Nations Bible

1 Corinthians 7

Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ · Tap a verse to see its cross-references.

Spurningar um hjónabandið

1Svo við víkjum nú að spurningum ykkar, þá er svar mitt það, að það sé gott að vera ógiftur. 2Að öllu jöfnu er þó best að vera giftur og hver maður hafi sína konu og hver kona sinn mann, svo að þið leiðist ekki í synd.

3Karlmaðurinn á að veita konu sinni það sem henni ber og konan manninum. 4Stúlka sem giftist hefur ekki lengur fullan rétt yfir eigin líkama, því eiginmaður hennar hefur einnig sinn rétt til hans. Á sama hátt hefur eiginmaðurinn ekki lengur fullt vald yfir sínum líkama, því að hann tilheyrir konu hans. 5Samkvæmt þessu skulu hjón ekki neita hvort öðru um rétt hins, nema þau séu sammála um það stuttan tíma, til að geta helgað sig bæninni. Síðan ættu þau að koma saman á ný, svo að Satan freisti þeirra ekki vegna veikleika þeirra.

6Ég er ekki að segja að það sé skylda að giftast, en þið megið það vissulega ef þið óskið. 7Sjálfur vildi ég að allir gætu lifað ógiftir eins og ég, en við erum ekki öll eins. Guð gefur sumum að giftast og öðrum að geta lifað ógiftum. 8Því segi ég við þá sem ógiftir eru og ekkjumenn, betra væri að vera ógiftur eins og ég er. 9En ef þið getið ekki haft fullt vald á sjálfum ykkur, þá skuluð þið giftast, því að betra er að giftast en brenna af girnd.

10En ég hef ekki aðeins ábendingar til þeirra sem giftir eru, heldur einnig fyrirmæli. Og það eru ekki bara fyrirmæli frá mér, heldur sjálfum Drottni: Eiginkona má ekki skilja við mann sinn. 11En hafi hún skilið við hann, þá á hún að vera áfram ógift eða fara til hans aftur. Eiginmaður má ekki heldur skilja við konu sína.

12Við þetta hef ég nokkrum atriðum að bæta; það eru að vísu ekki bein fyrirmæli Drottins, en mér virðist þau samt eiga rétt á sér. Ef kristinn maður á konu, sem ekki er kristin, en vill þó búa með honum, þá má hann ekki skilja við hana eða fara frá henni. 13Og ef kristin kona er gift manni, sem ekki er kristinn og hann vill að hún búi með honum, þá má hún ekki skilja við hann. 14Hinn trúlausi maður færist nær Guði vegna kristinnar konu sinnar og trúlaus kona færist nær Guði vegna kristins eiginmanns. Ef svo væri ekki, teldust börn ykkar yfirleitt trúlaus, en nú eru þau álitin heilög – frátekin Guði til handa.

15En ef sá aðilinn, sem ekki er kristinn, vill skilja, þá er það leyfilegt. Í þeim tilvikum ætti kristinn eiginmaður eða kona ekki að standa fast gegn skilnaði, því að Guð vill að við börnin hans lifum í sátt og samlyndi. 16Konur, þegar allt kemur til alls, er engin trygging fyrir því að menn ykkar taki trú, og sama er að segja um konur ykkar, eiginmenn.

17En ef þið ákveðið þessa hluti, verið þá viss um að þið lifið eins og Guð hefur ætlast til, gift eða ógift, í samræmi við leiðsögn og hjálp Guðs og sættið ykkur við þær aðstæður sem Guð hefur leitt ykkur í. Þetta eru fyrirmæli mín í allri kirkjunni.

18Hafi til dæmis einhver látið umskerast samkvæmt siðum Gyðinga, áður en hann tók kristna trú, þá ætti hann ekki að láta það ónáða sig. Hafi hins vegar einhver látið hjá líða að umskerast, þá skyldi hann ekki gera það nú. 19Það skiptir alls engu máli hvort kristinn maður hefur fylgt þessari siðvenju eða ekki, það sem skiptir öllu máli er að hann þóknist Guði og haldi boðorð hans. Það er mikilvægast.

