birtast á titla- eða höfundarréttarsíðu verksins sem hér segir:
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
Þú verður einnig að gera afleidda verkið þítt aðgengilegt samkvæmt sama leyfi (CC BY-SA).
Ef þú vilt láta Biblica, Inc. vita um þýðingu þína á þessu verki, vinsamlegast hafðu samband við okkur á https://open.bible/contact .
This work is made available under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License (CC BY-SA). To view a copy of this license, visit https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 or send a letter to Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, USA.
Biblica® is a trademark registered by Biblica, Inc., and use of the Biblica® trademark requires the written permission of Biblica, Inc. Under the terms of the CC BY-SA license, you may copy and redistribute this unmodified work as long as you keep the Biblica® trademark intact. If you modify a copy or translate this work, thereby creating a derivative work, you must remove the Biblica® trademark. On the derivative work, you must indicate what changes you have made and attribute the work as follows: “The original work by Biblica, Inc. is available for free at www.biblica.com and open.bible .”
Notice of copyright must appear on the title or copyright page of the work as follows:
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
You must also make your derivative work available under the same license (CC BY-SA).
If you would like to notify Biblica, Inc. regarding your translation of this work, please contact us at https://open.bible/contact .
This translation is made available to you under the terms of the
Creative Commons Attribution Share-Alike license 4.0.
You have permission to share and redistribute this Bible translation in any format and to make reasonable revisions and adaptations of this translation, provided that:
You include the above copyright and source information.
If you make any changes to the text, you must indicate that you did so in a way that makes it clear that the original licensor is not necessarily endorsing your changes.
If you redistribute this text, you must distribute your contributions under the same license as the original.
Pictures included with Scriptures and other documents on this site are licensed just for use with those Scriptures and documents.
For other uses, please contact the respective copyright owners.
Note that in addition to the rules above, revising and adapting God's Word involves a great responsibility to be true to God's Word. See Revelation 22:18-19.
2025-05-03

Source: http://ebible.org/isl/ · eBible.org

Talk to us

Tell us where you read from, how the Bible has helped you, or what we could improve. We read every message.