20Að öllu jöfnu ætti maður að halda sig við það starf sem hann hafði þegar Guð kallaði hann. 21Sértu þræll, þá sættu þig við það – en hafirðu tækifæri til að verða frjáls þá skaltu auðvitað notfæra þér það. 22Ef þú ert þræll þegar Drottinn kallar þig, skaltu muna að Kristur hefur frelsað þig frá fjötrum syndarinnar. Hafir þú hins vegar verið frjáls þegar Kristur kallaði þig, skaltu minnast að nú ert þú þræll Krists. 23Kristur hefur keypt ykkur dýru verði, svo þið eruð hans eign – verið því frjáls frá öllu jarðnesku stolti og ótta. 24Sem sagt, kæru vinir, sérhver kristinn maður ætti að vera kyrr í þeirri stöðu sem hann var í, þegar hann tók trú, því að nú er Drottinn þar hjá honum til hjálpar.

25Nú vil ég svara hinni spurningunni. Hvað um stúlkur sem enn eru ógiftar? Ættu þær að giftast? Sem svar við þeirri spurningu hef ég enga skipun frá Drottni. En af miskunn sinni hefur Drottinn veitt mér að vera trúr sínu heilaga orði og ég skal með gleði segja ykkur álit mitt.

26Sem stendur, horfumst við kristnir menn í augu við mikla hættu og því tel ég vera best að lifa ógiftur á tímum sem þessum. 27Ef þið eruð þegar gift, þá skuluð þið auðvitað alls ekki skilja, en sért þú ekki í hjónabandi, skaltu ekki flana að neinu eins og nú standa sakir. 28Ef þið karlmenn ákveðið að ganga í hjónaband þrátt fyrir allt, er það meinalaust og þótt stúlka giftist á hættutímum sem þessum, er það vissulega engin synd. En hjónaband mun hafa í för með sér ýmis vandamál, sem ég vildi forða ykkur frá.

29Munið umfram allt að við höfum nauman tíma (og tækifærum til að vinna verk Drottins fækkar). Giftir menn ættu því að vera eins frjálsir og unnt er til að vinna verk Drottins. 30Hvorki sorg, gleði né auður ættu að hindra neinn í starfi fyrir Drottin. 31Þeir sem umgangast gæði þessa heims og notfæra sér þau í ríkum mæli, ættu að umgangast þau með það í huga að heimurinn í sinni núverandi mynd, mun líða undir lok.

32Verið þó áhyggjulaus með öllu. Ókvæntur maður getur nýtt tíma sinn til að vinna verk Drottins og reynt að þóknast honum. 33Kvæntur maður á ekki eins auðvelt með það, hann verður að hugsa um jarðneska ábyrgð sína og hvernig hann geti þóknast konu sinni. 34Áhugamálum hans er skipt. Sama er að segja um stúlku sem giftist. Hún verður að horfast í augu við sama vanda. Gift stúlka leggur sig fram um að þóknast Drottni í öllu sem hún er og gerir. Gift kona verður hins vegar að taka tillit til annarra hluta, svo sem húshalds og að þóknast manni sínum.

35Þetta segi ég ekki til að ráða ykkur frá hjónabandi, heldur til að hjálpa ykkur. Ég vil að þið gerið það eitt sem auðveldar ykkur að þjóna Drottni sem best og að sem fæst dreifi athyglinni frá honum.

36En finnist einhverjum að hann ætti að giftast vegna þess að hann á í erfiðleikum með að hemja hvatir sínar, þá er rétt að hann giftist, slíkt væri engin synd. 37Haldi maður það hins vegar út að vera ógiftur, þá hefur hann tekið skynsamlega ákvörðun. 38Þannig gerir sá vel sem giftist, þótt sá sem ekki giftist geri jafnvel enn betur.

39Kona er bundin eiginmanni sínum svo lengi sem hann lifir, en deyi hann, má hún giftast á ný, þó aðeins kristnum manni. 40Hún yrði þó hamingjusamari að mínu áliti, ef hún giftist ekki og ég tel að ég flytji ykkur ráð heilags anda er ég segi þetta.

Artistic illustration — an interpretation, not a historical record.

Did you know?

Counsel on marriage and the present crisis

  • The chapter opens as a reply to matters the readers had written about. The writer says it is good to abstain from sexual relations, yet, because there is so much sexual immorality, each man should have his own wife and each woman her own husband. He presents this as a concession, not as a command, and says that each person has their own gift from God.Sources: the Bible text itself
  • In marriage, the writer says the wife does not have authority over her own body, but the husband does, and likewise the husband does not have authority over his own body, but the wife does. They should not deprive each other except by mutual consent and for a time, so they may devote themselves to prayer, and then come together again, so that Satan will not tempt them through lack of self-control. Easton's Bible Dictionary (1897) presents the name Satan as “adversary” or “accuser,” and notes that he tempted Jesus in the wilderness.Sources: the Bible text itself · Satan
  • The writer distinguishes a command he attributes to the Lord—a wife must not separate from her husband, and a husband must not divorce his wife—from his own judgment where he says he, not the Lord, is speaking, including marriages with an unbeliever and questions about virgins. Because of what he calls the present crisis, and because he says the time is short and this world in its present form is passing away, he thinks it good to remain as one is. He adds that to marry is not to sin, though those who marry will face troubles in this life.Sources: the Bible text itself

Notes written with AI assistance from open sources (Theographic Bible Metadata, CC BY-SA 4.0; Easton’s Bible Dictionary, public domain) and reviewed before publishing.

Credits and license for this translation
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Icelandic: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ (New Testament+)
copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc.
Language: Íslenska (Icelandic)
Contributor: Biblica, Inc.
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
Creative Commons License
Þetta verk er gert aðgengilegt samkvæmt CC BY-SA leyfinu (Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License). Til að skoða afrit af þessu leyfi skaltu fara á https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 eða senda bréf til Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, Bandaríkjunum.
Biblica® er vörumerki skráð af Biblica, Inc., og notkun á Biblica® vörumerkinu krefst skriflegs leyfis Biblica, Inc. Samkvæmt skilmálum CC BY-SA leyfisins geturðu afritað og endurdreift þessu óbreyttu verki svo framarlega sem þú heldur Biblica® vörumerkinu óskertu. Ef þú breytir afriti eða þýðir þetta verk og býrð þannig til afleitt verk, verður þú að fjarlægja Biblica® vörumerkið. Á afleidda verkinu verður þú að tilgreina hvaða breytingar þú hefur gert og eigna verkið á eftirfarandi hátt: "Upprunalega verkið eftir Biblica, Inc. er fáanlegt ókeypis á www.biblica.com og open.bible ."
Tilkynning um höfundarrétt verður að birtast á titla- eða höfundarréttarsíðu verksins sem hér segir:
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
Þú verður einnig að gera afleidda verkið þítt aðgengilegt samkvæmt sama leyfi (CC BY-SA).
Ef þú vilt láta Biblica, Inc. vita um þýðingu þína á þessu verki, vinsamlegast hafðu samband við okkur á https://open.bible/contact .
This work is made available under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License (CC BY-SA). To view a copy of this license, visit https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 or send a letter to Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, USA.
Biblica® is a trademark registered by Biblica, Inc., and use of the Biblica® trademark requires the written permission of Biblica, Inc. Under the terms of the CC BY-SA license, you may copy and redistribute this unmodified work as long as you keep the Biblica® trademark intact. If you modify a copy or translate this work, thereby creating a derivative work, you must remove the Biblica® trademark. On the derivative work, you must indicate what changes you have made and attribute the work as follows: “The original work by Biblica, Inc. is available for free at www.biblica.com and open.bible .”
Notice of copyright must appear on the title or copyright page of the work as follows:
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
You must also make your derivative work available under the same license (CC BY-SA).
If you would like to notify Biblica, Inc. regarding your translation of this work, please contact us at https://open.bible/contact .
This translation is made available to you under the terms of the
Creative Commons Attribution Share-Alike license 4.0.
You have permission to share and redistribute this Bible translation in any format and to make reasonable revisions and adaptations of this translation, provided that:
You include the above copyright and source information.
If you make any changes to the text, you must indicate that you did so in a way that makes it clear that the original licensor is not necessarily endorsing your changes.
If you redistribute this text, you must distribute your contributions under the same license as the original.
Pictures included with Scriptures and other documents on this site are licensed just for use with those Scriptures and documents.
For other uses, please contact the respective copyright owners.
Note that in addition to the rules above, revising and adapting God's Word involves a great responsibility to be true to God's Word. See Revelation 22:18-19.
2025-05-03

Source: http://ebible.org/isl/ · eBible.org

Talk to us

Tell us where you read from, how the Bible has helped you, or what we could improve. We read every message.